Morgunblaðið - 13.03.2002, Side 28

Morgunblaðið - 13.03.2002, Side 28
UMRÆÐAN 28 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÚ þegar daglegar fréttir berast af því að Ísraelar og Palestínu- menn drepa hver annan undrast maður þögn ís- lenskra stjórnvalda. Er ekki kominn tími til að stjórnvöld hér á landi beiti sér – þó af veikum mætti sé – fyrir réttlátri, og því varanlegri, lausn? Það virðist gefa auga leið að á meðan Palest- ínumenn fá ekki að lifa með höfuðið hátt á eigin landi, þá getur aldrei orðið friður meðal þess- ara tveggja þjóða. Fyrir hundrað ár- um var landið arabískt, en nú hafa mál þróast þannig að Palestínumenn búa hvergi við eðlilegar aðstæður í eigin ríki. Stór hluti þeirra býr í flóttamannabúðum eða í útlegð en aðrir eru annars flokks þegnar í Ísr- ael. Víst var þeim skammtað sjálf- stjórnarsvæði fyrir nokkrum árum, en nú veður þar Ísraelsher inn og út með ofbeldi og morðum. Nú væri hægt að fjalla um ástæður ofbeldisins í löngu máli en það skal ógert hér. Hins vegar ber að huga að því sem kemur í veg fyrir það að frið- ur náist: Palestínu- menn eru kúgaðir, auð- mýktir og órétti beittir. Eins og eðlilegt er við slíkar aðstæður bregð- ast menn við á ólíkan hátt: sumir kvarta óánægðir en aðrir berj- ast fyrir réttlæti með hryðjuverkum og fórna lífi sínu… og taka um leið líf annarra. Lausnin á vandanum hlýtur að vera sú að báðir geti lifað í góðri sátt. Þess vegna verða Palestínumenn að fá að stofna ríki á því landi sem Sameinuðu þjóðirnar úthlutuðu þeim árið 1947 og þeir verða að fá hluta Jerúsalem fyrir höfuðborg. Þetta eru grundvallarat- riði. Önnur mál, eins og afdrif Palest- ínumanna í útlegð, hljóta að vera sam- komulagsatriði. En nú má spyrja hvað þetta komi okkur Íslendingum við; hvað getum við gert? Það er víst að deiluaðilar munu ekki hlusta í andakt á orð okk- ar, og hvað þá hlýða fyrirmælum héð- an. Því völdum við sjálfsagt ekki miklu. Þó gætum við eitthvað gert. Stundum getur valdalaus sáttaaðili komið nokkru til leiðar, eins og Norð- menn hafa sýnt bæði í þessari deilu og á Sri Lanka. En þó að við Íslendingar göngum ekki svo langt að verða sátta- menn, þá getum við haft áhrif með því að veita siðferðilegan stuðning. Til að mynda er næsta víst að íslensk utan- ríkisstefna hafði áhrif þegar við við- urkenndum sjálfstæði Eystrasalts- ríkjanna eða Króatíu. Utanrík- isráðherra Íslands, Halldór Ás- grímsson, hefur talað skynsamlega um þessi mál, og er það vel. En hví ekki að ganga lengra? Af hverju ekki að heimsækja Arafat þar sem honum er haldið föngnum í eigin landi, og lýsa því yfir að friður hljóti að byggj- ast á réttlátri lausn mála, og það það hljóti að felast í stofnun palestínsks ríkis? Hvað geta Íslendingar gert? Jóhann M. Hauksson Miðausturlönd Stundum getur valda- laus sáttaaðili, segir Jó- hann M. Hauksson, komið nokkru til leiðar. Höfundur er stjórnmálafræðingur. SKÓLAMÁLIN eru stærstu verkefni sveitarfélaganna. Eftir að allur rekstur grunnskólans var fluttur til sveitarfélaganna má segja að börnin okkar séu að mestu leyti í umsjá sveitarfélaganna fram til 16 ára aldurs. Flestir foreldrar vinna úti og því þurfa börnin að dvelja á öruggum stað þar sem þörfum þeirra er sinnt. Skipulagsmál og fjármál eru mikilvæg en velferð barnanna okkar, þroski þeirra og menntun skiptir þó mestu. Í Reykjavík eru góðir skólar. Í leikskólum og grunnskólum borg- arinnar starfar velmenntað og gott fólk, hugsjónafólk. Það er gríðar- lega mikilvægt að kraftar þessa ágæta fólks fái að njóta sín til fulls. Til þess að svo megi verða þarf styrka stjórn þeirra sem þekkingu hafa á skólamálum. R-listinn hefur nú stýrt Reykja- vík í bráðum 8 ár. Það er mín skoð- un að einkum tvennt hafi ráðið því að R-listinn vann borgina. Í fyrsta lagi náðu smáflokkarnir að mynda bandalag undir styrkri stjórn Ingi- bjargar Sólrúnar. Í öðru lagi lofaði R-listinn, fyrst árið 1994 og svo aft- ur 1998 að eyða biðlistum leikskól- anna og fólkið treysti því að þeir myndu efna það loforð. Einhvern veginn hefur sú blekk- ing náð að grafa um sig að R-listinn sé fulltrúi mjúku málanna í borg- inni. Raunveruleikinn er annar. Skólamálin eru ekki í nógu góðu lagi, t.d. voru í janúar sl. 2360 reyk- vísk börn á biðlista eftir leikskóla- plássi. Í Garðabæ og á Seltjarnar- nesi, þar sem sjálfstæðismenn eru við stjórnvölinn, ríkir ekki slíkt neyðarástand í leikskólamálum. R- listinn hefur fengið 8 ár til spreyta sig. Ég spyr: „Er ekki kominn tími til að leyfa öðrum að sýna hvað í þeim býr?“ Grunnskól- ar Reykjavíkur hafa heyrt undir Sigrúnu Magnúsdóttur síðast- liðin átta ár. Hún er ekki í hópi fulltrúa R- listans fyrir kosning- arnar í vor. Ekkert borgarfull- trúaefni R-listans hef- ur sérþekkingu á skólamálum. Sjálfstæðisflokkur- inn teflir aftur á móti fram fulltrúum með yf- irburðaþekkingu á skólakerfinu. Björn Bjarnason er án efa sá menntamálaráðherra sem hefur komið mestu í verk að öðrum ólöst- uðum. Eitt lítið dæmi um verk Björns, sem ekki hefur verið haldið á lofti, er sú ákvörðun hans að tryggja einhverfum og þroskaheft- um unglingum fjögurra ára fram- haldsskólanám. Auk Björns Bjarnasonar er Guðrún Ebba Ólafs- dóttir á lista sjálfstæð- ismanna en hún hefur verið í forystu fyrir grunnskólakennara um árabil. Reykvísk börn eiga það skilið að fá að njóta krafta Björns Bjarnasonar og Guð- rúnar Ebbu Ólafsdótt- ur. Allir eru sammála um að búa sem best að börnunum okkar. Leik- og grunnskól- arnir eru þær stofnan- ir sem sjá að miklu leyti um uppeldi og menntun þeirra. Ég er í engum vafa um það að ef Sjálfstæðisflokk- urinn vinnur kosningarnar í vor er bjart framundan í skólamálum Reykvíkinga og að börnin okkar muni njóta þess. Bjart framundan í skóla- málum Reykvíkinga ef… Nám Sjálfstæðisflokkurinn, segir Gísli Ragnarsson, teflir fram fulltrúum með yfirburðaþekkingu á skólakerfinu. Höfundur er aðstoðarskólameistari. Gísli Ragnarsson BJÖRN Bjarnason, borgar- stjórakandídat Sjálfstæðisflokks- ins, hefur gefið tóninn í kosninga- baráttu flokksins í Reykjavík. Haft var eftir honum í þessu blaði að fjármálastjórn R-listans minnti á starfsaðferðir orkufyrirtækisins Enron. Eins og alkunna er stóð Enron-risinn á brauðfótum. Tíu þingnefndir á Bandaríkjaþingi hafa tekið málefni fyrirtækisins til sérstakrar rannsóknar. Dóms- málaráðuneyti