Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 23

Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 23 Draumur kaffiunnenda! Veitum faglega ráðgjöf um val á kaffivélum. Fjölbreytt úrval í mörgum litum og gerðum. SAECO er stærsti framleiðandi expresso-kaffivéla á Ítalíu. Expresso- Cappuccino kaffivélar Verð frá kr. 14.915 stgr. ÞAÐ sem af er ári hefurverið óvenjumikið umtónleika á höfuðborg-arsvæðinu. Eftir anna- sama aðventu hvað tónleikahald varðar voru jól og áramót varla að baki, þegar Myrkir músíkdagar hófust með fjölbreyttum tónleikum víðs vegar um borgina. Í kvöld hefst ný tónleikaröð sameinaðra krafta tónlistarhópanna tveggja, Caput og Ferðalaga. Dagsetningin 20.02 2002 kl. 20.02, var valin sér- staklega fyrir þessa fyrstu tón- leika, því þema hátíðarinnar er symmetría, eða samhverfa, og varla hægt að finna symmetrískari tónleikatíma en þennan. Tónleikaröðin er kölluð 15.15, en allir tónleikar raðarinnar, aðrir en upphafstónleikarnir í kvöld, verða í Borgarleikhúsinu á laugardögum kl. 15.15 fram á vor. Guðni Franz- son í Caput segir að 15.15 sé beint framhald af síðustu tónleikaröð Caput, Malamelódíu, sem haldin var í desember á síðasta ári, og önnur tónleikaröð er svo ráðgerð í haust. Guðni segir að hugmyndin hafi verið að efna til tónleikaraðar þar sem flutt yrðu verk, allt frá einleiksverkum til stærri kamm- erverka fyrir mismunandi tónleika- hópa. Symmetrían er þema rað- arinnar og það er ekki nóg með að dagsetningin og tími fyrstu tón- leikanna sé í fullkominni symmetr- íu, þá eru tónskáldin sjálf bræð- urnir Haukur Tómasson og Jónas Tómasson, og mynda því eins kon- ar symmetríu. Verkin á efnis- skránni mynda einnig symmetríu að sögn Guðna, þar sem speglast einleiksverk og kammerverk af svipaðri stærð eftir hvorn þeirra um sig. Veggspjald tónleikarað- arinnar er líka hannað með þetta form í huga. Kammerverk Hauks, Kópía, hef- ur aðeins einu sinni heyrst áður. „Caput flutti verkið árið 2000, og þá var hugmyndin sú að verkið yrði ekki flutt aftur. Nú er Haukur búinn að endurskapa Kópíu og við fáum að flytja það aftur, og mér finnst þetta satt að segja orðið mjög sterkt og rosalega flott verk. Kammerverk Jónasar, Sjö brot úr sálumessu, var frumflutt vestur á Ísafirði, en verður nú frumflutt í Reykjavík. Þetta er magnað stykki í einfaldleika sínum. Jónas hefur mjög persónulega rödd og þetta er alveg í hans stíl.“ Verkið er samið fyrir flautu, klarinettu, óbó, horn, víólu og harmónikku, og segir Guðni að harmónikkuparturinn sé stór, en það er Tatu Kantooma sem leikur á nikkuna. „Það er líka stór harm- ónikkupartur í Kópíunni hans Jón- asar, og hljóðfæraskipunin í verk- unum tveimur er nokkuð svipuð. Í Kópíu eru svo líka stórir partar fyrir sembal og gítar.“ Jónas samdi Sjö brot úr sálumessu árið 1990. „Ég samdi upphaflega stærra verk fyrir hljómsveit. Mér fannst það of mikið og fannst ég þurfa að klippa það niður, sem ég gerði, bæði að lengd og stærð og umfangi, þar til eftir sátu sjö stutt- ir kaflar fyrir sex hljóðfæri. Það stóð þannig á árið 1990 að það vantaði verk fyrir sex hljóðfæri á tónleika á Ísafirði og það stóð þannig á að ég var akkúrat að ganga frá verkinu þá. Svo dúkkar það upp á Caput tónleikum núna.