Morgunblaðið - 13.03.2002, Side 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 37
gilda verður seint metið til fjár. Þor-
steinn afi dvaldi bróðurpart sinna efri
ára í umönnun dætra sinna, mestan
heiður eiga dóttir hans Guðmunda og
eiginmaður hennar Jón heitinn Krist-
jánsson og börn skilið fyrir að hugsa
um afa. Þetta er eins og með þá hluti
sem eru manni svo nærri að maður
ber sig ekki eftir þeim. Þegar ég hitti
afa seinni árin, var það helst við fjölda
ættingja þegar einhver átti afmæli
eða aðrir stórviðburðir voru á bæ
þeirra Guðmundu og Jóns heitins.
Rut systir þeirra glæsisystra hefur
einnig ávallt verið myndarleg, skipu-
lögð og hjálpleg í þessum efnum.
Eins og ég hélt lengi var sjó-
mennska ekki það sem átti hug hans
allan. Hann sótti ungur búnaðarskóla
á Ólafsdal í þrjú ár og kom úr því
námi tæplega tvítugur. Hugur hans
leitaði jafnan til búmennsku og var
óskað eftir honum til að taka við og
erfa bú annars manns. Þórunn móðir
hans fékk um það leyti botnlanga-
bólgu og var flutt til Reykjavíkur.
Þau hjónin Þórunn og Bjarni höfðu
aldrei búið í grennd Reykjavíkur en
þau kynntust þar þegar Þórunn ung
að árum vann til tveggja ára hjá þeim
dönsku Holbergs-hjónum sem áttu
Hótel Ísland. Hún hugsaði oft til
þeirra með hlýhug og taldi sig hafa
margt gott af þeim lært.
Þórunn var vistuð með botnlanga-
bólgu á Landspítalanum og vandist
dvölinni vel.
Reykjavík var þá að hefja mikil
uppgangsár eftir fyrri viðburðarík ár
eins og frostaveturinn mikla 1918,
spönsku veikina sem talið er að tveir
af hverjum þremur hafi fengið og dró
hundruð manna til dauða. Upp úr
dvöl Þórunnar 1920 fluttu þau hjónin
með Þorstein og systkini hans frá
Litlu-Hnausum til Hafnarfjarðar og
svo til Reykjavíkur og áttu þar heima
á Laugavegi 28A til æviloka. Þor-
steinn fylgdi sínu fólki og gafst því
tími til að kanna jarðir og aðstæður
fyrir búfénað á nýjum slóðum. Hann
lét drauminn sinn rætast um bænda-
mennsku og byrjaði í Fossvogsdaln-
um með fulltingi eiginkonu sinnar
Fjólu Guðmundsdóttur og dætra
þeirra Jónínu Steinunnar, f. 1936,
Rutar, f. 1938, og Guðmundu, f. 1940.
Þar stunduðu þau heyskap í nokkur
ár. Þorsteinn leigði land inn við Rauð-
ará undir kýr af Geir í Eskihlíð eins
og hann var kallaður. Geir bjó í því
húsi þar sem Hagkaup var síðar rek-
ið, sjálfsagt stóreignamaður, en dýrin
hans afa voru talin geymd á jörð
Geirs þar sem Hampiðjan var síðar
reist við Stórholt og Þverholtið. Þessi
draumur entist þar til Bretarnir
komu til landsins. Afi var á hesta-
kerru en Bretarnir voru á herbíl.
