Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 44

Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 44
MINNINGAR 44 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Einar GuðbjörnGunnarsson fæddist í Akurseli í Öxarfirði 20. júlí 1922. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 31. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Gunnar Jónsson, bóndi í Ak- urseli, f. 8. júní 1885, d. 11. maí 1943, og kona hans, Guðríður Einarsdóttir, f. 18. mars 1885, d. 3. ágúst 1953. Systir Einars sammæðra er Halldóra Lára Ólafsson, f. 26.9. 1912. Systkini Einars eru Rósa Gunnarsdóttir, f. 25.12. 1918, Bergljót Arnfríður Gunnarsdóttir, f. 28.6. 1924, og Jón Hörður Gunn- arsson, f. 26.7. 1928, látinn. Dóttir Einars og Kristínar Helgadóttur, f. 19. maí 1918, er Anna Þóra, f. 3.12. 1948. Eiginmaður hennar er Hall- Guðlaug bjuggu mestallan sinn hjúskap í Brautarlandi 2. Einar ólst upp í Akurseli og vann þar að bústörfum með föður sínum. Árið 1943 flyst hann til Reykjavík- ur og hefur nám í málaraiðn hjá Bjarna Karlssyni og Sigurði Sig- urðssyni. Árið 1951 hóf hann sjálf- stæðan atvinnurekstur, sem hann sinnti farsællega allt til ársins 1995, er hann lét af störfum. Mál- arameistarafélag Reykjavíkur naut krafta hans um margra ára skeið, hann var t.a.m. gjaldkeri þess um árabil, starfaði með mörg- um nefndum þess og vann ötullega að ýmsum framfaramálum í þágu félagsins. Hann var einnig virkur í norrænu samstarfi málarameist- ara um árabil. Hann var gerður að heiðursfélaga Málarameistara- félags Reykjavíkur árið 1988. Árið 1960 stofnaði hann, ásamt öðrum, byggingarfélagið Afl, sem hann sinnti af miklum áhuga og alúð meðan hans krafta naut við. Síð- ustu tvö æviárin bjó hann á Hrafn- istu í Hafnarfirði og naut þar kær- leiksríkrar umönnunar. Útför Einars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. dór Ingi Guðmunds- son, f. 14.10. 1946. Börn þeirra eru: a) Helgi Kristinn, kona hans er Lóa Björk Jó- elsdóttir; b) Guðmund- ur Einar og c) Kristín Hrefna. Einar kvæntist 4.11. 1960 Guðlaugu Guð- jónsdóttur, f. 2.3. 1930, d. 28.8. 1997. Foreldr- ar hennar voru Guðjón Guðjónsson, f. 30.8. 1898, d. 30.1. 1992, tré- smiður í Reykjavík, og Guðlaug Brynjólfs- dóttir, f. 27.2. 1899, d. 14.5. 1938. Dætur þeirra eru: 1) Guðríður Elsa, f. 8.3. 1961. Eiginmaður hennar er Vilmar Pétursson, f. 2.3. 1959. Synir þeirra eru Einar og Bjarki. 2) Inga Birna, f. 26.9. 1966. Sambýlismaður hennar er Stefán Þorvaldsson, f. 20.10. 1967. Dóttir þeirra er Ásthildur Lilja. Einar og Mín fyrstu kynni af Einari tengda- föður mínum voru fyrir næstum þrjátíu árum þegar ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir elstu dótt- ur hans. Ekki veit ég hvernig honum leist á mig í byrjun, skeggjaðan og síðhærðan villimann frá Vestmanna- eyjum. Við náðum þó fljótlega vel saman og ekki spillti fyrir að skoð- anir okkar lágu vel saman í pólitík- inni, báðir sömu íhaldskurfarnir. Okkur munaði ekkert um að leysa heimsmálin á einu kvöldi og bar þá margt á góma sem gaman var að ræða um. Oftar en ekki fylgdu reynslusögur hans frá Öxarfirðin- um með, því æskustöðvarnar voru ofarlega í huga hans. Þá fékk ég að heyra um æsku hans og uppvöxt, þegar hann sem unglingur fór að draga björg í bú, fór í rjúpu og hvernig hvert skot var nýtt til að ná helst tveimur fuglum í einu skoti. Hvernig farið var yfir árnar á snjó- þekju eða vaðið yfir með fötin á bak- inu sem ekki máttu blotna vegna þess að ekki voru til föt skiptanna. Einari var fátækt bernskunnar allt- af ofarlega í huga og hann lagði mikla áherslu á að verða bjargálna í lífinu og sjá vel fyrir sér og sínum. Hann