Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 46

Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 46
MINNINGAR 46 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristín Bene-diktsdóttir fædd- ist í Keflavík 17. júlí 1957. Hún lést á sjúkrahúsi í Halm- stad í Svíþjóð 14. mars síðastliðinn. Kristín var dóttir hjónanna Benedikts Þórarinssonar, yfir- lögregluþjóns á Keflavíkurflugvelli, f. 26.1. 1921 í Kefla- vík, d. 16.1. 1983, og Sigríðar Guðmunds- dóttur, f. 3.1. 1926 í Reykjavík. Kristín á eina alsystur, Sigrúnu Ingibjörgu, f. 3.5. 1959, unnusti hennar er Craig L. Williams. Hálfsystkin Kristínar, samfeðra, eru Þorvald- ur Benediktsson, f. 29.9. 1943, kvæntur Rósu Ólafsdóttur; og Rúnar Benediktsson, f. 13.7. 1948, kvæntur Hrefnu Sigurðardóttur. Hálfsystkin Kristínar, sammæðra, eru Margrét Ragnarsdóttir, f. á unglingsár og flutti með foreldr- um sínum í Kópavog 1972. Hún lauk námi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1974 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1978. Um haustið fór Kristín á lýðháskóla í Kungälv í Svíþjóð, hún lauk námi í leikrænni tján- ingu og síðan BA-prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá Háskólan- um í Halmstad. Aðalstarf Kristín- ar var kennsla og síðustu ár starf- aði hún sem kennari við háskólann í Halmstad. Kristín starfaði einnig við uppfærslu á leikritum og öðrum sýningum í Svíþjóð, einkum með unglingum. Hún starfaði einnig ásamt Ulf við uppsetningar á sýningum í Sví- þjóð og víða annars staðar. Krist- ín var músíkölsk og hafði mikið yndi af tónlist. Hún var virkur þátttakandi í tónlistarlífi heima- bæjar síns, Halmstad. Síðustu ár stjórnaði hún gospel-kór við St. Nikolai-kirkjuna í Halmstad. Útför Kristínar var gerð frá St. Nikolai-kirkjunni 26. mars síðast- liðinn og var hún jarðsett í Halm- stad. Minningarathöfn um Krist- ínu fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst klukkan 15. 13.10. 1946, gift Al- berti Sævari Guð- mundssyni, og Guð- mundur Örn Ragn- arsson, f. 21.3. 1949, kvæntur Ólínu Er- lendsdóttur. Öll systk- inin ólust upp saman á heimili foreldra Krist- ínar, Benedikts og Sigríðar, í Keflavík. Maki Kristínar var Ulf Andersson leik- stjóri, f. í Svíþjóð 7.6. 1957. Þau hófu sam- búð 1980 og bjuggu í Halmstad í Svíþjóð. Börn Kristínar og Ulfs eru Sigríð- ur Liv, f. 23.5. 1983, stúdent frá listaskóla, og Benedikt Hugo, f. 16.6. 1989, grunnskólanemi. Kristín og Ulf höfðu slitið samvist- ir en mikill samgangur og góð vin- átta var þeirra í milli, svo og systkina og foreldra Ulfs sem öll búa í Halmstad. Kristín ólst upp í Keflavík fram Eftirfarandi skrifaði ég nokkrum mánuðum fyrir fráfall móður minn- ar: Hún klórar sér í enninu og ég leiði hugann að því hve hátt það er. Það er sennilega þess vegna sem hún hefur alltaf verið með þennan þunna topp, fyrir utan þegar hún var ung og grönn. Þá var hún með sítt hár sem gerði það að verkum að hún leit út fyrir að vera enn grennri. Henni fannst sinn helsti galli vera hvað hún var grönn, nokkuð sem hún þráir nú. Hún kallaði sjálfa sig eldspýtuna. Hún var trúlega falleg, þessi unga ís- lenska stúlka, með ljóst slétt hár, vegna þess að stundum var hún sýn- ingarstúlka. Í dag er hárið dekkra, hálflitlaust, en til að dylja það hefur hún fengið sér ljósar strípur. Kannski er það eins og að mála með fallegum lit yfir fúinn við, fúinn hverfur ekki, hann bara versnar. Svona er þetta nú í öllu okkar sam- félagi. Sýndu ekki gráu hárin, haltu þér eilíft ungum með nýjasta hrukkukreminu. Annríki, aldur og reynsla eru farin að segja til sín. Sérhver hrukka og dráttur á sinn heiðurssess. Eins og hrukkurnar hafi vitað frá því að hún var lítil hvar þær ættu best heima. Það er fallegt, hún hefur lifað inni- haldsríku lífi, það sér maður á henni. Kannski mun hún aldrei fá fleiri hrukkur, ef til vill mótar sú vitneskja andlitsfallið enn frekar. Hún stendur þarna og þegar hún er búin að klóra sér lítur hún á mig með þessum tilfinninganæmu