Vísir - 06.09.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 06.09.1980, Blaðsíða 9
Hugarfarsmengu n og hálf vodkadúsín Þeir sem starfa hjá f jölmiðlum, ekki síst að öflun og vinnslu frétta, geta nánast hvenær sem er átt von á upphringingum frá ólíklegasta fólki. Oft er að sjálfsögðu um ýmis konar athugasemdir að ræða, en stundum felast beinar fréttir eða frétta- ábendingar í þessum símtölum. Stundum er þar þó aðeins um að ræða hálfkveðnar vísur, sem í stöku tilvikum minna á véfréttina í Delfí. Maður, sem kvaðst vera farmaður, en ekki vildi segja tilsín, hringdi til dæmis að kvöldlagi fyrir þremur vikum í einn starfsmanna ritstjórnar Vísis. Hann kvaðst vera á einu íslensku f lutningaskipanna, og hafa verið í siglingum um langt árabil. Oft hefðu menn verið að fást við smygl á þessum skipum og öðrum, einungis þá í smáum stíl. Nú væri hins vegar svo komið, að smyglið væri orðið gífurlegt og í háa herrans tið hefðu tolly f irvöld ekki komist á snoðir um neittaf þessu. Hann sagði að hvert skipið eftir annað færi á ströndina, sem kallað væri, og skipverjar seldu smyglið miskunnarlaust, aðallega áfengi, tóbak og talstöðvar, án þess að nokkur virtist reyna að koma í veg fyrir slík lögbrot. Tollgæslan reyndist gjörsamlega máttlaus, enda væri búið að skera niður alla yfirvinnu hjá henni og leggja niður fjölda af tollvarðastöðum úti á landi. „Getið þið nú þarna á Vísi ekki grennslast fyrir um þetta og stuðlað að því að eitthvað verði gert í þessum málum?" spurði maðurinn í símanum og Visismaður- inn lofaði að ræða málið við starfsfélaga sína. Hvar er toilgæslan? Þegar farið var að fjalla um þaö, kom I ljós, aö ýmsir höföu haft spurnir af þvi aö mikiö af smygluöu áfengi væri á markaönum i höfuöborginni, og heföi framboöiö veriö svo mikiö um tima i sumar aö veröfall heföi oröiö á markaön- um og vodkaflaskan jafnvel far- iö niöur I sex þúsund krónur. Eftir nokkrar simhringingar út á land kom i ljós aö óvenju mikiö framboö haföi veriö á smygluöu áfengi og tóbaki upp á slökastiö. Varöandi talstöövarnar sem farmaöurinn nefndi höföum viö spurnir af þvi aö svonefndum farstöövum heföi fjölgaö geysilega siöustu misserin, og mikill hluti þeirra heföi komiö til landsins fyrir milligöngu útsjónarsamra smyglara. Abendingar mannsins sem hringdi virtust þvi vera réttar, auk þess sem dýr heimilistæki voru sögö koma I miklu magni meö sumum þeim fiskiskipum, sem selt heföu afla sinn erlendis undanfariö. Ýmsar spurningar fóru aö veröa áleitnar eins og: Hvar er tollgæslan? Leitar hún ekki I skipunum, eöa finnur hún bara ekki neitt? Og hvaö hefur oröiö um þá, sem eiga aö gæta laga og réttar á þeim stööum þar sem þessi umfangsmiklu svarta- markaösviöskipti fara fram fyrirallra augum? Lita laganna veröir kanski ekki á þetta sem lögbrot? Hvernig stendur á þvi aö ekki hefur heyrst um aö kom- iö hafi veriö i veg fyrir smygl i langan tima? Aöur en okkur haföi tekist aö afla svara viö þessum spurning- um svöruöu atvikin nokkrum þeirra óvænt um siöustu helgi. „Færandi varninginn heim" útvarpiö flutti landsmönnum þau tiöindi á sunnudagskvöld aö verulegt magn af smyglvarn- ingi heföi fundist um borö i flutningaskipinu Hofsjökli á Suöureyri viö Súgandafjörö. Þaö var mikiö aö tollararnir fundu eitthvaö! hafa eflaust ýmsir hu£saö. En forsaga málsins var for- vitnileg. Hofsjökull haföi komiö til Reykjavikur frá Banda- rikjunum viku fyrr eöa 24. ágúst. Tollgæslan I Reykjavik fór aö sjálfsögöu um borö I skipiö: starfsmenn hennar hafa eflaust stimplaö samviskusam- lega öll plögg og svipast um I skipinu. En þeir duttu ekki um eina einustu flösku, fundu ekk- ert athugavert. Þetta mun þó hafa veriö itarlegri tollskoöun en almennt gerist þegar skip koma aö utan. Eftir viödvölina I Reykjavik fór svo Hofsjökull vestur um land til þess aö lesta frystan fisk á Bandarikjamarkaö. Aö minnsta kosti héldu menn, aö þaö væri meginverkefni áhafnarinnar, en I ljós hefur nú komiö, aö hún ætlaöi lika aö stunda umfangsmikinn „einka- bisness” og ná sér I drjúgan aukaskilding. Strax og komiö var út úr Reykjavikurhöfn hóf- ust menn handa um borö viö aö taka til söluvarninginn, sem þeir höföu áöur kómiö hagan- lega fyrir I oliugeymi i skipinu. Nú var góssiö flutt i klefa á ritstjórnar pistlll ólafur Ragnarsson rit- stjóri skrifar. aöalþilfari, þar sem þægilegra var aö komast aö þvl, þegar sölumennskan byrjaöi. A fyrstu tveim viökomu- stööunum, gekk salan greiö- lega. Þaö var greinilega tals- vert umliöiö frá þvi aö slikir au- fúsugestir höföu komiö þangaö „færandi varninginn heim” á svona llka hagstæöu veröi, nærri þriöjungi lægra en I Rlk- inu. Sexflöskupakkar á kjara- pöllum. En þótt menn séu áhugasamir um aö kaupa áfengi og slgarett- ur á góöu veröi er eins gott aö fara aö öllu meö gát. Þaö er aldrei aö vita nema einhver á staönum sé svo sérstæö per- sóna, aö honum finnist þaö varöa viö lög aö selja smygl- varning, og hann gæti þá jafnvel hnippt I hreppsstjórann eöa ein- hvern I löggunni. — Ef þeir lok- uöu augunum áfram gæti hann jafnvel hringt suöur I Tollinn og sagt þeim þar frá öllu saman. Þeir væru þá eins vlsir til aö bregöa sér vestur og fara aö leita i alvöru. 