Vísir - 25.08.1980, Blaðsíða 5
VlSIR
Mánudagur 25. ágúst 1980
Umsjón:
Axél
! Ammendrup
FJðRIR RRRHERRAR
REKNIR í PÚLLANDI
- Glerek helllr irjáisum og leynllegum kosningum I verkalýðsfélögunum
Edward Gierek, formaður pólska kommúnistaflokksins, rak i gær fjóra
ráðherra, þar á meðal forsætisráðherrann Edward Babiuch, vegna þess að
ekki hefur tekist að binda endi á verkföll verkamanna, sem nú hafa staðið
yfir i tólf daga.
Gierek stendur I ströngu þessa
dagana.
Auk þessa hefur Gierek heitiö
verkamönnunum frjálsum, lýö-
ræöislegum og leynilegum kosn-
ingum í verkalýösfélögunum.
Fyrstu viöbrögö forystumanna
verkfallsmanna viö boöi Giereks
voru hófsöm. Sögöu verkfalls-
menn, aö þeir vildu biöa og sjá
hverjar efndirnar yröu og Lech
Walsea, foringi verkfallsmann-
anna, sagöist ekki hafa áhuga á
breytingum á ráöherraliöinu,
heldur þvi aö komiö væri til móts
viö kröfur verkamanna, en þær
eru I 21 liö. Samkvæmt áreiöan-
legum heimildum munu verk-
fallsmenn sætta sig viö þær
breytingar, sem Gierek hefur lof-
aö, og aflétta verkfallinu, sem
hefur lamaö allan iönaö I Póllandi
I nær hálfan mánuö.
1 nótt var nýr forsætisráöherra
skipaöur í staö Babiuch, og heitir
hann Jozef Pinkowski. Þá var
Jozef Czyrek skipaöur utanrikis-
ráöherra og Marian Krzak fjár-
málaráöherra.
Faðir 09 fímm
dætur hans
brunnu inni
Maöur og fimm dætur hans fór-
ust f eldsvoöa í Illinois i gær. Eld-
ur kom upp I tveggja hæöa húsi
þeirra og komst enginn út nema
sjötta dóttirin, sem komin er sjö
mánuöi á leiö. Stökk hún út um
glugga á annarri hæö (6 metrar)
ognáöinágranni aö gripa hana og
taka af henni mesta falliö.
THAILAND:
Fimmtán
fðrust í
sorengingu
Fimmtán menn, flestir landa-
mæraveröir, fórust þegar öku-
tæki þeirra ók á jarösprengju 1 S-
Thailandi I gær.
Lögregluyfirvöld segja, aö
þetta hafi gerst I Khao Phanom i
Krabi héraöi, sem er um þúsund
kilómetrum fyrir sunnan Bang-
kok.
öruggt er taliö, aö vinstri
sinnaöir skæruliöar hafi komiö
sprengjunni fyrir, en á laugar-
daginn skýröi blaö i Bangkok frá
þvi, aö fjórir skæruliöar
kommúnista hafilátist I bardaga
viö thailenska landamæraveröi á
svipuöum slóöum og fyrrnefnd
jarösprengja sprakk.
Hver hangir þarna í trjágreinunum?
Nei/ þetta er ekki Tarzaná efri árum, heldur Ronald Reagan/ forsetaframbjóð-
andi Repúblikanaflokksins í Bandarikjunum. Hann tók sig til í miðri kosningabar-
áttunni og fór að snyrta trén í garðinum sínum.
SVÍÞJðÐ:
Níu fðrust
f járn-
brautar-
slysf
NIu manns fórust og fimmtiu
slösuöust er hraölest fór út af
sporinu rétt fyrir noröan Stokk-
hólm I gær.
Slysiö varö meö þeim hætti, aö
átta kolaflutningavögnum, sem
voru aftastir i lestinni, hvolfdi
einhverra hluta vegna og drógu
lestina út af sporinu.
Lengi vel var óttast, aö mun
fleiri heföu týnt lifinu og slasast
og telja björgunarmenn.sem leit-
uöu I lestinni i allan gærdag, aö
þrátt fyrir allt væri þetta vel
sloppiö.
Poptisch
með unna
stöðu
Ungverski stórmeistarinn,
Lajos Portisch, hefur mun sterk-
ari stööu I Jprettándu einvlgisskák
hans og Hubners, en skákin fór I
biö I gær. Telja sérfræöingar, aö
staöa Portisch sé þaö góö, aö
hann ætti aö geta knúiö fram
vinning er skákin veröur tefld
áfram i dag.
Hubner, sem nægöi jafntefli I
þeim skákum, sem eftir var,
stjórnaöi hvitu mönnunum I gær.
Hann tefldi „Enska leikinn” og
tefldi af varfærni. Allt stefndi I
eitt jafntefliö I viöbót, þegar
Höbner fórnaöi peöi 120. leik til aö
hafa rýmra um hrókinn sinn.
Leikur þessi reyndist Hilbner
ekki vel og náöi Portisch betri
stööu.
Hua Guofeng — segir hann af sér
forsætisráöherraembættinu.
FRAKKLAND:
Fiskimennirnir
opna og lokai
Búist er viö þvl aö franskir
fiskimenn loki höfnum landsins
aftur I dag og haldi þeim lokuöum
aöminnsta kosti fram á miöviku-
dag, en þá mun franska stjórnin
taka mál þeirra fyrir.
Fiskimennirnir, sem meö aö-
geröum sinum hafa hindraö svo
til alla umferö á sjó I þrettán
daga, fjarlægöu skip sin og báta
úr hafnarmynnum I gær, en
sögöust myndu loka þeim aftur I
dag. Aö leyfa aftur umferö um
hafnirnar var svar fiskimann-
anna viö loforöi rfkisstjórnarinn-
ar um að ræöa máliö á rlkis-
stjórnarfundi á miövikudaginn.
Sem kunnugt er lokuöu fiski-
mennirnir frönskum höfnum til
aö mótmæla skeröingu sem fyrir-
huguö var á kjörum þeirra, svo
sem fækkun I áhöfnum og aukinni
skattheimtu á oliu.
„Mikilvægar ákvarð-
anir verða teknar”
- segir Hua um Dlngið, sem kemur saman á laugardaglnn
Kinverska þingið kemur saman
á laugardaginn i fyrsta skipti I
fjórtán mánuði. Hua Guofeng,
forsætisráöherra og formaður
kinverska kommúnistaflokksins,
hefur lýst þvl yfir aö þinghald
þetta komi til meö aö hafa mikla
þýðingu fyrir klnversku þjóöina.
„Þetta þing mun, óllkt svo
mörgum öörum veröa mjög
merkilegt og á þvi veröa teknar
mikilvægar ákvaröanir I innan-
rlkismálum sem og I utanrikis-
málum”, var haft eftir Hua I
fréttastofunni „Nýja Kina” i gær.
Búist er viö aö Hua segi af sér
forsætisráöherraembættinu á
þinginu en haldi áfram aö vera
formaöur kommúnistaflokksins.