Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Styrktarsjóður
Listasafns Háskóla Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum.
Styrktarsjóður Listasafns Háskóla Íslands
var stofnaður árið 1999 af Sverri
Sigurðssyni.
Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir á
íslenskri myndlist að fornu og nýju. Í því
skyni skulu árlega veittir styrkir af ráð-
stöfunarfé sjóðsins til rannsókna á sviði
íslenskrar myndlistar, myndlistarsögu og
forvörslu myndverka svo og til birtingar á
niðurstöðum slíkra rannsókna.
Umsóknir berist í þríriti fyrir föstudaginn
3. maí næstkomandi merkt:
Listasafn Háskóla Íslands, Styrktarsjóður,
Oddi, 101 Reykjavík.
Úthlutað verður úr sjóðnum
í lok maí 2002.
Dagskrá
Miðvikudagur 10. apríl
Kl. 10:00-12:00
Aðalfundur settur:
Steinn Logi Björnsson, formaður SAF.
Ávarp:
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra.
Niðurstöður könnunar SAF um
Markaðsráð ferðaþjónustunnar.
Arnar Már Ólafsson, framkvæmdastjóri
Ferðamálaseturs Íslands.
Túlkun niðurstaðnanna.
Steinn Logi Björnsson, formaður SAF.
Áform Reykjavíkurborgar í markaðsmálum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri.
Framkvæmd mála hjá Markaðsráði
ferðaþjónustunnar.
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri.
Markaðssetning erlendis - samstarf.
Stefán Eyjólfsson, svæðisstjóri Flugleiða í
Bretlandi.
Alþjóðlegt markaðsstarf.
Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri Radisson
SAS Hótel Sögu.
Kl. 13:00-15:00
Almennar umræður um markaðsmál.
Kl. 15:30-17:00
Aðalfundarstörf skv. lögum SAF.
Skýrslur fagnefnda.
Önnur mál.
Kl. 19:30-01:00
Kvöldverðarhóf félagsmanna
og maka á Hótel KEA.
Fimmtudagur 11. apríl
Kl. 9:00-11:30
Fundir faghópa.
Afþreyingarfyrirtæki og ferðaskrifstofur.
Tryggingar, starfsreglur og öryggismál.
Bílaleigur.
Leiguskilmálar, samskipti bílaleiga
og bílaumboða.
Flugfélög.
Flugvernd og almennar umræður.
Gististaðir.
Öryggisúttektir, greiðslutryggingar og
þjóðlegur matur.
Hópbifreiðafyrirtæki.
Rekstur í vsk-umhverfi, samspil verðs
og gæða.
Veitingastaðir.
Fræðslumál, vörumarkaðir og þjóðlegur
matur.
Kl. 12:00-14:00
Hádegisverður á Fiðlaranum
Stutt samantekt, önnur mál/frh.
og slit aðalfundar.
Samtök ferðaþjónustunnar - SAF -
eru málsvari og sameiginlegur
vettvangur íslenskra fyrirtækja sem
stunda rekstur á sviði ferðaþjónustu.
Aðild að SAF er heimil öllum
fyrirtækjum sem telja sig starfa
í ferðaþjónustu.
Aðalfundur Samtaka
ferðaþjónustunnar
Akureyri (Ketilhúsi) 10. og 11. apríl 2002
Að markaðssetja Ísland
Aðalfundur Samtaka
ferðaþjónustunnar er opinn
fulltrúum frá aðildarfélögum SAF.
www.saf.is
Samtök ferðaþjónustunnar
Hafnarstræti 20, sími 511 8000
UMGJÖRÐIN að þessu nýja verki
Þorvaldar Þorsteinssonar er í grunn-
inn afar einföld: Sex manneskjur
sækja námskeið hjá þeirri sjöundu,
sem hefur frelsast til nýrrar trúar á
amerískan meistara (Will Johnson)
og vill nú útbreiða fagnaðarerindið.
Tilgangurinn er að „finna sjálfan sig“
með því að „leika“ sér (og sjálfan sig) í
þeim tilgangi að losa um sálarflækjur,
finna lífi sínu tilgang og verða ham-
ingjusamur. Strax í útúrsnúningnum
á frasanum að „leita að sjálfum sér“
er tóninn gefinn; þetta fólk er sann-
arlega ekki tilbúið í sanna „leit“ en
tekur þátt í „leiknum“ og lætur jafn-
vel leika með sig.
Sjálfshjálparhópar af þessu tagi
liggja afar vel við höggi, svo að segja,
auðvelt er að skopast að þessu „með-
ferðarformi“ enda byrjar leikritið
sem bullandi satíra og höfundur
dregur alla aðila leiksins sundur og
saman í háði og beinir spjótum víða.
Leikritið byrjar því sem fyrsta flokks
gamanleikur – en fljótlega fer gam-
anið að kárna. Þátttakendurnir, sem
undirstrika eigið fordómaleysi og um-
burðarlyndi í byrjun, reynast burðast
með ýmislegt óhreint í pokahorninu,
eins og við er að búast, og stigmagn-
andi átök fara í gang. Verkið fær því
alvarlegri undirtón þegar líða tekur á
sýninguna en þó ekki á þann hátt að
leikritið breytist úr skopleik í
raunsæisdrama. Það er líklega einn
helsti styrkur verksins hversu vel
höfundi tekst að vega salt á milli hins
dramatíska efniviðar og sinnar eigin
háðsku sýnar. En þar með eru þó
ekki öll kurl komin til grafar því það
sem gefur þessu snjalla leikriti hvað
mestan slagkraft er sú staðreynd að
hversu mjög sem persónurnar opin-
bera lesti sína og „perversjónir“, for-
dóma og ranghugmyndir, ótta og
angist, þá virðist það ekki hreyfa við
viðstöddum svo nokkru nemi. Þótt
einstaklingar fari hamförum, afhjúpi
sín sár og leyndustu afkima ofbeldis
og sálsýki þá virðist það ekki snerta
neinn, ekki fremur en náttúruham-
farirnar sem verkinu lýkur á.
Ef hægt er að tala um að höfundur
vilji koma einhverjum boðskap á
framfæri þá hlýtur hann að felast í
ábendingu um það að sinnuleysi ein-
kenni samskipti fólks; sinnuleysi sem
ristir dýpra en nokkur mannleg ör-
vænting eða nokkur annar þáttur í
mannlegu eðli. Ef þetta er sýn höf-
undar er hún í hæsta máta óhugguleg
og nöpur þótt framreiðslan sé öll á
hinum satírísku nótum. Séð í þessu
ljósi er þetta nýja verk Þorvaldar
kannski ekki svo óskylt hinum hug-
ljúfu bókum hans um Blíðfinn þar
sem sterkur siðferðilegur boðskapur
og húmanismi ræður ferðinni, klætt í
búning snjallrar fantasíu. Framsetn-
ingin er því vissulega með ólíkum
hætti og þetta leikrit verður eflaust
flokkað nær skáldsögu Þorvaldar, Við
fótskör meistarans, sem kom út síð-
astliðið haust, þar sem einnig er
ferðast um heim hins afbrigðilega og
sjúka í mannlegum samskiptum.
Þessi þriðja sýning sem leikhópur-
inn sem ræður ríkjum á Nýja sviði
Borgarleikhússins setur upp er þriðji
sigur þeirra. Hópurinn hefur unnið
frábærlega vel úr þessu verki Þor-
valdar undir stjórn Benedikts Erl-
ingssonar sem getur verið stoltur af
sínu fólki og sinni vinnu. Erfitt er – og
kannski ástæðulaust – að gera mikið
upp á milli einstakra leikara, en þó er
ljóst að eftir því sem persónurnar eru
mótaðri frá hendi höfundar, þess bet-
ur tókst að túlka þær. Þannig eru
hjónin Hulda (Sigrún Edda Björns-
dóttir) og Indriði (Þór Tulinius) dreg-
in afar skýrum dráttum og leikurun-
um tveimur tókst snilldarlega að
koma á framfæri hinu tóma, sjúka og
úrkynjaða í þeirra sambandi sem er
svo slétt og fellt á yfirborðinu. Hall-
dór Gylfason fór afar skemmtilega
með hlutverk leigubílstjórans Þráins,
sem vill bara fá að vinna sína vinnu,
ferðast í fríum og stefnir að því
stunda hóflega heilsurækt og hætta
að reykja. Sömu sögu er að segja um
túlkun Hörpu Arnarsdóttir á „leið-
beinandanum,“ Ástu, sem kokgleypt
hefur fræði „meistarans“ sem hún
dýrkar í gagnrýnislausri undirgefni.
