Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 42
MINNINGAR 42 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðjón Ingvars-son fæddist á Eyrarbakka 23. febr- úar 1923. Hann lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 1. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ingvar Jónsson, f. á Stokkseyri 31. ágúst 1883, d. 11. október 1938, og Áslaug Guð- jónsdóttir, f. á Eyrar- bakka 17. nóvember 1893, d. 11. nóvem- ber 1946. Fyrri kona Guð- jóns var Soffía Elsa Halldórsdóttir, f. á Sandbrekku í Hjaltastaða- þinghá 8. nóvember 1919, d. 6. apr- íl 1978. Foreldrar hennar voru Halldór Stefánsson, f. 19. mars 1856, d. 16. apríl 1929; Jóhanna S. Þorsteinsdóttir, f. 11. júlí 1873, d. 3. mars 1948. Árið 1980 kvæntist Guðjón eftirlifandi eiginkonu sinni, Sjöfn Jóhönnu Haraldsdóttur, f. í Reykjavík 7. júní 1931. Foreldrar hennar voru Haraldur Björnsson, f. 12. nóvember 1901, d. 16. septem- ber 1977, og Jóhanna Sigbjörns- dóttir, f. 10. maí 1902, d. 2. ágúst 1986. Dóttir Guðjóns og Elsu er Ás- laug Jóhanna Guðjónsdóttir, f. í Reykjavík 10. júní 1950. Eiginmað- ur Áslaugar er Kristján Gunnars- son, f. í Reykjavík 11. desember 1947. Börn: 1) Elsa Dögg Gunnarsdóttir, f. 13. mars 1969. Sam- býlismaður hennar er Jósef Gunnar Sigþórs- son, f. 5. maí 1964. Sonur þeirra er Guð- jón Þór, f. 18. júní 2000; 2) Guðlaug Helga Kristjánsdóttir, f. 10. júlí 1974; 3) Sæ- unn Harpa Kristjáns- dóttir, f. 4. júní 1977. Sambýlismaður henn- ar er David Anthony Goring, f. 30. apríl 1971. Dóttir þeirra er Sophie Hanna, f. 11. júlí 2000. Einn- ig á Guðjón synina Ingvar Örn og Hlyn. Guðjón ólst upp á Eyrarbakka og Selfossi til sex ára aldurs, en flutti þá til Reykjavíkur þar sem hann var búsettur alla tíð síðan. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Ingimars- skóla og starfaði eftir það sem verslunarmaður í nokkur ár. Árið 1956 lauk hann námi í flugumferð- arstjórn og starfaði síðan sem flug- umferðarstjóri hjá Flugmálastjórn þar til hann lét af störfum af heilsu- farsástæðum í nóvember 1989. Guðjón var um árabil virkur með- limur innan Oddfellow-reglunnar. Útför Guðjóns Ingvarssonar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Ég hitti Guðjón afa hennar Elsu í fyrsta skipti árið 1988, en það var í fjölskylduboði sem hann og Sjöfn kona hans héldu á heimili sínu að Goðheimum 9. Það var ekki laust við að ég væri fyrirfram dálítið stress- aður því þótt við Elsa hefðum ekki verið lengi saman var ég búinn að átta mig á að milli hennar og Guðjóns var einstaklega gott og kærleiksríkt samband. Mér þótti því skipta miklu máli að koma vel fyrir sem tilvonandi „tengdasonur“. En eftir hlýlegar móttökur og viðkynningu sem lofaði góðu var allt stress á bak og burt og þennan dag átti ég mína fyrstu ánægjustund af mörgum á heimili þeirra Guðjóns og Sjafnar. Guðjón hefur aldrei verið kallaður neitt annað en afi í vinahópi okkar Elsu, en henni var hann einnig bæði faðir og vinur. Þessi sterku tengsl má rekja til þess að hún ólst upp hjá afa sínum og Elsu ömmu til níu ára ald- urs, eða þar til amma hennar lést fyr- ir aldur fram árið 1978. Að uppfylla þá fullkomnu mynd sem börn gera sér iðulega af foreldrum sínum og uppalendum verður oftar en ekki erf- itt þegar þau breytast í fullorðna ein- staklinga, en sú bjarta og dálítið bernska mynd sem Elsa hefur alla tíð haft af afa sínum segir kannski meira en mörg orð um mannkosti hans. Guðjón var greindur maður, ljúfur og friðsamur, kannski stundum um of. Hann var mjög vel lesinn og þótt hann væri hlédrægur í fjölmenni var mjög gaman að ræða við hann í meira næði um þá hluti sem við höfðum báð- ir þekkingu og áhuga á, svo sem um sagnfræðilegan fróðleik ýmiss konar. Guðjón var barngóður og gjarnan hefði ég viljað að sonur minn og nafni hans, Guðjón Þór, hefði fengið meiri tíma með langafa sínum. Heimili þeirra Guðjóns og Sjafnar var sannkallað menningarheimili þar sem fullt var til af bókum og fallegum munum. Þau hafa alltaf verið dugleg að bjóða bæði vinum og vandamönn- um til veislu og var þá aldrei neitt til sparað. Það