Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 55

Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 55 DAGBÓK Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert ekki með neitt hálf- kák við hlutina, heldur geng- ur í verkin og hættir ekki fyrr en þeim er lokið. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það eru oft einföldustu hlut- irnir sem veita manni mesta gleði. Einföld gönguferð í fjöru eða á fjall getur verið allra meina bót. Naut (20. apríl - 20. maí)  Breytingar á daglegum starfsvenjum valda þér ein- hverjum erfiðleikum en þú ert vel í stakk búinn til að mæta þeim svo þú skalt ekki hika við að halda þínu striki. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú gætir orðið fyrir vonbrigð- um með hugmynd í dag. Gefstu samt ekki upp því fyrr eða síðar stendur þú með pálmann í höndunum og verð- laun fyrir hugvit þitt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt Gróa á Leiti sé eitthvað á ferðinni í kringum þig. Þú hefur hreinan skjöld sem slúður nær ekki að ata út. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Fjármálin liggja óvenju þungt á þér þessa dagana. Það er ekki um annað að ræða en að taka til hendinni, gera áætlanir og fara eftir þeim. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það vefst fyrir þér að ganga frá máli sem þér hefur verið falið að leiða til lykta. Gefðu þér tíma til að gaumgæfa all- ar hliðar þess. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er nauðsynlegt að láta vinnuna ganga fyrir félagslíf- inu en sjálfsagt að lyfta sér upp í lok vinnudags. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur lagt hart að þér. Nú er komið að því að þú upp- skerir laun erfiðis þíns. Njóttu vel og leyfðu þínum nánustu að gleðjast með þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það má vera að þú þurfir að gera nokkrar tilraunir áður en þú dettur ofan á hag- kvæmustu lausnina á þeim vanda sem þú glímir við. Vertu því þolinmóður. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er rangt að reyna að þröngva fram breytingum sem þú vilt sjá. Þú ættir þó ekki að kasta þeim fyrir róða heldur leggja þær á hilluna í bili. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Gerðu greinarmun á skoðun- um og staðreyndum. Forð- astu umfram allt að berja höfðinu við steininn þegar um viðurkenndar staðreyndir er að ræða. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það reynir á stjórnunarhæfi- leika þína og það skiptir miklu að þú bregðist rétt við aðstæðum. Mundu að flestir hafa eitthvað til síns máls. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 9. apríl, er fimmtugur Jens Andrés- son, vélfræðingur, formað- ur Félags starfsmanna rík- isstofnana (SFR). Hann og kona hans, Kristín Þor- steinsdóttir, eru erlendis. 60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 9. apríl, er sextugur Ingvar Viktors- son, kennari og bæjar- fulltrúi, Svöluhrauni 15, Hafnarfirði. Ingvar og kona hans Birna Blomsterberg bjóða vinum og vandamönn- um að samfagna með sér föstudaginn 12. apríl kl. 18– 21 í nýju félagsheimili Fé- lags eldri borgara í Hafnar- firði að Flatahrauni 3. „ÉG skal ekki skammast mikið þótt þú tapir þessu spili,“ sagði Valur Sigurðs- son við félaga sinn Ragnar Magnússon þegar hann lagði upp blindan. Þetta var rausnarlega mælt, en Valur hafði samviskubit yf- ir opnun sinni í fyrstu hendi á níu punkta og vildi axla nokkra ábyrgð: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 943 ♥ Á108752 ♦ Á5 ♣G8 Vestur Austur ♠ 8 ♠ KG2 ♥ D4 ♥ G96 ♦ KD7632 ♦ G9 ♣Á1073 ♣D9654 Suður ♠ ÁD10765 ♥ K3 ♦ 1084 ♣K2 Spilið er frá síðasta degi Íslandsmótsins í sveita- keppni. Valur og Ragnar eru liðsmenn Strengs og þeir áttu í höggi við með- limi Spron í þessu spili, þá Ásmund Pálsson og Guðm. P. Arnarson: Vestur Norður Austur Suður Ásmundur Valur Guðm. Ragnar – 1 hjarta Pass 1 spaði 2 tíglar Dobl * Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Dobl Vals á tveimur tígl- um sýndi þrílit í spaða og því gat Ragnar stokkið beint í fjóra. Út kom tíg- ulkóngur og Valur kom í veg fyrir gagnrýni með því að gefa Ragnari heimild til að tapa spilinu. En Ragnar hafði aðrar hugmyndir. Hann dúkkaði tígulkóng- inn, fékk næsta slag á tíg- ulás, svínaði spaðadrottn- ingu og tók spaðaás. Spilaði svo hjarta þrisvar með trompun. Staðan var þá orðin þessi: Norður ♠ 9 ♥ 1087 ♦ – ♣G8 Vestur Austur ♠ – ♠ K ♥ – ♥ – ♦ D76 ♦ – ♣Á107 ♣D9654 Suður ♠ 1076 ♥ – ♦ 10 ♣K2 