Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚVERANDI borgarstjóri talar um
hasar um Laugaveginn í grein sem
birtist í Morgunblaðinu 3. þ.m. Ekki
vil ég kalla það hasar þegar tveir
ágætismenn þeir Gunnar kaupmaður
í Gleraugnamiðstöðinni og Jón kaup-
maður í Jóni og Óskari leyfa sér fyrir
hönd kaupmanna við Laugaveginn að
gagnrýna ummæli núverandi borgar-
stjóra.
Við skulum samt hafa það hugfast
að aðeins hún veit hvað okkur kaup-
mönnum og okkar viðskiptavinum við
Laugaveg er fyrir bestu. Eða hvað?
Núverandi borgarstjóri segir í
þessari grein að verslunarmynstrið
hafi breyst við tilkomu þessara nýju
verslunarkjarna og við þurfum að
keppa við þá.
Þetta er nákvæmlega það sem við
vitum og við þurfum ekki núverandi
borgarstjóra til þess að segja okkur
það, er það ekki skrítið?
Það hefur sýnt sig að hækkun
stöðumælagjalda og sekta fælir fólk
frá því að koma og versla við Lauga-
veginn. Hvað oft hefur ekki heyrst,
hingað kem ég sko ekki aftur.
Ég er ansi hrædd um að verslunar-
eigendur í verslunarkjörnum yrðu
ekki mjög hrifnir ef þeirra viðskipta-
vinir væru píndir til þess að greiða
himinhá stöðumælagjöld.
Hvernig eigum við að geta keppt á
þessum grundvelli? Ef til vill getur
núverandi borgarstjóri svarað því.
Við viljum stöðumælana í burtu og
taka þess í stað upp skífur sem gefa
kost á fríu bílastæði í ákveðinn tíma.
Er það svo erfitt, er ekki kominn
tími á að við fáum einhverju um það
ráðið. Við þurfum ekki borgarstjóra
sem heldur að hann einn geti hugsað
og stjórnað fyrir alla aðra.
ÁGÚSTA HRUND
EMILSDÓTTIR,
kaupmaður við Laugaveg.
Hasar um
Laugaveginn?
Frá Ágústu Hrund Emilsdóttur:
NÚ dregur að kosningum í Reykja-
vík, og sífellt fjölgar þeim sem vilja
bjóða fram í þeim til þess að láta
ljós sitt skína.
Nýjasta framboðið er svokölluð
Höfuðborgarsamtök, en í forsvari
fyrir þau eru Örn Sigurðsson arki-
tekt, Guðjón Þór Erlendsson arki-
tekt og Jón H. Sigurðsson viðskipta-
fræðingur. Þetta einvalalið minnir
mig að hafi verið hvað háværast í
flugvallarumræðunni á síðasta ári,
um að fjarlæga flugvöllinn í Vatns-
mýrinni.
Það er nokkuð ljóst að það logar
ekki alveg á öllum perum hjá þess-
um hópi. Þeir ætla greinilega að
ganga skrefinu lengra en R-listinn í
þeirri viðleitni að eyða atvinnustarf-
semi í borginni.
Það er sama gamla tuggan, þétta
byggðina og koma öllum borgarbú-
um fyrir á svæði 101. Byggja há-
hýsahverfi svo þetta geti orðið sama
gráa borgin og flestar stórborgir úti
í hinum stóra heimi. Hver hefur svo
áhuga á að búa svona – mér er
spurn… ef einhver vill sjá vasaút-
gáfu af þessu skipulagi er gott að
bregða sér inn í Sóltún og sjá þar
einhverja þunglyndislegustu blokk-
arhrúgu sem völ er á, en allt svaka
fínt því þetta er glænýtt og teiknað
og skipulagt af hámenntuðum
mönnum.
Alvarlegi hluturinn er hins vegar
sá að mínu mati, að þarna er verið
að ganga frá atvinnustarfsemi borg-
arinnar. Flugvöllurinn á að fara, ol-
íubirgðastöðin í Örfirisey á að fara,
og byggja skal á uppfyllingum allt í
kringum Reykjavíkurhöfn þannig að
á endanum hlýtur hún að þurfa að
fara líka. Hver vill annars búa í
svona fínu hverfi og þurfa svo að
horfa upp á fiskkör og finna vonda
fiskilykt, ojbara!
Nú kemur skemmtilegi hlutinn.
Allir eiga að búa í nýja fallega hverf-
inu, en engin er atvinnan þar, þann-
ig að allir íbúarnir verða að vinna á
kaffihúsunum og stunda menningar-
starfsemina í góða veðrinu sem þar
verður. Gróðurhúsaáhrifin hafa nú
reyndar ekki sýnt fram á bætt veð-
urfar hérna – allavega ekki alveg
strax.
Nú hrynur spilaborgin. Engar
samgöngur áttu að liggja í nýja fína
hverfið, enda eiga allir að ferðast
með Strætó. Vandinn er bara sá, að
öll atvinnustarfsemin er kominn í
nágrannabyggðirnar og nú þarf að
koma tugum þúsunda manna til
vinnu þar. Hringbrautin er sprung-
in, og lausnin hlýtur að felast í því
að búa til hraðbraut í Fossvogi, með
tilheyrandi mengun og hávaða. Þar
fór Fossvogsdalurinn og Elliðaár-
dalurinn, og Öskjuhlíðin skammt á
eftir fyrir fleiri flott háhýsi. Grænu
svæðin í vesturhluta borgarinnar
eru víst ekki fleiri, þannig að ég hef
ekki meira um málið að segja að
sinni.
Er þetta framtíðin sem við viljum
búa við? Ekki ég, þannig að veljum
rétt í næstu kostningum og vörum
okkur á R-listum og Höfuðborgar-
samtökum.
SIGURÐUR ÁSGEIRSSON,
Kaplaskjólsvegi 41, Reykjavík.
Höfuðborgar-
samtökin
Frá Sigurði Ásgeirssyni
flugmanni: