Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isVíkingur og Grótta/KR
komust í undanúrslit / B16
Frábær endir á glæsilegum
ferli Kristins / B5
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
MAÐUR, sem grunaður er um aðild
að smygli á tæplega fimm kílóum af
amfetamíni til landsins og um 150
grömmum á kókaíni, var á laugardag
leystur úr haldi á grundvelli úr-
skurðar Héraðsdóms Reykjavíkur.
Ástæðan er sú að mistök voru gerð
þegar heilbrigðisráðuneytið setti
nýja reglugerð og við breytingar á
henni féll amfetamín út af lista yfir
lyf sem bannað er að nota sem
ávana- og fíkniefni. Því var ekki í
gildi refsiheimild fyrir meðferð
amfetamíns og ekki forsendur fyrir
áframhaldandi gæsluvarðhaldi að
mati dómsins.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hef-
ur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Staðfesti rétturinn þennan skilning
héraðsdóms má ætla að niðurstöður
fleiri dóma og dómsátta sem taka
mið af fyrrnefndri reglugerð verði í
uppnámi. Einnig verður þá óljóst
með framhald málsins, s.s. fyrir
hvaða brot verður ákært.
Þetta telst eitt stærsta amfetam-
ínmál sem komið hefur upp hér á
landi en amfetamínið sem um ræðir
er afar hreint, eða um 97–99%. Úr
fimm kílóum af slíku efni má fá 15–20
kíló til sölu á fíkniefnamarkaði og
gæti söluverðmætið, skv. verðkönn-
un SÁÁ, því numið 50–70 milljónum
króna. Gæsluvarðhaldsúrskurður yf-
ir manninum byggðist í fyrstu á því
að hann gæti að öðrum kosti skaðað
rannsókn málsins en það var síðar
framlengt á þeim grundvelli að brot
hans gæti varðað 12 ára fangelsi og
hætta væri á því að hann myndi
reyna að komast undan réttvísinni.
Eftir að í ljós kom að mistök voru
gerð við breytingu á reglugerð um
ávana- og fíkniefni fór verjandi hans,
Karl Georg Sigurbjörnsson hdl.,
fram á að hann yrði leystur úr haldi
þar sem skilyrði fyrir gæsluvarð-
haldinu væru ekki lengur fyrir
hendi. Brot hans gæti ekki talist
nægilega stórfellt, því þegar það var
framið hafi amfetamín ekki verið á
lista yfir efni sem óheimilt er að
flytja til landsins, selja það eða hafa í
vörslum sínum, svonefnd b-merkt
lyf.
Vísaði héraðsdómur í fyrstu þess-
ari kröfu frá dómi. Úrskurðinum var
vísað til Hæstaréttar sem felldi hann
úr gildi og fól héraðsdómi að taka
efnislega afstöðu til kröfunnar. Lög-
reglan fór síðan fram á framlengingu
á gæsluvarðhaldinu sem átti að ljúka
í gær. Héraðsdómur varð ekki við
því og féllst í úrskurði sínum á rök
verjandans. Forsendur fyrir gæslu-
varðhaldinu voru því brostnar og var
maðurinn leystur úr haldi.
Maðurinn var ásamt þremur öðr-
um handtekinn í lok janúar og úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í fram-
haldi af því. Öll hafa þau nú verið
leyst úr haldi. Fram kemur í úr-
skurði héraðsdóms að þegar hann
var handtekinn var hann með rúm-
lega 600 grömm af amfetamíni en
megnið af amfetamíninu var í vörslu
annars manns. Í ljós kom að hann
hafði hins vegar skömmu áður verið
með allt amfetamínið í sinni vörslu.
Hlutverk hans var að koma am-
fetamíninu í verð hér á landi en það
hafði verið sent hingað til lands frá
Þýskalandi. Hann hefur gengist við
því að hafa á síðasta ári tekið við um
einu kílói af amfetamíni og um 300
grömmum af kókaíni og selt efnin og
afhent öðrum.