grænu augum og spyr hvort ég vilji meira pæ. Spyrjandi augun leiða hugann að því að þessi kona talar næstum alltaf meira með andlitinu en með orðum. Augnaráðið er oft angistar- fullt, vegna þess að hún dregur allt andlitið að miðpunkti milli augn- anna, spennir hökuna í gervibrosi. Í rauninni er hún bara að hugsa og íhuga það sem fyrir augu ber en maður gæti næstum haldið að hún væri að hugsa um það sem koma skal, það sem við erum öll svo óróleg yfir. Kinnar hennar eru enn mjúkar, þrátt fyrir 44 ár, mikla reynslu og marga þolraun. Hún hefur fallegan litarhátt. Roðnar aðeins þegar hún opnar heitan ofninn. Hún er ef til vill aðeins rauðari í framan en í fyrra. „Úps. Ég held að hún sé aðeins of heit,“ segir hún á næstum hreimlausri sænsku og setur pæformið á eldavél- ina með smástunu. Þessi kona er ein- stök, hún getur ekki dulið hver hún er, hvort sem hún vill það eða ekki. Að horfa á hana er oft það sama og að lesa hugsanir hennar. Þegar hún hlær hlær hún með öllum líkaman- um. Beinar, mjóar tennurnar fljúga um með hoppandi konunni sem trommar með höndunum á lærin eða heldur þeim fyrir munninum. Hlát- urinn getur komið óvænt og af slík- um krafti að sumum stendur ekki á sama. Hún er fyrirferðarmikil en líka auðmjúk og alltaf velviljinn upp- málaður. Stundum getur hún þó orð- ið of stjórnsöm. Til að flækja ekki málið getur maður sagt að hún hafi „pondus“. Hláturinn er aldrei ill- kvittinn, heldur hreinn. Hann kemur að innan og hún getur hlegið jafndátt að eigin mistökum og annarra – í það minnsta eins dátt. Þetta tilfinningaríka svæði, lítil augun með löngum augnhárum og plokkaðar augabrúnir, lítur aftur á mig. Augun hlæja, hún er glöð yfir að ég skuli vera komin. Ég horfi á fal- legu silfureyrnalokkana hennar og svarta kjólinn. Þetta er tíguleg kona sem stendur þarna. Hún er virkilega glæsileg. Hún hefur erft svalt og yf- irvegað fasið frá mömmu sinni. Þetta er gott mótvægi við hinn kröftuga persónuleika hennar. Hann vegur vel upp ofannefnda fyrirferðina í fari hennar. Það er góð tilfinning að vera hér hjá henni, sem ég er endurgerð af. Frá því ég var lítil hafa allir sagt að við séum líkar. Það hefur meira að segja gerst að fólk hefur ruglast á okkur. Svona kem ég til með að líta út eftir tuttugu og fimm ár, hugsa ég þegar ég horfi á hana og tilfinningin er góð. Hverfi hún verður hún samt til í mér. Ég kveð þig, elsku mamma. Liv Ulfsdóttir. Kristín, nærvera þín var svo áköf. Við eigum enn erfitt með að skilja að þú komir ekki stormandi inn, hlæir og segir: „Hæ, hvernig hafið þið það, stelpur?“ Við vorum hluti af stórum vina- hópi þínum í Halmstad. Við bjuggum í nágrenni hver við aðra, hittumst heima eða niðri í bæ, stundum upp á hvern dag. Við og við unnum við saman. Það eru liðin mörg ár, og við og aðrir vinir þínir eigum margar myndir af þér í minningunni. Þegar við minnumst þín minnumst við konu sem var sterk, ákveðin og hreinskil- in, full af glettni og lífsgleði. Þrosk- uð, aldrei yfirborðskennd. Köflum bregður fyrir, sviðsmyndum og minningabrotum – hve dásamlegan kraft og lífsgleði þú gafst okkur. Takk, Kristín. Kristín dansar flamenco: Hún rís úr sæti. Stappar með hæl- unum í gólfið. Það er spánskt kvöld. Í alþjóðasamskiptaverkefni eru allt í einu átta smávaxnir Spánverjar frá Andalúsíu mættir til Halmstad. Þeir eiga að kenna okkur Skandinövun- um að dansa alvöru flamenco. „Þá skulum við sýna þeim!“ segir Krist- ín. Átta pör af dökkum augum horfa á hana, full aðdáunar. Taktinn hefur hún. Hún er miðpunkturinn, hnar- reist, brosandi, örugg. Diego hættir sér út á gólfið. Hann nær henni í öxl. Allir dansa langt fram á kvöld. Hví- líkur flamenco! Skagen: Kristín hefur tekið okkur með sér til Skagen. Hún hefur ákveðið að nú sé tími til kominn að við fáum að sjá hið yndislega Skagen, þar sem hún hefur svo oft verið með fjölskyld- unni. Og nú eiga Inga, Kerstin, Mia og Kicki að halda upp á afmæli Krist- ínar. Við fimm leggjum af stað í dásamlega helgarferð. Það er júlí, himinninn er blár, það er smágjóla, en hlýtt. Kristín er í dálítilli fýlu. Enginn hefur óskað henni til ham- ingju, og hún sem á afmæli! Hana grunar að við séum að stríða henni og að sjálfsögðu er það rétt hjá henni. Síðan kemur glaðningurinn, rautt vín, ostar og ferskt brauð. Hún opnar gjöfina sína og hlær hátt: Nei – vá! En frábært! Mamma á ströndinni: Þarna kemur hún. Sólstóllinn í annarri hendinni. Poki í hinni. „Kristín, við erum hérna!