Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Verð og gæði við allra hæfi
Lítið inn og kynnið ykkur vöruvalið
50 tegundir af íslenskum ELGO múrvörum
Forysta í framförum í 30 ár
Afmæliskaffi á könnunni
Starfsfólk Steinprýði
30 ára 10. júní 2002
Allt til
steypu- og
múrviðgerða
fyrir
leikmenn
og lærða
Stangarhyl 7, Reykjavík
Fimmtudagskvöld
á Þingvöllum
Klippið út auglýsinguna Þjóðgarðurinn á Þingvöllum býður
til gönguferða á
fimmtudagskvöldum í júní og júlí
13. júní Jónas Hallgrímsson og Þingvellir.
Páll Valsson, rithöfundur og
íslenskufræðingur.
20. júní Fornleifarannsóknir á Þingvöllum.
Dr. Adolf Friðriksson, fornleifafræðingur
hjá Fornleifastofnun Íslands.
27. júní Í fótspor Jóns Hreggviðssonar.
Dr. Gunnar Kristjánsson, prestur á
Reynivöllum í Kjós.
4. júlí Gengið á Arnarfell.
Sigurður K. Oddsson, þjóðgarðsvörður.
11. júlí Daglegt líf á nítjándu öld.
Arna Björg Bjarnadóttir, sagnfræðingur
og landvörður.
18. júlí Um dauðadjúpar gjár.
Sveinn Klausen M.A. og landvörður.
25. júlí Helladýr úr forneskju.
Bjarni Kr. Kristjánsson, líffræðingur á
Hólum í Hjaltadal.
1. ágúst Brennudómar á Þingvöllum.
Dr. Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur
og skólameistari Menntask. á Ísafirði.
Gönguferðirnar hefjast klukkan 20.00. Nánari upplýsingar um
gönguferðirnar, upphafsstaði og aðra dagskrá þjóðgarðsins á
Þingvöllum má fá á heimasíðu þjóðgarðsins, www.thingvellir.is
eða í þjónustumiðstöð í síma 482 2660 og 482 3609.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
UPPBOÐI á einu af verkum Línu
Rutar Wilberg í Galleríi Lands-
bankans-Landsbréfa á vefnum lauk
á dögunum. Hæsta boð í málverkið,
sem ber titilinn Heimur lítillar
stúlku, var 100.000 kr. og ánafnaði
listamaðurinn Styrktarsjóði
blindra barna andvirði verksins.
„Allir listamenn sem taka þátt í
þessari sýningu á vegum Lands-
bankans-Landsbréfa velja eitt verk
af sýningunni, sem svo eru gerð til-
boð í á Netinu,“ útskýrir Lína Rut í
samtali við Morgunblaðið. „Ég
fékk að velja sjálf málefnið sem
ágóðinn af uppboðinu rynni til og
valdi þetta málefni meðal annars
vegna þess að litli strákurinn okk-
ar er sjónskertur. Það er auðvitað
erfitt að velja á milli málefna,
mann langar mest til að styrkja
alla, en á móti kemur að lítið hefur
farið fyrir þessu félagi. Þannig að
ég vildi gjarnan veita því minn
stuðning.“
Málverk eftir Línu Rut eru nú til
sýnis á Laugavegi 77, í húsakynn-
um Landsbankans-Landsbréfa, auk
þess sem hægt er að skoða verkin í
Galleríinu á Netinu.
Selur verk á uppboði í Galleríi Lands-
bankans-Landsbréfa á vefnum
Lína Rut, ásamt framkvæmdastjóra Landsbréfa, Sigurði Atla Jónssyni,
afhendir forsvarsmönnum Styrktarsjóðs blindra barna gjafabréfið.
Gaf andvirðið til styrktar
blindum börnum
UNDIRRITAÐUR var á dögunum
samningur Þjóðminjasafns Íslands og
hugbúnaðarfyrirtækisins Hugvits hf.
um höfundarrétt og hagnýtingu á
upplýsingakerfinu Sarpi og sam-
komulag um áframhaldandi sam-
vinnu um þróun kerfisins. Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og
Bjarni Guðmundsson framkvæmda-
stjóri undirrituðu samningana.
Samkvæmt höfundarréttarsamn-
ingnum er forrit Sarps sameiginleg
eign Þjóðminjasafns og Hugvits.
Sarpur er alhliða upplýsingakerfi
sem unnið hefur verið að á vegum
Þjóðminjasafnsins undanfarin ár í
samvinnu við Hugvit. Verið er að
leggja síðustu höndu á aðra útgáfu
kerfisins. Heildarkostnaður við þróun
þeirrar útgáfu eru um 30 milljónir
króna sem aðilar hafa lagt fram sam-
eiginlega með 12 milljón króna styrk
frá Rannís.
Öðrum minja- og myndasöfnum,
stofnunum og fyrirtækjum, bæði op-
inberum og einkareknum, sem skrá
og varðveita menningarsögulegt efni,
verður boðinn aðgangur að Sarpi í
þeim tilgangi að samræma skráningu
sambærilegra heimilda á landsvísu.
Nokkrar stofnanir og söfn hafa þegar
tekið kerfið í notkun, þar má nefna
Örnefnastofnun og Húsafriðunar-
nefnd og rúmlega 10 minjasöfn.
Sarpur þróaður áfram