Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 27
13 banka- og
fjármálastofnanir
eru tengdar við ljósleiðarakerfi Línu.Nets
TÍMAVÉLIN er byggð á sam-
nefndri skáldsögu H.G. Wells, afa
leikstjórans Simons Wells. Barna-
barnið hefur kosið að vera skáldsög-
unni ekki sérlega hliðhollt, heldur
skapa nýja sögu í kringum hug-
myndina um að ferðast fram og aftur
í tímann og að í framtíðinni muni
mannkynið skipta sér í tvö mannkyn.
Hið illa og hið góða.
Guy Pearce leikur uppfinninga-
manninn Hartdeger sem er yfir sig
ástfanginn af Emmu sinni. Þegar
óhapp verður til þess að hann getur
ekki eytt lífinu með henni, eyðir
hann fjórum árum í að hanna tímavél
til að geta breytt fortíðinni, og þá
byrja ævintýirin. Hann fer aftur og
fram í tímann, og það er skemmtilegt
á að horfa. Þegar hann fer 130 ár
fram í tímann, sér maður hvernig
byggingar New York borgar hverfa
eða breytast. Seinna fer hann um
800 þúsund ár fram í tímann og þá
förum við í gegnum komandi ísaldir
og algera endursköpun jarðarinnar,
sem einnig er skemmtileg fyrir aug-
að.
Það voru mistök hjá Simon að vera
ekki hollari sögu afa gamla, því órök-
vísi handritsins gerir það oft að
hreinasta bulli sem bæði er erfitt að
skilja og trúa. Göt og gloppur hér og
þar og alls staðar gera áhorfandann
meira en lítið svekktan. Svör við að-
alspurningu myndarinnar: „Hvers
vegna er ekki hægt að breyta fortíð-
inni?“ sem Hartdeger leitar, eru
engin.
Og svo er það leikurinn sem er
heldur ekkert til að hrópa húrra fyr-
ir. Ég er eiginlega búin að missa álit-
ið á Pearce eftir Monte Cristo og síð-
an þessa mynd. Þótt texti og samtöl
gefi til kynna að vísindamaðurinn sé
smábilaður, þá er leikur Pearce alls
ekki eftir því. Hann er því miður
ósannfærandi. Jeremy Irons sýnir
sína dramatísku og vanalegu ill-
mannlegu takta, og poppstjarnan,
sem leikur Möru, er áreiðanlega
betri poppstjarna en leikkona.
Vondu framtíðarverurnar eru
einnig hinar furðulegustu. Sambland
af John Travolta í Battleship Earth
og einhverri Star Trek-veru, jafnvel
með einhver geimverugen í sér.
Þetta eru viðbjóðslegar skepnur og
ég verð að segja að ég var býsna
hrædd þegar þær gerðu fyrstu inn-
rás sína. Skrýtið finnst mér líka að
nýja mannkynið skuli tala lýtalausa
ensku, með framburðinn og allt á
hreinu. Eftir 800 þúsund ár! Nei,
þessu get ég ekki trúað.
Þótt tæknin sé ekki beint að stríða
okkur í Tímavélinni, þá gerir skyn-
semi kvikmyndagerðarmannanna
það, og þá er ekkert gaman lengur.
Göt og
gloppur
KVIKMYNDIR
Sambíóin Kringlunni, Snorra-
braut og Álfabakka
Leikstjórn: Simon Wells. Handrit: John
Logan eftir sögu H.G. Wells og eldra
handriti Davids Duncans. Kvikmynda-
taka: Donald McAlpine. Aðalhlutverk:
Guy Pearce, Samantha Mumba, Jeremy
Irons, Orlando Jones, Yancey Arias, Si-
enna Guillory og Mark Addy. 96 mín.
USA. Warner Bros. 2002.
THE TIME MACHINE/TÍMAVÉLIN Hildur Loftsdóttir
Sérblað alla
sunnudag
Þumalína
Pósthússtræti/Skólavörðustíg
Allt fyrir mömmu og litla krílið
Póstsendum – sími 551 2136