Morgunblaðið - 13.03.2002, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Vísitala neysluverðs mið-að við verðlag í mars-byrjun var 221,8 stig oghækkaði um 0,4% frá
fyrra mánuði. Þetta er mun meiri
hækkun er forystumenn samtaka á
vinnumarkaði gerðu sér vonir um
og sérfræðingar á fjármálamark-
aði höfðu spáð. Ef vísitalan á að
haldast innan rauða striksins í maí
[222,5 stig], sem samkomulag aðila
vinnumarkaðarins er miðað við,
má hún ekki hækka um meira en
0,3% í næstu tveimur mælingum í
apríl og maí.
6,7% hækkun á fötum og
skóm eftir lok útsalanna
Skv. útskýringum Hagstofunnar
á hækkun vísitölunnar er vetrarút-
sölum nú víðast lokið og leiddi það
til 6,7% verðhækkunar á fötum og
skóm (áhrif þess á hækkun vísitöl-
unnar voru 0,31%). Gjöld vegna
heilsugæslu hækkuðu um 6,0%
(vísitöluáhrif nema 0,11%), aðal-
lega vegna mikillar hækkunar á
hlut einstaklinga í kostnaði við
sjúkraþjálfun (0,1%), að því er
fram kemur í frétt Hagstofunnar.
,,Ástæðurnar eru annars vegar
breyttar reglur um greiðsluþátt-
töku Tryggingastofnunar, hins
vegar hærri taxtar sjúkraþjálfara.
Verð á mat og drykkjarvörum
lækkaði um 1,1% (0,2%). Vó þar
þyngst verðlækkun á kjöti um
3,4% (0,11%). Síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 8,7% og vísitala
neysluverðs án húsnæðis um 9,2%.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
1,0%, sem jafngildir 4,3% verð-
bólgu á ári,“ segir í fréttatilkynn-
ingu Hagstofunnar.
Hafa ekkert með almenna
verðlagsþróun að gera
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir ekki tilefni til að hafa
verulegar áhyggjur af þessum
hækkunum vísitölunnar þegar litið
er til þess hvaða þættir valda
hækkun vísitölunnar nú.
,,Þegar ég fékk töluna inn á rík-
isstjórnarfund í morgun brá mér
svolítið en svo þegar ég sé hvernig
hún er sundurliðuð þá verður mér
rórra,“ segir Davíð.
Hann segir að þegar skoðað sé
hvaða liðir valda þessari hækkun
sé alveg ljóst að þeir hafi ekkert
með almenna verðlagsþróun að
gera.
,,Verðlagið hækkar um 0,4% en
þar af stafa ¾ af því að vetrarútsöl-
ur ganga til baka. Þar er því ekki
um eiginlega verðlagsþróun að
ræða. 0,1% eru vegna þess að það
eru ekki í gildi samningar við
sjúkraþjálfara og hækkaði taxti
þeirra þess vegna gagnvart al-
menningi að mér skilst um nálægt
200%. Það hlýtur að mælast tals-
vert í vísitölunni en hefur heldur
ekkert með almennt verðlag að
gera. Ef samningar þar nást og
þegar útsölurnar eru út úr dæminu
er ljóst að almennt verðlag er í all-
góðu lagi. Matvörur eru til dæmis
að lækka,“ segir Davíð.
Forsætisráðherra segir ekki
ástæðu til að ætla að aðstæður af
þessum toga verði
uppi þegar næsta
vísitölumæling fer
fram.
,,Ef þá verður búið
að semja við sjúkra-
þjálfara lækkar þessi
tala aftur og útsöluáhrifin ættu
ekki að verða nein. Gengi krónunn-
ar hefur verið nokkuð gott og því
gætu þessi 0,3 prósent dugað okk-
ur,“ segir hann.
