Vísir - 09.10.1980, Qupperneq 1
- segir Oskar Vigfússon um nýja fiskverðið
„Min umsögn getur ekki oröið
önnur en sú að mér finnst þetta
kaldhæönislegt, að sjómanna-
stéttinni sé ætlað að taka á sig
kjaraskerðingu, þegar aörar
eru aö fá kjarabætur,” sagöi
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasamtakanna um nýja
fiskverðið.
Nýtt fiskverð hefur veriö á-
kveöið,sem felur i sér 8% hækk-
un á skiptaverði. Forsenda
þeirrar ákvörðunar er að lögum
um timabundiö oh'ugjald til
fiskiskipa verði breytt þannig
að oliugjaldið hækki úr 2,5% i
7,5%.
Þessarihækkuná oliugjaldinu
er ætlað að mæta þörfum út-
gerðarinnar, vegna stóraukins
oliukostnaðar.
Visir spurði Steingrím Her-
mannsson hvað rlkisstjórnin
hefði I hyggju að gera til að gera
þessa fiskveröshækkun mögu-
lega.
,,Ég mun skýra frá þvi næstu
daga,” sagði hann. ,,Það er
verið að vinna aö þvi við Seðla-
bankann, aö vissu leyti og svo
hefur gengissig veriöm jög hratt
uppá slðkastið.”
Steingrlmur var spurður
hvort þessar ráðstafanir nægðu
til að koma I veg fyrir stöðvun
fiskiskipaflotans vegna
strangra greiðslna til ollufélag-
anna. „Greiðslustaða útgerðar-
innar erslæm, hún hefur safnað
upp miklum skuldum vegna
olluhækkana á undanförnum
vikum. Þó að hún komist á við- I
unandi grundvöll með þessu |
oliugjaldi, þá þarf að breyta
þeim lausaskuldum i föst lán, |
þannig aö hún losni viö dráttar- ■
vextinaafþeimogþaöerllka til '
umræöu, á hvern hátt þaö verð- |
ur gert,” sagði sjávarútvegs- i
ráðherra. SV ■
____________________..J
Tillögu
Gunnars
hafnað
„Það er mín skoðun, að tillögu
Gunnars Thoroddsen verði hafn-
að, en það hefur ekki farið fram
nein formleg atkvæðagreiðsla um
hana I þingflokknum”, sagði
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
þegar blaöamaður Visis innti
hann eftir afstöðu þingflokksins
til þeirrar tillögu Gunnars Thor-
oddsen, að Sjálfstæðisflokkurinn
bjóði fram sameiginlega, þegar
kosið verður I nefndir alþingis.
Þessi tillaga er þó bundin þvi
skilyröi, að stjórnarliðar fái einn
mann af hverjum þremur, sem
flokkurinn fær i sjö manna nefnd-
ir.
„Meirihluti þingflokksins vill,
að nefndaskipan verði óbreytt frá
þvi, sem nú er, og ég á von á þvi,
að formleg ákvörðun varðandi
þessi mál verði tekin eftir þing-
setninguna á morgun”, sagði
Ólafur. Hann átti fund með
Gunnari Thoroddsen um þessi
mál I gær og þeir munu hittast
aftur I dag.
Blaðamanni Visis tókst ekki i
morgun að ná sambandi. við
Gunnar Thoroddsen, en fullvlst
má telja, að fallist þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins ekki á að
tryggja stjórninni meirihluta i
öllum veigamiklum nefndum, þá
muni stuðningsmenn stjórnar-
innar bera fram sameiginlegan
lista við nefndakjörið. —P.M.
Forsvarsmenn st jórnarflokk-
anna: Páll Pétursson, Gunnar
Thoroddsen og Ólafur Ragnar
Grimsson ræddu nefndakjöriö á
fundi I gær. Hér heilsast Gunnar
og Ólafur. VIsismynd:Ella.
Til þess að smygla tollskyldum varningi út um bakdyrFrlhafnar-
innar, þurfti iykii aðhengilás sem þessum. Visismenn fengu leyfi til
þess að mynda aðstæöur I Frihöfninni I gærdag og sýnir mynd þessi
hvað þurfti að yfirstiga svo unnt væri að smygia ivarningnum út.
(Visismynd G.V.A.).
Lyklamálið í Fríhölninní:
úvíst hvort bakiö
á kassanum var nokk-
urn tíma spennt upp!
Kassi sá sem geymdi lykii að
útihurð að baki Frihafnarinnar,
hefur nú verið tekinn til gaum-
gæfilegrar athugunar, að sögn
Kristjáns Péturssonar, deildar-
stjóra Toilgæslunnar á Kefla-
vlkurflugvelli.
