Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 51
Vortilboð
Sími 525 3000 • www.husa.is
á hekkklippum
8.695 kr.
Rafmagnshekkklippur
12mm greinar
9.655 kr.
16mm greinar
LANDSBYGGÐARRÁÐSTEFNA
Sagnfræðingafélags Íslands og Fé-
lags þjóðfræðinga á Íslandi í sam-
vinnu við heimamenn verður haldin á
Kirkjubæjarklaustri laugardaginn
13. apríl kl. 13.30 og sunnudaginn 14.
apríl kl. 9.30. Það er Kirkjubæjar-
stofa, fræðasetur á sviði náttúrufars,
sögu og menningar, sem hefur veg og
vanda að undirbúningi ráðstefnunnar
af hálfu Skaftfellinga.
Þema ráðstefnunnar, baráttan við
náttúruöflin, verður skoðað frá ýms-
um hliðum, fjallað verður um nátt-
úruhamfarir, samgöngur og einangr-
un, veðurfar og búsetuskilyrði,
landnytjar og atvinnuhætti og fyrir-
lesarar koma úr ýmsum fræðigrein-
um.
Jón Helgason formaður stjórnar
Kirkjubæjarstofu setur ráðstefnuna.
Erindi halda: Gísli Gunnarsson sagn-
fræðingur, Helgi Björnsson jökla-
fræðingur, Matthías Viðar Sæ-
mundsson bókmenntafræðingur,
Axel Kristinsson sagnfræðingur,
Helgi Hauksson þjóðfræðingur,
Þórður Tómasson þjóðháttafræðing-
ur, Svavar Sigmundsson nafnfræð-
ingur, Elín Erlingsdóttir land-
fræðingur, Þröstur Sverrisson um-
hverfissagnfræðingur, Haukur Ingi
Jónasson guðfræðingur og sálgrein-
ir, Margaret Cormack miðaldafræð-
ingur og Árni Daníel Júlíusson sagn-
fræðingur.
Eftirtaldir sjá um skráningu þátt-
takenda: Davíð Ólafsson: david-
ol@akademia.is og Rósa Þorsteins-
dóttir: rosat@hi.is
Rúta fer frá bílaplaninu á milli
Nýja Garðs og Odda, laugardag kl.
8.30. Nánari upplýsingar á heimasíðu
Sagnfræðingafélagsins: www.aka-
demia.is/saga/radstefnur/klaust-
ur.htm, segir í fréttatilkynningu.
Baráttan við
náttúruöflin
Landsbyggðarráðstefna Sagnfræðinga-
félagsins og Félags þjóðfræðinga
RÓBERT Pajdak, Hafliði Eiríkur
Guðmundsson og Örn Stefánsson,
allir úr Ölduselsskóla, sigruðu í
stærðfræðikeppni Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti sem haldin var fyr-
ir skömmu. Hátt í eitt hundrað
grunnskólanemendur úr Breiðholti
tóku þátt í keppninni að þessu
sinni og komu verðlaunahafar úr
öllum grunnskólunum 5 í hverfinu.
Keppt var í þremur flokkum,
flokki nemenda í 8. bekk, 9. bekk
og 10. bekk. Grunnskólanemendur
í skólunum 5 sem eru í Breiðholti;
Breiðholtsskóla, Fellaskóla, Hóla-
brekkuskóla, Seljaskóla og Öldu-
selsskóla, tóku þátt í keppninni
sem fram fór fimmta árið í röð.
Verðlaunaafhending fór fram
viku síðar í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti þar sem boðið var upp á
veitingar.
Verðlaunin sem 5 efstu fengu
voru vasareiknivél frá Heim-
ilistækjum auk þess sem þrír efstu
fengu peningaverðlaun frá Ís-
landsbanka. Keppandi í 1. sæti
fékk 15.000 krónur, 2. sætið gaf
10.000 krónur og 3. sætið gaf
5.000 krónur. Allir fengu svo við-
urkenningarskjal frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Heim-
ilistæki, Íslandsbanki og allir
grunnskólarnir 5 voru styrktarað-
ilar keppninnar, segir í frétta-
tilkynningu.
Sigurvegarar í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskólans í Breiðholti komu
úr öllum grunnskólunum í Breiðholti.
Verðlaunahafar úr
öllum grunnskólum
í Breiðholti
NÁMSKEIÐ verður hjá Endur-
menntun HÍ um verkefni og
rannsóknir á sviði lýðheilsu,
fimmtudaginn 18. og föstudaginn
19. apríl kl. 9 – 16. Það er haldið í
samstarfi við Félag um lýðheilsu
sem stofnað var á liðnu ári.