Bandaríkjanna hef- ur höfðað sakamál gegn fyrirtæk- inu. Ríkisendurskoðun Banda- ríkjanna hyggst höfða mál gegn Hvíta húsinu til þess m.a. að fá upplýsingar um þátttöku Enron í gerð orkuáætlunar Bandaríkja- stjórnar. Uppljóstrarar hafa leikið lykilhlutverk í Enron-málinu. Lái mér hver sem vill, en ég hygg að Enron-hneykslið veki ekki upp hugrenningatengsl við fjár- málastjórn Reykjavíkurlistans hjá stærstum hluta Íslendinga. Önnur og betri dæmi eru mun nærtækari. En ég skil vel að Björn Bjarnason finni hjá sér litla þörf til þess að benda á þau, enda Sjálfstæðis- flokknum varla til framdráttar. Hitt er svo annað mál að frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins munu seilast eins langt og ímyndunarafl þeirra leyfir til þess að koma höggi á R-listann. Örvænting þeirra hlýt- ur að vera algjör. Enron Höfundur er þingkona Samfylk- ingarinnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir KOSNINGAR til borgarstjórnar og sveitarstjórna eru nú í nánd og fulltrúar þeirra flokka sem keppa um hylli almenn- ings tala gjarnan um skipulag og leggja fram alls kyns tillögur sem í raun eru að miklu leyti eins hvert sem litið er. Í Reykjavík tala menn um flugvöll eða ekki flugvöll, hjólreiða- stíga, lóðaskort o.s.frv. Einn frambjóðenda tal- aði um alþjóðlega staðla í skipulagi. Það er hæpið að almenningur skilji hvað átt er við, og ekki er sjálfgefið að slíkir staðlar séu til góðs. Fyrir skömmu var sýndur athygl- isverður þáttur um skipulag í ríkis- sjónvarpinu, þar sem kom í ljós að skipulag eins og það er oft fram- kvæmt höfðar ekki til fólks. Ástæðan er sú að þungar umferð- aræðar og veigamiklar byggingar með lokuðum og háum veggjum virka nei- kvætt á folk. Stór opin svæði gera aðeins illt verra a.m.k. hér á landi þar sem þau eru far- vegur fyrir vindstrengi. Þetta kemur heim og saman við það að marg- ir vilja búa í hverfum sem eru ekki skipulögð samkvæmt einhverjum fræðilegum vangavelt- um. Hér má til dæmis nefna Þingholtin í Reykjavík, og hluta af vesturbænum í Reykjavík. Það mætti hugsa sér að Reykjavík og önnur sveitarfélög tækju tillit til þessara staðreynda og ,,skipulegðu “ svæði fyrir þá sem vildu byggja sér íbúðir í slíkum hverfum. Það er augljóst að menn yrðu að endurskoða allskonar reglugerðir sem lúta að byggingum, og skipulagi. Þetta myndi einnig kalla á aðra þjón- ustu sveitarfélaganna á byggingar- stigi slíkra hverfa. Auðvitað mundi þetta alls ekki hindra að hefðbundin svæði væru skipulögð og byggð. Augljóst er að það ætti að vera hægt að lækka lóðaverð með ofan- greindum aðferðum. Þétting byggðar með þessu móti myndi einnig draga úr þörfinni fyrir þungar umferðaræðar og stytta lagnaleiðir holræsa vatns hita o.s.frv. Að þétta byggðina er þjóðhags- lega hagkvæmt ef aðeins er litið til minni ferðatíma bifreiða og minni slysatíðni þar af leiðandi. Nokkur orð um skipulag þéttbýlis Björgvin Víglundsson Höfundur er verkfræðingur. Skipulagsmál Að þétta byggðina er þjóðhagslega hagkvæmt, segir Björgvin Víglundsson, ef aðeins er litið til minni ferðatíma bifreiða og minni slysatíðni þar af leiðandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.