Vísir - 06.09.1980, Page 20
Heiörún og Guöný. (Mynd: ^nna)
Móður-
málið
Heiðrún Jónasdóttir,
13 ára, Hriseyjargötu
13— Akureyri, velur
ljóðið i dag. Það er
MÓÐURMÁLIÐ eftir
Hallgrim Pétursson.
Gefðu, að móðurmálið mitt,
minn Jesú, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér
til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda,
meðan þin náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
vism baugardagur
6. september 1980.
hœ krctkkar!
Umsjdn: Anna
Brynjúlfsdóttir
*
A yndislegum
sumardegi
á Akureyri
Ég hitti systurnar Heið-
rúnu Jónasdóttur, 13 ára
og Guðnýju Jónasdóttur,
9 ára í f jörunni á Oddeyr-
inni á Akureyri. Það var
yndislegur sumardagur,
hlýtt sólskin og logn. Þær
systurnar voru að leika
sér í f jörunni. „Við teikn-
um oft í sandinn," sagði
Heiðrún, ,,þegar mikil
f jara er. Það er gaman að
teikna myndir í sandinn.
Við vöðum líka stundum
út í sjóinn og erum á vind-
sængum. En þá verðum
við líka að vera í björg-
unarvesti. Lögreglan
hefur fyrirskipað það."
Þær Heiðrún og Guðný
eru í Oddeyrarskólanum
og þær sögðu báðar, að
gaman væri í skólanum
og þær hlakka til að hef ja
námið.
Hver verður
númer 1,2 og 3
Hér á myndinni sjáið þið nokkra hlaupara, sem eru
að leggja af stað í víðavangshlaup. Getið þið fundið,
hverjir verða nr. 1, 2 og 3. Það eru nefnilega þeir þrír
hlauparar, sem hafa númer, sem samanlögð verða
100. Sá, sem verður fyrstur í mark hefur númer, sem
gefur þversummuna 8, sá, sem verður annar, hefur
númer, sem gef ur þversummuna 9, og sá, sem verður
þriðji hefur númer, sem gefur þversummuna 11.
Nonni kaupir skólaföt
„ Ég get ekki farið í f ót-
bolta í dag", sagði Nonni
við Magga. Eftir mat
þarf ég að fara f bæinn og
kaupa ný skólaföt".
„ En við áttum að keppa
í dag og þú áttir að vera í
marki", sagði Maggi.
„Já, ég veit, en
mamma getur ekki farið
með mér í bæinn á öðrum
tíma", sagði Nonni og var
greinilega hálfleiður.
Á leiðinni í bæinn var
hann alltaf að hugsa um
kappleikinn, og hann
hugsaði með sér, að ef
þau mamma yrðu fljót,
gæti hann kannske náð í
seinni hálfleikinn. En
mamma hans var ekkert
að flýta sér. Hún var
lengi að velja skólabux-
urnar, skyrtu og peysu,
skó og sokka. Og þegar
það allt var búið, sá hún
fallegar úlpur og fór að
líta á þær.
„Getum við ekki komið
hingað aftur á morgun
eða hinn daginn"? spurði
Nonni.
„Nei", sagði mamma.
„Það er útsala á þessum
úlpum í dag. Mátaðu
þessa".
Og mamma rétti hpn-
um hlýlega bláa úlpu.
Hún var mátulega stór og
Nonni sagði að sér líkaði
hún vel. Og nú voru fata-
innkaupin fyrir skólann
búin.
En klukkan var orðin
hálffimm.
„Nú er leikurinn bú-
inn", hugsaði Nonni, þar
sem hann lallaði áfram
með fatabögglana.
En þegar Nonni og
mamma hans voru að
fara út úr versluninni, sá
Nonni að þarna var
Maggi líka með mömmu
sinni. Þau voru líka hlað-
in pinklum og voru að
fara út úr búðinni.
„Maggi", kallaði
Nonni. „Misstir þú líka af
kappleiknum"?
„Nei, það voru svo
margir af strákunum,
sem þurftu að fara að
versla í dag, svo að við á-
kváðum að hafa leikinn á
morgun".
„Á morgun?" hváði
Nonni. „Æ, þá var gott að
ég fór að versla í dag".
Og hann brosti ánægður
og enn ánægðari var
hann, þegar mamma
bauð honum ís með
súkkulaðidýfu.