Forsendur fyrir gæsluvarðhaldi úrskurðaðar brostnar
Meðferð amfetamíns
ekki talin refsiverð
OPIÐ hús var í sex leikskólum í
Grafarvogi á laugardag, þeirra á
meðal leikskólanum Fífuborg í
Fífurima þar sem þessi mynd var
tekin. Tilgangurinn með opnu húsi
var að kynna starfsemi leikskól-
anna og var ekki annað að sjá en
æska landsins gerði sitt besta til að
sýna hvað hægt er að gera sér til
gagns og gamans í leikskóla.
Morgunblaðið/Þorkell
Í leikskóla
er gaman
SKELJUNGUR hf. hefur farið fram
á það við Samkeppnisstofnun að fyr-
irtækið fái afhent öll gögn sem aflað
hefur verið vegna kannana sam-
keppnisyfirvalda á verðmyndun olíu-
félaganna.
Í bréfi lögmanns Skeljungs í þessu
máli til Samkeppnisstofnunar er far-
ið fram á gögn sem stofnuninni hafa
borist varðandi verðmyndun á olíu-
markaði frá olíufélögunum, minnis-
blöð yfirvalda varðandi málið og öll
önnur gögn sem málið kunna að
varða.
Í bréfinu segir að samkeppnisyf-
irvöld hafi ítrekað skoðað verðmynd-
un olíufélaganna að undanförnu og
óskað eftir gögnum frá Skeljungi í
því sambandi. Kannanirnar hafi far-
ið fram að frumkvæði Samkeppnis-
stofnunar, viðskiptaráðherra eða
vegna beiðna annarra aðila. Niður-
stöður slíkra kannana hafi hins veg-
ar aldrei verið kynntar forsvars-
mönnum Skeljungs.
Farið er fram á gögnin á grund-
velli 3. greinar upplýsingalaga frá
árinu 1996 og er þess krafist að
gögnin verði afhent innan sjö daga
frá móttöku bréfins, samanber 11.
grein upplýsingalaga.
Um miðjan desember síðastliðinn
gerðu starfsmenn Samkeppnisstofn-
unar og lögreglu húsleit í húsakynn-
um olíufélaganna þriggja, Olíufé-
lagsins hf., Olíuverslunar Íslands hf.
og Skeljungs hf. og lögðu hald á mik-
ið af gögnum og tölvugögnum.
Skeljungur fer
fram á gögn frá
Samkeppnisstofnun
PÁLL Pétursson, félagsmálaráð-
herra, lagði fram á Alþingi í gær
frumvarp til breytinga á lögum um
húsnæðismál. Breytingin snýr að tí-
unda kafla laga nr. 44 frá árinu 1998
um Varasjóð viðbótarlána, sem mun
heita Varasjóður húsnæðismála,
verði frumvarpið að lögum. Sjóðnum
er einkum ætlað að koma þeim sveit-
arfélögum til hjálpar sem átt hafa í
fjárhagsvanda vegna félagslegra
íbúða sem þau hafa ekki getað losað
sig við. Einstaklingum, einkum á höf-
uðborgarsvæðinu, verður einnig gert
kleift að selja íbúðirnar á almennum
markaði og sveitarfélögin aðstoðuð
bæði við rekstur íbúðanna og af-
skriftir þeirra, m.a. með niðurrifi.
Þessi verkefni sjóðsins munu
kosta 1,1 milljarð króna á næstu
fimm árum, samkvæmt rammasam-
komulagi sem gert hefur verið, eða
til loka ársins 2006. Framlag ríkisins
er þar af 300 milljónir króna, sveit-
arfélögin leggja til 600 milljónir
króna og Íbúðalánasjóður 200 millj-
ónir. Nánari skiptingu eftir verkefn-
um og fjármögnun má sjá á með-
fylgjandi töflu.
