Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 12

Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 12
ÞAÐ er óhætt að segja að kynslóð- irnar hafi mæst í Gjábakka, félags- heimili eldra fólks í Kópavogi, á fimmtudag þegar einmánaðarfagn- aður var þar á bæ því þar voru sam- an komin börn af leikskólanum Marbakka, krakkar úr Digranes- skóla og eldri borgarar úr bæj- arfélaginu. Var fagnaðurinn liður í átaki þessara þriggja stofnana í að brúa bilið milli kynslóðanna. Að sögn Sigurbjargar Björgvins- dóttur var þetta stór dagur. „Þetta var gert til að sýna það að fólk á samleið óháð aldri. Þarna voru um 50–60 krakkar og 140–150 full- orðnir. Þetta var fólk á öllum aldri, sá elsti yfir nírætt og sá yngsti kannski fjögurra ára og svo var einnig fólk á miðjum aldri sem gaf sér tíma til að koma í heimsókn.“ Þátttakendur gerðu ýmislegt sér til skemmtunar, s.s. að tefla, lesa upp ljóð og vefa. Þá voru yngstu gestirnir, börnin af Marbakka, með sköpunar- og skemmtihorn og höfðu liti, leir, pappír og skæri sér til fulltingis. Segir Sigurbjörg eldra fólkið hafa aðstoðað börnin og tek- ið þátt í skapandi vinnu með þeim. En af hverju einmánaðarfagn- aður? „Við höfum verið með þorra- blót og góugleði og framundan er hörpuhátíð,“ segir Sigurbjörg. „Með þessu höfum við verið að halda upp á þessa gömlu mánuði til að minna á að þeir voru til.“ Leikskóli, grunnskóli og eldri borgarar hittust Kópavogur Morgunblaðið/Golli Krakkarnir úr Digranesskóla og skákmenn frá Gjábakka háðu marga hildi yfir skákborðum og er nú stefnt að taflmóti milli þessara kynslóða á næstunni þar sem gljáandi verðlaunapeningar verða veittir. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BIODROGA Bankastræti 3, sími 551 3635.Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi. Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri. Jurta - snyrtivörur Nýr farði Silkimjúk, semi-mött áferð. 4 litir. Póstkröfusendum ÞAU voru ófá reikningsdæmin sem leyst voru í stærðfræði- maraþoni 10. bekkjar Hagaskóla á föstudag og laugardag en mara- þonið var haldið í fjáröflunarskyni fyrir ferðalag sem farið verður í lok samræmdu prófanna í vor. Hér sést hluti þátttakenda mara- þonsins hampa nokkrum af þeim stærðfræðibókum sem ráðist var til atlögu gegn en reiknað var í gegnum allar stærðfræðibækur sem nemendur 10. bekkjar hafa lært í grunnskóla og var maraþon- ið því ágætis undirbúningur fyrir samræmt próf í stærðfræði í vor. Reiknað til fjár Vesturbær SAMTÖKIN ’78 hafa óskað eftir skýringum frá Kópavogsbæ vegna ummæla félagsmálastjóra bæjarins sem hann viðhafði í starfsviðtali við samkynhneigðan mann í byrjun mars sl. Hafa samtökin ennfremur óskað eftir upplýsingum um starfsmanna- stefnu bæjarins að því er varðar kyn- hneigð manna. Í bréfi formanns samtakanna segir að umræddur umsækjandi hafi sótt um starf sem umsjónarmaður með tilsjónarsambýli fyrir unglinga í Kópavogi. Í starfsviðtali vegna um- sóknarinnar hafi félagsmálastjóri bæjarins sagst hafa heyrt að um- sækjandinn væri samkynhneigður og teldi að hann hefði átt að gera grein fyrir því í starfsviðtalinu. Umsækj- andinn hafi verið ósáttur við þetta og talið að það að gera kynhneigð hans að umræðuefni við ráðningu í opin- bert starf væri handan við lög og reglur. Aðstandendur piltanna væru upplýstir áður en þeir flyttu inn Í frásögn umsækjandans af starf- sviðtalinu segir að félagsmálastjóri hafi talið nauðsynlegt að fá upplýs- ingar um kynhneigð viðkomandi „eðli starfsins vegna, bærinn yrði að bak- tryggja sig fyrir slúðri o.s.frv.