Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FULLTRÚAR þrettán fyrirtækja ogstofnana tóku þátt í ferð viðskipta-sendinefndarinnar sem Útflutn-ingsráð Íslands skipulagði í tengslum við opinbera heimsókn forsætis- ráðherra til Víetnams. Í samvinnu við sam- tök viðskiptalífsins í Víetnam var komið á samskiptum milli fyrirtækja. Hver íslenski fulltrúinn hitti nokkra hugsanlega viðskipta- vini frá fyrirtækjum í báðum borgunum, það er að segja í Hanoi og Ho Chi Minh borg. Þá skipulagði Útflutningsráð þrjár ráðstefnur; íslenskar viðskiptaráðstefnur í báðum borg- unum og sérstaka sjávarútvegsráðstefnu í HCM-borg. Fulltrúar fyrirtækjanna sem rætt var við voru ánægðir með viðskipta- fundina, sögðust hafa komist í samband við mörg fyrirtæki og í sumum tilvikum var að heyra að samtölin gætu leitt til viðskipta síð- ar meir. Fyrirtæki sem ekki sendu fulltrúa í umrædda ferð hafa einnig verið í tengslum við Víetnam og sum reynt fyrir sér með starfsemi þar. Viðskiptaráðstefnurnar voru vel sóttar. Yfir 200 manns mættu á ráðstefnuna í Hanoi og var það fleira fólk en búist hafði verið við og um 180 komu á viðskiptaráðstefnuna í Ho Chi Minh-borg. Opna kerfið fyrir íslensk fyrirtæki Greinilegt er að það skipti fulltrúa ís- lenska viðskiptalífsins miklu máli að vera á ferð í óbeinum tengslum við opinbera heim- sókn forsætisráðherra til Víetnams. Raunar tók ráðherra beinan þátt í viðskiptaráð- stefnunum og var viðstaddur undirritun 10 milljarða króna samstarfssamnings Icecon/ Markviss við samtök sjávarvöruframleið- enda og útflytjenda í Víetnam og opnun sölu- skrifstofu Marels. Ekki má gleyma því að undirrituð var yfirlýsing stjórnvalda land- anna um að stuðla að auknum viðskiptum og að viðskiptamálefni bar oft á góma í við- ræðum opinberu íslensku sendinefndarinnar við ráðamenn. Jón Ásbergsson, fram- kvæmdastjóri Útflutningsráðs, segir að sú mikla athygli sem heimsókn Davíðs Odds- sonar hafi fengið, hafi opnað kerfið fyrir ís- lensk fyrirtæki. Jón Ásbjörnsson sem rekur fiskvinnslu- og útflutningsfyrirtæki undir sínu nafni sagðist hafa fengið tækifæri til að hitta æðstu stjórnendur fyrirtækja sem hefðu áhuga á að eiga samstarf við íslensk fyrirtæki. Slík tækifæri fengju menn ekki nema í tengslum við opinberar heimsóknir. Hörður Arnarson, forstjóri Marels, sagði að vegna þátttöku forsætisráðherra í opn- unarathöfn söluskrifstofunnar sem Marel opnaði undir nafni Carnitech í HCM-borg og þau góðu orð sem hann lét þar og annars staðar falla um fyrirtækið svo og þátttaka aðstoðarsjávarútvegsráðherra Víetnams hafi hjálpað fyrirtækinu vel af stað. Það hafi meðal annars leitt til þess að yfirmenn fimm- tán stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna í Ví- etnam hafi verið viðstaddir opnunina og set- ið hádegisverðarboð á eftir. Gert hátt undir höfði Ljóst er að íslenska forsætisráðherranum var hampað í Víetnam. Hann fór meðal ann- ars til fundar við forsætisráðherra landsins, sem var gestgjafi hans, forseta þingsins, sjávarútvegsráðherra og borgarstjóra stærstu borga landsins. Sá eini af æðstu ráðamönnum landsins sem hann hitti ekki er Nong Duc Manh, aðalritari Kommúnista- flokks Víetnams sem öllu ræður enda er landið sósíalískt lýðveldi. Fulltrúar fjölmiðla mættu á flesta atburði og töluvert var fjallað um heimsóknina í sjónvarpi og blöðum, því var jafnvel haldið