lærði málaraiðn og starfaði við fagið alla sína starfsævi og rak eigið fyrirtæki lengst af. Einar var eftirsóttur til vinnu og var með sömu viðskiptavini árum og áratug- um saman. Hann lagði mikla áherslu á að vanda verkið sem mest svo ekki væri hægt að kvarta yfir vinnunni þegar reikningurinn var sýndur. Og aldrei kom það fyrir að reikningur væri ekki greiddur í þau næstum 50 ár sem hann var í mál- araiðninni og hann var stoltur af því. Einar var afar hreinskiptinn mað- ur og einarður í skoðunum og aldrei lék neinn vafi á hvaða skoðun hann hafði á málum, hvort sem öðrum lík- aði það eða ekki. Ég er þakklátur fyr- ir kynni mín af Einari og tel mig hafa lært margt af honum. Heiðursmaður horfinn sýnum hreinskiptinn og hress. Öxarfjörður í augum þínum öðlaðist heiðurssess. Í frumbernsku var fátækt þín af flestu öllu verra en alla tíð þú áttir sýn að verða sjálfs þín herra. Pensilstroka pen var merkið prýði var hvar sést en að vanda undirverkið vegsemd var hvað mest. Halldór Ingi Guðmundsson. Elsku afi. Þegar við vorum lítil var ómissandi partur af því að heim- sækja höfuðborgina að stoppa í Brautarlandi og heilsa upp á Einar afa og Laulu ömmu. Þar var stór, fal- legur og vel hirtur garður sem gam- an var að leika sér í þegar maður var krakki. Og jarðarberin úr garðinum, við munum alltaf eftir þeim, þau voru svo sæt og góð á bragðið að aldrei höfum við smakkað betri jarðarber, hvorki fyrr né síðar. Ekki má gleyma litlu glösunum sem við krakkarnir drukkum perusafann úr sem alltaf var nóg til af í ísskápnum og á eftir var oftast borið á borð ísblóm, þ.e.a.s. ef við vorum þæg og góð og auðvitað vorum við það alltaf. Við fórum líka stundum í bíltúr á málningarbílnum þínum og rúntuðum um höfuðborg- ina á þessum sparneytna, litla bíl sem þú notaðir alltaf í vinnunni þinni. Síðan sagðir þú okkur sögurnar frá því þegar þú varst ungur og að fyrstu launin þín hefðu verið 5 krónur sem þú fékkst fyrir að teyma hestvagn í vegagerðinni fyrir norðan. Mikil eftirvænting var alltaf hjá okkur systkinunum þegar þið voruð væntanleg úr fríi frá Kanarí því þá komuð þið alltaf færandi hendi, hvort sem það voru heilu íþróttagallarnir eða Lacoste-bolirnir frægu með krókódílamerkinu. Afi hafði mikinn áhuga á að við stæðum okkur vel í skóla og vinnu og hvatti okkur óspart í þeim efnum. Við krakkarnir eigum afa og Laulu ömmu margt að þakka. Þegar við urðum eldri og þurftum húsaskjól um lengri eða skemmri tíma á meðan við vorum í námi eða vinnu í Reykjavík var alltaf opið hús í Brautarlandinu. Þið voruð okkur alltaf svo einstak- lega góð og við erum þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum sam- an. Helgi Kristinn, Guðmundur Einar og Kristín Hrefna. Afi var góður og kallaði mig vin sinn. Síðan amma dó vildi hann deyja en gat það ekki. Hann var málari og byggði hús með vinum sínum þar sem eru núna mörg fyrirtæki. Hann gaf manni 500-kall og stundum 1.000- kall. Hann var góður við allt og alla. Ég gleymi aldrei afa. Takk fyrir allt. Þinn vinur, Bjarki. Einar, móðurbróðir minn, er lát- inn. Fyrstu minningar mínar eru tengdar honum og allt mitt líf hefur hann verið hluti af mínu lífi á einn eða annan hátt. Árið 1945 flutti Einar á Haðarstíg 8 með móður sinni og systkinum úr Akurseli og var faðir þeirra þá nýlát- inn. Einar, sem elsti sonurinn, tók að sér hlutverk föðurins og vann hörð- um höndum frá unga aldri. Móðir mín segir frá því hve vinnusamur hann var og ósérhlífinn og fyrstu launin fékk hann 10 ára gamall og keypti sér hjól í kaupfélaginu. Hann hafði þá nýverið eignast fyrstu stíg- vélin sín. Það þótti merkilegt á þeim tíma. Mér hlotnaðist sá heiður