Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ hreinlætistæki Heimilisdagar Ver› á›ur 27.885 kr. Ver› nú 22.295 kr. 33,3x33,3 cm Ver› 2.389 kr. m 10-40% afsláttur 2 gólfefni málning ljós Miramar loftljós, hvítt Verð áður 1.695 kr. Verð 995 kr. Sími 525 3000 • www.husa.is Kúpull Blöndunartæki Gólfflísar Innanhússmálning JOTAPROFF 10 ltr, gljástig 07 Verð áður 6.795 kr. Verð 4.990 kr. Það er hákarl í lauginni… 7. bekkingar heimsækja kirkjugarða Börnin frædd um dauðann NÚ UM stundir ernýhafið sam-starfsverkefni grunnskólanna annars vegar og Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæm- is hins vegar sem miðar að því að nemendur í 7. bekk grunnskólanna, 12 ára krakkarnir, heimsæki KGRP og kynni sér þá starfsemi sem þar fer fram. Þórsteinn Ragnars- son, forstjóri KGRP, svar- aði nokkrum spurningum Morgunblaðsins. Hvað er búið að vinna í þessu máli lengi? „Undirbúningur af hálfu Kirkjugarða Reykjavíkur- prófestsdæma (KGRP) hefur staðið yfir með hléum í rúmlega ár. Skip- uð var fjögurra manna undirbún- ingsnefnd sem í voru skólastjóri, sálfræðingur, sóknarprestur og forstjóri KGRP. Fyrsti nemenda- hópurinn kom 6. mars sl. og voru þar á ferðinni 60 börn úr Breiða- gerðisskóla ásamt kennurum.“ Hver er tilgangurinn með verk- efninu? „Fyrir rúmum mannsaldri var dauðinn ekki það tabú sem hann er í dag. Í gegnum aldanna rás og fram undir miðja síðustu öld var algengast að fólk andaðist inni á heimilunum. Allur þorri fólks, jafnt ungir sem aldnir, upplifðu hvernig dauðinn knúði dyra. Nú deyja flestir á sjúkrahúsum eða elliheimilum og einstaklingar sem komnir eru um eða yfir miðjan aldur hafa jafnvel aldrei séð lík. Við höfum forðast eins og heitan eldinn að horfast í augu við þá staðreynd að eitt sinn skal hver deyja. Þessi ótti skapar ákveðna firringu. Tilgangur fræðslu KGRP er að gera börnin hæfari til að mæta og vinna úr áföllum vegna ástvinamissis og gefa þeim tækifæri til að ræða þessi mál út frá eigin forsendum og í samhengi við námsefnið sem farið er yfir í skólunum fyrir heimsókn.“ Hvernig eru börnin undirbúin? „Undirbúningsnefndin tók saman námsefni: Kennarahefti og nemendahefti. Í kennaraheftinu er farið yfir helstu áhersluþætti, s.s. hvers ber að gæta, þegar þessi mál eru rædd og farið er yfir helstu þætti útfarar. Í nemenda- heftinu er uppistaðan sagan „Auða sætið“ sem segir frá bíl- slysi sem leiðir til dauða ungs nemenda og hvernig bekkjar- félagarnir og skólinn taka á því. Námsefnið er sent með tveggja vikna fyrirvara í þá skóla sem ætla að senda 7. bekk í heimsókn. Skólastjóri og kennari ákveða síð- an með hvaða hætti þeir tengja námsefnið skólastarfinu og þegar yfirferð er lokið kemur hópurinn í heimsókn í Fossvogskirkju á ákveðnum degi.“ Er ekki heldur snemmt að ræða dauðann við svo unga krakka? „Nei, allir sem að þessu máli hafa komið eru sam- mála um að 7. bekkur í grunnskóla sé rétti aldurinn, 12 ára. Börn eru mun opinskárri nú til dags en þau voru fyrir 20 til 30 árum og þau eru mjög móttækileg á þessum aldri, sérstaklega fyrir þeim hlutum sem þau vita að hafa legið í lág- inni, en eru hluti af lífi hvers og eins. Þessi áhugi þeirra er hluti af þroskaleit hvers einstaklings.“ Er þetta umdeilt eða talið hið besta mál? „Ég hef ekki heyrt neinn gagn- rýna þetta framtak KGRP en fjöl- margir hafa hvatt okkur áfram. Við teljum að þessi fræðsla rúm- ist vel innan starfsemi KGRP. Rétt er að taka fram að hér er ekki um trúmálafræðslu að ræða, kirkjugarðarnir eru fyrir alla, án tillits til trúarbragða.“ Hvernig fer svo kynningin fram? „Heimsóknin hefst að morgni dags og dagskráin tekur tæpar sextíu mínútur. Myndbandið „Frá vöggu til grafar“ er sýnt og er það fræðslumyndband um starfsemi kirkjugarða og útfararþjónustu. Sýndar eru myndir úr líkhúsi og bálstofu og sagt er frá því hvernig kistulagningarbæn og útför fara fram og fylgst er með jarðsetn- ingu í kirkjugarði. Eftir sýningu myndarinnar tekur við fyrirlestur með myndrænu ívafi. Fyrirlesar- inn gefur nemendum kost á að spyrja jafnóðum og leitast við að svara hverjum og einum. Segja má að fyrirlesturinn sé útdráttur helstu þátta af myndbandinu. Óhætt er þó að segja að tilgangur umfjöllunarinnar í Fossvogs- kirkju sé ekki að gera börnin sorgbitin heldur að vekja hjá þeim ábyrgðartilfinningu, fræða þau og gera þau hæfari til að tak- ast á við veruleika lífsins.“ Hvað munu mörg börn koma og skoða hjá ykkur? „Við tökum á móti pöntunum frá grunnskólum Reykjavíkur út mars og heimsóknir til okkar verða skipulagðar fram yfir miðj- an apríl.Þrír grunn- skólar með um 200 börn hafa tilkynnt þátttöku og vonumst við til að fleiri bætist í hópinn á næstu dögum. Námsefninu er dreift án endur- gjalds og heimsóknin er skólun- um að kostnaðarlausu, ef undan er skilinn akstur með börnin til og frá kirkju. Það er skoðun mín að þessi fræðsla sé verulegt búsílag fyrir grunnskólanna og þeir eigi sem flestir að nýta sér tilboð KGRP. Á næsta skólaári munum við taka á móti hópum frá nóv- ember og út janúar 2003.“ Þórsteinn Ragnarsson  Þórsteinn Ragnarsson er fæddur á Akureyri 25. sept- ember 1951. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1971 og Cand Theol frá HÍ 1978. Lauk prófi frá end- urmenntun HÍ í viðskipta- og rekstrarfræðum 1991. Var sókn- arprestur, bóndi og kennari á Miklabæ í Skagafirði frá 1978– 85. Prestur Óháða safnaðarins 1985–95 og deildarstjóri við- skiptadeildar Rafmagnsveitu Reykjavíkur á sama tíma. Er nú forstjóri KGRP. Maki er Elsa Guðmundsdóttir bankaritari og eiga þau fjórar dætur. ...ekki að gera börnin sorgbitin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.