Páll Pétursson efndi til blaða-
mannafundar í gær til að kynna
frumvarpið. Hann sagði það mikil-
vægt skref í þeirri endurskipulagn-
ingu sem átt hefði sér stað á húsnæð-
iskerfinu síðastliðin ár. Breyting-
arnar ættu einnig að koma til hjálpar
minni sveitarfélögum sem staðið
hefðu uppi með fjölda tómra íbúða í
félagslega kerfinu. Tók hann dæmi
um Bolungarvík, Vesturbyggð og
Vestmannaeyjar.
Breytingar nauðsynlegar
Forsögu þessara breytinga nú má
rekja til þess að með lögunum nr. 44/
1998 var eldra félagslega húsnæðis-
kerfinu lokað. Sett voru bráðabirgða-
ákvæði um hvernig meðhöndla ætti
þær íbúðir sem áður höfðu verið
reistar. Frá árinu 1999 hafa því eng-
ar félagslegar íbúðir bæst við. Vara-
sjóður viðbótarlána hefur aðstoðað
sveitarfélög við að selja íbúðir úr
hinu félagslega kerfi á almennan
markað og hefur hagnaður af sölu
íbúðanna á höfuðborgarsvæðinu
runnið til þessa verkefnis ásamt
framlagi ríkisins. Félagsmálaráð-
herra sagði að hagnaður af sölu þess-
ara íbúða væri hverfandi og vandi
sumra sveitarfélaga því mikill. Nauð-
synlegt hefði verið að gera breyting-
ar á þessari aðstoð og fjármögnun
hennar. Páll sagðist vonast til þess að
eftir þann tíma sem aðstoðin næði til,
þ.e. í lok ársins 2006, yrði félagslega
íbúðakerfið orðið sjálfbært.
Frumvarpið nú byggir félagsmála-
ráðherra annars vegar á tillögum
nefndar sem hann skipaði í desember
árið 2000 til að endurskoða fyrrnefnd
lög um húsnæðismál. Nefndinni var
einnig falið að fjalla um ákvæði lag-
anna um kaupskyldu og er með
frumvarpinu lagt til að sveitarfélög-
um sé heimilt að falla frá kaupskyldu
að vissum skilyrðum uppfylltum.
Hins vegar byggist frumvarpið á
samkomulagi félagsmálaráðherra og
fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkis-
ins, og Sambands íslenskra sveitar-
félaga sem undirritað var 4. apríl sl. Í
samkomulaginu er kveðið á um verk-
efni Varasjóðs viðbótarlána, fram-
vegis Varasjóðs húsnæðislána.
Varðar um 2.100 fjölskyldur
í Reykjavík
Helgi Hjörvar, formaður félags-
málaráðs, var fulltrúi Reykjavíkur-
borgar í áðurtalinni nefnd sem fé-
lagsmálaráðherra skipaði. Hann
sagði við Morgunblaðið að þegar
hefði verið ákveðið að Reykjavíkur-
borg mundi nýta sér heimildar-
ákvæði til að losna undan kaup-
skyldu. Þetta hefði þau áhrif að um
2.100 fjölskyldur gætu selt félagsleg-
ar íbúðir sínar á markaðsverði þar
sem munurinn gæti verið allt að 3
milljónir króna fyrir hverja fjöl-
skyldu, miðað við reiknað verð fé-
lagslegu íbúðanna.
„Við erum að tala um umtalsverð-
an búhnykk fyrir fjölda efnaminni
fjölskyldna í borginni og verði þessi
breyting að lögum mun húsnæðis-
vandi margra einstaklinga leysast,“
sagði Helgi.
Félagslega íbúðakerfinu komið til aðstoðar í nýju frumvarpi ráðherra
Ríkið og sveitarfélögin
leggja til 1,1 milljarð
!"
""
""
"
"
!
!"
"
#""
"
"
"
"
"
"
#""
#""
"##