að vera litla barnið á Haðarstígnum sem Einar og þau systkinin tengdust sterkum böndum. Þegar til baka er litið virðist tím- inn á Haðarstígnum hafa staðið í stað. Alltaf virtist nóg pláss í þessu litla húsi. Gestir sem voru ekki bara einn dag heldur margar vikur og Einar og systkini hans ætíð tilbúin að ganga úr rúmi fyrir aðkomufólkið. Ég minnist heimilisfólksins sitja hljótt við útvarpstækið og ræða dag- skrárefnið á eftir og var Einar virkur þátttakandi í þeim umræðum. Fé- lagsvist á mörgum borðum og Einar í fjörugum háværum pólitískum um- ræðum. Ég minnist Einars að koma heim í hádegismat með málningar- dósir á hjólinu sínu, Einars birtast í dyrunum með fullt fangið af rjúpum sem hann hafði lagt mikið á sig til að skjóta, Einars sem hins káta og glaða sem var tilbúinn að slá á létta strengi og segja grínsögur af sjálfum sér og öðrum. Athafnamaðurinn fór að læra að verða málari og það varð hans lífs- starf. Hann kunni líka að fara með það því hann var atorkusamur og duglegur og gaf ekkert eftir í þeim efnum. Fátæktina vildi hann ekki sjá aftur í sínu lífi. Með metnaði og elju- semi náði hann langt í sinni grein, varð málarameistari og eftirsóttur fagmaður. Ég minnst þess þegar Laula kom inn í líf hans og hve hamingjusöm þau voru. Sólargeislarnir hans, Elsa, Inga og Anna Þóra, voru bónus því það var stundum eins og hann tryði því varla að Laula og stelpurnar hans þrjár væru hans. Allt vildi hann leggja í sölurnar til að þær mættu hafa það sem best. Á stundum kunni hann sér ekki hóf í vinnuseminni en allt var þetta af góðum ásetningi þótt e.t.v. kæmi það niður á öðru í lífi fjöl- skyldunnar. Hvað Einar var stoltur þegar allar dæturnar hans höfðu lok- ið háskólaprófum og hann sem ein- ungis hafði gengið í barnaskóla í tvö ár. Umhyggja Laulu og Einars fyrir öllum þeim sem í kringum þau voru var einstök og verður á hvorugt hall- að í þeim efnum. Mikill samgangur var á milli heimila okkar og ég fékk oft ómetanlegan stuðning frá þeim. Nokkrum sinnum fór stórfjölskyldan í ferðalög innanlands og ég minnist Einars og þeirra systkina sýna okkur Akursel og rifja upp minningar það- an sem lífsbaráttan var svo hörð. Ég þakka tryggð og elskusemi þeirra Laulu og Einars við mig og fjöl- skyldu mína. Það var erfiður tími þegar Laula lést fyrir aldur fram og Einar bar aldrei sitt barr eftir það. Heilsu hans hrakaði ört og dætur hans og fjöl- skyldur þeirra sýndu honum ást og umhyggju og lögðu sig fram um að gera honum síðustu æviárin bærileg. Hann lést á páskadag. Hvíli hann í friði. Gígja Árnadóttir. Það virðist vera langur vegur frá því að fátækum hjónum fæðist drengur í torfbæ í Akurseli í Öxar- firði yfir í tæknivædd sjúkrahús dagsins í dag. Það virðist vera langur vegur frá því að ungur drengur horfði uppá að móður hans var neitað um fyrirgreiðslu í kaupfélagi, til að fá nauðþurftir, yfir í þá ofgnótt sem margir búa við í dag. Það hljómar ótrúlega að fyrir sextíu árum hafi fjölskyldufaðir þurft að berjast við banvænan kvalafullan sjúkdóm og litla aðstoð að fá. Við slíkar aðstæður er annaðhvort að bogna eða berjast. Einar G. Gunn- arsson tengdafaðir minn ólst upp við þessar aðstæður og þær mótuðu hann mjög. Hann valdi að berjast. Aldrei skyldi hann eða fjölskylda hans þurfa að glíma við fátæktina aftur. Leiðin að þessu markmiði var ósérhlífni, vinnusemi og staðfesta. Einar lærði málaraiðn og starfaði við hana meðan aldur og heilsa leyfði. Við sem yngri erum skildum kannski ekki alltaf hversu mikið Einar helg- aði sig vinnu sinni. Við spurðum stundum hvort hann vildi ekki reyna að koma sér upp áhugamálum. Vinn- an var Einari hinsvegar ekki nein