Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 36

Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 36
UMRÆÐAN 36 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ É g hef sjö sinnum keyrt austur eftir Tryggvagötunni og komið á þessi und- arlegu gatnamót þar sem einu sinni stóð kofi með kjúklingasölu og pylsuvagninn stendur enn, Eimskip er á hægri hönd, Hornið þar austur af, Toll- stöðin norður af og lengst af óskil- greint bílaplan framundan. Ég hef aldrei ratað um þessar krossgötur og alltaf setið fastur eins og negld- ur á þeim miðjum enda hefur aldr- ei í þessi sjö skipti verið eins um að litast þarna. Þetta er einn af þessum magísku stöð- um í borginni sem eru alltaf nýir og fá mann til að staldra við og láta hugann reika. Mín vandræði eru þó léttvæg miðað við þau sem útlendingar hljóta að lenda í þegar þeir vilja komast á pylsubarinn að virða fyr- ir sér þórshamarinn á Eimskipa- félagshúsinu sem í byrjun aldar prýddi líka ölflöskur frá Carlsberg en gerir það ekki lengur. Útlend- ingar – og þá skiptir engu hvaðan þeir útlendingar eru – skilja ekki framúrstefnulegt skipulag þessa horns í Reykjavíkurborg enda þyrftu þeir að þekkja alla söguna sem býr að baki, hvernig borgin hefur þróast úr litlu þorpi við sjáv- arkambinn í úthverfaborg á heimsmælikvarða með síaukinni umferð inn í miðbæinn og út úr honum með vaxandi akreina- og bílastæðavandamálum sem menn hafa haft mikil plön um að leysa með hraðbrautum ofanjarðar og neðanjarðarbílastæðahúsum, og hvernig gatnamálayfirvöld hafa ætíð haft þessa óforbetranlegu húmorísku afstöðu til viðfangs- efnis síns og hvernig nýting rýmis hefur ætíð skilað sér í stórum mal- arplönum og í besta falli grasböl- um sem lungann úr árinu er eitt drullusvað og öllum til ama og leið- inda. Hvernig eiga útlendingar sem dvelja hér aðeins í fáeina daga að geta áttað sig á þessum vega- spottahnút beint fyrir framan lög- reglustöðina ef ég hef farið þarna sjö sinnum og aldrei ratað rétta leið? Og hvernig eiga útlendingar að skilja brúarsporðinn sem stendur út úr gaflinum á Tollstöð- inni og horfir inn í eilífðina eins og nátttröll? Þeir geta ekki hringt í Pétur H. Ármannsson og fengið hjá honum söguna um stórhuga aðalskipulag frá fyrri helmingi sjö- unda áratugarins sem gerði ráð fyrir hraðbraut í gegnum Grjóta- þorpið og yfir austurbakkann – þar sem Geirsgatan liggur nú á jörðinni – eftir brú og að af henni mætti víkja sér inn á brúarsporð- inn núverandi á þriðju hæð Toll- stöðvarinnar og leggja bílnum í drullupollalaust bílastæði. Þetta var íslenski stórborgardraum- urinn sem aldrei rættist en eftir stendur þessi sporður til að minna okkur á að hugmyndir geta líka dáið. Sjálfur hef ég tekið þann kostinn að segja útlendingunum að sporðurinn sé skúlptúr. Það kemur betur út fyrir þjóðarsálina. Og þeir trúa því vegna þess að allir útlendingar halda að Íslendingar séu brjálaðir listamenn, sennilega vegna þess að þeir skilja alls ekki hvað við erum að gera hér. Við þessa skýringu fær sporðurinn al- gerlega rökræna merkingu í huga útlendinganna. Táknrænar teng- ingar hrannast upp um eilífðina, afleiðingar stríðsrekstrar, bryggjusporðana sem sumir bátar aldrei ná og allt hið óunna og ókláraða í heiminum og hið enda- sleppa og að síðustu endalokin. En sumum þykir verkið ljótt þegar þeir heyra að Tollstöðin lét reisa það. Sjálfur vildi ég láta lýsa það með stórum ljóskösturum. Sem betur fer er auðvelt að ljúga að útlendingum. Þeir vita ekki eða þurfa að minnsta kosti ekki að vita að brúarsporðurinn er talandi dæmi um skipulagsgáfur Íslendinga. Í honum endurspegl- ast líka úthaldsleysið og