Davíð segist því alls ekki vilja
útiloka að verðbólgumarkmiðið í
maí muni nást en á hinn bóginn
geti breytingar orðið á alþjóðavett-
vangi sem við höfum ekki á valdi
okkar. ,,Umræður um hugsanlegar
árásir á Írak hafa leitt til olíuverðs-
hækkunar úti í heimi. Hvort það
skilar sér á okkar fjörur skal ég
ekki segja um eða hvort verðið
verður lækkað aftur þegar menn
róast.“
Þriggja mánaða verð-
bólga mælist nú 4½%
,,Hvað sem þessum mælingum
líður er meginatriði að verðbólgan
er á niðurleið. Þriggja mánaða
verðbólga er nú 4½%, tólf mánaða
verðbólga er að vísu enn há eða
8,7% vegna þess að við erum með
gamla slóð á eftir okkur en ég hygg
að menn muni sjá eftir tvær mæl-
ingar til viðbótar að þriggja mán-
aða verðbólgan verður orðin lág og
tólf mánaða verðbólgan hefur
lækkað mjög mikið.“
Forsætisráðherra segir miklar
líkur á að verðbólgumarkmið
Seðlabankans, (2½% á árinu 2003),
muni nást.
ASÍ segir ástandið
mjög tvísýnt
,,Þetta er mun meiri hækkun en
við áttum von á,“ segir Grétar Þor-
steinsson, forsti Alþýðusambands
Íslands. ,,Þetta er helmingi hærra
en við bjuggumst við. Málið er allt
orðið miklu tvísýnna en við vonuð-
um að yrði á þessum tíma,“ segir
Grétar. Hann vill þó ekki útiloka á
þessu stigi að verðbólgumarkmiðið
muni nást en svigrúmið sé mjög lít-
ið.
,,Þetta er orðið afar tvísýnt og
menn þurfa virkilega að taka á ef
þetta á að takast,“ segir Grétar.
,,Ef skýringarnar eru skoðaðar
kemur fyrst í ljós að fjórðungur
hækkunarinnar snýr að stjórn-
völdum og breytingum í heilbrigð-
iskerfinu. Það
verður að segjast
eins og er að við
áttum ekki von á
því í þessum mán-
uðum fram í maí.
Tæplega fjórðung-
ur er afleiðing af deilu sjúkraþjálfa
og veit enginn hvernig það mál
endar en vonandi fær það farsælan
endi á næstu vikum. Stóri liðurinn
er svo föt og skór. Auðvitað vissum
við að þar átti sér stað veruleg
lækkun í seinustu mælingu vegna
útsalanna. Okkur finnst hins vegar
að þessi breyting sé ískyggilega
mikil og erum að velta fyrir
hvort við blasi annað og h
verð eftir útsölurnar en það
sem var fyrir útsölurnar. Þa
ur alls ekki gengið upp vegn
að bæði hefur gengið ver
styrkjast og það hefur líka
áhrif á flutningskostnað til
ins. Allir flutningar til landsin
tengdir genginu þannig að
það styrkist, þá lækkar flut
kostnaður.
Þótt það sé ekki stór póst
er þarna líka lítilsháttar hæk
lyfjakostnaði sem kemur ok
óvart. Ef ég man rétt var n
hækkun á lyfjum í janúar se
ein af skýringunum á hækku
janúar,“ segir Grétar ennfrem
50% hækkun á númerapl
bíla kolröng skilaboð
Hann segir forsvarsmenn
ekki ánægða með að hækkan
að eiga sér stað á vettvangi s
valda á sama tíma og menn st
þessum slag við að halda ver
hækkunum niðri. ,,Eitt dæm
það er 50% hækkun á númer
um á bíla fyrir hálfum mánuð
það hafi lítil sem engin áhrif
töluna þá eru þetta náttúrleg
röng skilaboð út í samfélagið
ir Grétar. ,,Hið sama má au
segja um aðildarfyrirtæki
taka atvinnulífsins. Við sjáu
ýmis smávara hefur ver
hækka og tel ég að þar þurfi
líka að líta í eigin barm,“
Grétar.
Grétar bendir einnig á að
gengið var frá samkomulagi
vinnumarkaðarins og stjórnv
desember hafi menn gert ráð
að vextir myndu lækka á
tímabili, þó það væri ekki ei
forsenda samkomulagsins.
skiptir mjög miklu
máli að það hefur
ekki gerst. Það snýr
bæði að Seðlabank-
anum og bankakerf-
inu. Fyrirtæki og
þjónustuaðilar
þurfa að endurselja vaxtako
inn með einhverjum hæt
verkafólk tekur það út á laun
sínum. Það hefur valdið mjög
um vonbrigðum að ekki skul
komið til vaxtalækkunar,“
Grétar.