“. Þá segir umsækjandinn að félagsmála- stjórinn hafi rökstutt mál sitt með því að benda á að sambýlið væri fyrir 16– 18 ára pilta. Bærinn myndi ekki ráða konu til starfsins þar sem það gæti valdið óþægilegum aðstæðum. Á sama hátt myndi bærinn ekki ráða karlmann á heimili fyrir þrjár stúlk- ur. Segir í bréfi formanns Samtakanna ’78 að af tali félagsmálastjóra hafi ekki verið „annað ályktað en að hann teldi viðkomandi pilta eiga á hættu kynferðislega áreitni af hálfu [um- sækjandans] ef af ráðningu yrði“. Þá teldi hann nauðsynlegt að aðstand- endum piltanna yrði gert ljóst, áður en þeir flyttu inn í slíkt sambýli, að umsækjandinn væri samkynhneigð- ur. Í frásögn umsækjandans kemur fram að félagsmálastjóri hugðist kalla saman deildarfund vegna máls- ins og myndu allir starfsmenn félags- máladeildarinnar sitja þann fund. Að sögn Aðalsteins Sigfússonar, fé- lagsmálastjóra Kópavogsbæjar, var annar umsækjandi ráðinn í stöðuna í síðustu viku. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig fyrr en bæjarráð hefði tekið fyrir umsögn hans um málið. Gerði kynhneigð um- sækjanda að umtalsefni Kópavogur Samtökin ’78 hafa óskað eftir skýringum vegna ummæla félagsmálastjóra bæjarins í starfsviðtali HJÓN við Heiðarlund í Garðabæ hafa kvartað undan lélegu vatns- rennsli og vatnsskorti á köldu vatni við bæjaryfirvöld. Segja þau vatnsþrýsting lélegan, oft komi dagar þar sem ekki komi dropi úr kaldavatnskrönum og iðulega hafi þau þurft að hringja í bæjarverk- fræðing á aðfangadag vegna vatns- leysisins. Hjónin segjast í bréfinu hafa bú- ið í húsi sínu við Heiðarlund í 28 ár og liðið þar vel. Þó hafi lítill þrýst- ingur á kaldavatninu gert þeim líf- ið leitt enda geri hann það að verk- um að ekki sé hægt að hreinsa tröppur eða steypt bílaplan. „Við erum hætt að reyna að vökva garð- inn að sumri til en vildum gjarnan geta þvegið glugga,“ segir í bréf- inu. Mestu vandræðin séu þó árlega í desembermánuði því þá komi dag- ar þar sem ekki komi dropi úr kaldavatnskrana og hjálpi ekki til þótt skipt sé um síur í krönum. Hjónin segjast árlega hringja í Áhaldahús bæjarins af þessum sökum og þá sé verkstjóri kallaður út til að setja aukadælu í gang. Ráðlagði bað á öðrum degi en aðfangadegi Í bréfinu segir að oft hafi þau þurft að hringja á aðfangadag heim til Eiríks Bjarnasonar bæj- arverkfræðings til að biðja um að- stoð vegna vatnsleysis og hafi skýringar verið ýmsar. „Síðast þegar haft var samband við hann ráðlagði hann okkur að fara í bað á einhverjum öðrum degi, en að- fangadegi, safna köldu vatni í ílát og potta og vera þannig tilbúin vatnslausum jólum,“ segir í bréf- inu. „Við vildum ekki trufla hans jólahátíð um síðustu jól en þar sem ekki kom dropi úr krana höfðum við samband við Gústaf Jónsson, sem setti aukadælu í gang og jólin urðu því ekki alveg vatnslaus.“ Segjast hjónin vera orðin lang- þreytt á engum úrbótum og léleg- um útskýringum á vatnsþrýstingi enda sé vatnsskattur sá sami hvort sem vatnsstreymi er mikið eða lít- ið. Hafi þau þurft að kaupa bæði nýja þvottavél og uppþvottavél af þessum sökum. Iðulega kaldavatns- laust á aðfangadag jóla $             ! %&   %&   (   % )    ( *  %&  %&  % &   % &   % &  ' %      + ,  -  %  '    . ,  /  +  ' 0   % , 1  0  +  $     %  ' " # $ %  &$ " # $ %  ' (   )  Aðgerðir til bóta á næstu tveimur vikum Samkvæmt upplýsingum frá Guðfinnu B. Kristjánsdóttur, upp- lýsingastjóra Garðabæjar, stendur Heiðarlundur tiltölulega hátt í bæjarlandinu en hingað til hefur hann ekki verið innan svokallaðs þrýstisvæðis sem vatni hefur verið sérstaklega dælt inn á. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að stækka umrætt þrýstisvæði til að bæta úr vatnsskorti í Heiðarlundi og nágrenni. Til að gera það þarf að setja hjáveitu á vatnsæð við núverandi mörk þrýstisvæðisins, sem eru við mót Hofsstaðabrautar og Karla- brautar og verður það gert á næstu tveimur vikum. Þær götur, sem munu við breytingarnar lenda innan þessa þrýstisvæðis en voru þar ekki áður eru Heiðarlundur, Hofslundur, Reynilundur og Hörgslundur. Kumpánlegt samtal Varðandi ummæli sín sem rakin eru í bréfinu segir Eiríkur Bjarna- son bæjarverkfræðingur að um kumpánlegt samtal hafi verið að ræða og að hans mati hafi ummæl- in ekki verið nákvæmlega á þessa veru. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um þau. Garðabær Kvartað undan lélegu vatnsrennsli í Heiðarlundi Úrbætur fyrirhugaðar segir upplýsingastjóri bæjarins VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.