áþján, heldur uppspretta ánægju. Hann var málari af lífi og sál, gladd- ist yfir vel unnu verki, var ötull við að ná sér í verkefni og hafði metnað í að standa sig vel. Einar hætti störfum 1995 og þá var mikið frá honum tekið. Þegar Guðlaug kona hans dó síðan tveimur árum seinna urðu sporin þung og lífs- þrótturinn dvínaði hratt. Þau hjónin höfðu ferðast töluvert og hafa eflaust ætlað sér að gera slíkt eftir að sest var í helgan stein. Án Guðlaugar fann hann ekki löngunina til ferðalaga. Einar reyndist dætrum sínum, tengdabörnum og barnabörnum ein- staklega vel. Hann var stoltur og ánægður þegar þeim gekk vel í lífinu. Sérstaklega var hann stoltur af því að dætur hans menntuðu sig og stóðu sig vel í störfum sínum. Þá upplifði hann og hafði oft orð á því að bar- áttan sem hann hóf til að hann og fjölskylda hans væru ekki uppá aðra komin, þyrftu ekki að þola sársauka og smán fátæktar, hefði borið ávöxt. Einar virkaði kannski á stundum hrjúfur, sagði sitt álit og dró ekkert undan. Undir harðri skel var tilfinn- ingaríkur og umhyggjusamur faðir og afi. Litlum lófa var oft smeygt í hrjúfa hönd og lagt var í leiðangur í Súkkunni hans afa, kannski niður á höfn að skoða skipin. Þá runnu gjarnan gleðitár niður á stóra kart- öflunefið hans afa. Okkur Einari var vel til vina og hann og Guðlaug reyndust mér einstaklega vel. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þeim. Gamli pensillinn hefur lokið þess- ari jarðvist og pensilförin sjást víða. Það sem hann kenndi okkur með lífi sínu og starfi er mikilvægt, ekki síst í þjóðfélagi þar sem neyslan virðist á stundum öllu æðri. Hafðu þökk fyrir allt. Vilmar Pétursson. Mig langar til að minnast Einars Gunnarssonar vinar míns í nokkrum orðum. Kynni okkar voru orðin æði löng eða um fjörutíu og fimm ár. Við vor- um, ásamt fleirum, í sameiginlegum atvinnurekstri í rúmlega fjörutíu ár. Sú starfsemi gekk mjög vel og aldrei varð misklíð okkar í millum allan þann tíma. Ég minnist þess hvað Einar var röggsamur og fylginn sér í sambandi við allar útréttingar vegna fyrirtækis okkar og ég held að það sé ekki á nokkurn okkar hinna hallað þótt ég segi að enginn okkar hafi staðið sig eins vel í þeim efnum og hann. Hann var starfandi málarameist- ari í fjörutíu til fimmtíu ár, farsæll og mjög vel látinn í sínu starfi. Hann var yfirleitt með mikil umsvif og marga menn í vinnu. Honum hélst vel á mannskap og var með sömu mennina í vinnu svo árum skipti. Hann var einnig mjög heppinn með viðskipta- vini og skiptu sumir við hann í ára- tugi. Einar var mjög vinnusamur og var vinnan honum mikils virði. Hann ólst upp í sárri fátækt og hefur það sjálfsagt markað djúp spor í huga hans því það var alltaf mikið kapps- mál hjá honum að komast vel áfram í lífinu. Einar var giftur góðri konu og voru þau mjög samhent á öllum svið- um og hjónaband þeirra farsælt. Það var því mikið áfall fyrir Einar þegar hann missti Guðlaugu konu sína eftir langvarandi veikindi. Þá var hann orðinn mikill sjúklingur. Einar var skemmtilegur maður og engan hef ég þekkt á lífsleiðinni sem var fljótari að koma fyrir sig orði en hann. Með Einari er genginn góður drengur. Við Ólína sendum dætrun- um og fjölskyldum innilegar samúð- arkveðjur. Svavar Kristjónsson. EINAR GUÐBJÖRN GUNNARSSON 6' ,   0       " +      . + 7  * !) > @/% ,/ ="!  #!(," = H  4 >  3      * " )     (     #0  #     ?      ! "!  * ,+ & 3 ,  J,      *&%' - ( )!  2 "&%' *  &' 4 5  "    / $$ :   ! !,"!>> /! @       %   & '  #        ?    '  <       12 )**  @ )**  2   )** 4 56 F 2 7 2=*1 >? @/% ,/       (            (/ #'    * -%' /!"%)** 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.