Vegir voru slæmir á þessum tíma og
það óhapp varð að afi Steini lenti í
árekstri við Bretana, hann á sinni
hestakerru en þeir á bensíndrifnum
herbíl. Það voru ekki gæfuríkir dagar
sem tóku við hjá Þorsteini eftir þau
samskipti. Bretarnir smíðuðu
bragga, dreifðu súkkulaði, óku um á
bílum á meðan afi lá með heilahrist-
ing, höfuðkúpubrotinn. Hann átti við
þessi meiðsl að stríða í nokkurn tíma
og breytti um lífsstíl. Gerðist umsjón-
armaður og golfvallahönnuður á
fyrsta golfvelli Reykvíkinga þar sem
hann vann við að hanna flatir og
brautir. Golfvöllurinn var í þá daga
við Öskjuhlíðina. Mamma, hún Jón-
ína, hefur þá verið í skóla á aldrinum
tíu til tólf ára að hennar sögn sem
sagt í lok seinna stríðs. Afi sneri sér
að frekara námi og tók pungapróf og
fór til sjós að sækja gjöful mið. Þá
kem ég til sögunnar. Bjarni Þór Júl-
íusson heiti ég og er skírður í höfuð
þeirra hagleiksmanna Bjarna tré-
smiðs Kjartanssonar sem smíðaði
skírnarfont í kirkju afa síns á Búðum
og handriðin í Þjóðleikshúsinu og
Þórunnar Júlíönu Þorsteinsdóttur
sem sagðist ekki velja skrípamyndir
heldur eingöngu listaverk sem auka
fegurð lífsins að sögn Ríkarðs Jóns-
sonar listamanns.
Oft er það til þeirra sem ég hugsa
þegar á móti blæs í lífinu og velti því
fyrir mér hvað þau hefðu gert þegar
að kreppir. Börnin mín vissu að þau
áttu langafa sem var í umönnun fyrir
austan. Ég hafði sagt við þau að þau
ættu að hitta eina langafa þeirra sem
var á lífi þar sem þau voru farin að
komast til vits og farin að velta til-
gangi lífsins fyrir sér. En nú er það
um seinan og ég hugsa til minna for-
feðra og minningu þeirra er ég kveð
þig, afi, með hlýjum hug um ágætar
stundir sem við áttum. Þú varst harð-
ur og röskur karl, alveg eins og hinn
síkáti kappi hann bróðir þinn Kjartan
lögreglumaður. Í mínum huga varstu
vaskur sjómaður. Ég geymi það sem
þú gafst mér og vernda með virðingu
um ókomna tíð.
Þar sem ég svo ungur en þú svo
roskinn með alla þína reynslu fór-
umst oft á mis í þessum skrítna heimi
mun ég gera allt hvað ég get til að lifa
lífinu vel og taka mið af því sem þú
hefur kennt mér með þínu lífi. Skil ég
því við þig með þessu.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta. Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má
næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig
um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel
þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert
illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og staf-
ur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir
fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með ol-
íu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og
náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Bjarni Þór Júlíusson.
✝ Þorsteinn Kr.Ingimarsson
fæddist í Reykjavík 6.
júní 1932. Hann lést á
hjartadeild Landspít-
alans í Fossvogi 2.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Ingimar Kr. Þor-
steinsson, f. á Meiða-
stöðum í Garði 26.
maí 1907, d. 18. nóv.
1958, og Jónína Þóra
Sigurjónsdóttir, f. í
Gerðum í Garði 13.
apríl 1910, d. 20. jan-
úar 1999. Þorsteinn
var elstur af sex systkinum, síðan
koma: Steinþóra, f. 30. okt. 1937,
gift Friðriki Lindberg og eiga þau
fimm börn og 15 barnabörn; Sig-
urjón, f. 15. des. 1941, kvæntur
Magneu Guðjónsdóttur, saman
eiga þau eitt barn og þrjú barna-
börn en hann á þrjú börn og níu
barnabörn með fyrri konu sinni;
Kristín, f. 1. júní 1944, dó ung;
Kristín Inga, f. 9. apríl 1947, gift
Sigurd Ebbe Thomsen, þau eiga
fimm börn og þrjú barnabörn; og
Jón Ingi, f. 25. mars 1952, kvæntur
Magneu Rögnu Ögmundsdóttur,
eiga þau saman fjögur börn, fyrir
á hann tvö börn og sex barnabörn.
Þorsteinn kvæntist Kristínu
Guðmundsdóttur 14. júní 1953,
þau skildu. Hann átti með henni
þrjú börn: 1) Ingimar Kristinn, f.
17. sept. 1953, sam-
býliskona Arnbjörg
Jónsdóttir, á hann
fjögur börn og eitt
barnabarn. 2) Guð-
mundur, f. 13. okt.
