Morgunblaðið - 20.02.2002, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
NÝSKRÁNINGAR einkahluta-
félaga hafa nær tvöfaldast það sem
af er þessu ári samanborið við sama
tímabil í fyrra, en um áramótin
lækkaði skatthlutfall fyrirtækja úr
30% í 18% vegna breytinga á skatta-
lögum.
Í gær höfðu 570 ný hlutafélög og
einkahlutafélög verið skráð hjá fyr-
irtækjaskrá frá áramótum en á sama
tíma í fyrra höfðu 294 ný félög verið
skráð hjá fyrirtækjaskrá og er því
aukningin frá því í fyrra tæp 95%.
Allt árið í fyrra voru tæplega nítján
hundruð ný einkahlutafélög skráð
hjá fyrirtækjaskrá. Ekki liggja fyrir
upplýsingar um í hvaða atvinnu-
greinum þessi fyrirtæki starfa eink-
um.
Skráningum fækkaði í fyrra
Skráningum einkahlutafélaga
fækkaði um 10% allt árið í fyrra sam-
anborið við árið 2000. Í fyrra voru
nýskráð félög 1.871, en allt árið 2000
voru 2.075 ný félög skráð, sem er
fækkun um 10% milli ára. Öll árin
1997-2001 voru flestar nýskráningar
í flokknum fasteignaviðskipti, leigu-
starfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta,
en undir þennan flokk falla atvinnu-
greinar eins og rekstur eignarhalds-
félaga, leiga atvinnuhúsnæðis, hug-
búnaðargerð, rekstrarráðgjöf og
tækniráðgjöf arkitekta og tækni-
fræðinga, að því er fram kemur í
upplýsingum frá Hagstofu Íslands.
Árið 2001 voru nýskráningar í þess-
um flokki 512 eða 27% af öllum ný-
skráningum á árinu. Flokkurinn sem
kom næstur á eftir er verslun og ým-
is viðgerðarþjónusta en þar voru ný-
skráningarnar í fyrra 274 talsins.
Þegar einstakar atvinnugreinar
eru skoðaðar kemur í ljós að ný-
skráningar eru flestar í flokknum
húsbyggingar og önnur mannvirkja-
gerð, eða 126. Næst á eftir er rekstur
eignarhaldsfélaga, 75 og þá leiga at-
vinnuhúsnæðis, 69 og smábátaút-
gerð 62 talsins.
Nærri tvöfalt fleiri
einkahlutafélög
MIKILL skafrenningur, hálka og
hvassviðri var á Suður- og Suðaust-
urlandi í gærdag. Töluverð snjó-
koma var í Vestmannaeyjum og
þæfingur seinni partinn í Vík í Mýr-
dal. Veðrið var að mestu gengið
niður í gærkvöldi, en fram að því
hafði verið mjög blint og ökumenn
lent í erfiðleikum víða. Að sögn
Jónasar Erlendssonar, fréttaritara
Morgunblaðsins, sást ekki milli
stika á vegum við Vík og lögreglan
þurfti að aðstoða ökumenn sem fest
höfðu í sköflum í Víkurþorpi og víð-
ar. Börn af sveitabæjum í nágrenni
Víkur komust ekki til skóla í gær
vegna veðursins. Þá var töluvert
hvassviðri undir Eyjafjöllum og á
Mýrdalssandi. Þá var skafrenn-
ingur sums staðar á Suðurlandi og
Reykjanesi og eins á Fróðárheiði
og víða á Vestfjörðum í gærdag.
Veðrið var öllu bjartara í Reykja-
vík í gær þó að þungt hefði verið yf-
ir. Spáð er suðvestan 10-15 metrum
á sekúndu á Suðausturlandi og élj-
um upp úr hádegi í dag, en minnk-
andi vestanátt og éljum um kvöldið.
Þá er einnig von á éljagangi á höf-
uðborgarsvæðinu í dag og snjó-
komu með kvöldinu. Það er því ær-
ið tilefni fyrir höfuðborgarbúa til
að draga fram sleðana.