fram í eyru undirritaðs að jafnmikið hafi ver- ið fjallað um heimsókn Davíðs og hina sögu- legu heimsókn Clintons Bandaríkjaforseta en það hljóta að vera ýkjur. Þess ber að geta að fjölmiðlar í Víetnam eru ekki frjálsir í vestrænum skilningi þess orðs, Kommún- istaflokkurinn hefur stjórnað fjölmiðlun í landinu og beitt strangri ritskoðun. Í höf- uðborginni, Hanoi, voru strengdir rauðir borðar yfir götur í miðborginni þar sem Dav- íð Oddsson og eiginkona hans voru boðin vel- komin í opinbera heimsókn. Loks má geta þess að ekki hafa margir borgarar sem áttu leið um hinar villtu umferðargötur borganna tveggja á þessum tíma komist hjá því að tefj- ast vegna bílalestar Íslendinganna sem fór um allt í lögreglufylgd og var umferð stöðv- uð á meðan. Hefur sjálfsagt þurft mörg hundruð lögreglumenn til að stjórna umferð- inni, svo ekki sé giskað á hærri tölur. Sjálfur segist Davíð vera undrandi á því hvað heimsókninni var gert hátt undir höfði en tekur þó fram að slíkt megi ekki ofmeta. Hefur hann ekki skýringar á reiðum hönd- um. Segist þó hafa orðið var við að Víetnam- ar líti til þess að Íslendingar hafi brotist til efna á tiltölulega skömmum tíma og yfirunn- ið ýmsa erfiðleika á þeirri leið. Þá segir hann að Vo Van Kiet, fyrrverandi forsætisráð- herra Víetnams, hafi hrifist mjög af Íslandi þegar hann kom í opinbera heimsókn hingað árið 1995 og séð strax að löndin gætu átt samstarfsmöguleika þrátt fyrir fjarlægðina. Þess má geta að Van Kiet er enn áhrifamað- ur í landinu þótt hann hafi látið af embætti. Óskaði hann sérstaklega eftir að fá að hitta íslenska forsætisráðherrann og urðu að sögn Davíðs fagnaðarfundir þegar þeir hittust síð- asta dag heimsóknarinnar. Mikil aukning í sjávarútvegi Fram til þessa hafa Ísland og Víetnam átt í litlum viðskiptum, samkvæmt opinberum hagtölum. Útflutningur þangað hefur nánast enginn verið, sum árin enginn og aðeins fyrir nokkur hundruð þúsund síðustu tvö árin. Innflutningur frá Víetnam hefur þó vaxið úr engu og hefur verið 150-200 milljónir á ári síðustu þrjú árin. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna því íslensk fyrirtæki eiga í ýms- um viðskiptum við Víetnam í gegn um erlend dótturfélög og vörur frá Víetnam hafa verið fluttar hingað til lands í gegn um heildsala í Evrópu. Jón Ásbergsson hjá Útflutningsráði segir að mestu möguleikarnir á viðskiptum við Ví- etnam liggi í sjávarútvegi sem hefur farið mjög vaxandi í landinu. Veiðar og fiskeldi hafa aukist hröðum skrefum, útflutningur sjávarafurða jókst um 11% á síðasta ári. Skip eru byggð og hrísgrjónaakrar teknir undir fiskeldi. Víetnamar hafa selt vörur sínar í auknum mæli inn á kröfuharða markaði. Lengi var Japan helsti kaupandi afurðanna en eftir að eðlilegt viðskiptasamband komst aftur á við Bandaríkjamenn hefur sala þang- að sífellt aukist og eru Bandaríkin nú mik- ilvægasti útflutningsmarkaður sjávarútvegs í Víetnam. Eldi á dökkri hlýsjávarrækju hef- ur aukist mikið og mikil framleiðsla er einnig á kattgrana (catfish). Jón Ásbergsson nefnir sem dæmi að nú sé svo komið að Víetnamar séu að flytja út fisk fyrir tvo milljarða Bandaríkjadala á ári, eða helmingi hærri fjárhæð en Íslendingar. Íslensk fyrirtæki eru að undirbúa ýmis verkefni í sjávarútvegi í Víetnam, meðal ann- ars er hugsanlegt samstarf um útgerð. Við blasir þó þörf sjávarútvegsins fyrir aðstoð