Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í SÍÐUSTU viku stóðu frammámenn
tónlistarmála á Rás 2 fyrir fögnuði á
veitingastaðnum Vídalín. Tilefnið
var að stöðin hefur nú fullunnið 12
tónleikaupptökur með íslenskum
sveitum sem léku á Airwaves-hátíð-
inni, sem fram fór í október síðast-
liðnum.
Tónleikarnir hafa nú verið sendir
til höfuðstöðva EBU (European
Broadcasting Union) í Sviss og boðn-
ir öllum 70 aðildarstöðvum EBU til
afnota. Auk þess verða þessir tón-
leikar boðnir öðrum 46 útvarps-
stöðvum í 29 löndum til viðbótar.
Um er að ræða upptökur með
Botnleðju, Leaves, Elizu, Útópíu,
Lace, Stjörnukisa, Brisi, Ensími,
200.000 Naglbítum, Dr. Spock, Suði
og Fúgu.
Þetta er í þriðja sinn sem Rás 2
beitir sér fyrir þessu en það fyrsta
sem aðildarstöðvunum var boðið
uppá voru útgáfutónleikar Sigur
Rósar sem haldnir voru í Íslensku
óperunni í júní 1999.
Morgunblaðið/Kristinn
Hér gefur að líta tónlistargúrúa ríkisins; mektarmennina Ólaf Pál
Gunnarsson, Magnús Einarsson og Guðna Má Henningsson.
Margrét, Sigrún og Baldur heimsóttu Vídalín af tilefninu góða.
Rás 2 flytur út
íslenska tónlist
TILGANGURINN með ábreið-
um/tökulögum (e. cover-songs) get-
ur verið margvíslegur. Ekki gefst
þó rúm hér til að velta þeirri heim-
speki fyrir sér og
látum við okkur
því nægja að efna-
greina sjálfan
diskinn.
Á heildina litið
er þetta vel heppn-
uð plata. Rennslið er ljúft og gott
og ef hægt er að tala um einkenn-
andi hljóm er líkt og Jeff Buckley
heitinn hafi verið fenginn til að
stýra lagavali og flytjendum. Lögin
eru flest einkar aðgengileg um leið
og þau eru flutt af mikilli einlægni.
Flestir flytjenda enda miklir „sálar-
söngvarar“ (Rufus Wainwright,
Sheryl Crow, Aimee Mann o.s.frv.).
Hitt ber líka að líta á að það þarf
virkilega hæfileika til að klúðra öðr-
um eins efnivið. Sem betur fer
tekst fáum það hér.
Tvö lög standa reyndar áberandi
upp úr. Paul Westerberg, fyrrum
leiðtogi Replacements, tæklar
„Nowhere Man“ af hreinni snilld.
Hann eignar sér lagið algjörlega og
nær meira að segja að gefa því nýja
og áður ókunna dýpt. Værðarlegt
og viðkvæmnislegt, líkt og lagið sé
að brotna í sundur frá fyrstu nótu.
Frábært!
Á ólíkan hátt, en ekki síður
snilldarlegan, tekst Nick Cave á við
„Let it Be“. Hann nær að gefa lag-
inu þá tilfinningu sem í raun vant-
aði alltaf hjá Paul blessuðum.
Spurning um að setja útgáfu Cave
á framtíðarupplög samnefndrar
breiðskífu. Nei, ég segi svona...bara
grín.
Þá gera Grandaddy „Revolution“
að „Grandaddy“ lagi á súran en
umfram allt skemmtilegan hátt.
Í fyrstu þoldi ég nú ekki Eddie
Vedder og útgáfu hans á „You’ve
Got To Hide Your Love Away“.
Fannst hann skíta á sig með þessu
óþolandi „Ég er líka listamaður!“
viðhorfi sínu. En lagið vex og vex
með endurteknum hlustunum. Æ,
hann vill eitthvað svo vel, grey
skinnið.
Prik í kladdann fá hins vegar
Black Crowes fyrir andlausa útgáfu
af „Lucy In The Sky With Diam-
onds“, Ben Harper fyrir bjánalega
útgáfu af „Strawberry Fields For-
ever“ og Chocolate Genius fyrir að
eyðileggja „Julia“.
Hér eru nýjar túlkanir á Bítla-
lögum sem vel þess virði er að
leggja sig eftir. Jafnt fyrir Bítla-
aðdáendur, fylgismenn einstakra
listamanna og bara unnendur góðr-
ar tónlistar almennt. Engin sakra-
menti (fá a.m.k.) brotin hér.
Tónlist
Breitt yfir
Bítlana
Ýmsir
I am Sam – tónlist úr myndinni
V2
Hinir og þessir reyna sig við Bítlalög með
dágóðum árangri, svona á heildina litið.
Arnar Eggert Thoroddsen
Er uppskipting markaðsráðandi
fyrirtækja lausnin?
