Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MANNANÖFN á Sri Lanka reyna allajafna mjög
á framburðarfærni útlendinga, en vopnahlé á
milli stjórnarhersins og skæruliða úr röðum
Tamílatígra hefur leitt til þess, að mörgum
heimamanninum vefst tunga um tönn. Fjöl-
miðlar á Sri Lanka misþyrma hvað eftir annað
nöfnum Skandinavanna sem fylgjast með vopna-
hléinu í norð-austurhéruðum eyjarinnar og einn-
ig nöfnum norskra frammámanna sem taka þátt
í friðarumleitunum.
Yfirmaður vopnahléseftirlitsnefndarinnar,
norskur hershöfðingi á eftirlaunum, reyndist
sérstaklega erfiður tungubrjótur. Hann heitir
Trond Furuhovde, en ekki er víst að hann myndi
kannast við nafnið eins og það er borið fram á
öldum ljósvakans á Sri Lanka. Sjónvarps-
fréttaþulir hafa líka skrumskælt nafnið hans.
Eftir að hafa reynt nokkrum sinnum að bögglast
í gegnum „Furuhovde“ tóku sum dagblöðin til
bragðs að kalla hann bara norska eftirlauna-
hershöfðingjann, til að forðast vandræði.
Tveir aðrir Norðmenn sem eru í för með Furu-
hovde, þeir Svein Marius Myklebust og Helge
Syversen, hafa vart verið nefndir á nafn. „Ef þér
finnst norsku nöfnin erfið, bíddu bara þangað til
Svíarnir og Finnarnir koma,“ sagði embætt-
ismaður í utanríkisráðuneytinu, sem við-
urkenndi að skandinavísku nöfnin hefðu reynst
heimamönnum erfið.
Vopnahléseftirlitsnefndin verður skipuð 18
mönnum frá Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Dan-
mörku. Furuhovde verður yfirmaður nefnd-
arinnar. Hann mun aftur á móti þurfa að ráða
fram úr nöfnum tveggja helstu ráðamannanna á
Sri Lanka, forsætisráðherrans Ranil Wickremes-
inghe, og leiðtoga Frelsishreyfingar Tamíla,
Velupillai Prabhakaran.
Nafn þess síðarnefnda er stafað og borið fram
á ýmsan máta, t.d. Piripaharan, Prabakharan,
eða Prabhakaran. Skírnarnafn forsætisráð-
herrans, Ranil, er ekki mjög erfitt að bera fram,
en Wickremesinghe getur reynst þrautin þyngri.
Hægt er að stafa nafnið á nokkra mismunandi
vegu, t.d. Wickramasingha, Wickremasinha. Allt
hljómar þetta eins, en mismunurinn á stafsetn-
ingunni skírskotar til mismunandi stéttarstöðu.
Röng stafsetning gæti móðgað hreintungusinna.
Ritstjórinn Manik de Silva rifjaði upp, að fyrir
nokkrum áratugum voru blaðamenn stærsta út-
gáfufyrirtækisins á Sri Lanka, Lake House, sekt-
aðir fyrir að sjást yfir mismunandi stafsetningu.
Nú beinist athygli manna að skandinavískum
nöfnum, sem flest eru Sri Lanka-búum framandi.
Fjölmiðlar hafa aldrei fyrr rekið sig á viðlíka
tungubrjóta við vinnslu stærstu fréttanna í land-
inu. Talsmaður norska sendiráðsins, Tomas
Strangeland, hefur einnig orðið fórnarlamb
nafnamisþyrminga fjölmiðla, sem sumir hafa
kallað hann „Strangle-land“ (sem á ensku myndi
þýða „kyrkingarland“), eða „Strangeland“
(„furðuland“). Jafnvel í fréttatilkynningu frá
ríkisstjórn Sri Lanka var nafni fyrrverandi for-
sætisráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik,
klúðrað og hann nefndur „Bonda Vik“.
Skandinavískir
tungubrjótar
Colombo á Sri Lanka. AFP.
AP
Trond Furuhovde heilsar upp á Vellupillai
Prabhakaran í síðustu viku.
FÁNI Grænhöfðaeyja var með-
al þeirra þjóðfána sem sjá mátti
á forsíðumynd Morgunblaðsins
í gær frá athöfn við Hvíta húsið
í Washington í tilefni þess að
hálft ár var liðið frá hryðju-
verkunum í Bandaríkjunum 11.
september. Fáninn er ekki
ósvipaður íslenska fánanum og
höfðu margir lesendur sam-
band við Morgunblaðið og veltu
því fyrir sér hvort þarna væri
um íslenska fánann að ræða.
Fáninn var gerður að þjóðfána
Grænhöfðaeyja 1992 þegar
landið rauf tengsl við Gínea-
Bissá. Fáninn er blár í grunn-
inn með tveim hvítum röndum
og rauðri rönd og tíu gulum
stjörnum í hring, sem tákna
Grænhöfðaeyjarnar tíu.
Ekki
íslenski
fáninn
SPÁR um að mannfjöldi á jörðunni
verði um 10 milljarðar í lok 21. aldar
virðast ekki ætla að ganga eftir, að
sögn sérfræðinga Sameinuðu þjóð-
anna í lýðfræði. Á ráðstefnu þeirra
á mánudag var rætt um að lækka
spárnar í 8–9 milljarða.