Ragnar spilaði tígultíu og trompaði í borði. Austur er nú í undarlegri stöðu. Ef hann hendir laufi getur sagnhafi spilað fríhjarta og kastað laufi heima. Hinn möguleikinn er að yfir- trompa og spila laufi frá drottningunni. Greinarhöf- undur valdi þann kostinn, en Ragnar átti ekki í nein- um vandræðum með að hitta í litinn og hafði þar innákomu vesturs til hlið- sjónar. Þorlákur Jónsson í sveit Subaru spilaði nákvæm- lega eins og fékk líka tíu slagi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT BARNAGÆLUR Sofðu með sæmdum sæll í dúni sem vín á viði, vindur á skýi, svanur á merski, már í hólmi, þorskur í djúpi, þerna á lofti, kýr á bási, kálfur í garði, hjörtr í heiði, en í hafi fiskar, mús undir steini, maðkur í jörðu, ormur í urðu alvanur lyngi, hestur í haga, húnn í fjöllum, seiði á flúrum, en á sandi murta, björn á heiði, vargur á viði, vatn í keldu, áll í veisu, en maur í moldu, síli í sjó og sundfuglar, fálkar í fjöllum, fílar í skógum, ljón í bæli, lamb í mói, lauf á limi, ljós á haldi. Sofðu eins sæll og sigurgefinn. 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. Bg5 Be7 4. Rbd2 d5 5. e3 b6 6. c3 Bb7 7. Bd3 Rbd7 8. O-O Re4 9. Bxe7 Dxe7 10. Re5 Rxe5 11. dxe5 O-O 12. f4 Rc5 13. Bc2 Ba6 14. He1 Rd3 15. Bxd3 Bxd3 16. Rb3 Bg6 17. De2 c5 18. a4 a5 19. Rd2 f6 20. exf6 Hxf6 21. Db5 Dc7 22. Db3 Hd8 23. Rf3 h6 24. Re5 Be4 25. Hac1 g5 26. g3 gxf4 27. exf4 Staðan kom upp á minn- ingarmóti um Dan Hansson sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur og heppnaðist afbragðsvel. Hollenski bragðarefurinn Jan Timm- an (2.605) hafði svart gegn Birni Ívari Karlssyni (2.015). 27...Hxf4! 28. gxf4. Leiðir rakleiðis til máts en aðrir haldbærir möguleikar voru vart til staðar. 28...Dg7+ 29. Kf2 Dg2+ og hvítur gafst upp enda verður hann mát eftir 30. Ke3 d4+ 31. cxd4 cxd4#. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grét- arsson Svartur á leik. 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 9. apríl, er fimmtug Þórkatla Þóris- dóttir kennari og félagsráð- gjafi. Hún verður með opið hús fyrir vini og vandamenn í Húnabúð, Skeifunni 11, fimmtudagskvöldið 12. apríl kl. 20.30.                                        Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið laugardag frá kl. 10-15 Nýjar vörur Jakkar Stuttkápur Hörkápur Vínilkápur Regnkápur frá 5.900 VINNU- SÁLFRÆÐI Samskipti á v innustað Upplýsingar og skráning í síma Sálfræðistöðvarinnar, 562 3075, á milli kl. 11 og 12. Fax 552 1110. Á flestum vinnustöðum eru samskipti flókin og oft vandasöm. Á námskeiðinu verður kennt samskiptalíkan til að auka samstarfshæfni og þjálfa viðbrögð sem leysa ágreining og auka vinnugleði. Leiðbeinendur og höfundar námskeiðs eru sálfræð- ingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. LÖGREGLAN í Reykjavík lýs- ir eftir vitnum að árekstri 5. apríl sl. um kl. 15.05 á Höfða- bakka sunnan Stórhöfða. Þar var fólksbifreið ekið eftir hægri akrein til suðurs og í sömu átt var vörubifreið ekið á vinstri akrein. Vörubifreiðinni var síð- an ekið í hlið fólksbifreiðarinn- ar. Þrátt fyrir það hélt vörubif- reiðin áfram för sinni og ekki náðist niður skráningarnúmer, en henni er lýst sem stórri og gulri að lit með gulan flutninga- kassa. 3. apríl sl., um kl. 13–13.15, var ekið á bifreiðina M-360, Toyota Land Cruiser, þar sem hún stóð kyrr og mannlaus við Nettó í Mjódd. Tjónvaldur fór hinsvegar af vettvangi án þess að tilkynna um tjónið til hlut- aðeigandi eða lögreglu. Þau vitni sem hugsanlega hafa verið að þessum óhöppum eru beðin að snúa sér til um- ferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum KYNNTUR hefur verið listi Sam- fylkingar og óháðra í Hveragerði og skipa listann eftirtalin: 1. Þorsteinn Hjartarson skóla- stjóri, 2. Magnús Ágúst Ágústsson líffræðingur, 3. Sigríður Kristjáns- dóttir hjúkrunarfræðingur, 4. Guð- rún Olga Clausen kennari, 5. María Óskarsdóttir húsmóðir, 6. Sigurjón Sveinsson laganemi, 7. Aðalheiður Ásgeirsdóttir snyrtifræðingur, 8. Finnbogi Vikar Guðmundsson sjó- maður, 9. Margrét Haraldardóttir afgreiðslustjóri hjá Íslandspósti, 10. Anna Sigríður Egilsdóttir innkaupa- stjóri, 11. Sigfrid Valdimarsdóttir húsmóðir, 12. Ármann Ægir Magn- ússon öryrki, 13. Þórhallur Ólafsson læknir og 14. Ingibjörg Sigmunds- dóttir garðyrkubóndi. Listi Samfylk- ingar og óháðra í Hveragerði Hveragerði. Morgunblaðið. FRÉTTIR FASTEIGNIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.