fylgdi því alltaf tilhlökk- un að fara til þeirra, þiggja góðar veitingar og lenda síðan oftar en ekki í góðu spjalli, enda voru þau bæði vel inn í leikhúslífi, kvikmyndum og bók- menntum. Reyndar fannst mér stundum allur aldursmunur gleym- ast og minningarnar um þessar þægi- legu stundir á ég eftir að geyma með sjálfum mér um ókomin ár. Að lokum langar mig að þakka Guðjóni „afa“ ánægjuleg kynni og jafnframt sendi ég öllum hans ætt- ingjum og vinum samúðarkveðjur. Gunnar Sigþórsson. Elskulegur afi okkar er látinn. Hann var ávallt mikill „Laxness- maður“ og því langar okkur systur til að minnast hans með kvæði úr Silf- urtunglinu: Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, – hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði er fyr naut hugur minn er orðin hljómlaus utangátta og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm, hjá undri því, að líta lítinn fót í litlum skóm, og vita að heimsins grjót svo hart og sárt er honum fjarri enn, og heimsins ráð sem brugga vondir menn, já vita eitthvað anda hér á jörð er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumarnótt. Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt. Við biðjum góðan guð að geyma hann afa okkar. Elsku Sjöfn, mamma og Elsa, guð gefi ykkur styrk til að takast á við sorgina. Guðlaug Helga (Gúa), Sæunn Harpa og Sophie Hanna. Í dag kveðjum við flugumferðar- stjórar ljúfmenni og ágætan starfs- bróður um rúmlega 30 ára skeið. Hann var með þeim eldri úr stórum hópi sem hóf grunnnám og um leið samkeppnipróf um fáeinar stöður flugumferðarstjóra veturinn 1955–1956. Samkeppnin var hörð og kröfur til umsækjenda um þetta starf miklar. Guðjón stóðst þessi próf með ágætum, var valinn og hóf störf í gamla flugturninum í Reykjavík 1. júlí 1956. Hann hafði töluverða lífs- reynslu að baki. Frá því að hann lauk gagnfræðaprófi í Ingimarsskólanum í Reykjavík hafði hann stundað versl- unarstörf í Reykjavík í fáeinum versl- unum en þó lengst hjá KRON þar sem hann hafði verið verslunarstjóri síðustu árin. Flugið heillaði hann samt til leita á ný mið og þó þetta starf sé stundum erfitt er líka heillandi að takast á við viðfangsefni sem er jafn síbreytilegt og að þurfa að glíma við óvæntar kringumstæður. Hann náði sem sé góðum tökum á starfinu og var vel vandanum vaxinn. Það vakti athygli hve rólegur og yfirvegaður hann var ætíð við störf sín og traustvekjandi. Tæknibúnaður flugumferðarstjór- anna var nú æði frumstæður á fyrstu árum hans í starfinu en flugumferðin jókst stöðugt. Starfsbræður okkar í nálægum löndum höfðu notað svæð- isratsjá árum saman og töldu hana raunar ómissandi en við urðum lengi vel að vera án hennar. Árið 1972 var svo ratsjárstöð varnarliðsins í Rock- ville í Keflavík tengd flugstjórnar- miðstöðinni í Reykjavík og það varð stórkostlegt hagræði að því að geta minnkað hliðaraðskilnað milli loftfara ú 60 sjómílum niður í 15 með þessum nýja tækjabúnaði. Við Guðjón vorum í öðrum af tveim námshópum sem fóru til London til að læra meðferð og notkun hinna nýju tækja. Í þessari 5 vikna námsferð kynntumst við fé- lagarnir náið, hann hélt upp á fimm- tugsafmæli sitt þar ytra sem varð mjög ánægjulegur viðburður og vin- áttuböndin styrktust. Guðjón var virkur í félagsmálum flugumferðarstjóra og var gjaldkeri í stjórn Félags ísl. flugumferðarstjóra árin 1960–1963. Núverandi stjórn fé- lagsins þakkar honum vel unnin störf og sendir eiginkonu, dóttur hans og öðrum aðstandendum samúðarkveðj- ur. Margs góðs er að minnast og margt að þakka. Ljúfar samveru- stundir í starfi og á góðra vina fund- um gleymast seint. Guðjón sýndi aðdáunarvert þrek í erfiðum veikind- um sínum síðustu árin og algert æðruleysi í þrautum sínum. Ég heim- sótti hann á líknardeildina fyrir fáein- um dögum, brosið hans var hlýtt að vanda og hann tók með karlmennsku því sem að höndum fór. Fyrir hönd samstarfsfólks Guð- jóns við flugumferðarstjórnina þökk- um við honum ljúfa og heillaríka sam- vinnu um áratuga skeið og biðjum honum blessunar guðs. Eiginkonu, dóttur og öðrum ástvinum votta ég mína innilegustu