1954, kvæntur Evu
Þórólfsdóttur, eiga
þau þrjú börn og tvö
barnabörn. 3) Stein-
þóra, f. 15. feb. 1960,
gift Pétri Jónssyni,
eiga þau þrjú börn.
Með Rögnu Lind-
berg Maríusdóttir,
þau slitu samvistir, á
Þorsteinn dæturnar
Guðrúnu Sigríði, f. 26. maí 1962,
gift Vilhjálmi Sigurpálssyni og
eiga þau þrjá syni, og Ólöfu
Helgu, f. 17. okt. 1970, sambýlis-
maður Reynir S. Reynisson, hún á
fjögur börn. Síðastliðin ár átti
Þorsteinn heima í Hafnarfirði og
bjó hann með vinkonu sinni Matt-
hildi Friðriksdóttur, f. 27. janúar
1932, hún á eina dóttur og tvö
barnabörn.
Þorsteinn lauk námi í járnsmíði
ungur að árum og vann á verk-
stæði föður síns við Nýlendugötu
14 í mörg ár. Hann stundaði sjó-
mennsku um árabil og vann síðan
á vélaverkstæði Sands til fjölda
ára.
Útför Þorsteins fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Jæja, elsku karlinn minn, nú þeg-
ar komið er að kveðjustund vil ég
þakka þér allar góðu stundirnar
sem við áttum saman og gátum oft á
tíðum hresst hvort annað við í dag-
legu amstri. Minnist ég þess hvað
oft var stutt í prakkarann hjá þér
og oftar en ekki gátum við hlegið
dátt saman. Þessar minningar
ásamt öllum hinum hjálpa mér við
að brosa í gegnum tárin, og þær
geymi ég til að ylja mér við í fram-
tíðinni.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku pabbi minn, minning þín er
ljósið í hjarta mínu. Guð geymi þig.
Þín dóttir,
Guðrún.
Elsku afi minn, nú er komið að
því, þú ert farinn frá okkur og
margar minningar um okkur saman
eru búnar að þjóta hugann.
Það var alltaf gaman að koma til
þín og Jónínu ömmu á Kaplaskjóls-
veg, og sama hvernig skapi maður
var í, þú varst ekki lengi að koma
hlátrinum að. Þú varst þekktur fyr-
ir það að koma í heimsókn og smita
alla með hlátrinum þínum. Þegar
við bróðir minn vorum lítil biðum
við alltaf spennt eftir þér um
páskana og þá laumaðir þú að okkur
páskaeggi, og við vorum svo ánægð
með það. Þegar ég eignaðist Evu
Kristínu komuð þið Matta til mín í
Keflavík að skoða barnabarn þitt og
það var svo yndislegt að fá þig, þú
varst svo ánæður með hana og hélst
á henni.
Þegar hún Eva Kristín var orðin
nokkurra mánaða þá fórum við með
mömmu, pabba og Antoni bróður í
Reykjavík að hitta þig og Jónínu
ömmu, þú varst svo ánægður að við
komum með litlu krílin til þín.
Ég get endalaust rifjað upp
minningar um þig, elsku afi. Þótt
við höfum ekki verið mikið í sam-
bandi síðust ár þá veit ég að þér
þótti mjög vænt um mig og mér
þótti mjög vænt um þig og mun allt-
af varðveita þig í mínu hjarta.
Ég veit að Guð hefur tekið vel á
móti þér, því þú varst mjög trúaður
maður. Guð geymi þig. Þitt barna-
barn
Alma S. Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem.)
Í dag er borinn til grafar bróðir
minn Þorsteinn Kristinn Ingimars-
son. Minningarnar hrúgast upp á
stundu sem þessari.
Margt var spjallað og skrafað á
hans ævi, og þegar við hittumst var
oft glatt á hjalla og var margt
spaugað, sér í lagi yfir kaffibolla hjá
mömmu. Þá var oft látið illa og
tuskur fengu að fljúga á milli okkar
með tilheyrandi látum og köllum,
hlátri og gauragangi, að mömmu
fannst nóg um og sagði strákar
hættið þessu, hvað haldið þið að fólk
haldi, þá var kominn tími til hætta
þessum strákaleik (við fullorðnir
mennirnir).
