Vísir - 23.08.1980, Síða 32
Laugardagur 23. ágúst 1980
síminnerðóóll
Veðriö um
heigina
Horfur eru á, að veöur verði
aðgerðarlitið, léttskýjað um
mest allt land og sæmilega
hlýtt, en hætt viö næturfrosti.
Vindur verður hægur og
breytilegur.
Veðrið hér
og har
Veöriö klukkan 18
Akureyri léttskýjað 11, Hel-
smki úrkoma i grennd 14,
Kaupmannahöfn skýjað 15,
Osló úrkoma i grennd 18,
Reykjavík skýjað 11, Stokk-
hólmur skýjað 15, Þórshöfn
skýjað 10, Berlin skýjað 14,
Frankfurtskýjað 15, Nuukal-
skýjað8, Londonléttskýjað 17,
Luxcmborg skýjað 12, Las
Palmas heiðskýrt25, Mallorca
heiðskýrt 27, Paris skýjaö 16,
Malaga alskýjað 23, Vín létt-
skýjað 18,
Loki
segir
Kikisstjórnin neitar þvi að hún
hyggist fella gengiö. Þaö er
von. A hennar máli heitir það
gengissig i einu stökki.
FLUBLEIBIR SEBJfl UPP
FJðGUR HUNURUB MflNNS
Mikill niðurskurður er
fyrirhugaður á rekstri
Flugleiða frá og með
vetraráætlun, sem hefst
1. nóvember næst-kom-
andi.
Um fjögur hundruð manns,
rúmlega þriðjungi starfsliðs
Flugleiöa, verður sagt upp störf-
um, vikulegum ferðum til Banda-
rikjanna verðurfækkaö i tvær og
flug til Luxemborgar fært niður i
algert lágmark.
Þess má geta, aö á blómatima-
bili Flugleiða voru starfsmenn
um 1700, verða ml 6-700, og feröir
til Bandarikjanna voru 23 á viku
þegar best lét.
Meö þessum niðurskuröi hyggj-
ast forráðamenn Flugleiða rétta
af fjárhaginn. Samkeppnin á
Norður-Atlantshafi hefur farið
vaxandiog allt flug þar rekiö með
halla. Er þar bæði samkeppninni
um aö kenna.svo og mikilli elds-
neytishækkun.
Sigurður Helgason, forstjóri,
sagði á blaðamannafundi i gær,
að þó að viðræðunum við forráða-
menn Luxair um stofnun nýs
flugfélags, væri ekki enn form-
lega slitið, væru Luxair-mennirn-
ir svo neikvæðir, aö ekki væri
ástæða til að búast viö árangri af
frekari viðræðum. Taldi Sigurð-
ur, að Luxemborgararnir heföu
dregið umræðurnar á langinn og
gefiö hugmyndinni um stofnun
nýs flugfélags undir fótinn. Þeir
heföu getað gefið hreinni svör
mun fyrr.
Sjá nánar á blaðsiöu 31.
—ATA
Frá opnun heimilissýningarinnar i Laugardalnum i gær JVleðal viðstaddra voru forseti tsiands, Vigdfs
Finnbogadóttir og Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar. (Vísismynd: EP.)
Heimllissýningln sett í Laugapdalshðli í gæp:
TÍVOLÍIÐ KOSTAR Á ÞRWJÁ
HUNDRAÐ MILLJÚNA KRÚNA
Heimilið '80 var settkl. 16 i gær.
Sigurjón Pétursson, forseti borg-
arstjórnar, Tómas Arnason, viö-
skiptaráðherra og Bjarni Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Kaup-
stefnunnar, fluttu ræöur. Forseti
Islands, Vigdis Finnbogadóttir,
var viðstödd opnunina og skoöaði
sýninguna.
Aö sögn Bjarna þá er þetta sjö-
unda stórsýning Kaupstefnunnar
á 11 ára timabili, og fjóröa heim-
ilissýningin. Rúmlega 100 aðilar
taka þátt i sýningunni, og hefur
aldrei verið vandaö eins mikið til
hennar og núna (1 enda eru menn
orðnir æfðari i aö taka þátt i
svona sýningum”, sagöi'Bjarni.
Sigurjón Pétursson sagði, að
hann teldi sýninguna lifgandi á
alla lund fyrir borgarlifið. „Ann-
að hvort er hún skemmtun fyrir
fólk, eða eitthvaö til aö skammast
yfiraðhenni lokinni, ef hún hefur
veriö léleg. Annars finnst mér
það, sem ég hef séö, skemmti-
legt”.