Sóley Elíasdóttir leikur Mörtu sem
kannski er ein heilsteyptasta persóna
verksins þótt hún búi að þeirri
reynslu að hafa verið kynferðislega
misnotað barn. Marta virðist eina
manneskjan í hópnum sem kann að
sýna öðrum athygli og hlýju. Gunnar
Hansson leikur Hans, ungan mann
sem vill prófa allt, gott og slæmt, og
því kannski ekki hægt að gera kröfu
um skýra drætti í hans persónusköp-
un. Gunnari tókst mjög vel upp í fjöl-
breytilegum einræðum persónunnar.
Halldóra Geirharðsdóttir leikur Stef-
aníu sem er óræðasta persóna leik-
ritsins og setti sú staðreynd nokkuð
mark á túlkun hennar þótt gervið
væri vissulega sannfærandi, en það
var erfitt að átta sig á sögu og að-
stæðum persónunnar. Þegar texti
leikritsins (sem birtur er í leikskrá) er
skoðaður kemur í ljós að mörgu hefur
verið sleppt í sýningunni og kann það
að skýra ýmsa lausa enda í persónu-
sköpun og hver tengsl einstakra per-
sóna eru (hvernig er sambandi Stef-
aníu og Þráins til dæmis háttað?).
Umgjörð sýningarinnar er látlaus
og einföld, eins og í fyrri sýningum á
Nýja sviðinu, og sannar enn sem fyrr
að leiklistin þarf ekki mikinn ytri
íburð til að ná í gegn. Hér er þó alls
ekki verið að gera lítið úr vinnu Stígs
Steinþórssonar sem hefur skapað
verkinu hárrétta umgjörð í einfaldri
leikmynd; Ragnars Kjartanssonar
sem á heiðurinn af tónlistarumgjörð
sem er látlaus en sterk; Stefaníu
Adolfsdóttur sem hannar búninga í
samráði við leikhópinn; eða Jakobs
Tryggvasonar sem stjórnar hljóði. Sá
síðastnefndi á reyndar mikið hól skil-
ið fyrir áhrifaríkan lokakafla sýning-
arinnar. Í heild er hér um afar
skemmtilega og áleitna sýningu að
ræða sem ég gæti trúað að ætti eftir
að ganga vel þótt efniviðurinn sé hrár
og miskunnarlaus á köflum.
Hamfarir í Borg-
arleikhúsinu
Morgunblaðið/Sverrir
„Þessi þriðja sýning sem leikhópurinn sem ræður ríkjum á Nýja sviði
Borgarleikhússins setur upp er þriðji sigur þeirra. Hópurinn hefur unn-
ið frábærlega vel úr þessu verki Þorvaldar Þorsteinssonar.“
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur
Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson. Leik-
stjóri: Benedikt Erlingsson. Leikarar:
Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Hall-
dóra Geirharðsdóttir, Harpa Arnardóttir,
Sigrún Edda Björnsdóttir, Sóley Elías-
dóttir og Þór Tulinius. Leikmynd: Stígur
Steinsþórsson. Lýsing: Kári Gíslason.
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Hljóð:
Jakob Tryggvason. Tónlistarumsjón:
Ragnar Kjartansson. Nýja svið Borg-
arleikhússins 7. apríl.
AND BJÖRK, OF COURSE…
Soffía Auður Birgisdóttir