“ Einleiksverk þeirra Hauks og Jónasar eru Sónata XIV fyrir gítar eftir Jónas, sem Pétur Jónasson leikur og Spring Chicken fyrir klarinettu eftir Hauk, en það leik- ur Guðni. „Þetta er frumflutn- ingur, verkið er stutt; – stuttur klarinettukjúklingur,“ segir Guðni, en einleiksverk Jónasar, samið um 1980, var frumflutt í Hollandi, og hefur heyrst víða síðan. Jónas er búsettur á Ísafirði, en Haukur hefur búið í Hollandi síð- ustu ár, en er nýfluttur heim. Guðni segir að hugmyndin að symmetríuþemanu sé komin frá verki Hauks, Kópíu. „Kópía hafði bara þessi áhrif á alla prógram- gerð seríunnar. Hún er öll samin í kópíum og speglunum og í symm- etrísku formi. Haukur var lengi búinn að horfa á þennan dag sem kjörinn til flutnings á verkinu og tíminn, 20.02, spilaði þar líka inní, og þar með var þetta farið að hafa ráðandi áhrif á alla hugsun okkar um þetta.“ Tónleikarnir verða allir í nýja sal Borgarleikhússins, og segir Guðni að seinna í tónleikaröðinni sé hugmyndin að nýta tæknilega möguleika leikhússins við tónleika- haldið, sérstaklega í leikhúsverki eftir færeyska tónskáldið Kristian Blak, þar sem Guðni segir að sé „algjört galdraleikhússverk.“ Það eru þeir Sigurður Hall- dórsson sellóleikari og Daníel Þor- steinsson píanóleikari sem skipu- leggja Ferðalög, en þeir hafa haldið úti tónleikum undir þessu þema í nokkur ár við mjög góðar undirtektir. Á ferðalagatónleikum eru tekin fyrir ákveðin landssvæði í heiminum og leikin tónlist þaðan. Þar er ekki endilega um að ræða ný verk, heldur er ætlunin að gefa áheyrendum yfirlit í tónum yfir músíksögu þess staðar sem valinn er. Sigurður og Daníelhafa báðir spilað með Caput og segir Guðni Franzson að þeim hafi öllum þótt ákjósanlegt að samnýta þessa krafta. Caput heldur þó á sínum tónleikum fast í þá reglu sína að leika eingöngu nýja tónlist. Á næstu tónleikum tónleikarað- arinnar, í Borgarleikhúsinu á laug- ardag kl. 15.15, verða Ferðalög einmitt á dagskrá, en þeir tón- leikar bera yfirskriftina Sígauna- ljóð. Þar leika þeir Sigurður Hall- dórsson og Daníel Þorsteinsson verk eftir Tékkana Martinù, Benda og Dvorák. Meðal þess athyglisverðasta sem Guðni Franzson nefnir í tónleika- röðinni, eru tónleikar með verkum Færeyinganna Kristians Blaks og Sunleifs Rasmussens, en Caput er einmitt um þessar mundir að hljóð- rita geisladisk með verkum Sun- leifs. Atli Ingólfsson á nokkur verk í tónleikaröðinni, einnig Þorsteinn Hauksson og einnig nefnir Guðni athyglisvert finnskt tónskáld, Jukka Koskinen, en einnig verða flutt verk eftir þekkta löndu hans, Kaiju Saariaho. Tónleikarnir í Borgarleikhúsinu kvöld hefjast kl. 20.02 eins og fyrr segir, og Síg- aunaljóð á laugardag á föstum tíma tónleikaraðarinnar kl. 15.15. Klarinettukjúklingur, Kópía, Sálumessubrot og Gítarsónata leikin í Borgarleikhúsinu Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson 20.02 2002 kl. 20.02. Haukur Tómasson og Jónas Tómasson tónskáld. Í fullkom- inni sam- hverfu LISTRÁÐ Langholtskirkju efndi til annarrar Listafléttu á fimmtugsafmælisári Langholts- safnaðar á laugardag, þegar bar- okkhljómlistarmannahópur flutti ofangreind tvö verk J. S. Bachs, með hugleiðingum Hauks Inga Jónassonar um „Kaffi og trú“ inni á milli. Aðsókn var með betra móti miðað við tíma dags og viku, enda ekkert skíðafæri í fjöllum. Miðað við þýðingu tríósónöt- unnar sem aðalkammergreinar síðbarokksins er merkilegt hvað Bach samdi lítið af slíkum verk- um fyrir tvö raddhljóðfæri og fylgibassa („basso continuo“, þ.e. sembal og selló). Að vísu er sú fræga í Tónafórninni til Friðriks mikla óefað eitt fremsta slíka verk 18. aldar, en annars eru flestar varðveittu sónötur Bachs aðeins fyrir eitt raddhljóðfæri með fylgibassa. Ef marka má Grove verkalist- ann eru nær allar hinna fjögurra eiginlegra tríósónatna