Bjarni minntist á tilraunina
með tivoliiö, sem veriö væri aö
gera og sagði, að 40% af verði
hvers miða i leiktækin færi i sölu
og skemmtanaskatt. ,,A öðrum
Noröurlöndum er engin slikur
skattur á leiktækjum i tivoli.
Rikisvaldiö hefur þvi i sinni
hendi, hvort þessi tilraun verður
sú fyrsta og siöasta sinnar teg-
undar”.
Kostnaöurvið að fá tívoliið leigt
og viö aö undirbúa svæöið fyrir
þaö-er á þriöju hundraö milljóna
oger aðsjálfsögðu vonast til þess,
að tilraunin veröi vinsæl.
,,Ef viö ættum aö kaupa þessi
tæki”, sagöi Bjarni, ,,þá myndu
þaukosta meö þeim reglum, sem
viö búum við, marga miljaröa”.
Sýningin stendur til 7.
september. SÞ
Tillögup Efnahagsmálanefndar:
SKORIÐ A SJÁLF-
VIRKNI
Itillögum þeim, sem Efnahags-
málanefnd hefur lagt fyrir rikis-
stjórnina er m.a. gert ráð fyrir
þvi, aö rofin veröi sjálfvirkni
verðhækkana. Þessar upplýsing-
ar koma fram i viötali við Jón
Orm Halldórsson, formann
nefndarinnar, en hann er i frétta-
ljósi Helgarblaðsins i dag á bls. 6.
VER0HÆKKANA
Af öðrum atriöum I tillögum
nefndarinnar, sem Jón Ormur
getur um i viðtalinu, má nefna til-
lögur um fast gengi. Þá er einnig
lagt til, að Framkvæmdastofnun-
in veröi lögð niður og rikisbönk-
um veröi fækkaö. 1 tillögunum er
aö finna atriði, sem miöa að
breytingum á útlánastarfsemi
bankanna, breytingar á afuröa-
lánakerfinu og gert er ráð fyrir,
að úttekt veröi gerö á stærstu
fyrirtækjum og stofnunum rikis-
ins og stefnt að verulegum sparn-
aði i rekstri þessara stofn-
ana. _sv.G.
Hestamúfarnir
játa verknaðlnn:
Feröuöust um
Árnessýslu
og buðu hest-
ana tll kaups
Tvær stúlkur undir
tvítugu og maður á þri-
tugsaldri hafa verið úr-
skurðuð i gæsluvarðhald
fram á miðvikudag
vegna þjófnaðar á
hrossum og reiðtygjum.
Er unnið að rannsókn
þessa máls og ekki unnt
að skýra nánar frá gangi
þeirrar rannsóknar en
vitað er að játningar að
einhverju marki liggja
fyrir.
Eftir því sem Visir kemst næst,
mun upphaf málsins að rekja til
hestamannamots á Hellu, sem
haldið var um siðustu helgi.
Maöur, sem staddur var á mót-
inu, þóttist þar kannast við reið-
tygi sin sem hann hafði saknað.
Er farið var að rannskka málið
kom i ljós, að tvær unglings-
stúlkur og karlmaður á þrltugs-
aldri stunduðu sölumennsku á
svæöinu á hestum og reiðtygjum,
sem þau höfðu stolið.
Stúlkurnar munu hafa komið
viða við i Arnessýslu um helgina
og boðið hestana til kaups eða I
skiptumfyrir aðra. Er m.a. vitað,
að þær komu á laugardags-
morguninn á bæinn Þjótanda og
voru þær þá með sex hesta sem
þær buðu heimilisfólki til kaups.
Leið þeirra mun siðan hafa legið
á hestamannamótið eins og fyrr
greinir, þar sem upp komst um
athæfi þeirra. — Sv.G.
Haglræöingur
ráöl.hi tii
forsætls-
ráðuneytlsins
Akveöið hefur verið að ráða
sérstakan hagfræðiráðunaut til
forsætisráðuneytisins og var
gengið frá ráðningu i gær. Sá.sem
tekur viö þessu nýja starfi er
Þórður Friðjónsson, hagfræð-
ingur, en hann hefur starfað sem
hagfræðingur Vinnuveitenda-
sambandsins að undanförnu.
Þórður mun væntanlega hefja
störf I forsætisráðuneytinu I októ-
ber. — Sv.G.