Steini bróðir var með góðan húm-
or og hress í fasi og alltaf var stutt í
hláturinn. Margar góðar stundir
vorum við saman.
Eru mér minnisstæðar ferðir
okkar á bílasölurnar að skoða bíla,
spá og spekúlera. Og þegar hann
gerði þér ferð norður með mömmu
og fleira fólki og eins þegar við
komum suður fjölskyldan. Hann
var hjálpsamur og var oftar en ekki
beðinn um að redda biluðum bílum
sem ég átti, til að sjóða eða annað,
enda lærður járnsmiður, suðumað-
ur góður og laghentur á járn. Marg-
ar ferðir fórum við saman í kirkju-
garðinn í Fossvogi að leiði pabba
með jólaljósin og rafgeyma sem
hann var búinn að hlaða og var
þetta fastur liður hjá honum og
mátti ekki bregðast. Eins var þetta
í kirkjugarðinum við Hringbraut.
Vonandi færðu ljós á leiðið þitt.
Nú er kallið komið og þú ert far-
inn, kæri bróðir. Við vorum ekki
mikið í sambandi síðustu árin en
hugurinn var hjá þér og Möttu. Ég
vil þakka þær stundir sem við átt-
um saman. Þá vil ég þakka þér árin
sem þú hugsaðir um móður okkar
meðan hún lifði, og þá sér í lagi
meðan þið voruð í vesturbænum.
Enn fremur þakka þér að líta eftir
Guðjóni meðan hann var að læra í
Iðnskólanum og var hjá ykkur
mömmu þegar ég og fjölskylda mín
bjuggum fyrir norðan.
Kæri bróðir, ég veit að Guð tekur
á móti þér og að mamma og pabbi
verða hjá þér og leiða þig til ljóss og
friðar. Hvíl í friði.
Við sendum fjölskyldu hans og
Möttu innilegar samúðarkveðjur.
Sigurjón Ingimarsson
og fjölskylda.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Elsku Steini. Fyrsta minning mín
um þig er þegar við komum í heim-
sókn í bæinn að norðan og gistum
hjá ykkur Jónínu ömmu á Kapla-
skjólsveginum, þar var sko fjör. Ég
hélt lengi vel að þið pabbi og bara
öll systkinin gætuð bara ekki verið
venjuleg, því það lék allt á reiði-
skjálfi þegar þið komuð saman,
hlátur og grín, enginn skilinn eftir
og skotið á alla svo maður lærði
fljótt að svara fyrir sig en svona er-
uð þið bara.
Þú bjóst á háaloftinu í einu her-
bergi og Guðjón bróðir var í öðru á
meðan hann var í Iðnskólanum. Ég
man hvað mér fannst gaman að
koma upp til þín, bara vera hjá þér,
þú að lesa eða horfa á sjónvarpið, og
glugginn á þakinu hafði líka ein-
stakt aðdráttarafl. Oft sátum við í
stólnum þínum og horfðum upp í
skýin og sáum við margt úr þeim.
Ferðirnar á bílasölurnar með þér
og pabba á stóra drekanum þínum
voru ævinlega skemmtilegar, æ síð-
an finnst mér ómögulegt annað en
fara reglulega á bílasölur.
Þegar þú fluttir í kjallarann var
sportið að hlaupa á milli þín og Jón-
ínu ömmu, það var svo notalegt að
koma til þín og vera þar þó maður
hefði ekkert fyrir stafni þá var bara
gott að vera hjá þér. Eins þegar þið
amma komuð á Hvammstanga, þá
var eftirvæntingin mikil, vinkonur
mínar skildu ekki hvað var svona
spennandi við að frændi manns var
að koma í heimsókn og fannst ekk-
ert varið í ameríska bílinn þinn.
Mér var nokkuð sama, mér fannst
hann flottur ásamt þér.
Eftir að við fluttum suður minnk-
aði sambandið, þó skrítið sé, en lík-
lega var maður of nálægt til að meta
það. Þegar Guðjón bróðir og Stein-
unn giftu sig varst þú bílstjórinn
þeirra og náttúrulega á fína kagg-
anum þínum, þú varst svo flottur. Í
desember fóruð þið pabbi alltaf á
stjá með þennan líka skrítna og
frumlega ljósakross og settuð á
leiðið hans Ingimars afa og ég man
hvað það var alltaf mikið í kringum
það. En þetta fannst þér að ætti að
vera og alveg er ég sammála þér
með það, og vonandi færð þú nú
einn slíkan.
