Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 57
það er að hafa uppi á sínum innri manni.
Margt áhugamanna um íslenska leiklist
lagði leið sína á Listabraut á sunnudaginn
og naut sýningarinnar eins og meðfylgj-
andi myndir sýna.
Á SUNNUDAGSKVELD var nýtt leikrit
eftir Þorvald Þorsteinsson frumsýnt á Nýja
sviði Borgarleikhússins. Nefnist það hinum
sérstæða titli And Björk, of course… og
fjallar um ólíkt fólk með sameiginlega þrá;
Borgarleikhúsið frumsýnir And Björk, of course…
Í leit að sjálfsmynd
Ragnar Kjart-
ansson (lengst
til hægri) sér
um gjörninga
og tónlist í leik-
ritinu. Stórvinir
hans, Úlfur Eld-
járn og Sara
Skúladóttir,
heilsuðu upp á
kappann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikurum og aðstandendum var klappað lof í lófa í enda sýningarinnar.
Egill Ólafsson, Sverrir Guðjónsson og Tinna Gunn-
laugsdóttir eru sjaldnast fjarri góðu gamni er lista-
gyðjan slær út vængjum sínum.
Enskuskóli Erlu Ara
auglýsir enskunám í Hafnarfirði
Uppl. og skráning í síma 891 7576 frá kl. 16-20.
Sjá nánar um starfsemi skólans á www.simnet.is/erlaara
Í sumar verður sem fyrr boðið upp á námsferð til Englands
BREIÐSKÍFAN Jinx kemur út í
Bandaríkjunum, Kanada og Íslandi í
dag og er gefin út af Columbia, dótt-
urfyrirtæki Sony Music. Sölvi Blön-
dal, trommari og taktsmiður, segir að
þetta séu mikil tímamót enda hafi
skífan átt sér langa fæðingu. „Við
vorum úti í Bandaríkjunum fyrir
tveimur árum að gera prufuupptökur
og fleira í þeim dúr þegar mestallt
efnið á skífunni varð til. En okkur ór-
aði ekki fyrir því að þetta ætti eftir að
eiga sér svona langan aðdraganda,“
segir Sölvi.
Quarashi er nýkomin úr tónleika-
ferðalagi um vesturströnd Banda-
ríkjanna þar sem spilað var á um tíu
tónleikum. Spilað var á stöðum sem
tóku nálægt 1.000 áheyrendur en
framundan er ferðalag um Bandarík-
in og Kanada þar sem spilað verður á
45 tónleikum á stöðum sem taka um
10.000 áheyrendur.
Sölvi segir að diskurinn sé þegar
farinn að fá ágæta spilun í útvarpi í
Bandaríkjunum og myndbandið við
lagið „Stick’em up“ er nú í spilun á
MTV 2. Sums staðar í Bandaríkjun-
um hefur hljómsveitin náð að komast
inn á vinsældalista.
Að sögn Sölva hefur Columbia
markað þá stefnu að leggja mesta
áherslu á kynningu á Jinx af öllum
þeim skífum sem fyrirtækið er nú að
gefa út. Hann segir að það sé samt að
mestu leyti undir hljómsveitinni
sjálfri að koma sér á framfæri með
tónleikahaldi. Þarna gildi hið forn-
kveðna að setjast upp í rútu og
ferðast þvert og endilangt um Norð-
ur-Ameríku til að kynna sig.
„Þetta er ólíkt því sem gerist í jóla-
vertíðinni hérna þar sem allt er yf-
irstaðið á tveimur til þremur vikum.
Þetta er langtímaverkefni og hvernig
sem allt fer þá munum við alltaf hafa
gaman af þessu,“ segir Sölvi.
Þess má geta að Billboard-tímarit-
ið bandaríska er þegar búinn að fella
dóm sinn yfir plötunni og er hann á
jákvæðu nótunum. Fjölbreytileiki
sveitarinnar er lofaður og því spáð að
sveitin eigi hæglega alla möguleika á
því að skapa sér vinsældir og um leið
sérstöðu á bandarískum markaði.
Ný plata Quarashi kemur út í dag
Löng
fæðing
Jinx
Quarashi eru, undarlegt nokk,
miklir áhugamenn um brids.
DAVID BOWIE, sem sagður
hefur verið mikilvægasti
popptónlistarmaður síðustu
aldar, ef undanskildir eru
Bítlarnir og Stones, ætlar að
gefa út nýja plötu í sumar.
Síðasta plata, Hours, kom út
1999.
Bowie lýsti því yfir í desem-
ber síðastliðnum að hann væri
búinn að fá nóg af bransanum
en virðist nú hafa snúist hug-
ur. Hann hefur sagt skilið við
Virgin-útgáfuna, stofnað eigin
útgáfu, ISO, og gert dreifing-
arsamning við Columbia. Út-
gáfudagur plötunnar væntan-
legu er 11. júní og mun hún
bera titilinn Heathen.
David Bowie.
Sjálfsmynd, máluð
seint á áttunda ára-
tugnum.
Bowie
með nýja
plötu