Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLANDSMEISTARARNIR í brids
komust ekki í úrslitakeppnina í ár
og segir Örn Arnþórsson, einn
meistaranna, að þetta sé í fyrsta
sinn sem slíkt gerist, en und-
ankeppnin fór fram í Borgarnesi
um helgina.
Örn Arnþórsson og Guðlaugur
R. Jóhannsson hafa spilað saman í
sveit síðan 1972 og er þetta í ann-
að sinn sem þeir spila ekki í úr-
slitakeppninni, en hún hefur farið
fram um páska. Örn segir að þeg-
ar þeir voru í sveit með Hjalta
Elíassyni, sem hafi gjarnan haft
mikla yfirburði, hafi þeir einu
sinni fallið út í undankeppninni
eins og nú. Þetta hafi verið í
kringum 1980 og þá hafi aðeins
efsta sveit hvers riðils komist
áfram en ekki tvær eins og nú.
Örn segir að fyrirkomulagið sé
nokkuð viðkvæmt og því verði
menn að vera upp á sitt besta til
að komast áfram. Hættan á að
falla úr keppni sé alltaf fyrir
hendi og það komi fyrir alla, þótt
Íslandsmeistarar hafi ekki lent í
því fyrr. Hann bætir við að engin
ein skýring sé á óförunum og get-
ur þess að sveitin standi vel. Hún
sé efst hjá Bridsfélagi Reykjavík-
ur og hafi farið í gegnum
Bridshátíð og annað með góðum
árangri. „Þetta er bara spurning
um dagsformið,“ segir hann, „og
menn bíta í skjaldarrendur.“
Auk tvímenninganna hafa
bræðurnir Anton og Sigurbjörn
Haraldssynir verið í sveitinni í
þrjú ár en þetta er fyrsta ár
Helga Jónssonar og Helga Sig-
urðssonar í hópnum. Bræðurnir
eru landsliðspar og fara á ólymp-
íumót í sumar en hinir gefa ekki
lengur kost á sér í landslið og
næsta verkefni sveitarinnar er því
bikarmót í sumar.
Tvímenningarnir hafa lengi
verið í hópi bestu bridsspilara
landsins og urðu m.a. heimsmeist-
arar 1991, en í kjölfarið komu
þeir ásamt félögum sínum með
Bermúdaskálina frægu til lands-
ins. Páskarnir hafa verið frátekn-
ir fyrir úrslitakeppni Íslandsmóts-
ins í þrjátíu ár en sem stendur
blasir aðgerðarleysi við. „Nú þarf
að finna sér eitthvert annað
áhugamál,“ segir Örn. Hann segir
að skíði eða golf komi fyrst upp í
hugann en þar sem sumir hafi
verið að koma af skíðum virðist
valið auðveldara. „Ætli við verð-
um ekki að finna okkur golfferð.
Við skoðum að minnsta kosti hvað
er í boði.“
Íslandsmeistararnir í brids komust ekki í úrslit
Spá í
golf í
staðinn
Morgunblaðið/Arnór
Örn Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson með Íslandsmeistaraverð-
launin í fyrra. Þeir verða fjarri góðu gamni um komandi páska.
ANNA Margrét Sigurðardóttir lést í
umferðarslysinu í Lögbergsbrekku á
Suðurlandsvegi á laugardag. Hún
var 11 ára, fædd hinn 25. október
1990, til heimilis í Rauðaskógi í Bisk-
upstungum.
Ranglega var farið með fæðingar-
dag hennar í Morgunblaðinu í gær
og er beðist velvirðingar á því.
Tveir aðrir slösuðust en þeir eru
ekki taldir í lífshættu.