þó einna helst skammsýnin sem nærist á hugmyndafátækt og samræðu- skorti eins og allir vita. Í sjöundu ógöngum mínum við pylsuvagninn, sem virðist ætla að standa af sér allar hræringar í um- hverfi sínu, villtist ég inn á torg þar í nágrenninu sem ég hafði aldrei komið á fyrr. Þetta var ekki stórt torg en á því hafði einu sinni staðið klukka og einu sinni sölu- turn og einu sinni banki og einu sinni var þar mikið af fólki sem átti erindi. En nú stóð þar annar pylsuvagn, sjoppur og fleiri skyndibitastaðir. Þetta hefði getað verið torg í hvaða borg sem er, nema Reykjavík. Þar var fátt fólk en á miðju torginu stóð karl á veg- legum kassa og talaði til vegfar- enda. Þetta var meðalmaður með mikið hár. Hann hélt á auðu blaði í annarri hendi en sprota í hinni sem hann veifaði stórkarlalega. Í máli hans greindi ég aðeins orð sem hann hafði eftir Eisenhower hershöfðingja: Til að bjarga efna- hagnum verðum við að halda áfram að kaupa okkur hluti, bara kaupa okkur eitthvað. Eftir að hafa kallað þetta yfir torgið nokkr- um sinnum hvarf maðurinn inn í kofa þar rétt hjá. Þar inni var mik- ið af ljósum en fátt mannaferða. Þetta virtist hinn notalegasti kofi. Áður en langt um leið kom mað- urinn aftur út á torgið og steig upp á kassann, veifaði sprota sínum ákaflega og hélt sömu ræðuna: Til að bjarga efnahagnum verðum við að halda áfram að kaupa okkur hluti, bara kaupa okkur eitthvað. Engar frekari skýringar hafði hann á máli sínu. Fáir stöldruðu við til að hlýða á manninn. Flestir, sem voru líka fáir, voru á hraðferð inn á skyndibitastaðina við torgið. Ég dokaði við um stund og fylgdist með karlinum endurtaka leikinn nokkrum sinnum. Alltaf sagði hann það sama, og alltaf hélt hann á auðu blaðinu og veifaði sprot- anum fjálglega. Miðað við um- stangið var merkilegt hvað fáir gáfu honum gaum. Að endingu fékk ég leið á þesssu sjónarspili og hvarf á braut. Brúar- sporður- inn Þetta var íslenski stórborgardraum- urinn sem aldrei rættist en eftir stendur þessi sporður til að minna okkur á að hugmyndir geta líka dáið. VIÐHORF eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Á SÍÐUSTU misser- um hefur mátt greina grjóthörð átök innan margra fyrirtækja á hinum unga íslenska hlutabréfamarkaði. Hver kannast ekki við að hafa heyrt um að stjórn Íslandsbanka hafi verið fast að því óstarfhæf, starfsemi Lyfju jafnvel í uppnámi, hurðaskellir á Stöð 2 og fjöldamörg ámóta dæmi? Öll eiga þau það sammerkt að hluthafar eða blokkir þeirra tak- ast á um völd í fyrir- tækjunum. Minni hlut- hafar eru keyptir upp í heilu lagi, yfirtökutilboð hækka snarlega og hlutabréfin rjúka upp – a.m.k. tíma- bundið. Um hvað snýst málið? Drif- kraftur slíkra átaka er baráttan um fjárfestingu, hagsmunagæsla þar sem stórhluthafar vilja tryggja sér arð- semi af hlutabréfum sínum á sem skjótvirkastan hátt. Baráttan snýst sem sagt um að ná völdum og geta stýrt fyrirtækinu í eigin þágu. Eðli viðskipta með hlutabréf er einmitt að fjárfesta þar sem hagnaðarvonin er mest. Kapp er best með forsjá. Í athygl- isverðri bók, The Divine Right of Capital, heldur bandaríski viðskipta- siðfræðingurinn, Marjorie Kelly, því fram að hin ósýnilega hönd græðg- innar sé að skaða efnahagslíf hins frjálsa heims verulega. Þessari skoð- un hefur einnig verið hreyft í banda- rískum hagfræðiritum í kjölfar Enr- on-hneykslisins og fjölmargra ann- arra sambærilegra dæma. Fyrirtæki rústuð Kelly heldur því blákalt fram að í kjölfar Enron-málsins sé orðið tíma- bært að kveðja „hina ósýnilegu hönd græðginnar“ og láta skammtíma- hagsmuni víkja fyrir langtímahags- munum. Málið snúist annars vegar um að fáir en