Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 09.04.2002, Qupperneq 54
DAGBÓK 54 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... Á DÖGUNUM rak á fjörur Vík-verja bók sem hann telur á ýmsan hátt athyglisverða. Bókin heitir Uppeldi til ábyrgðar og í henni birtast þrjár þemabækur eftir Diane Gossen frá Saskatoon í Kanada í ís- lenskri þýðingu Magna Hjálmars- sonar námsráðgjafa í Foldaskóla. Þemabækurnar fjalla um hvernig hægt er að kenna börnum og ung- lingum að beita sig sjálfsaga í sam- skiptum við aðra. Höfundurinn kall- ar aðferð sína Restitution, en það hefur verið þýtt „uppbygging“ á ís- lensku. Fram kemur í formála að bókinni að Foldaskóli í Grafarvogi kynntist hugmyndum og aðferðum Diane Gossen fyrst fyrir tveimur ár- um og hefur verið að tileinka sér þær í auknum mæli og laga að íslenskum veruleika. Diane Gossen hefur unnið með kennurum víða um heim, eink- um þó í Kanada og Bandaríkjunum, og þannig hefur aðferð hennar þróast undanfarin 20 ár. Hún hélt fyrsta námskeiðið hér á landi um „uppbyggingu“ í Foldaskóla í maí ár- ið 2000 og síðan þá hafa allmargir kennarar skólans farið til Bandaríkj- anna og sótt þar námskeið. Í formála bókarinnar segir að þeg- ar skólar ákveði að tileinka sér þær hugmyndir sem umrædd aðferð byggist á séu þeir að efla tilfinninga- þroska, félagsfærni og siðvit. Lífs- gildi eru tekin á dagskrá og fullorðn- ir jafnt sem börn velja sér sín eigin gildi, skilgreina þýðingu þeirra og hafa að leiðarljósi í samskiptum. Reglum er fækkað, en þær styrktar, svo allir þekki og viti hvað gerist ef þær eru brotnar. Reglurnar standi vörð um lífsgildin og skapi örugga fótfestu. Næst sé að læra um þarfir sínar og hvernig hægt sé að sinna þeim á ábyrgan hátt. Í formálanum segir að stundum hafi kennarar, einkum í unglingaskólum og fram- haldsskólum, ekki verið á eitt sáttir um hversu víðtækt uppeldishlutverk skólans ætti að vera. Til að komast hjá slíkum deilum lítur þýðandi bók- arinnar svo á að tilgangur uppbygg- ingar sé að skapa breytta menningu í skólunum, betri skólaanda eða staðblæ. Þeir sem reynt hafa verði varir við minni streitu, bæði hjá full- orðnum og börnum, öruggari fram- komu og meiri gleði. Og þegar hafi tekist að gera samskipti áreynslulítil og skólinn sinni vel þörfum einstak- linganna, fari einkunnir í bóklegum greinum hækkandi. x x x Í BÓKINNI skýrir Diane Gossenuppbyggingarstefnuna á þann hátt að hún sé ferli sem kennir ungu fólki sjálfsaga. Það sé byggt á þeirri meginhugmynd að fólk sé fætt með sjálfstæðan vilja – að áhuginn komi að innan. „Við, fullorðna fólkið, erum ekki vön því að tala við unglinga um hvernig þeir sjá sjálfa sig – hverjum þeir vilja líkjast – því við höfum venjulega mestan áhuga á að breyta hegðun þeirra, láta þá samþykkja sjónarmið okkar, frekar en að gefa þeim kost á sjálfsskoðun. Uppbygg- ingarstefnan beinir sjónum fyrst að persónunni. Síðan biðjum við per- sónuna að líta í eigin barm og meta hvaða áhrif hegðun hennar hefur á aðra,“ segir Diane Gossen. Þessi sjónarmið telur Víkverji af- ar athyglisverð og fróðlegt verður að fylgjast með því í framtíðinni hver árangurinn verður í Foldaskóla og víðar þar sem uppbyggingarstefnan verður höfð að leiðarljósi. Hvar fæst birkisalt? KONA hafði samband við Velvakanda og langaði að vita hvort einhver veit hvar hún getur nálgast birkisalt. Til kattaeigenda NÚ þegar vorið er á næstu grösum og fuglarnir fara að hugsa til hreiðurgerðar koma kettirnir upp í huga minn. Hvað getum við katta- eigendur gert til að hjálpa ungunum að komast á flug? Það er auðvitað erfitt að hafa fulla stjórn á kisa en við getum í fyrsta lagi reynt og t.d. haft stóra bjöllu á ólinni, þessar bjöllur sem oftast fylgja ólunum eru of litlar og heyrist þar af leiðandi mjög lítið í þeim. Í öðru lagi getum við haldið köttunum inni. Þeir þurfa ekkert að valsa úti allan sólarhringinn, alla vega ekki á þessum við- kvæma fuglatíma. Hægt er að hleypa þeim út rétt áður en að þeirra fasta matmálstíma kemur, þá koma þeir fljótlega inn aft- ur í matinn. Svo má líka bara hrein- lega binda þá úti eins og hunda. Já, kattaeigendur, stöndum nú með fuglunum okkar og launum þeim sönginn með því að stytta útivistartíma kisu og mun- ið endilega „stóra bjöllu“. Dýravinur. Tapað/fundið Reiðhjól í óskilum NÝLEGT skærgrænt reiðhjól hefur legið í Sala- hverfinu í Kópavogi und- anfarnar tvær vikur. Eig- andi getur haft samband í síma 567 4994. Jakki í óskilum JAKKI var tekinn í mis- gripum á skemmtistaðn- um Astró aðfaranótt 31. mars sl. Hann er úr sk. leðurlíki, er mittissíður og renndur upp í háls. Ég tók óvart leðurjakka sem er hnepptur með V-hálsmáli. Sá/sú sem tók minn og vill fá sinn aftur, vinsamlegast hafi samband í síma 551 5261 eða 699 6657. Gullarmband tapaðist á Akureyri GULLARMBAND tapað- ist á Akureyri í október sl. Armbandið er með þrem hengjum og eigandanum afar kært. Armbandið gæti hafa tapast á veit- ingastaðnum Pollinum, á Strandgötunni eða á göngu gegnum miðbæinn og upp á Brekku. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 864 3414. Gullhringur fannst í Borgarnesi GULLHRINGUR með steini fannst á Shell-stöð- inni í Borgarnesi fyrir nokkru. Upplýsingar í síma 427 1282. Risaeðla tapaðist LÍTIL leikfangarisaeðla tapaðist á Skólavörðustíg fimmtudaginn 4. apríl sl. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa sam- band í síma 551 5644. Svartir ullarfingra- vettlingar töpuðust SVARTIR ullarfingravett- lingar töpuðust miðviku- daginn 27. mars sl. annað- hvort í Bónus í Smáranum eða í Nettó í Mjódd. Skil- vís finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hafa sam- band í síma 581 3838. Dýrahald Kettlinga vantar heimili TÍU kettlinga vantar gott heimili. Upplýsingar í síma 897 5528. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is HEFÐI nokkur trúað að á næstfyrsta ári 21. aldar væru hinir fyrrum ofsóttu gyðingar að fara fram úr nasistum í níðingsverkum og undir vernd og þar með samsekt voldugasta ríkis heims, Bandaríkj- anna? Hvað þarf til svo sjóði upp úr potti Bush að skynsamari landar hans taki til örþrifaráða? Hvað þarf til að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael? Brjálæðingarnir sem flugu á World Trade Center og Pentagon 11. sept. sl. hafa náð meiri ár- angri en þeirra forskrúf- aða hugsun gat ímyndað sér. Bandaríkjamenn framleiða nú í fjöldafram- leiðslu (eins og þeim ein- um er lagið) nýja hópa „terorrista“ víða um heim. Nú væri skratt- anum skemmt, ef hann væri til! Kristján Árnason, Dvalarheimili aldraðra, Sauðárkróki. Hvað þarf til…? 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 fen, 4 þref, 7 dunda, 8 málgefin, 9 hlaup, 11 jað- ar, 13 elska, 14 lands- menn, 15 raspur, 17 stert- ur, 20 málmur, 22 svæfill, 23 rönd, 24 atvinnugrein, 25 barin. LÓÐRÉTT: 1 eyja við Ísland, 2 úr- ræði, 3 mjög, 4 jötunn, 5 ójafnan, 6 heigull, 10 hálfbogni, 12 blett, 13 blóm, 15 persónutöfrar, 16 hundrað árin, 18 tóm- um, 19 myntin, 20 ró, 21 tóbak. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gamaldags, 8 aflát, 9 fegin, 10 uxa, 11 lærir, 13 neita, 15 skáld, 18 gatan, 21 afl, 22 úrill, 23 ættin, 24 fals- laust. Lóðrétt: 2 amlar, 3 aftur, 4 dúfan, 5 gegni, 6 gafl, 7 anda, 12 ill, 14 efa, 15 skúr, 16 árita, 17 dalls, 18 glæða, 19 titts, 20 nánd. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Arn- arfell kemur í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun í dag kl. 17–18. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðju- og fimmtudaga kl. 14–17. Mannamót Norðurbrún 1 og Furu- gerði 1. Fimmtudaginn 11. apríl verður farin vetrarferð að Gullfossi og Geysi. Hádeg- isverður snæddur á Hótel Geysi. Lagt af stað kl. 9 frá Norð- urbrún 1 og síðan teknir farþegar í Furugerði 1. Skráning og upp- lýsingar í Norðurbrún 1, s. 568 6960 og í Furu- gerði 1 í s. 553 6040. Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, leirkera- smíði, kl 10 boccia, kl. 10 enska, kl. 11 enska og dans, lance-dans, kl. 13 vinnusofa, postulíns- málning. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa. All- ar upplýsingar í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist. Harm- ónikkuball verður fimmtud. 11. apríl kl. 16. Ragnar Leví spilar á nikkuna. Kaffi og með- læti. Skáning í s. 568 5052. Allir velkomn- ir. Eldri borgarar, Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið í Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga föstudaga kl. 11. Ferðakynning á Krít- arferð verður þriðjud. 9. apríl kl. 14.30. Kennsla í línudansi byrjar í Dam- os mánud. 15. apríl kl. 20. Ferð verður á Sæ- dýrasafnið í Höfnum og til Keflavíkur 16. apríl, lagt af stað kl. 13 frá Damos. Félagsvist á miðvikudagskvöldið kl. 20. Skráning í s. 586 8014 e.h. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 10 sam- verustund, kl. 14 fé- lagsvist. Félagsstarfið Lönguhlíð 3. Kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Í dag kl. 11.15 og 12.15 leikfimi, kl. 13.05 róleg stólaleikfimi, kl. 13.30 handavinnu- hornið, kl. 16 trésmíði, fimmtud. 