Margt veldur lækkandi fæðing-
artíðni, ekki síst notkun getnaðar-
varna. Þær valda því að konur geta
nú stýrt betur þróun mála og ákveð-
ið sjálfar hvort og hvenær þær vilja
verða barnshafandi. Breyttar hug-
myndir um stöðu kvenna hafa sín
áhrif, einnig fer ungbarnadauði víð-
ast lækkandi og heilsugæsla tekur
framförum. Áður fyrr eignaðist
sveitafólk fjölda barna vegna þess
að reynslan kenndi að mörg þeirra
myndu deyja í æsku.
Sveitafólk flykkist til borganna
og þar er ekki þörf á að eignast
fjölda barna til að sinna jarðrækt-
inni eins og í heimahögunum. Fæð-
ingartíðni hefur lækkað hratt síð-
ustu áratugi í mörgum löndum í
fjölmennum þróunarríkjum sem áð-
ur átt mikinn þátt í að heildartala
fólks á jörðunni hækkaði lengi
hratt.
Stofnunin notar tölur frá 74 aðild-
arríkjum sem viðmiðun um fæðing-
artíðni en þar á hver kona að jafnaði
2,1 til 5 börn um ævina. Um 43%
íbúa heims búa í þessum löndum en
meðal þeirra eru Bangladesh, Bras-
ilía, Egyptaland, Indland, Indón-
esía, Íran, Mexíkó, Filippseyjar og
Íran. Rannsóknir benda til þess að
um 2050 verði fæðingartíðnin orðin
að meðaltali 1,85 í þessum ríkjum
sem myndi merkja verulega fækk-
un. Í Indlandi einu yrði fækkunin
um 85 milljónir manna. Tíðnin er nú
þegar komin í 1,8 í Kína en í Guate-
mala og Súdan er hún enn mjög há
eða 4,9.
„Þetta eru vatnaskil vegna þess
að þegar tíðnin fer niður fyrir tvö
börn, eins og reyndin er í Evrópu,
fer þjóðinni að fækka,“ sagði Joseph
Chamie, yfirmaður mannfjölda-
stofnunar SÞ. Standist nýju spárnar
mun fara svo að lokum að heildar-
mannfjöldi á jörðunni taki að lækka
þó að það gerist ekki á þessari öld.
Mannfjölgun í heiminum
minni en spáð hafði verið
Sameinuðu þjóðunum. AP.
Konur kjósa að eiga færri börn en áður
TVEIR menn í búningi rómverskra skylmingaþræla skemmtu ferðafólki
við Colosseum í Róm í gær. Var annar þeirra með alvörusverð og það varð
til þess, að hann var kærður. Getur hann átt þriggja ára fangelsi yfir höfði
sér fyrir ólöglegan vopnaburð. Hinn maðurinn var bara með plastsverð.
Reuters
Vígalegir skylmingaþrælar við Colosseum
ERHARD Jakobsen, eindreg-
inn talsmaður evrópskrar ein-
ingar og stofnandi Miðdemó-
krataflokksins, lést síðast-
liðinn sunnudag, 85 ára að
aldri.
Jakobsen sagði sig úr Jafn-
aðarmannaflokknum 1973 og
stofnaði þá ásamt fleiri Mið-
demókrataflokkinn. Hefur
enginn flokkur tekið jafn ein-
dregna afstöðu með náinni
samvinnu Evrópuríkjanna og
berst fyrir því, að Danir taki
upp evruna sem gjaldmiðil.
Stjórnmálaferill Jakobsens
hófst fyrir alvöru 1953 er
hann var kjörinn á þing fyrir
jafnaðarmenn en taldi sig
lengi vera heldur hægra meg-
in við þá. Var hann síðan for-
maður Miðdemókrataflokks-
ins frá stofnun til 1989 er
dóttir hans, Mimi Jakobsen,
tók við formennskunni.
Jakobsen var stundum kall-
aður „Höfðingi einbýlishús-
anna“ vegna baráttu hans fyr-
ir hagsmunum húseigenda og
„hins venjulega Dana“. Hefur
hans verið minnst mjög hlý-
lega og meðal annars sagði
Poul Nyrup Rasmussen, fyrr-
verandi forsætisráðherra jafn-
aðarmanna, að Jakobsen hefði
ávallt barist fyrir hag allra og
aldrei gert sér mannamun.
Erhard
Jakobsen
látinn
Kaupmannahöfn. AP.
ÞÚSUNDIR húseigenda í bæjar-
félaginu Farum í Danmörku sjá
fram á verðfall á húseignum sínum á
næsta ári vegna mikilla og óhjá-
kvæmilegra skattahækkana. Kemur
þetta m.a. fram í Jyllands-Posten.
Talið er, að verð á húseignunum
muni falla um 15% vegna skatta-
hækkana og ástandsins í bænum,
sem lengi hefur verið litið til sem fyr-
irmyndar annarra bæjarfélaga. Þar
hefur verið mikill uppgangur, mikil
einkavæðing og einkaframkvæmd,
sem fólst þó í því að binda bæjarbúa
á skuldaklafa næstu 20 árin. Nú er
bæjarfélagið gjaldþrota og undir op-
inberu eftirliti.
Verðfall
í Farum