Aðalfyrirlesari námskeiðsins
er Gordon Macdonald, vísinda-
maður á þessu sviði sem hefur
starfað sem ráðgjafi Alþjóða-
bankans, Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar og Evrópu-
sambandsins. Hann er jafnframt
kennari við háskóla í Bretlandi,
Svíþjóð og Ungverjalandi.
Macdonald mun fjalla um
stefnur og strauma í lýðheilsu
undanfarin ár, skipulag verkefna
og rannsóknir. Þá munu Diana
Watkins og Geir Gunnlaugsson
formaður Félags um lýðheilsu
fjalla um heilsufar barna og hlut-
verk heilsugæslunnar.
Námskeiðið er ætlað öllum
sem láta sig varða heilbrigði og
velferð, innan heilbrigðisþjón-
ustu og utan.
Frekari upplýsingar um dag-
skrá námskeiðsins eru á vefslóð-
inni www.endurmenntun.is og
þar er jafnframt hægt að skrá
sig, segir í fréttatilkynningu.
Námskeið
um lýðheilsu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Félaginu
Ísland-Palesína sem samþykkt var
á stjórnarfundi Félagsins Ísland-
Palestína 2. apríl:
„Í ljósi þess ógnarástands sem
árásir Ísraelshers á íbúa hertek-
inna svæða Palestínu hafa valdið
og þar sem sýnt er að ríkisstjórn
Ísraels hefur einsett sér að virða
að vettugi alþjóðalög og ályktanir
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
gerir Félagið Ísland-Palestína þá
kröfu til íslenskra stjórnvalda, að
stjórnmálasambandi við Ísrael
verði slitið, þar til Ísraelsstjórn
sýnir í verki að hún sé reiðubúin
að virða mannúðarlög og mann-
réttindasáttmála, alþjóðalög og
rétt.“
Stjórnmálasambandi
við Ísrael verði slitið Rangur tónleikadagurRangt var farið með tónleikadag
Símons H. Ívarssonar gítarleikara í
Raufarhafnarkirkju í blaðinu á
sunnudag. Rétt er að tónleikarnir
verða á morgun, miðvikudag, kl.
20.30.
LEIÐRÉTT
FYRIRLESTUR á vegum Mann-
réttindaskrifstofu Íslands um sam-
anburð á kynþáttafordómum gagn-
vart innflytjendum og minnihluta-
hópum í japönskum og breskum
lögum verður haldinn miðvikudag-
inn 10. apríl kl. 17 í Litlu-Brekku,
einum sala veitingahússins Lækjar-
brekku við Bankastræti.
Fyrirlesari er ítalskur lögfræðing-
ur, Hermann Salton, sem starfar hjá
Mannréttindaskrifstofu Íslands með
styrk frá Leonardo-áætlun Evrópu-
sambandsins. Fyrirlesturinn byggist
á ritgerð Hermanns til lokaprófs.
Fyrirlesari mun svara fyrirspurn-
um að erindinu loknu, segir í frétta-
tilkynningu.
Málstofa um
kynþáttafordóma
í Japan og
Bretlandi
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
NATO munu funda í Reykjavík
dagana 13.–15. maí nk.
Samtök herstöðvaandstæðinga
efna til alþjóðlegrar ráðstefnu um
friðar- og afvopnunarmál föstudag-
inn 10. og laugardaginn 11. maí á
Hótel Loftleiðum.
Á ráðstefnunni, sem ber enska
heitið „A Peaceful Future? – Con-
flict Management in the 21st Cent-
ury“, munu mæta nokkrir erlendir
fyrirlesarar. Þeir eru: Sara
Flaunders aðstoðarframkvæmda-
stjóri International Action Center
(http://www.iacenter.org/), sem
stýrt er af Ramsey Clark fyrrv.
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Á vegum samtakanna hefur Sara
m.a. heimsótt Írak, Súdan, átaka-
svæði í Ísrael og Júgóslavíu. Len-
ore Foerstel stjórnandi Norður-
Ameríkudeildar alþjóðasamtak-
anna Women for Mutual Security
og ritstjóri tengslanetsins PRIME
(Progressive International Media
Exchange). Anthony Simpson, út-
gáfustjóri hjá Bertrand Russell-
friðarstofnuninni í London, og sér
m.a. um útgáfu málgagns hennar
The Spokesman. Jan Öberg, fram-
kvæmdastjóri TFF, (Transnational
Foundation for Peace and Future
Research, http://www.transnation-
al.org).
Ráðstefnugjöld eru 3.000 kr., en
1.500 fyrir skuldlausa félagsmenn í
SHA, segir í fréttatilkynningu.