Bachs (BWV 1037–40) nú taldar afurðir sona hans, nemenda eða vina, þ. á m. sú í G-dúr. Hún var sem vænta mátti hin ljúffengasta smíð og ágætlega leikin miðað við tak- markaða samspilsreynslu flytj- enda af slíkum verkum, sem afar sjaldan eru hér á boðstólum, jafn- vel að sumartónleikum í Skálholti meðtöldum. Helztu agnúar voru í styrksamvægi, þar sem sellóið var oft fullveikt, og þó einkum treflauta Nardeaus, sem nánast hvarf á neðra tónsviði. Tónlistaríðorð í íslenzku eru því miður stundum tilviljunar- kennd, ef ekki beinlínis villandi, og löngu tímabært að hreinsa til. Má t.d. nefna hið útbreidda fylgi- rödd fyrir basso continuo, sem hunzar þungamiðjuhlutverk bass- ans („fylgibassi“ er ekki fullkom- ið en þó illskárra) og ætti öllu frekar að nota um svonefnda „obbligato“-parta – t.d. flautu- partinn í Kaffikantötunni, sem var seinna Bach-verkið á dag- skrá. Það er ekki á allra vitorði að mesta kirkjutónskáld allra tíma hafi líka verið kaffihúsamúsíkant. Samt sem áður er það söguleg staðreynd, að þegar Tómasar- kantorinn tók 1729 við stjórn „Collegium Musicum“, hljómsveit stúdenta og áhugamanna í Leip- zig, bæði lék hann með og samdi eða útsetti fyrir sveitina á laug- ardagstónleikum hennar í kaffi- húsi Zimmermanns þar í borg um árabil. Kaffikantatan svonefnda er talin frá 1735, samin við texta fastalíbrettista Bachs, „Picand- ers“, er einnig reit texta Sveita- kantötunnar (til heiðurs forföður Dietrichs Fischer-Dieskau), og geisla bæði verkin af góðlátlegum jarðneskum húmor. Þó er Kaffi- kantatan að vonum borgaralegri, og m.a.s. með ávæningi af hinum nýja franska „galanta“ stíl, eink- um í aríu Lieschenar, „Ei, wie schmeckt der Coffee süße“. Ef að líkum lætur hefur aukið á kátínu tónleikagesta við frumuppfærsl- una, að hin kaffisjúka dóttir Schlendrians gamla (= „herra Trassaskapar“) var sungin af ungum pilti dúðuðum upp í kven- mannsfötum. Það sorglegasta við hérum- rædda uppákomu var vitanlega hversu óhemjulangt er almennt á milli kantötuuppfærslna Bachs í höfuðborginni, andlegra og ekki síður veraldlegra, og bera báðar höfuðtónlistarkirkjur svæðisins þar mesta ábyrgð á. Því kær- komnara var að fá loks að heyra þessa gamanperlu eftir jafnvel áratuga legu í láginni, enda þótt svolítið hryndaufur samleikur (og misvel samtaka spil og söngur í sönglesum) bæri vott um rútínu- leysi í greininni. Einsöngvararnir stóðu sig að mestu með prýði. Þýzkuframburður virtist aftur á móti í öfugu hlutfalli við radd- styrk og hlutfallslega slappastur hjá boldangsbassa Jóhanns Smára Sævarssonar. Íslenzk textaþýðing Þorsteins Gylfasonar var ekki alltaf hárnákvæm, en lipur og rétt í anda. Sem eftirkrydd sungu fyrrum Graduale Nobile félagarnir Arn- björg Ösp Matthíasdóttir, Lára Bryndís Eggertsdóttir, Lovísa Árnadóttir og Sigríður Rafnar Pétursdóttir í Kvartettnum Djúsí nettilega gamlan „Java Jive“ smell Bens Oakland við undirleik ónefnds gítarista og uppskáru verðskuldaðan fögnuð. Um kaffifíkn í Leipzig Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Langholtskirkja J. S. Bach: Tríósónata í G BWV 1038. „Schweigt stille, plaudert nicht“, Kaffi- kantata BWV 211. Margrét Bóasdóttir S, Snorri Wium T, Jóhann Smári Sæv- arsson B; Martial Nardeau, flauta; Hildigunnur Haldórsdóttir, Lilja Hjalta- dóttir, fiðlur; Sarah Buckley, víóla; Sig- urður Halldórsson, selló; Richard Korn, kontrabassi; Guðrún Óskarsdóttir, semball. Laugardaginn 16. febrúar kl. 17. LISTAFLÉTTA II

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.