Samtök verslunarinnar - FÍS efna til ráðstefnu sem haldin
verður í Þingsal 1, Hótel Loftleiðum,
þriðjudaginn 16. apríl nk. kl. 13:30-17:00.
SETNING
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar.
ÁVARP
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
RÆÐUMENN
Breskar siðareglur um samskipti stórmarkaða og birgja.
John Ward, lögfræðingur hjá bresku samkeppnisstofnuninni.
Skipting fyrirtækja með opinberu valdboði.
Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.
Kaffihlé
„Brotið eða bundið - jafngildir valkostir fyrir neytendur?“
Þórólfur Matthíasson, dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands.
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Pallborðsumræður með þátttöku frummælenda auk
Birgis Rafns Jónssonar, forstjóra Kjarans ehf. og
Þórunnar Guðmundsdóttur, hrl.
Stjórnandi pallborðsumræðna:
Guðrún Ásta Sigurðardóttir, lögmaður Samtaka verslunarinnar.
Þátttökugjald er kr. 4.500 fyrir félagsmenn en kr. 6.000
fyrir aðra þátttakendur.
Vinsamlega skráið þátttöku í síma 588 8910 eða á
netfang: lindabara@fis.is Hlí›asmára 15 • 200 Kópavogur • Sími 535 2100 • Fax 535 2110
Flugsæti
til
Alicante
Flugsæti
til
Billund
Danmörku
33.240kr.
Beint leiguflug me› Fluglei›um. Takmarka› sætaframbo›.
Beint leiguflug me› Fluglei›um. Takmarka› sætaframbo›.
Flugsæti, ver› frá
Flugdagar eru 18. apríl, 22. maí
og sí›an alla mi›vikudaga í sumar.
Verðdæmi m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára,
ferðist saman. Innifalið: Flug og allir flugvallarskattar.
Verð fyrir einn fullorðinn, 37.630 kr. með flugvallarsköttum.
27.050kr.
Flugsæti, ver› frá
Flogi› er alla mánudaga
frá 27. maí - 2. september.
Verðdæmi m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára,
ferðist saman. Innifalið: Flug og allir flugvallarskattar.
Verð fyrir einn fullorðinn, 30.440 kr. með flugvallarsköttum.
Muni› a› hjá Plúsfer›um er unnt a›
grei›a me› Atlasávísunum 5.000 kr.
og Fríkortspunktum a› eigin vild
og lækka flannig fer›akostna›inn.
www.plusferdir.is
14 dagar+
Flokkur Kóði Bíltegund eða sambærilegur bíll 3 dagar á dag 7 dagar á dag 14 dagar á dag
A ecmn Peugeot 206 11.820 3.940 19.050 2.970 36.370 2.620
B ccmn Renault Megane a/c 13.610 4.537 20.370 3.176 39.100 2.820
C* idmr Ford Mondeo 16.090 5.363 25.140 3.919 49.220 3.540
D sdmr Audi A4 a/c 19.800 6.600 29.770 4.640 58.790 4.230
E pdmr Audi A6 a/c 41.150 13.717 62.840 9.797 121.680 8.760
F cwmr Renault Megane a/c Station 15.160 5.053 23.150 3.610 45.120 3.250
K iwmr Nissan Almera A 26.610 8.870 39.030 6.084 75.200 5.410
L pwmr Volvo S60 A 45.790 15.263 74.750 11.653 140.820 10.140
G ivmr Ford Mondeo a/c Station 20.110 6.703 30.430 4.744 60.160 4.330
H pvmr Volvo V70 a/c Station 35.270 11.757 47.630 7.426 84.770 6.100
I5 svmn Renault Megane Scenic a/c 17.020 5.673 25.800 4.021 49.220 3.540
I5 pdar Chrysler Voyager a/c 7px 35.270 11.757 54.900 8.560 105.270 7.580
J9 fvmr Fiat Ducato Minibus 9px 33.720 11.240 51.600 8.044 101.170 7.280
Innifalið er ótakmarkaður kílómetrafjöldi, CDW, þjófavarnatrygging og virðisaukaskattur.
Flugvallarþjónustugjald í Billund er 1.500 kr. og í Kaupmannahöfn 3.000 kr.
Barnastóll og barnapúðar fást leigðir gegn 1.500 kr. gjaldi, bókist við pöntun.
Aukagjald fyrir ökumann 21-24 ára DDK 700 greiðist við afhendingu bifreiðar.
a/c = loftkæling, A=sjálfskiptur, px=farþegi, CDW=kaskótrygging.
Þjónustuaðili er Europcar. Lágmarksleiga er 3 dagar.
C*= Sértilboð, þeir sem bóka bíl f. 1. júni fá bíl í G flokki án aukagj.
Verð miðast við flugverð og gengi 11. janúar 2002.
Ótrúlega ód‡rir bílaleigubílar í Danmörku