Alþjóðleg ráð-
stefna á vegum
herstöðvarand-
stæðinga
MORGUBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Röskvu:
„Röskva, samtök félagshyggjufólks
við Háskóla Íslands, samþykkti eft-
irfarandi ályktun vegna átakanna
fyrir botni Miðjarðarhafs: Röskva,
samtök félagshyggjufólks við Há-
skóla Íslands, fordæmir harðlega
hernaðarofbeldi Ísraelsmanna
gagnvart íbúum Palestínu og skor-
ar á íslensk stjórnvöld að beita
áhrifum sínum af fullu afli til þess
að stöðva ofbeldið og stuðla að því
að friður komist á hið fyrsta.
Röskva lýsir yfir stuðningi við
lýðræðislega kjörna fulltrúa Palest-
ínu en fordæmir jafnframt hryðju-
verkaárásir á ísraelska borgara.
Það er skýlaus krafa að mannrétt-
indaákvæði Genfarsáttmálans séu
virt og að Ísraelsmenn hlíti sam-
þykktum Sameinuðu þjóðanna í hví-
vetna, hverfi þegar í stað á brott
með heri sína frá byggðum Palest-
ínumanna og virði sjálfstæði Palest-
ínu.
Skipulögð ofbeldisverk ísraelska
hersins gagnvart varnarlausu fólki
eru komin á það stig að enginn get-
ur lengur undan því vikist að taka
afstöðu og mótmæla þeim stríðs-
glæpum sem heimurinn verður nú
vitni að.“
Fordæmir
hernaðarofbeldi
Ísraelsmanna
EVRÓPURÚTAN verður í Ráðhús-
inu fimmtudaginn 11. apríl. Reykvík-
ingum og öðrum íbúum höfuðborg-
arsvæðisins býðst að kynna sér
möguleika Íslendinga í evrópsku
samstarfi, en þá verður haldinn
kynningarfundur um þau mál. Pétur
Gunnarsson rithöfundur flytur er-
indi.
Í Evrópurútunni í Ráðhúsinu
verða fulltrúar fimmtán áætlana og
þjónustuskrifstofa sem vinna að evr-
ópsku samstarfi. Landsskrifstofur
Leonardó og Sókratesar kynna
möguleika varðandi menntun og
þjálfun á ýmsum stigum, Media og
Menning 2000 kynna möguleika í
tengslum við menningu og listir,
Landsskrifstofa ungs fólks í Evrópu
möguleika sem unga fólkinu standa
til boða auk þess sem fulltrúar 6.
rammaáætlunar ESB um rannsókn-
ir og tækniþróun kynna þá fjöl-
mörgu möguleika sem þar finnast og
E-content upplýsingatækniáætlunin
verður kynnt. Einnig munu þjón-
ustuskrifstofur eins og EES vinnu-
miðlun, MENNT – samstarfsvett-
vangur atvinnulífs og skóla og
Evrópumiðstöð náms- og starfsráð-
gjafar kynna þjónustu sína.
Skólar á öllum skólastigum, sí-
menntunarmiðstöðvar, námskeiðs-
haldarar, félagasamtök, stofnanir,
vinnumiðlanir, náms- og starfsráð-
gjafar, auk fyrirtækja í öllum geirum
og allt áhugafólk um Evrópusam-
starf er velkomið á fundinn og að-
gangur er ókeypis, segir í fréttatil-
kynningu.
Evrópurútan
í Ráðhúsinu
NÝTT jóganámskeið fyrir konur sem
eru að ganga í gegnum eða hafa lokið
krabbameinsmeðferð hefst þriðju-
daginn16. apríl hjá Yoga Studio.
Kennt er á þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 12 í fjórar vikur. Verð er kr.
9.900.
Kennari á námskeiðinu er Arnhild-
ur S. Magnúsdóttir. Kenndar verða
léttar jógastöður sem hjálpa að
byggja upp orku og ná líkamlegum
styrk. Áhersla verður lögð á öndun í
jógastöðunum auk þess sem kenndar
verða nokkrar tegundir af öndunar-
æfingum. Hver tími endar á slökun.
Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg.
Skráning fer fram hjá Yoga Studio
í síma og í gegnum tölvupóst yoga-
@yogastudio.is, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Nýtt
jóganámskeið
FUNDUR um mataræði verður
haldinn miðvikudaginn 10. apríl kl.
20 í húsnæði Krabbameinsfélags Ís-
lands í Skógarhlíð 8, 4. hæð.
Svava Engilbertsdóttir næringar-
fræðingur á Landspítalanum flytur
erindi um mataræði stómaþega á
vegum Stómasamtaka Íslands.
Kaffiveitingar og spjall að erindi
loknu, segir í fréttatilkynningu.
Fundur um
mataræði