við þróun og uppbyggingu tækni og gæða- mála. Þar sjá íslensku fyrirtækin ýmis við- skiptatækifæri. Einnig eru nokkur þeirra að athuga möguleika á að flytja fisk til Víetnam og láta vinna þar, eins og gert er nú þegar í Asíulöndum. Teitur Gylfason, framkvæmdastjóri SÍF í Japan, sem var í sinni þriðju viðskiptaferð til Víetnams, segir að gríðarlegur kraftur sé í Víetnömum og möguleikar í fiskiðnaði sem fari vonandi áfram vaxandi. Hann metur það svo að fleiri viðskiptatækifæri séu á suð- ursvæðinu. Þar séu fyrirtækin stærri, miðað við þá menn sem komu til fundar við hann eru sjávarútvegsfyrirtækin í suðurhlutanum tvisvar til þrisvar sinnum stærri en á norð- ursvæðinu. Ho Chi Minh borg sé einnig mun þróaðri en Hanoi, meiri peningar í umferð og auðveldara að eiga viðskipti. Segir Teitur að þótt SÍF hafi sjálft mikla framleiðslu og vöruúrval vanti ákveðnar teg- undir inn í sem hugsanlegt væri að kaupa í Víetnam. Nefnir hann hlýsjávartegundir, rækju og kattgrana. Þarna sé hins vegar hætta á ferðum í gæðamálum en SÍF hafi yf- ir að ráða þekkingu til að yfirvinna slík vandamál, ef tekið yrði upp samstarf við víetnömsk fyrirtæki. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa, telur að tækifæri sé til þess að taka upp samvinnu við víetnömsk sjávarútvegsfyrirtæki um að vinna þar fisk. Flytja hráefni þangað frá Ís- landi og öðrum löndum, til dæmis heilfrystan úthafskarfa og grálúðu, til frekri vinnslu fyr- ir Japansmarkað þar sem fiskvinnsla sé á undanhaldi. „Það hlýtur að vera spennandi að fullvinna vöruna fyrir markaðina og breikka vöruframboð fyrirtækisins.“ Guð- brandur telur einnig að áhugavert kunni að vera að vinna kattgrana sem mikið er fram- leitt af í Víetnam. Segir hann að ferð sem þessi sé fyrsta mat á markaðnum. Síðan þurfi að fara til áhugaverðra samstarfsaðila og taka starfsemi þeirra út og fyrirtækin þurfi síðan að vera samkeppnisfær við Kína og Taíland þar sem slík framleiðsla fari fram í stórum stíl. Timbur, grjón og ferðamenn Þótt samningur Icecon og opnun skrif- stofu Marels snúist um sjávarútveg og marg- ir fulltrúanna í viðskiptasendinefndinni haft áhuga á þeim málum er verið að huga að fleiri viðskiptatækifærum í Víetnam, aðal- lega innflutningi á vörum þaðan. Þótt þetta sé 84 milljón manna markaður er varla við því að búast að íslensk fyrirtæki geti selt þangað mikið af vörum og þjónustu, öðru en tengist þekkingu í sjávarútvegi. Þó eru dæmi um að íslensk fyrirtæki séu að reyna að selja þar vörur frá öðrum löndum, til dæmis timb- ur frá Laos eins og fram kom hjá Eyþóri Arnalds, framkvæmdastjóra Schandic Timb- er, á viðskiptaráðstefnunni í HCM-borg. Sælkeradreifing Nings hefur keypt tölu- vert af víetnömskum vörum til Íslands, frá heildsölum í Evrópu. Bjarni Óskarsson, eig- andi fyrirtækisins, og Ning de Jesus, fram- kvæmdastjóri Asíuviðskipta, segjast hafa komist í góð viðskiptasambönd í Víetnam og hyggi á milliliðalausan innflutning þaðan. Bjarni nefnir að þeir hafi komist í samband við stærsta hrísgrjónaframleiðanda landsins og geti fengið grjónin á lægra verði í Víet- nam en í Taílandi þar sem fyrirtækið hefur verslað til þessa. Þeir hafa einnig verið að huga að ýmsum fleiri spennandi vörum, til dæmis framandi hitabeltisávöxtum. Ferðaþjónusta er mjög vaxandi atvinnu- grein í Víetnam enda má segja að landið sé að komast í tísku á