Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 6

Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MIÐBORG Reykjavíkur skortir skýra stefnumótun í skipulags- og fjárfestingarmálum. Friðun húsa við Laugaveg og á öðrum stöðum í mið- borginni hefur orðið til þess að fjár- festar hika og seinagangur í málefn- um borgarinnar af hálfu borgar- yfirvalda orðið til þess að fjármagn hefur farið annað. Þetta kom fram í máli fulltrúa sjálfstæðismanna í Reykjavík er efndu til fundar í Ráð- húsi Reykjavíkur í gær til að ræða málefni miðborgarinnar. Björn Bjarnason, borgarstjóra- efni Sjálfstæðisflokksins, sagði í er- indi sínu á fundinum að tryggja þyrfti að Reykjavík stæðist kröfur um alþjóðlega samkeppni og að borgin ætti að vera í fararbroddi meðal höfuðborga. Hann taldi mik- ilvægt að minjum í miðborginni yrði sýnd full virðing, sérstaklega í ljósi þess að þar er landnám talið hafa hafist á Íslandi. Sameina bæri sögu, samtíð og framtíð og nauðsynlegt væri að Menntaskólanum í Reykja- vík yrði sköpuð viðunandi aðstaða í miðbænum. Friðun húsa úr hófi fram Inga Jóna Þórðardóttir borgar- fulltrúi ræddi í erindi sínu um Laugaveginn, aðalverslunargötu Reykvíkinga. Sagði hún rekstur hafa að undanförnu verið að færast frá Laugaveginum, verslanir hafi verið að hætta og gatan ætti því í vök að verjast. Ræddi hún sérstaklega um húsafriðun og sagði 32 hús friðuð við Laugaveginn. Taldi hún ómögulegt að þróun og uppbygging ætti sér stað við slíkar aðstæður. Sjálfsagt væri að friða ákveðin hús en gefa þyrfti eigendum frelsi til frekari uppbyggingar. Erfitt væri að fá fjár- festa inn á svæðið vegna þessa. Gagnrýndi hún seinagang borgaryf- irvalda í gerð deiliskipulags fyrir Laugaveg og sagði að á meðan þessi mál drægjust á langinn færi fjár- magnið annað. Sagði hún nauðsyn- legt að ráðamenn hefðu þor til að gera breytingar og nefndi sem dæmi hús sem friðuð hafi verið samkvæmt landslögum. Skýrari stefnumótun nauðsynleg Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arfulltrúi rakti framkvæmdir og að- gerðir í skipulagsmálum sem gerðar voru áður en R-listinn fékk meiri- hluta í borginni. Taldi hann hins veg- ar R-listann ekki hafa staðið fyrir stórframkvæmdum á þessu svæði og að á skorti skýrari stefnumótun í skipulags- og fjárfestingarmálum miðborgarinnar. Taldi hann nauð- synlegt að endurskipuleggja sam- starf hagsmunaaðila miðborgarinnar og setja á stofn öflugt miðborgar- félag. Varpaði hann fram hugmynd um að setja á stofn sérstakan þróun- arsjóð fyrir miðborgina til fram- kvæmda og uppbyggingar. Þá kynnti hann aðra hugmynd sem lýt- ur að bílastæðamálum borgarinnar sem hann telur að þurfi að endur- skoða. Í hugmyndinni felst að leggja niður stöðumæla og þess í stað yrði tekið upp kerfi sem tíðkast víða er- lendis, að ökumenn hafi tímamæla í framrúðum bíla sinna. Í máli Júlíusar Vífils Ingvarssonar borgarfulltrúa kom fram að verslun- um og veitingahúsum í miðborginni hafi fækkað verulega undanfarin ár. Sagði hann veitingahúsum hafa fækkað um 24% árin 2000-2001. Taldi hann Kvosina eiga í mestri vök að verjast og þarfnast endurupp- byggingar. Kvosin væri miðstöð stjórnsýslu höfuðborgarinnar og þarfnaðist sterks baklands. Sagði hann sjálfstæðismenn sjá möguleika á uppbyggingu svæðisins með því að halda í ákveðinn hluta götumyndar- innar og vernda ákveðin hús, en byggja að öðru leyti upp. Jóna Gróa Sigurðardóttir borgar- fulltrúi fjallaði um umferðarmál í borginni og sagði öll bílastæðahús miðborgarinnar hafa verið byggð er Sjálfstæðisflokkurinn var við völd. Síðan hafi lítið gerst í bílastæðismál- um. Auðvelda þarf aðgang að miðborginni Taldi hún lykilatriði að auðvelda aðgengi borgaranna að miðborginni og til þess þyrfti sveigjanlegra skipulag og fleiri