Þú sagðir mér oft að koma í heim-
sókn og ég sagði alltaf „er á leið-
inni“ en aldrei kom ég, svo þegar
þið Matta fluttuð í Hafnarfjörðinn
faldi maður sig á bak við það að það
var „ekki í leiðinni“. Léleg afsökun,
en ég hélt bara að ég hefði nógan
tíma en svo var nú ekki. Og þegar
mér var sagt að þú værir á sjúkra-
húsinu hugsaði ég, Steini er ekkert
að fara, hann hristir þetta af sér, en
það gerðist ekki, þú komst ekki aft-
ur og samviskubitið hellist yfir
mann því ég heimsótti ykkur Möttu
aldrei. Það er þó gott að þetta var
stutt barátta hjá þér. Ég er þakklát
fyrir að hafa hringt í þig í fyrra, þá
spjölluðum við lengi saman og það
var notalegt. Það huggar mig og
sefar að þér líður betur núna.
Ég veit að þú ert í góðum hönd-
um og hjá Jónínu ömmu og Ingimar
afa.
Nú hverfi oss sviðinn úr sárum
og sjatni öll beiskja í tárum,
því dauðinn til lífsins oss leiðir,
sjá, lausnarinn brautina greiðir.
(Stef.Thor. - Sbj. E.)
Bless elsku Steini minn.
Kær kveðja, þín
Lillý.
ÞORSTEINN KRIST-
INN INGIMARSSON
að segja að líf þitt hafi verið mikil
þrautaganga. Það voru alveg hreint
ótrúlegar sögurnar sem þú sagðir
mér, við gátum stundum setið tímum
saman og spjallað um það sem væri í
gangi í þínu lífi og maður gat ýmist
hlegið eða grátið. En eins og þú of all-
ir aðrir vita á hún Stína móðir þín
heiður skilinn. Hún stóð eins og klett-
ur við bakið á þér, sama hvað dundi á,
alltaf var hún til staðar fyrir þig og
ekki nóg með það heldur tók hún líka
að sér að hugsa um marga af þínum
vinum, fæddi þá og klæddi eins og
þeir væru hennar eigin synir. Ég get
nú ekki annað en hugsað til allra ferð-
anna sem ég fór með Stínu austur að
heimsækja þig. Hún stoppaði bílinn
oft rétt áður en við vorum komin og
setti ný batterí í heyrnartækið svo
hún mundi nú örugglega heyra allt
sem við vorum að tala um, við hlógum
okkur alveg máttlaus yfir þessu öllu
saman. Það voru ófáar ferðirnar sem
maður kom að heimsækja þig en allar
þess virði. Þú tókst okkur alltaf opn-
um örmum. En árið ’97 hefur verið
eitt það besta í þínu lífi, þá fæddist
Pétur Leó sonur þinn, þú varst svo
montinn og stoltur af litla drengnum
þínum enda skiljanlegt, þú og Magn-
ea eignuðust fallegan og heilbrigðan
dreng.
Elsku Hrannar, ég vil kveðja þig
með þessu ljóði. Minning um góðan
dreng lifir í hjarta okkar.
Þú gafst mér ljós
er lýsti upp myrkrið svarta
þú leiddir mig
því gleyma ég aldrei vil.
Þú kveiktir von,
í litlu hrelldu hjarta
með hlýju brosi
veittir þráðan yl.
Ég þakkir færi
því nú skilja leiðir.
Þigg þú litla gjöf
úr hendi mér.
Ég bið að þínir
vegir verði greiðir
ég veit að ég mun
aldrei gleyma þér.
(Guðrún V. Gíslad.)
Elsku Marguerite, Pétur Leó,
Stína, Leó Gréta Björk, Calcedonio,
Halli og Gréta, og aðrir aðstandend-
ur. Megi góður Guð veita ykkur styrk
á þessum erfiðu tímum.
Þín vinkona,
Helga E.