“ Hún snýr sér við. „Huuugo, komdu nú!“ Mjaðmirnar sveiflast. Sólin er steikj- andi. Marga sólskinsdaga höfum við synt í sjónum og farið í sólbað undir klöppunum við hafið. „Hugo, leggðu handklæðið þarna … Nei, hættu. Hér er kex … Passaðu saftina! … Hugooo! … Hafið þið séð hvað veðrið er frábært? … Hverjir eru hér fleiri?“ Jean-Claud: Jean-Claud og Kristín – það er at- höfn út af fyrir sig. „Bonjour Mössjö.“ „Bonjour Madame.“ Alltaf á frönsku. Það hljómar svo huggu- lega. Síðan beygir Jean-Claud sig niður og kyssir Kristínu á kinnina sem hún hefur snúið að honum. „Sestu hér.“ Jean-Claud fær sér sæti. „Nei. Hér! Hvar hefurðu ver- ið?“ Kristín strýkur burt ósýnilegan blett á öxl hans. Síðan er allt eins og það á að vera og hún brosir og hlær. Leikhússtarfsmaðurinn: „Nei,“ segir Kristín. „Svona eig- um við að hafa það! Hatte, stattu ekki þarna!“ Hatte og Kristín spinna fram leikþátt sem við höfum pantað. Það á að fjalla um hversdagslíf leik- hússtarfsmannsins. Í þeim hvunn- degi hafa þau verið samstarfsfólk í meira en tuttugu ár svo af nógu er að taka. Það var árið 1980 sem Hatte- Hans Bertisson setti á svið hið sí- gilda, róttæka leikrit „Jösses, flick- or!“ í Halmstad. Kristín lék eitt af aðalhlutverkunum og áhorfendur heilluðust. Í þessum litla leikþætti leikur Kristín hlutverk móður Hatte, Ellýjar. Á meðan þau eru að æfa er erfitt að skilja á milli móðurhlut- verks og leikstjórahlutverks Krist- ínar og við höfum gaman af. „Og þið, þið standið þarna! Já, en Hatte- Fnatte! Þú getur ekki verið í þessum buxum.“ Hún hlær og baðar hönd- unum út í loftið. Á eftir spyr hún: „Var þetta í lagi? Hvað fannst ykk- ur?“ Kórstjórnandinn: Það er veisla og við syngjum. Við hittumst oft, sjö, fjórtán eða tuttugu og fimm. Við biðjum um glansnúmer Kristínar. „Kristín, gerðu það, get- urðu ekki sungið Ríðum ríðum?“ Svo syngur Kristín á íslensku fyrir okkur um þennan villta reiðtúr, hún syngur af innlifun. Við sitjum fyrst þögul og hlustum, síðan getum við ekki haldið aftur af okkur og förum að syngja með. Í miðjum söngnum lyftir Krist- ín höndunum og lætur þær síðan síga. Við hljóðnum, það er dimmt í kringum okkur, aðeins ljósið frá log- andi kertunum bærist. Svo syngur hún hvíslandi, dularfullt og drama- tískt, hlutann þar sem huldufólk hót- ar reiðmanninum í söngnum. Hún lýkur söngnum með löngum út- dregnum tóni. Við klöppum og fögn- um, hvítar tennur hennar lýsa í kapp við kertin. Hún kastar höfðinu aftur á bak, slær saman höndunum og hlær. Við söknum þín, Kristín. Þínir vinir í Halmstad, Kicki og Mia. KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Kristínu Benediktsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. $/ "      <  %     -@?ABCDB !B8D-58DB  ,!    "( 4 / ! <4 @  3  /  ,  0 #,     " +       "   K   7 8  '*!L @/% ,/4 -   3  "  ? 6  / / " #   )    #0   9= *  !"! -4 ! " )**   &%'  * )**  -%' / * )**  A '*! A  )    * )**  *  !  *  ,3! F4 *  ,3 0 * )**  #& A "  2!)  * )**   ))   "!  )**        #)@*/ 4 @   3       ,   0 #,#       0 ' +      + -F 7   & !*L   4 * =-%'  @" !"&%' )**  2 -%' )**  * =8 1* F -%'  A ),+ (%=3)**  -%'    1,!)**  A ),-%' )**  * = #3!)4 @   3   /   0       "         '   '    56  7 8 / !3M4 -    3    "   #0      #   # !"08  )**     ! " )**  + )   *  ! " %' !"3!))**  !" 1 *, ! " )**  * =2 *  8   ! " ,8  )**  &  &' 4 6'   ,  0 #,#      0 '          ' 2. :   5 -    3   "       )   5  +   "! 5 )**  2 3   5  $ % 5 )**  !"3!)!   8* ) ! F 2 3  5 2 2 3 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.