Morgunblaðið/Golli
Lögreglan þurfti að koma ökumönnum til hjálpar í Vík í Mýrdal í gær-
dag þar sem ferðaveður var lítið og færðin þung. Höfuðborgarbúar
voru heppnari með veður, þó að dimmt hafi verið yfir lengst af.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hálka og
hvassviðri á
Suðurlandi
STJÓRN Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga, SÍS, kemur saman til
fundar á Bifröst í Borgarfirði í dag í
tilefni 100 ára afmælis sambandsins,
sem stofnað var 20. febrúar 1902 að
Ystafelli í Köldukinn. Undirrita á tví-
þætt samkomulag við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst um ritun á sögu SÍS
í 100 ár annars vegar og hins vegar
um að kanna hvernig samvinnu-
félagsformið er notað í viðskiptum á
erlendri grund og á hvaða sviðum það
gæti hentað á Íslandi á 21. öldinni.
Tíu ár eru liðin síðan starfsemi SÍS
sem fyrirtækis lagðist niður og starf-
seminni var skipt upp í sex deildir
sem urðu sjálfstæð hlutafélög. Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, stjórnar-
formaður SÍS, segir m.a. í viðtali við
Morgunblaðið í dag að sögu sam-
vinnuhreyfingarinnar hafi síður en
svo verið lokið fyrir tíu árum. Sam-
vinnufélagsformið henti á ákveðnum
sviðum en öðrum ekki og það sé í
notkun víða um heim.
Ómaklegt að dæma
formið dautt
„Aðallega á það vel við á þeim svið-
um þar sem ekki er þörf á miklu fjár-
magni heldur fyrst og fremst þátt-
töku margra aðila. Það er mjög
ómaklegt ef menn dæma formið sem
slíkt dautt,“ segir Jóhannes sem sér
SÍS fyrst og fremst fyrir sér í fram-
tíðinni sem regnhlífarsamtök sam-
vinnufélaganna. SÍS hafi aldrei tekist
að verða regnhlífarsamtök allra sam-
vinnufélaga.
Stjórn SÍS semur
við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst
Möguleikar
samvinnu-
félaga á 21.
öld kannaðir
Samvinnufélögin/26–27
NOKKRAR tegundir af græn-
meti lækka í verði í verslunum
Hagkaupa í dag eða um 10,7%
að meðaltali. Eru þetta fyrstu
verðlækkanir á grænmeti til
neytenda sem raktar eru til
áhrifa af ákvörðunum græn-
metisnefndarinnar svonefndu
um niðurfellingu verðtolla af
grænmeti. Útsöluverð á kína-
káli lækkar úr 297 kr. kg í 249,
blómkál lækkar úr 566 kr. í 529
kr. Verð á brokkólí lækkar úr
567 kr. í 539, sellerí lækkar úr
379 kr. í 314 kr. og púrra fer úr
319 kr. í 269 kr./kg.
Hagkaup
lækka
grænmet-
isverð
LÖGREGLAN í Reykjavík segist
merkja nokkra fjölgun ofbeldisbrota í
Vesturbænum, þ.e. á svæðinu vestan
Lækjargötu, á árinu 2000, en fækkun
slíkra brota í Austurbænum, austan
Lækjargötu, og sömuleiðis fækkun í
miðbæ Reykjavíkur.
„Okkur virðist sem það hafi heldur
dregið úr ofbeldisbrotum á mynda-
vélasvæðinu,“ segir Guðmundur
Gígja aðstoðaryfirlögregluþjónn um
þróunina í miðborg Reykjavíkur, þar
sem eftirlitsmyndavélar hafa verið í
notkun í rúm þrjú ár. Lögreglan hef-
ur ekki handbærar tölur um um-
rædda þróun en eftir því sem lögregl-
an kemst næst virðast þessar breyt-
ingarnar á tíðni ofbeldisbrota vera
staðreynd.
„Þarna er um að ræða ofbeldisbrot,
allt frá minnstu líkamsárásum sem
skráðar eru til manndrápa,“ segir
Guðmundur. Benda má á, að sam-
kvæmt ársskýrslu lögreglustjórans í
Reykjavík fyrir 2000, fjölgaði til-
kynntum ofbeldisbrotum úr 681 árið
1997 í 831 árið 2000. Þar af fjölgaði al-
varlegum árásum úr 11 í 20 og minni-
háttar árásum úr 74 í 109. Í skýrsl-
unni kemur fram að 50% tilkynntra
brota áttu sér stað á póstnúmera-
svæði 101, þar af tæplega 96% í og við
miðborgina. Næst flest tilkynntra
brota áttu sér stað í póstnúmerasvæði
105, í Hlíðum og Holtum og Túnum,
eða 7,6% tilkynntra brota.
Fjölgun ofbeld-
isbrota í vest-
urborginni
Morgunblaðið/Golli