Lést í
bílslysi
Anna Margrét
Sigurðardóttir
FRAMKVÆMDIR við endurnýjun
neðri hluta Skólavörðustígs og
hluta Bankastrætis hófust á
mánudag. Fyrsti hluti fram-
kvæmdanna er frá Skólavörðustíg
að Ingólfsstræti. Breytingarnar
felast í því að endurnýja yfirborð
Skólavörðustígsins frá Týsgötu/
Klapparstíg og niður Bankastræti
að Ingólfsstræti. Framkvæmdir
hófust í Bankastræti, rétt ofan
við Ingólfsstræti. Þá taka við
framkvæmdir að Laugavegi og
loks upp Skólavörðustíginn að
Klapparstíg/Týsgötu. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdum ljúki í lok
ágúst en þær eru sagðar kosta
um 200 milljónir króna
Morgunblaðið/Júlíus
Endurnýjun gatna í
miðbænum hafin
OLÍUFÉLAGIÐ hf., Essó, hefur
ákveðið að afturkalla beiðni sína um
úrskurð vegna þess að hald var lagt á
tölvugögn við rannsókn Samkeppn-
isstofnunar á meintum brotum olíu-
félaganna á samkeppnislögum. Sam-
keppnisstofnun lagði fram
greinargerð sína vegna málsins fyrir
Héraðsdómi í gær. Ákveðið var að
taka mál Skeljungs út úr og flytja
það og fer málflutningur fram 19.
mars næstkomandi og ræðst niður-
staða í máli OLÍS af niðurstöðunni í
máli Skeljungs þar sem um sam-
bærileg mál er að ræða.
Kristinn Hallgrímsson, lögmaður
Olíufélagsins hf., sagði að félagið
teldi þetta rökrétta ákvörðun. Það
færi illa saman að standa í stríði við
aðila sem þeir væru að óska eftir
samstarfi við. Þá teldi félagið sig
hafa fengið tryggingu fyrir því að
ekki yrði farið í tölvugögn starfs-
manna félagsins án samþykkis
þeirra nema þá að undangengnum
dómsúrskurði og þess vegna teldu
þeir að persónuvernd þeirra væri
tryggð. Kristinn sagði að með þessu
væru þeir að minnsta kosti tíma-
bundið að afsala sér möguleikanum á
að fá álit Hérðasdóms á framkvæmd
leitarinnar og því að leggja hald á
tölvugögnin, en teldu sig vera að
fórna minni hagsmunum fyrir meiri.
Niðurstaða Héraðsdóms í málinu
myndi fyrst og fremst segja til um
hvernig staðið yrði að framkvæmd
svona aðgerða í framtíðinni, en
myndi væntanlega hafa lítil áhrif á
framkvæmdina í þessari rannsókn.
Samstarfið komið í gang
Kristinn bætti því við aðspurður
hvort eitthvað hefði skýrst varðandi
það að leggja fram viðbótargögn frá
Olíufélaginu vegna rannsóknar Sam-
keppnisstofnunar og hvernig að því
yrði staðið að þeir hefðu átt fund
með stofnuninni í þessari viku og
samstarfið væri komið í gang.
Essó dregur til baka mál
gegn Samkeppnisstofnun
Málflutningur fer fram í næstu
viku í máli Skeljungs
TÆPLEGA fertugur karl-
maður var dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær fyrir
að aka jeppabifreið í Garða-
bæ í október en hann hafði
verið sviptur ökuréttindum
ævilangt. Hafði hann margrí-
trekað gerst sekur um ölv-
unarakstur og önnur umferð-
arlagabrot og sætt fangelsi af
þeim sökum.
Maðurinn viðurkenndi að
hafa ekið bifreiðinni en hélt
uppi vörnum í málinu og
krafðist þess aðallega að
hann yrði sýknaður þar sem
hann væri með gilt banda-
rískt ökuskírteini undir hönd-
um og hefði ekið athuga-
semdalaust um nokkurt skeið
í Noregi. Hélt hann því fram
að sér hefði verið tjáð af þar-
lendum yfirvöldum að öku-
skírteini þetta veitti honum
rétt til aksturs í landinu.
Taldi sig vera
í góðri trú
Taldi hann sig því í góðri
trú um að skírteinið veitti
honum rétt til að aka bifreið
á Íslandi einnig. Á það féllst
dómari ekki og sagði einungis
íslensk yfirvöld geta veitt
leyfi til að stjórna ökutækjum
hér á landi.
Maðurinn var dæmdur til
að borga allan sakarkostnað,
þar með talin 30.000 króna
málsvarnarlaun skipaðs verj-
anda síns, Magnúsar Inga
Erlingssonar hdl. Arnþrúður
Þórarinsdóttir fór með málið
f.h. lögreglustjórans í Hafn-
arfirði. Ólöf Pétursdóttir
dómstjóri kvað upp dóminn.
Dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi
Erlenda
ökuskír-
teinið
dugði ekki