Davíð Oddsson sagðist í
vera sama sinnis og Alþýð
0,4% hækkun vísitölu neysluverðs kom forystu ASÍ
Má aðeins hækk
upp að rauðu s
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4% í febr
og má ekki hækka um meira en 0,3% á næs
tveimur mánuðum ef hún á að haldast inna
rauðu strikanna í maí. Forsætisráðherra seg
samtali við Ómar Friðriksson, að hækkunin s
af liðum sem hafi ekkert með almenna verð
lagsþróun að ræða og gefi ekki tilefni til sva
sýni. Hækkunin veldur forystumönnum samt
vinnumarkaðarins miklum vonbrigðum.
!
S
ko
og k
Jaðrar við að
tala megi um
áfall að sjá þessa
útkomu
KYNLÍFSIÐNAÐUR OG
KYNFERÐISLEGT OFBELDI
Tæpast hefur auglýsing Stígamóta íblöðum um síðustu helgi farið
fram hjá neinum sem fletti þeim á
annað borð. Auglýsingin sýnir sam-
anhnipraðar naktar konur í „neyt-
endaumbúðum“ á borð við þær sem
notaðar eru til að selja kjöt, en á verð-
miðanum sem límdur er á pakkann
stendur „Söluvara?“. Áhrifamáttur
auglýsingarinnar felst ekki hvað síst í
því að hún afhjúpar á afar nöturlegan
máta hlutverk neytandans í kynlífs-
iðnaði og vændi. Einsleitni og fjöldi
kvennanna í pakkanum verður til þess
að má út einstaklingseðli þeirra svo
hlutgerving hins nakta kvenlíkama
verður enn sterkari fyrir vikið, rétt
eins og þær séu einungis hversdagleg
neysluvara. Kunnugleg orðin á verð-
miðanum, „best fyrir“ „kr./kg.“, og
„verð krónur“, þjóna sem áleitin vísun
í markaðstorg þar sem líkamar á borð
við þá sem eru í pakkanum ganga
raunverulega kaupum og sölum, nán-
ast samkvæmt sömu lögmálum og
þegar keypt er í matinn. Það er ekki
þægilegt að horfast í augu við þær
staðreyndir sem auglýsingin dregur
fram í dagsljósið, en þeim mun mik-
ilvægara að skorast ekki undan því.
Stígamót eru nú að hefja átaks-
verkefni til þess að bæta stuðning
sinn við konur í kynlífsiðnaði en í árs-
skýrslu þeirra, sem kynnt var á blaða-
mannafundi sl. föstudag, kemur fram
að tengsl á milli kynferðisofbeldis og
vændis verða æ ljósari. „Vændi er
mjög falin starfsemi á Íslandi og
margar konur og nokkrir karlar sem
leitað hafa til Stígamóta vegna kyn-
ferðislegs ofbeldis hafa skýrt frá
störfum í kynlífsiðnaðinum,“ sagði
Rúna Sigurðardóttir fræðslu- og
kynningarfulltrúi samtakanna. Í frétt
hér í blaðinu á laugardag kemur einn-
ig fram að aðsókn að Stígamótum
eykst þriðja árið í röð, en frá árinu
1999 hefur aðsókn þangað aukist um
26,4%. Hverju það sætir sagðist Rúna
ekki getað svarað, en hún sagði Stíga-
mótakonur ekki geta hugsað sér að
túlka tölurnar sem aukið ofbeldi. „Við
getum vonað að tölurnar séu hærri en
áður vegna þess að það hafi orðið
ákveðin vitundarvakning í samfélag-
inu.“ En „ef vitundarvakning hefði
orðið, hefði hún líka átt að virka á þá
sem beita ofbeldinu en það hefur hún
greinilega ekki gert.“
Í okkar smáa samfélagi er tiltölu-
lega auðvelt að ná til flestallra sem
það byggja og í því ljósi hlýtur að telj-
ast dapurlegt ef ekki hefur tekist að
draga úr kynferðislegu ofbeldi þrátt
fyrir opinbera umræðu um vandann á
síðustu árum. Á Alþingi fóru fram
umræður um jafnréttismál sl. föstu-
dag í tilefni af alþjóðlegum baráttu-
degi kvenna og Páll Pétursson félags-
málaráðherra benti þar m.a. á að
afleiðingar ofbeldis gegn konum væru
mjög kostnaðarsamar fyrir samfélag-
ið. Hann sagðist álíta betra að verja
þeim fjármunum í forvarnir og benti á
að efla þyrfti fræðslu á öllum skóla-
stigum um ofbeldi gegn konum.
