Vísir - 04.09.1980, Page 1
[Gengieriéndra gj'áídmíðía']
I hækkar um 51% á árinul i
■ -reiknað með 2% gengissigi á mánuði út árið og 7-8% gengisfalli að aukií
Með áframhaldandi 2% gengissigi á mánuði
fram til áramóta mun gengi erlendra gjaldmiðla
hækka á árinu um 40%. Efnahagssérfræðingar
telja hins vegar, að til viðbótar þurfi á næstunni
7-8% gengisfellingu. Fari svo, mun gengi er-
lendra gjaldmiðla hækka á árinu um 51%!
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Visis munu sérfræð-
ingar Seðlabankans hafa lagt til
fyrir skömmu, að ekki verði
gerð bein 7-8% gengisfelling,
þar sem slikt gæti verið áhættu-
samt vegna ástandsins i kjara-
málum, en þess i stað verði
gengið látið siga hratt, og þá um
3-4% i fyrsta áfanga. Lögð er á-
hersla á, að þessi breyting þurfi
að gerast nánast i einu skrefi,
svo að áhrif hennar verði sem
mest.
Samkvæmt heimildum Visis
eru horfurnar i viðskiptum við
útlönd mjög slæmar. Þannig er
áætlað, að viðskiptahalli verði á
þessu ári um 40 milljarðar
kröna, en það mun samsvara
3,3% af þjóðarframleiðslunni.
Þetta er 2-3 sinnum meiri halli
en reiknað var með i lánsfjár-
áætlun, þar sem miðað var við
16 milljarða halla eða 1,3% af
þjóðarframleiðslu. Sá bati á
gjaldeyrisstöðunni, sem þar var
reiknað með, mun hverfa þvi
sem næst alveg, samkvæmt
heimildum Visis. —ESJ.
J
A góðviðrisdögum má oft sjá hraðbáta á fullri ferö þvers og kruss um „Pollinn” á Akur eyri — meö sjóskfðakappa I eftirdragi. Er þetta vinsælt sport nyrðra og mikiö stundað.
þegar vel viðrar, enda býður „Poliurinn” upp á slikt og aöstæður sennilega óvlða betri. Vísismynd: GS/ Akureyri.
Tillaga um „shlpulag austursvæða”:
EyOileggja níu
Dúsund trjá-
plöntur (Arbæ?
„Skipulag austursvæða” var lagt fyrir Umhverfismálaráð Reykja-
víkur og Framkvæmdaráð I gær. Skipulag þetta hefur valdiö nokkrum
deilum, meðal annars vegna þess, að I skipulaginu er gert ráð fyrir að
rifa þurfi upp nfu þúsund trjáplöntur.
Vangaveltur um siofnun nýs flugféiags
„Það ættl eflaust
erfill uppdrállar”
- segir Martin Petersen
I skipulaginu felst, að næstu tvö
byggingarsvæði Reykjavikur-
borgar verða við Árbæjarsafnið
og i Selási. Fyrirhugað er, að
byggð risi norðan og norðvestan
við safniði áttina að gömlu jarð-
húsunum i Artúnshöfðanum, og
að Vesturlandsveginum.
I ráði er að breyta gatnaskipu-
laginu, þannig að Suðurlandsveg-
urinn tengist Vesturlandsvegin-
um ekki fyrr en við Breiðhöfðann.
Þessi spilda, sem myndast milli
Vesturlands- og Suðurlandsveg-
arins verður nýtt undir atvinnu-
starfsemi en ibúðarhúsalóðir
verða sunnan og vestan við
Suðurlandsveginn.
Þetta svæði var hins vegar
skipulagt sem uppræktað útivist-
arsvæði og búið er að gróðursetja
um niu þúsund trjáplöntur, þann-
ig að ef nýja skipulagið verður
samþykkt, verður að rifa þessar
plöntur upp.
—ATA
Þorkell Ragnarsson.
Týndur
I10 daga
Lögreglan i Reykjavik lýsir
eftir ungum manni sem fór frá
heimili slnu eftir hádegi mánu-
daginn 25. ágúst slöast liöinn, en
ekkert hefur spurst til siðan.
Maðurinn heitir Þorkell Ragn-
arsson, til heimilis að Furugerði
21, Reykjavik. Hann er 23 ára
gamall, meðalmaður á hæð, m jög
grannur, dökkhærður með dökka
skeggrót og brún augu.
Þeir, sem geta gefið upplýsing-
ar um ferðir Þorkels eftir 25.
ágúst sl. eru vinsamlegast beðnir
að láta lögregluna vita. —Sv.G.
„Mér finnst það vera að bera i
bakkafullan lækinn aö tala um
stofnun nýs f lugfélags og það ætti
eflaust erfitt i.ppdráttar, ef slíkt
kæmitil”, sagði Martin Petersen,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
markaðssviðs Flugleiða, i sam-
tali við VIsis I morgun.
Lausafréttir herma, að hug-
myndin um stofnun nýs flugféiags
til að taka við Norður-Atlants-
hafsflugi Flugleiða, ef félagið
fellir þaðniður, sé stöðugt til um-
ræðu meðal viss hóps flugliða og
fleiri. Hins vegar mun aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra nú að
mestu hættur afskiptum af þvi
máli.
Sumir af fyrrverandi starfs-
mönnum Flugleiða hafa verið
orðaðir við þessa hugsanlegu
flugfélagsstofnun, þar á meðal
Martin Petersen. Hann sagði i
morgun, að ekki hefði verið leit-
að sérstaklega til sin vegna þessa
máls, en hann hefði heyrt um
þessar hugleiðingar.
Afkoma þeirra félaga, sem nú
annast flug yfir Norður-Atlants-
hafið er slæm og öll flugfélögin
tapa á þessari flugleið. Sem dæmi
um, hve fargjöld eru langt undir
kostnaðarverði, má nefna, aö
eldsneytiskostnaðurinn einn á
hvetn farþega milli NewYork og
Luxemborgar hjá Flugleiðum er
nú um 109 dollarar.
1 opnu Visis i dag er nánar
fjallað um samkeppnina i fluginu
á þessari leið og birtar tölur um
hrikalegt rekstrartap félaganna,
sem halda uppi áætlunarflugi
milli Evrópu og Bandarikjanna.
Þar er um að ræða gifurlega háar
tölur, en rétt er að hafa i huga, að
þessi flugfélög eru mörgum sinn-
um stærri en Flugleiöir.
—SG.