1 Bolungarvik aö minnsta kosti voru skipverjarnir slöur en svo aö pukrast meö varning- inn. Þar var ekki selt þannig aö menn gætu keypt eina og eina flösku I vasann eöa til aö lauma innan á sig. Nei, þaö var magn- sala og magnafsláttur; lá viö aö þetta væri allt „á kjarapöllum” eins og einhver stórmarkaöur- inn auglýsir hér syöra. Þaö var ekki um aö ræöa aö fá vodka I minna en hálfum dúsln- um, sex flösku pakkningum. Og veröiö? Þaö var veittur rlflegur afsláttur frá því sem rikiseinka- salan krefst fyrir flöskuna. Minnti helst á tómataafsláttinn á Torginu um daginn. Tiu þús- und krónur flaskan. Var hægt aö hafa þaö betra. Þeir uröu nú aö fá eitthvaö fyrir sinn snúö, piltarnir. Þeir höföu keypt flöskuna á þúsundkall, og ekki nema sanngjarnt aö þeir fengju aö leggja á svona 900%. Rikiö leggur miklu meira á sams kon- ar vöru. Þaö selur vist amerlskt vodka eins og þetta á f jórtán eöa fimmtán þúsund. Ýmsir, sem vildu vera hóf- samir, ákváöu aö slá sér á sex- flöskuskammtinn saman, tveir og tveir. Þeir þóttust hafa himin höndum tekiö, sex vodkaflöskur fyrir sama verö og fjórar I Rlk- inu. Aldeilis flnt. Og slgarettukartonin runnu út eins og heitar lummur. Stööugur straumur manna var aö boröi meö seölana og siöan frá boröi meö smyglpakk- ana vinsælu. Komu þessara vösku sölumanna var tekiö fagnandi. Sllk skipakoma er tal- inn hreinn hvalreki á ströndinni. Einhver hafði kjaftað frá Útskipunin á fiskinum tók enda, landfestar voru leystar. Þegar siglt var inn á Súganda- fjöröinn voru á lagernum um borö um 800 flöskur og nálægt 870 sigarettukarton og svo blessaðar talstöövarnar. Eftir að komið var I höfn á Suðureyri var tekiö til viö söl- una aftur, en sem menn voru aö bera nokkra vodkakassa út I fólksbil viö skipshliöina birtust allt i einu tollarar að sunnan. Hvaö var eiginlega á seyöi? Jú, þaö hafði einhver Vestfiröingur- inn kjaftaö frá. Einhver, sem áttaöi sig ekki á þvl, hvaö var verið aö gera mönnum mikinn greiða. Selja þeim vodka á tom- bóluveröi og koma meira aö segja meö þaö heim I þeirra eig- in byggöarlag. Kannski þaö hafi verið löggan i Bolungarvik. Hún litur hugsanlega á sölu á smygl- varningi sem lögbrot og neitar aö keyra kassana heim fyrir menn eins og löggan I Vest- mannaeyjum, sem var svo „gasalega alminleg” viö strák- ana sem komu meö allan bjór- inn aö utan i fyrra eöa hitteö- fyrra. Þaö stóö nú til aö gera eitthvert vesen I sambandi viö þetta mál I Eyjum, en þaö þótti hafa lítiö upp á sig vegna þess aö búiö var aö drekka allan bjórinn! En hvaö um þaö. Tollararnir aö sunnan voru komnir um borö I Hofsjökul á Suöureyri og þurftu ekki mikiö aö leita til þess aö finna góssiö. Hugsanlega veröur viökvæöiö hjá piltunum hiö sama og hjá starfsbræörum þeirra, sem misstu stóran hluta „inn- flutnings” sins I hendurnar á Tollinum fyrir nokkrum árum: „Viö veröum bara aö smygla meiru næst til aö borga sek- tina”. Er ekki eitthvaö oröiö bogiö viö hugarfar landsmanna þegar ævintýri eins og þaö sem hér hefur veriö spjallaö um getur gerst? Er eölilegt aö menn llti á þaö sem staöarkosti (nánast eins og jaröhita) aö skip komi þangaö frá útlöndum með smyglvarning? Er ekki heldur öfugsnúiö aö almenningur sjái • fyrir sér menn meö geislabaug, sem færi þeim mikla búbót, — þegar talað er um smyglara? Hvaö skyldi valda þessari mengun hugarfarsins? Gæti verið aö skefjalaus skattheimta rikisins af áfengi eins og raunar flestu öðru ætti þarna hlut aö máli? Þaö skyldi þó aldrei vera aö I sambandi viö innflutning áfengis til landsins þætti mörg- um landsmanna óhemjumikil álagning ríkissjóös á þessa vöru vera saknæmari og svlviröilegri en sá verknaöur aö koma henni inn i landiö framhjá öllu kerf- inu, — með öörum oröum aö smygla henni? Hvaö heldur þú lesandi góöur? ólafur Ragnarsson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.