11. apríl kl. 9 vinnustofa, kl. 9.45 boccia, kl. 13. postulíns- málun, málun og ker- amik, kl. 19.30 vorfagn- aður í Kirkjuhvoli á vegum Oddfellow. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 13.30 brids, saumur undir leiðsögn og frjáls handavinna. Kl. 16.30 spænskukennsla. Á morgun línudans kl. 11, myndlist og gler- skurður kl 13, pílukast kl. 13.30. Leikhúsferð á morgun kl. 14 að sjá leikritin „Í lífsins ólgu- sjó“ og „Fugl í búri“. Rúta frá Hraunseli kl. 13.15. Á fimmtudag kvöldvaka í boði Lions kl 20. Skemmtiatriði, kaffihlaðborð og dans. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort kl. 13.30. Miðvikud: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17. Línu- danskennsla kl. 19.15. Söngvaka kl. 20.45. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði „Í lífsins ólgusjó“ og „Fugl í búri“. Næstu sýningar: Miðvikud.10. apríl kl. 14, næst síð- asta sýning og föstud. 12. apríl, allra síðasta sýning. Miðapantanir í s: 588 2111 og 568 9082. Heilsa og hamingja laugardaginn 13. apríl nk. kl. 13.30 í Ásgarði. Upplýsingar á skrif- stofu FEB. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, tréskurður, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 Bónusferð, kl. 13.15 bókabíll. Opið alla sunnudaga frá kl. 14– 16, blöðin og kaffi. Björn Bjarnason, efsti maður á lista sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, lítur við í kaffi milli kl. 13 og 16 í dag. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- salur opinn, kl. 13 boccia. Veitingar í veit- ingabúð. Allar upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik- fimi, kl. 9.30 gler- skurður, kl. 10 handa- vinna, kl. 14 þriðjudags- ganga og boccia, kl. 16.20 kínversk leikfimi, kl. 19 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 9.15 postulínsmálun, kl. 13–16 handavinnu- stofan opin, kl. 19 gömlu dansarnir. Grænmetis- og ávaxta- dagar verða 10. apríl. Dagskráin hefst kl. 14. Guðrún Lóa Jónsdóttir syngur einsöng. Anna Sigríður Ólafsdóttir matvæla- og næring- arfræðingur flytur er- indi. Ávaxta- og græn- metishlaðborð. Handverksmarkaður verður opinn á sama tíma. Fólk á öllum aldri velkomið. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 leikfimi, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 13 handa- vinna, kl. 13.30 helgi- stund. Þjónusta félags- þjónustunnar er öllum opin án tillits til aldurs eða búsetu í Reykjavík. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskurður og tré- málun, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13 myndlist. Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun, miðvikudag, samvera, fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 11, súpa í Setr- inu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og op- in vinnustofa, kl. 10 boccia, Félagsstarfið er opið öllum aldurshóp- um, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 16 bútasaumur, kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 spila- mennska. Vitatorg. Kl. 9 smíði kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 handmennt og körfugerð, kl. 14 fé- lagsvist. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa saln- um. Skógræktarfélag Garðabæjar heldur að- alfundinn í Safn- aðarheimilinu Kirkju- hvoli við Kirkjulund í kvöld 20. Eftir venjuleg aðalfundarstörf flytur Björn Jónsson fyrrver- andi skólastjóri erindi um „skógrækt áhuga- mannsins“. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Opið hús á morgun kl. 14. Gestir: Sigríður Norðkvist harmónikkuleikari og Vitatorgskórinn. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson flytur hugvekju. Bílferð fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar í s. 510-1034. Allir vel- komnir. Sínawik í Reykjavík. Fundur í kvöld 9. apríl kl. 20 í Sunnusal Hótels Sögu. Gestur fundarins er Auður Haralds. Áhugahópur um heil- kenni Sjögrens. Aðal- fundur í kvöld kl. 20 í húsnæði Gigtarfélags Íslands Ármúla 5, 2. hæð. Safnaðarfélag Ás- kirkju. Vorfundur verð- ur í safnaðarheimili kirkjunnar, neðri sal, miðvikud. 10. apríl og hefst kl. 20. Gestur fundarsins verður Sól- veig frá Grænum kosti. Allir velkomnir. Í dag er þriðjudagur 9. apríl, 99. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn. (Sálm. 26, 4.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.