stórir (Take over art- ists) geti skarað til sín miklum hagn- aði á skömmum tíma en skilji síðan fyrirtækið sjálft, starfsfólkið og aðra hluthafa eftir í rúst. Í þessu skyni er allt ofurkapp lagt á að ná ráðandi hlut innan fyrirtækisins og þarf oftar en ekki að spenna verðgildi hlutabréf- anna upp úr öllu valdi til að ná hinni ráðandi stöðu. Í framhaldinu er svo gerð gallhörð krafa um hámarksarð- semi og hagnað því fjárfestar vilja sem fyrst ná aftur því fé sem bréfin kostuðu. Og þarna tekur í. Mikið hef- ur verið lagt undir. Kelly heldur því fram að hrun á verðbréfum síðasta haust stafi af þessum kröfum. Arðurinn á nefnilega að skila sér skjótt í vasa fjárfesta. Hin ósýnilega hönd hef- ur ekki þolinmæði til að bíða. Í því skyni er fyr- irtækið hreinlega merg- sogið á skömmum tíma. Hin harða krafa um skyndiávöxtun feykir burt hinum mannlega þætti í innviðum fyrir- tækisins og í raun gref- ur undan framleiðni þess. Fjölmörg dæmi vestan hafs (og hérlend- is?) sýna afleiðingarnar þar sem ráðandi fjár- festar hafa náð að blóðmjólka svo fyr- irtækið að hrun þess verður algjört. Skammtímaáhrifin eru augljós: Fáir einstaklingar græddu vel. Langtíma- áhrifin eru hins vegar önnur. Víkjandi hluthafar sitja eftir með verðlítil bréf, starfsfólkið orðið atvinnulaust og efnahagslífinu í heild blæðir. Sumir ganga jafnvel svo langt að rekja „kreppu“ hins frjálsa heims síðustu misserin til þessara þátta. Enron- hneykslið sé bara grófasta og stærsta dæmið þar um. Í bók sinni leggur Kelly til beinlínis til að skýrar siðferðireglur verði lög- festar á bandarískum fjármálamark- aði og markmiðið með slíkum reglum væri að setja einhverjar siðferðilegar mælistikur inn í fjármálageirann og ábyrgðarkennd. Hér er vissulega um vandmeðfarið mál að ræða. Hömlur hvers konar geta raskað eðlilegri fjármálastarfs- semi. En segja má líka að frelsi án sið- ferðis og ábyrgðar sé ekki síður skað- legt. Ótakmarkað frelsi – án ábyrgðar gagnvart nánasta umhverfi – er í þessu samhengi ekkert annað en frelsi hinna fáu til að blása sjálfa sig út á kostnað smærri hluthafa, fyrirtæk- isins, starfsfólksins og efnahagslífsins í heild. Lausn Íra Mikill uppgangur hefur verið að undanförnu meðal Íra. Á skömmum tíma hefur hagsæld þar aukist meira en víða annars staðar í Evrópu. Að baki búa ýmsar stjórnvaldsaðgerðir, stuðningur ESB o.s.frv. Hlutafélaga- formið er virkt á Írlandi. Þeir hafa hins vegar kosið að velja að mörgu leyti ólíkar áherslur en t.d. Bretar, Bandaríkjamenn og við Íslendingar. Gott dæmi um það er eignarhalds- félgið Glanbia, eitt af stærri fyrir- tækjum Evrópu í mjólkuriðnaði með veltu er samsvarar tvöföldum fjárlög- um Íslendinga. Glanbia var á sínum tíma samvinnufélag – líkt og mörg ís- lensk fyrirtæki. Með breyttum áherslum á rekstrarformi í alþjóðleg- um viðskiptum ákváðu eigendur Glanbia að breyta fyrirtæki sínu í hlutafélag. Jafnframt, líkt og víðast annars staðar, lögðu þeir í samruna- ferli við önnur fyrirtæki til að ná auk- inni hagræðingu. En Glanbia ákvað strax í upphafi að líta til langtíma- hagsmuna í stað þess að láta skyndi- hagsmuni stjórna för. Aðferð þeirra var sú að láta samvinnufélagið renna óskipt inn í hið nýja hlutafélag. Þann- ig er samvinnufélagið handhafi 55% hlutafjár en hin 45% eru í eigu ólíkra fjárfesta. Með þessu telja eigendur sig sameina tvennt: Sveigjanleika og drifkraft hlutafélagaformsins og hins vegar hina samfélagslegu ábyrgð samvinnufélaganna sem og langtíma- hagsmuni fyrirtækisins, byggðarlag- anna og efnahagslífsins í heild. Ár- angur þessa forms er athyglisverður. Glanbia hefur aldrei verið sterkara en nú, skilar