Markviss uppfræðsla við hæfi hvers
aldurshóps gæti vissulega orðið öfl-
ugt vopn í baráttu gegn kvenfyrirlitn-
ingu, kynferðisofbeldi og vændi. Í
þeim misvísandi skilaboðum sem
margvíslegir miðlar senda ómótuðu
ungu fólki um kynhlutverk þess í
samtímanum, en um það var fjallað í
ítarlegri grein í blaðinu á föstudag,
veitir ekki af uppbyggilegu mótvægi
er afhjúpar ábyrgð hvers einasta
„neytanda“ sem verslar við kynlífs-
iðnaðinn eða beitir aðra ofbeldi til að
ná vilja sínum fram.
HERNAÐARAÐGERÐIR ÍSRAELS
Ísraelar hafa hafið umfangsmestuhernaðaraðgerð sína frá því aðþeir réðust inn í Líbanon árið
1982. Á undanförnum tveimur vikum
hafa þeir ráðist inn í sex bæi og flótta-
mannabúðir Palestínumanna. Talið er
að allt að tuttugu þúsund hermenn taki
þátt í aðgerðunum.
Uppreisn Palestínumanna, Intifada,
hefur nú staðið í 17 mánuði. Stefna Ísr-
aela hefur verið að brjóta Palestínu-
menn á bak aftur með öllum tiltækum
ráðum. Nú eru þeir komnir vel á veg
með að leggja Gaza undir sig að nýju.
Palestínumenn á hernámssvæðunum
búa við stöðugt óöryggi, börn eru
skelfingu lostin, atvinnulíf í rúst, borg-
ir og bæir í herkví. En Palestínumenn
hafa ekki látið bugast. Þvert á móti
hafa hinar ýmsu fylkingar snúið bökum
saman, liðsmenn Fatah og Hamas
berjast hlið við hlið og stuðningur
eykst við Yasser Arafat.
Í intifada Palestínumanna fyrir tæp-
um 15 árum féll einn Ísraeli á móti
hverjum 24 Palestínumönnum fyrstu
17 mánuðina. Nú er hlutfallið einn Ísr-
aeli á móti hverjum þremur Palestínu-
mönnum, sem falla.
Sagt er að Ísraelar séu að missa
móðinn og þeir hafi misst trúna á for-
sætisráðherrann. Á mánudagskvöld
mótmæltu 50 þúsund manns í Tel Aviv
og kröfðust þess að Arafat yrði steypt
af stóli. Í gær sögðu tveir ráðherrar úr
öfgaflokknum Þjóðarbandalagið af sér
þar sem aðgerðir Ísraela gegn Palest-
ínumönnum væru ekki nógu harðar. Á
sama tíma gagnrýnir utanríkisráð-
herra landsins, Shimon Peres, aðgerð-
irnar með þeim orðum að Ísraelar
„verði að passa sig að niðurlægja ekki,
að koma ekki fram við manneskjur af
fyrirlitningu“.
Það er undarlegt á meðan þessu fer
fram að sjá auglýsingar frá ferðamála-
skrifstofu ríkisstjórnar Ísraels um sér-
stakt kynningarkvöld á „landi and-
stæðnanna“. Ástandið á svæðinu er
ekki beinlínis til þess fallið að laða að
ferðamenn og engin ástæða til að láta
eins og allt sé í himnalagi. Nýr sendi-
herra Ísraels mun í vikunni afhenda
trúnaðarbréf.
Íslendingar studdu Ísraela þegar að
þeim var sótt úr öllum áttum. Fram-
ganga Ísraela í garð Palestínumanna
er hins vegar með þeim hætti að ekki er
hægt að styðja hana. Bæði Davíð Odds-
son forsætisráðherra og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra hafa gagn-
rýnt framferði Ísraela. Það verður að
nýta öll tækifæri til að gera Ísraelum
grein fyrir að þeir eru á rangri braut og
þeir verði að snúa við blaðinu. Fyrr
muni þeir ekki uppskera öryggi og frið.