Svo virðist vera, sem ekki sé
fuiljóst hvort bakið á kassanum
hafi i raun verið spennt upp og
limt aftur. Af því má álykta að
verkið, hafi þaö verið þannig
unnið, sé mjög vel gert.
Að sögn Kristjáns, mun nú
vera unnið að þvi af fag-
mönnum, að kanna hvort lim-
tegundir reynist vera tvær i
baki kassans, eða hvort yfirleitt
geti verið að framkvæmd
verknaðarins hafi verið eins og
framburður þeirra er, sem
viðurkennt hafa.
Kristján var spurður að þvi
hvort aðrar leiðir væru til þess
að komast að lyklinum, en
brjóta glerið framan á kassan-
um, eða klippa á innsigli toll-
gæslunnar ef leiðin I gengum
bak kassans reyndist ófær.
Kristján kvað svo ekki vera.
Óliklegt þykir að glerið hafi
nokkurntima verið brotið.
Nánari lýsingar á aðstæðum
má lesa á siðu 3 I dag. —AS.
Fyrsta greiðsla
Luxemðorgara í
lok mánaðarins
„Ég átti alitaf von á að þessar tiliögur stjórnarinnar yrðu samþykkt-
ar, en það kom mér nokkuð á óvart að samstaðan skyldi vera svo af-
dráttarlaus. Þetta staöfestir hins vegar þá skoðun mina, ásamt þvl að
lítil sem engin gagnrýni kom fram á fundinum, að það er mikil eining
innan Flugleiða þótt reynt hafi verið að þyrla upp moldviðri um félag-
ið” sagði Sigurður Helgason i samfali við VIsi.
Fjölsóttur hluthafafundur
Flugleiða samþykkti nær ein-
róma I gær að halda áfram flugi
yfir Atlantshaf að minnsta kosti I
eitt ár, ef rlkisstjórnin gæfi já-
kvætt svar við þeim f jármálalegu
atriðum sem nú eru til umræðu
milli Flugleiða og rikisins. Enn-
fremur var samþykkt að auka
hlutafé félagsins um 560 milljónir
króna.
Rlkisstjórnin hefur enn ekki
gefið svör um hvernig háttað
verði greiðslu þriggja milljon
dollara baktryggingar til Flug-
leiða, sem hún hefur lofað. Þá
hefur ekki heldur verið gengið frá
aðstoð til Flugleiða um að breyta
skammtímaskuldum i föst lán né
heldur frá niðurfellingu lend-
ingargjalda.
Af hálfu ríkisstjórnarinnar i
Luxemborg er hins vegar allt
klappað og klárt. Þeir greiða slna
baktryggingu, 3,2 milljónir doll-
ara, til Flugleiða I sex hlutum i
vetur og verður fyrsta greiðslan
afhent i lok þessa mánaðar.
Gengið hefur verið frá niðurfell-
ingu lendingargjalda og farþega-
skatta Flugleiða þar i landi.
A hluthafafundinum i gær kom
fram, að samkvæmt áætlun Flug-
leiðamanna skortir um eina
milljón dollara upp á að bak-
tryggingar ríkisstjórnarinnar
nægi til að félagið sleppi taplaust
frá Atlantshafsfluginu i eitt ár.
Stjórn Flugleiða kom saman til
fundar I morgun þar sem þessi
mál verða rædd I ljósi samþykkt-
ar fundarins I gær. — Sjá nánar I
opnu blaðsins.
— SG
Albert um neinúakjör á Aiblngi
„VIL ENGAR
BREYTINGAR
99
„Það eina, sem ég hef sagt um
þetta mál, er að ég vil ekki fara I
fleiri nefndir en þær tvær, sem
þingflokkurinn kaus mig til f
fyrra. Ég vil engar breytingar á
þvi”.
Þetta sagði Albert Guðmunds
son, alþingismaöur, þegar blaöa-
maður Vísis spuröi hann I morg-
un, hvaða afstöðu hann hefði tekið
til nefndakjörs á alþingi. Albert
sagðist vera nýkominn til lands-
ins og ekki tekið þátt I þeim
fundarhöldum, sem veriö hafa I
þingflokki Sjálfstæðisflokksins
um þessi mál.
„Það var þingflokkurinn, sem
kaus mig I þessar tvær nefndir 1
fyrra og ég vil engar breytingar
þar á. Ég er bara I einum Sjálf-
stæðisflokki og tek engan þátt I
þeim deilum, sem eru á milli
stjórnar og stjórnarandstööu um
nefndakjörið. Ég forðast þessar
deilur og er fyllilega reiöubúinn
til að hætta I pólitík, ef það gæti
hjálpað flokknum”, sagöi Albert.
—P.M.
I