eigendum sínum góðum hagnaði, stendur traustum fótum og hefur sótt fram á alþjóðavettvangi (opnað útibú í Bandaríkjunum, á meginlandi Evrópu og víðar). Langtímahagsmunir eða skammtíma? Segja má að íslenski fjármálamark- aðurinn sé nokkuð ungur og að mörgu leyti frumstæður. Frásagnir af mis- kunnarlausri valdabaráttu, innherja- viðskiptum og kennitölubreytingum benda óneitanlega til þess að við eig- um nokkuð langt í land með að ná þroskuðum markaði hér. Hugmyndir Kelly hinnar bandarísku um siðferði- legar mælistikur og ábyrgðarkennd við hlið almennra eftirlisþátta virðast eiga fullt erindi til okkar sem og hin farsæla leið Glanbia-manna á Írlandi. Hagnaður er lykilatriði fyrir áfram- haldandi uppbyggingu efnhagslífs og velsældar okkar sem þjóðar. Við þurf- um hins vegar að greina á milli skammtímasjónarmiða og langtíma- hagsmuna – láta ekki manngildið víkja fyrir auðgildinu. Þannig mun okkur líklega farnast best. Fjármálamarkaður Hjálmar Árnason Fjármál Við þurfum, segir Hjálmar Árnason, að greina á milli skammtíma- og langtímahagsmuna. Höfundur er alþingismaður. ÉG LAGÐI leið mína á pallana í borg- arstjórnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir skömmu. Þar blasti við sjaldséð sjón því þar mátti sjá ung- linga taka til máls til skiptis við borgarfull- trúa. Þetta voru ung- lingar úr nýstofnuðu Reykjavíkurráði ung- menna sem mæltu fyr- ir tillögum unglinga sem voru á þessa leið; „Við viljum húsnæði fyrir allskyns óhefð- bundna íþróttaiðkun, s.s. stepp, frístæl og bardagaíþróttir.“ „Við viljum vatns- vélar í alla skóla, fella niður heima- vinnu um helgar, fjölbreyttara nám, mötuneyti, afþreyingarhús og að strætisvagnaskýli verði upphituð svo maður drepist ekki úr kulda.“ Var þetta unglingalýðræði í raun? Ég fékk ekki betur séð en skipulag væri álíka og á hefðbundnum borg- arstjórnarfundum nema að meðal- aldurinn var lægri og umræðuefnið snerist um málefni ungs fólks. For- seti borgarstjórnar stýrði fundinum með borgarstjóra sér við hlið en að auki sátu fundinn 6 borgar- fulltrúar úr stjórn og stjórnarandstöðu ásamt átta unglingum úr Reykjavíkurráði. Í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir að börn og ung- menni eigi rétt á að láta í ljós skoðun sína um öll þau mál sem snerta þau sjálf. Hug- myndir um virka þátt- töku ungmenna í lýð- ræðislegu samfélagi hafa verið að þróast síðustu misseri hér á landi. Slíkt má t.d. greina í grunn- skólalögum þar sem gert er ráð fyr- ir nemendaráðum og í æskulýðs- starfi á vegum Íþrótta- og tóm- stundaráðs (ÍTR) er komin hefð á lýðræðisvinnubrögð þar sem ung- lingar taka þátt í að móta dagskrá félagsmiðstöðva. Mikilvægt er að allir, líka þeir sem ekki hafa kosningarétt, eigi sér málsvara í nærumhverfi sínu gagn- vart yfirvöldum og séu ráðgefandi í málefnum sem snúa að ungu fólki. En velta má fyrir sér hvort raddir unglinga nái eyrum yfirvalda þegar teknar eru mikilvægar ákvarðanir um líf þeirra. Stöku sinnum hafa verið haldnir fundir með unglingum í borgarstjórn eða með borgarstjóra eins og gert var í Ráðhúsinu fyrir skömmu. Einu sinni hefur verið sett á laggirnar Alþingi unglinga en eng- in önnur formleg tengsl hafa verið við þingmenn sem setja lög um mál- efni barna og unglinga. Umboðs- maður barna hefur staðið fyrir mál- þingum þar sem málshefjendur eru börn og ungmenni. Þessar tilraunir hafa gefist vel og hafa sitt gildi. En Unglingalýðræði Ragnhildur Helgadóttir Ungmennaráð Stórt skref var reyndar stigið í janúar, segir Ragnhildur Helgadóttir, þegar Reykjavíkurráð ung- menna var stofnað að frumkvæði ÍTR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.