því sviði. Ferðaskrif- stofan Embla skipuleggur ferðir þangað. Sú fyrsta var á síðasta ári og fleiri í bígerð. Ingiveig Gunnarsdóttir segir að Víetnam sé spennandi fyrir ferðafólk einmitt núna. Enn sé hægt að komast í snertingu við nokkuð ósnortna menningu Asíu á nálægan hátt, auk þess sem fræðst sé um umbrotamikla sögu landsins og upplifa náttúruna. Ferðamála- yfirvöld í landinu eru að auka áherslu á vist- væna ferðaþjónustu og í viðskiptaferðinni til Víetnam komst Ingiveig í samband við eig- endur vistvæns þorps sem hafa áhuga á að opna búgarð sinn fyrir ferðafólki og leyfa því að kynnast fólkinu að störfum á hrísgrjóna- ökrunum. Segir Ingiveig að ýmis önnur sóknarfæri séu í Víetnam. Hún nefnir einnig að í ferðinni hafi komið fram áhugi á viðskiptaferðum til Íslands. Stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja vilji koma til að kynna sér starfsemi íslenskra fyrirtækja. Í ávarpi við opnun söluskrifstofu Marels sagði aðstoðarsjávarútvegsráðherra Víetnams frá þessum áformum. Markaður í stað samyrkju Eftir sameiningu Norður- og Suður-Víet- nams um miðjan áttunda áratuginn var tek- inn upp marxísk-sovéskur áætlanabúskapur og samyrkjustefna í Suður-Víetnam eins og verið hafði í norðurhlutanum. Landið átti einnig í styrjöldum við nágrannalönd og var nánast útilokað úr alþjóðasamfélaginu. Efna- hagsstefnan beið algert skipbrot og skildi þjóðina eftir á köldum klaka, 800% verð- bólgu, fólk hafði ekki nóg að borða og fjöldi flúði land. Kommúnistaflokkurinn sneri við blaðinu 1986 með uppbyggingaráætluninni Doi Moi þar sem tökin voru linuð á markaðs- öflunum og erlendar fjárfestingar heimilað- ar. Hefur þetta leitt til mikils hagvaxtar og batnandi lífskjara þótt Víetnam sé enn eitt af fátækustu löndum heims og þar er atvinnu- leysi verulegt, meðal annars meðal ungs menntafólks. Í sveitunum mun ástandið vera enn verra en í borgunum. Þrátt fyrir umbæturnar hafa íslensk fyr- irtæki verið hikandi við að fara með starf- semi inn á markaðinn í Víetnam. Skrifað hef- ur verið um spillingu í stjórnkerfinu og að menn þurfi að nota mútur til að fá nauðsyn- leg leyfi. Hörður Arnarson segir að mútur viðgangist ekki í þeirri grein sem Marel starfar í. Þótt svo væri myndi fyrirtækið ekki taka þátt í slíkri starfsemi. „Það er mikilvægt að menn kynni sér vel markaðinn og þær reglur sem á honum gilda. Eftir að það er fengið er ekki vand- kvæðum bundið að selja vörur í Víetnam,“ segir Hörður. Opinber heimsókn forsætisráðherra til Víetnams opnar íslensku fyrirtækjunum ýmsar dyr Helstu tæki- færin eru í útveginum Bein viðskipti Íslendinga og Víetnama hafa verið sára- lítil en nú kann að verða breyting þar á. Fulltrúar fyr- irtækjanna sem voru í Víetnam meðan á opinberri heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra stóð komust í mikilvæg sambönd sem gætu leitt til við- skipta. Helgi Bjarnason var með í Víetnamferðinni. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hluti af viðskiptasendinefndinni sem heimsótti Víetnam stillir sér upp til myndatöku á svölum 32. hæðar Saigon Trade Center í Ho Chi Minh-borg, ánægður með árangur ferðarinnar, f.v.: Vilhjálmur Guðmundsson, Teitur Gylfason, Jón Ásbergsson, Ning de Jesus, Bjarni Óskarsson, Jón Ásbjörnsson, Guðbrandur Sigurðsson, Tumi Tómasson og Þorgeir Pálsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.