bílastæði. Annars muni miðborgin koðna niður. Guðlaugur Þór Þórðarson borgar- fulltrúi sagði á fundinum nauðsyn- legt að háskólasvæðið yrði tengdara miðborginni og auðvelda þyrfti að- gang gangandi vegfarenda yfir Hringbraut við Háskólann. Tengja þyrfti miðborgina betur við göngu- stígakerfi borgarinnar sem sífellt fleiri notfærðu sér. Sagði hann markmið sjálfstæðismanna að stækka miðborgarsvæðið. Guðlaugur fjallaði sérstaklega um framtíð Hegningarhússins við Skóla- vörðustíg. Sagði hann starfsemi hússins verða fundinn nýr staður á næstunni og þá væri hægt að nýta húsið með ýmsum hætti, t.d. sem veitingastað eða safn. Nefndi hann sérstaklega Hljómskálagarðinn og Miklatún í erindi sínu og sagði síðari útivistarstaðinn enn ókláraðan. Hann mætti hins vegar nýta með mun betri hætti fyrir almenning og að nauðsynlegt væri að fá betri teng- ingu miðborgar við Kjarvalsstaði. Þá mætti hugsa sér að á túninu yrði gerður höggmyndagarður eða lysti- garður. Í Hljómskálagarðinum safn- aðist fólk saman á tyllidögum og vanda þyrfti vel allar breytingar á garðinum. Sagði hann sjálfstæðis- menn vera opna fyrir öllu en ítrekaði að varlega yrði að fara. Nefndi hann hugmyndir um lítið kaffihús og svið til smærri uppákoma í garðinum. Hlúa þarf að skólum Síðasti ræðumaður á fundinum var Kjartan Magnússon borgar- fulltrúi og fjallaði hann sérstaklega um framtíð Menntaskólans í Reykja- vík og Kvosina. Í tíð R-listans sagði hann einstefnugötum hafa fjölgað og bílastæðum fækkað sem komið hafi niður á aðsókn að miðborginni. Sagði hann nauðsynlegt að löggæsla í mið- bænum yrði efld og að lögreglan yrði sýnilegri. Næturklúbbum hefði fjölgað á kostnað verslana undanfar- in misseri og aðsókn að listasafninu í Hafnarhúsinu væri dræm. Kjartan sagði miðbæinn öflugt skólasvæði og nauðsynlegt væri að tryggja stöðu skólanna í miðbænum. Sagði hann vonast til þess að skólahald hæfist aftur af krafti í gamla Miðbæjarskól- anum sem nú hýsti aðallega skrif- stofur. Ræddi Kjartan sérstaklega um MR og sagði að hugmyndin væri sú að byggja yfir byggingar skólans sem dreifðust nú um lítið svæði. Með því yrði til nokkurs konar skólaþorp. Lokaorð Kjartans voru á þá leið að hlúa þyrfti að skólastarfi í miðborg- inni og láta uppbyggingu tala í stað ofverndunar og úrræðaleysis. Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna efndu til fundar um málefni miðborgarinnar „Uppbygg- ing í stað of- verndunar“ Morgunblaðið/Ásdís Inga Jóna Þórðardóttir og Björn Bjarnason fluttu ávörp á fundinum í Ráðhúsinu í gærkvöld og Eyþór Arnalds var fundarstjóri. STEFÁN Jón Hafstein fékk afger- andi kosningu í fyrsta sætið og varð sigurvegari í prófkjöri Samfylkingar- innar vegna borgarstjórnarkosning- anna í vor. Steinunn Valdís Óskars- dóttir varð í öðru sæti og Helgi Hjörvar í því þriðja. Niðurstöður lágu fyrir í gærkvöldi og fékk Stefán Jón Hafstein 1.029 at- kvæði í fyrsta sæti. Hann segir að sér þyki vænt um hvað margir hafi hringt í sig í kosningabaráttunni og lýst yfir stuðningi við sig. „Mér tókst það sem ég ætlaði mér, sem var að vekja fólk til umhugsunar og þátttöku út fyrir raðir þrengsta hrings flokksfólks og það skilar þessum árangri fyrst og fremst.“ Hann bætir við að greinilegt sé að engar línur eða hólf séu lengur innan Samfylkingarinnar. „Við erum samfylkingarfólk. Það eru engin göm- ul flokksbönd,“ segir hann og bætir við að ekkert mynstur hafi verið á seðlum. Fólk hafi kosið frjálst en ekki eftir forskrift einhverra foringja. Stefán Jón Hafstein kemur nýr inn á Reykjavíkurlistann og verður þar í þriðja sæti. Hann segir að ekki liggi fyrir hverjir verði fulltrúar Vinstri grænna og Framsóknarflokksins auk þess sem eftir eigi að skipa í sjöunda sætið, „en við höfum alla burði til að vera með frábæran lista