samúð. Valdimar Ólafsson. Hann afi er dáinn. Engin orð úr mínu brjósti megna að kveðja hann eins vel og mig langar. Þess vegna vil ég að minnast hans með erindum úr sálmi sem sunginn var yfir afa hans og nafna, Guðjóni Ólafssyni frá Hólmsbæ á Eyrarbakka, við lát hans 1918: Guð blessi þig, er þrautum frá ert liðinn, úr þessum heimi í vona þinna lönd, þar eilíft vor þjer býður bernsku-friðinn og brosir við þjer ódauðleikans strönd. Minn elsku vin, þín sál í sambúð langri Var sól mín, gleði, styrkur, hjartans traust. Þinn dugur, sæmd var stoð á vegferð strangri, Er straum hvern yfir bar mig kvíðalaust. Og ástarblóm með angur-tárum skærum Þjer eru vígð í hjartans þökk og trú. Í draumi leizt þú sól í svefni værum Og sólskin himneskt um þig leikur nú! (Guðm. Guðm.) Elsku Sjöfn og mamma. Megi Guð varðveita minninguna um fallegan og hjartahlýjan mann. Elsa Dögg og Guðjón Þór. Þegar komið er að kveðjustund er margs að minnast. Það er að vísu ekki mjög langur tími af mannsævi sem við áttum samleið með Guðjóni Ingv- arssyni, eitthvað um 20 ár, en þá gekk hann að eiga Sjöfn Haraldsdótt- ur æskuvinkonu okkar. Við vorum fjórar skólasystur, sem bundumst vináttuböndum, seinna bættust eig- inmenn okkar í hópinn. Við hittumst nokkrum sinnum á ári á heimilum hvert annars, borðuðum góðan mat og drukkum eðalvín, ræddum lands- ins gagn og nauðsynjar, dönsuðum og sungum. Inn í þennan hóp kom Guðjón, hægur og ljúfur. Hann ávann sér vináttu okkar og náði hann að njóta sín með okkur. Árið 1984 varð hópurinn fyrir missi, en þá lést vinkona okkar, Vikt- oría Kolbeinsdóttir, er hún var í skemmtiferð í Rio de Janeiro ásamt eiginmanni sínum. Hún var öllum harmdauði sem þekktu hana. En áfram var haldið að hittast og gleðjast saman. Guðjón var einn af þeim mönnum, sem létu ekki mikið yfir sér, en brátt komu í ljós eðlis- kostir hans, hann var fluggáfaður, víðlesinn og hafsjór fróðleiks, sem hann kom vel til skila. Enda var helsta áhugamál Guðjóns lestur góðra bóka. Söngmaður var hann góður og tókum við oft lagið saman á heimleið eftir skemmtilegt kvöld, þá var Guðjón í essinu sínu. Sjöfn og Guðjón voru miklir fagurkerar, enda ber heimilið því glöggt vitni. Voru þau höfðingjar heim að sækja. Fyrir átján árum kenndi Guðjón sér þess meins sem hann varð nú að lúta í lægri haldi fyrir. Hann náði að fá þó nokkuð mörg góð ár sem þau hjónin nutu, ferðuðust þau mikið saman, sóttu leikhús og hverskyns listviðburði. Ferðuðumst við með þeim bæði innan lands og utan og átt- um ánægjulegar samverustundir. Á síðastliðnu ári kom í ljós að sjúk- dómurinn hafði tekið sig upp og varð ekki við neitt ráðið. Með karl- mennsku og ró tók hann örlögum sín- um. Alltaf sama svarið: „Ég hef það bara gott,“ ef spurt var um líðan hans. Aðeins í síðasta skiptið sem við heimsóttum hann, viðurkenndi hann að sér liði ekki vel núna, það var fyrir tveimur vikum. Ótrúlegt var að sjá þá umönnun sem Sjöfn veitti honum á heimili þeirra, þrátt fyrir að vera ekki heilsu- hraust sjálf, enda kunni Guðjón vel að meta það sem hún gerði fyrir hann. Vildi hann helst vera heima, en hann lést á annan í páskum á líknardeild Landspítalans. Þegar við kveðjum Guðjón með söknuði, minnumst við einnig tveggja vina okkar úr hópnum, sem létust haustið 2000. Blessuð sé minning þeirra allra. Kæra Sjöfn, megi Guð styrkja þig og fjölskyldu Guðjóns alla. Fríða og Gunnar. GUÐJÓN INGVARSSON            56-F5 7 3= 3 *  ="! * ( 3  ,- !*  ) ;          (      3   4       A   )**  2 )  !"3!) !" ,"!    )**  + 3 9D*!   -    )**  * =A  )4 5  "                 2$ 5: $ 7 / *%  =2   ," ** ( 3  =2  *! 2  "        $         1 6      #   + 789   :   1%11;<;  '       )    ! )**  A 2 ))**   %$  , 2 ) . @ + & )**  2 & 2 ))**  -%   3  2 )! 8  2 )  H 1"! . @- )**  &  &'  &  &  &' 4 ! "      52. $ 7   & !*IC            <=                        )** 4 ! "                        2 2 7 @  ) &) =2    -0 #0 - / #    =   2  '  ,    ( "! A  )**   %'/@) 4 7   56 $5  #)) =/ "   *    9 '  '   1  & '   -      (/ #' "    !  !  * !4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.