Vísir - 06.09.1980, Side 21

Vísir - 06.09.1980, Side 21
 vlsm Laugardagur 6. september 1980. sandkassinn Gisli Sigur- geirsson, blaðamaður Visis á Akur- eyri, skrifar. ®Ég var í þrælgóðri veislu um helgina. Þegar liða tók á kvöldið vék einn veislugestanna sér að mér og sagði með um- hyggjutón í röddinni: //Þú verður að hætta að drekka í kvöld/ Gísli minn, andlitið á þér er þegar orðið svo ógreini- legt". • /Blómaball í aldarf jórðung", segir Vísir á laugardag- inn. Það er aldeilis að þeir halda það út þarna fyrir sunnan. Ætli þetta sé alltaf sama fólkið? • „Síðan hef ég forðast pólitík og þorskalýsi", segir Róbert Arnfinns- son í Helgarpóstsviðtali. Þetta er ekki í fyrsta skiptið, sem pólitík og þorskar eru nefndir í sömu andránni. • Þið hafið heyrt af manningum, sem asnaðist inn á homma- klúbbinn úti á Spáni. Hann kom öfugur út. • „Biður ASI eftir niður- stöðum atkvæðagreiðslu BSRB", segir Mogginn. Hefði nú ekki verið smekklegra að orða þetta ietthvað á þessa leið: „Bíður ASI eftir vitneskju um hvað félagar BSRB láta bjóða sér", • „Kínverji meðal keppanda", segir Dagblaðið og á við unglingamótið í skák. Daginn eftir sagði í sama blaði: „Kfnverj- inn án vinnings". Hann hlýtur að fara að springa. • „Faxaflói fullur af marglyttum", segir Þjóðviljinn. Hver var að tala um dauðan sjó? •„Stjórnin fellst á mynd- un frjálsra verkalýðs- félaga", segir Mogginn. Ég hélt í einfeldni minni, að Gvendur jaki og Gunni Thor væru að gefa sig, en þá kom í Ijós að þetta var í Póllandi. Islensku verkalýðsfélögin verða áfram vopn sinna pólitísku forystumanna. • „Allar pútur á Suðurnesjum eru á samningi", segir Dagblaðið og það er Dagblaðið sem er með púturnar á samn- ingi. Ég í orðabókina. Þar stendur að púta merki lauslætisdrós eða vændiskona. Flest reyna þeir nú til að selja Dag- blaðið. • Ég þurfti austur fyrir heiði um daginn. Tók ég einn „puttaling" upp í og leyfði honum að f Ijóta með. Uppi á miðri heiði fór hann að tína ýmislegt matarkyns upp úr pússi sínu, brauð og osta, hvað þá annað. Ég benti blessuðum mann- inum vinsamlega á, að bíllinn væri nú engin veitingastof a. „Það vissi ég", svaraði kauði, „þess vegna tók ég nesti með mér". • „Félagið getur ekki farið mikið neðar", segir Tíminn og á við Flugleiðir. Það er alveg rétt, því þá er hætt við brotlendingu. ®„Verkamennirnir rjúka i verklegu framkvæmd- irnar", segir Tíminn. Er nú svo komið í atvinnumálum okkar, að það sé f rétt er verkamenn ganga til verka? 21 • „Atlantshafið er kol- svart", segir Agnar Koefod- Hansen í Timanum. Jedúmía, sungum við ekki í gamla daga, og gerum raunar stundum enn, „Hafið, bláa hafið, hugann dregur"? • „Þi ð déskotans kapítalistar, hugsiðekki um neitt nema pen- inga", sagði Rússinn, sem var í heimsókn í Bandaríkjunum. „Það er munur hjá okkur kommunum, við hugs- um um hag fólksins fyrst og fremst. Þið kapítalistarnir lokið peningana ykkar inni, en við fólkið". • Flugleiðamenn dreifa í flugvélum sínum í innanlandsf lugi blaði sem nefnist „Við sem f Ijúgum". Nú mun standa til að breyta nafni blaðsins í „Við sem flugum". Ég fór í strætó á dög- unum, sem í sjálfu sér er stórfrétt. Rétt á eftir kom einn góðglaður í vagninn, og hafði flösku með sér. Þegar hann hafði sest staupaði hann sig duglega á flöskunni. Nei, þetta vil ég ekki", sagði bílstjórinn hálf önugur. „Hver var líka að bjóða þér, þú veist að það má ekki drekka undir stýri, allra síst á strætisvagni", drafaði þá í þeim slompaða. „300 manns bjóða fram reynslu sina", segir í Þjóðviljanum. Er áttvið flugleiða flugliða hjá Flugleiðum, sem vilja stofna nýtt flug- félag. Með leyfi að spyrja, hvar hafa þeir fengið þessa reynslu? Væri þeim ekki skömminni nær, að taka saman höndum og rífa Flugleiðir upp, áður en félagið brotlendir? • „Getum ekki boðið félagsmálapakkann", segir Þjóðviljinn. Það hef ur nú hingað til verið í lagi að sýna þann pakka, jafnvel gefa ávísun fyrir honum, sem ef til vill þarf aldrei að útvega innistæðu fyrir. • „Meiri saia i verðmæti en nokkru sinni fyrr", segir Tíminn. Flest er nú farið að selja, hvað skyldu þeir fá fyrir verðmæti? • „Hefur þagað í þrjú og hálft ár", segir Mogginn. Við hvern var átt? Tveir menn hafa þegar verið útilokaðir. Steingrímur „blaðrari" Hermanns- son og Ólafur Ragnar Grímsson, sem blaðraði um blaðrið í Steingrími. • Veriðiævinlegablessuð- ogsæl. <0 & Þetta hefur verið skemmtileg sýning, og hér hefur margt skemmtilegt skeð. Rúmlega 100 sýnendur hafa kappkostað að kynna vörur sínar og þjónustu á sem fjölbreyttastan hátt. Tugþúsundir íslendinga hafa skemmt sér konunglega á tívolísvæðinu og margir upplifað gamla tíma. Þessvegna er það sorglegt að þurfa að senda tívolítækin aftur úr landi. Helst hefðum við viljað planta þeim í Vatnsmýrinni. Hvað með það, ennþá hefur þú tækifæri. Sýningunni lýkurekki fyrren klukkan 23 annað kvöld. (Við opnum klukkan 1 í dag). Við þökkum gestum okkar fyrir komuna og segjum að lokum: Lifi Tívolí á íslandi. Heimilið

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.