og ég er mjög bjartsýnn“. Hann segir að Reykjavíkurlistanum verði stillt upp í lok mánaðarins og þá hefjist starf með nýjum frambjóðendum. Steinunn Valdís Óskarsdóttir fékk 337 atkvæði í fyrsta sæti og 1.217 í fyrsta til annað sætið, en hún hefur verið borgarfulltrúi Samfylkingarinn- ar í tvö kjörtímabil og fékk flest at- kvæði í prófkjörinu. Hún segir að margir hafi spáð sér öðru sæti og innst inni hafi hún vonast eftir því en samt hafi hún óttast að slagurinn sem Stefán Jón og Helgi hafi búið til um fyrsta sætið myndi ýta sér neðar. Því segist hún vera sérstaklega ánægð með víðtækan stuðning í prófkjörinu, rúmlega 60% greiddra atkvæða, og fjórða sætið á Reykjavíkurlistanum. „Ég lít á þetta sem stuðning við okkar störf og mín störf frá því Reykjavík- urlistinn var stofnaður og lít ekki svo á að þessi endurnýjunarkrafa, sem kom meðal annars fram af hálfu Stef- áns Jóns, hafi beinst gegn mér.“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir að listinn sé góður og sigurstrangleg- ur. Þrjú efstu sætin séu bindandi, Helgi Hjörvar sé í níunda sæti Reykjavíkurlistans og það sé sæti sem gæti hrokkið inn í góðu árferði. „Helgi er mikill bardagamaður og ég treysti honum vel til að sitja í því sæti og gera sitt besta þar. Þetta þriggja manna lið er mjög gott.“ Vonbrigði Helgi Hjörvar varð í þriðja sæti. Hann segir að Stefán Jón Hafstein sé ótvíræður sigurvegari og hann óski honum til hamingju. Fyrirsjáanlegt hafi verið að sá þeirra sem ekki næði fyrsta sætinu yrði í því þriðja. Hann hafi aldrei sagt fólki í hvaða sæti það ætti að kjósa sig. Stuðningsmennirnir tækju ákvörðun um það og hann tæki því hlutverki sem þeir óskuðu, en samt væru það vonbrigði að falla úr fyrsta sætinu. Kjósendur væru að lýsa mati sínu á störfum fulltrúanna á kjörtímabilinu og sá dómur væri með þeim hætti fyrir sig að hann hlyti að yfirvega störf sín og reyna að læra af niðurstöðunni. Talningu lokið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Stefán Jón Haf- stein sigurvegari                      ! " # $                            !   "#   $% & !   % &  & ' &   #            (!      ' & (         ÍSLENDINGAR taka á móti Þjóð- verjum í Evrópukeppninni í knatt- spyrnu 6. september 2003 og segir Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, að mikilvægt sé að KSÍ, Reykjavík- urborg og ríkisvaldið taki höndum saman fyrir þann tíma og ljúki við stúkubygginguna á vellinum svo rými verði fyrir 12.000 til 15.000 áhorfendur í sæti. Samið var um leikdaga í riðli Ís- lands á fundi í Frankfurt í Þýska- landi í gær. Eggert Magnússon seg- ir að lögð hafi verið áhersla á að heimaleikurinn á móti Þjóðverjum yrði í lok riðlakeppninnar með það í huga að stúkan yrði tilbúin, en hann hafi sagt á ársþingi KSÍ í lið- inni viku að ríkið hlyti að koma að byggingunni þar sem um þjóð- arleikvang væri að ræða. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, hefði lýst því yfir að hún væri tilbú- in að ganga til viðræðna við KSÍ varðandi fjármögnun á stúkubygg- ingunni og Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, hafi gefið stuðning ríkisins við málið í skyn á heimasíðu sinni. Borgin hefði staðið sig mjög vel varðandi stúkubygg- inguna fyrir fimm árum en þetta væri ekki einkamál hennar og KSÍ heldur yrði ríkið líka að koma að málum. Eggert Magnússon segir að við núverandi aðstæður komist mun færri að en vilji á leikinn við Þjóð- verja. Þýskaland sé einna sigursæl- ast í heimsmeistarakeppninni og Evrópukeppninni og framundan sé stærsti viðburðurinn í íslensku íþróttalífi. Því sé mikilvægt að KSÍ, borgin og ríkið setjist niður sem fyrst og reyni að leysa stúkuað- stæður. Morgunblaðið/Þorkell Mikilvægt að ljúka stúkubyggingunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.