Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
E
LDHÚSIÐ hefur löngum
verið einn helsti mið-
punktur heimilislífsins.
Um tíma var það helsti
samkomustaðurinn á heimilinu og
jafnvel var gengið beint inn í eld-
húsið á fyrri hluta síðustu aldar.
En svo komu þeir tímar að eldhúsin
skruppu saman og urðu mjög lítil.
Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt
FAÍ, hefur fengist mikið við hönn-
un á eldhúsum og innréttingum í
þau. Hún var spurð hver væri
helsta stefnan í þeim málum núna.
„Það eru nokkur atriði sem ber
að nefna í þessu sambandi,“ segir
Halldóra.
„Fyrst vil ég nefna hlutverk eld-
hússins sem heild í húsi. Í þeim efn-
um er stefnan sú að eldhúsin eru að
verða í æ ríkari mæli eins konar al-
rými. Þá má segja að eldhúsin séu
að nálgast það að verða „hjarta
hússins“. Frank Lloyd Wright,
hinn frægi bandaríski arkitekt,
byggði oft húsin sín á þann veg að
miða við hjarta hússins, hjá honum
var hjartað oft heimilisarinninn.
Segja má að hönnun eldhúsa
þurfi að byggjast á tvennu, annars
vegar útliti og hinsvegar notkun.
Ég er á þeirri skoðun að góð hönn-
un sameini þetta tvennt. Ég gef lít-
ið fyrir útlitið ef nýtingarmöguleik-
ar eru ekki í góðu samræmi við
það.“
Eldhús sem alrými
„Eldhúsið er vinnustaður allra
meðlima fjölskyldunnar í dag. Það
er ólíkt því sem gerðist fyrir nokkr-
um áratugum, þegar eldhúsin voru
hönnuð fyrir eina manneskju, sem
oftast var húsmóðirin. Þá var mikið
gert úr hinum svokallaða þríhyrn-
ingi, þar sem manneskjan gat stað-
ið á einum stað – við vaskinn t.d. og
snúið sér að eldavélinni og ísskápn-
um á sama punktinum.
Í dag þarf aftur á móti að gera
ráð fyrir fleirum við vinnu í eldhús-
inu. Það gerir kröfur um meira
borðpláss en áður. Fólk þarf að
geta gengið um og unnið í eldhús-
inu án þess að vera sífellt fyrir
næsta manni.
Ég hef stundum endurhannað
eldhús í gömlum húsum og einn
kúnninn hafði við orð að hann hefði
áttað sig á í hverju mesta breyt-
ingin væri fólgin – það var að eld-
húsið var opnað og þar með skap-
aðist rými fyrir bæði hjónin og
jafnvel börnin til þess að vinna
saman í eldhúsinu á þess að vera
fyrir hvert öðru.“
Gera þarf ráð fyrir öllum í
fjölskyldunni
„Í barnafjölskyldum þarf að gera
ráð fyrir öllum í fjölskyldunni í eld-
húsinu. Ég hef t.d. eina skúffu í
eldhúsinu hjá mér sem sonurinn
minn, á öðru ári, geymir dótið sitt í.
Þeir sem eiga eldri börn sem eru
komin í skóla vilja gjarnan að börn-
in geti lært við borð í eldhúsinu.
Leikskólabörnin vilja á sama hátt
eiga sinn stað til að föndra við í eld-
húsinu, það þarf að taka mið af
þessu strax við frumhönnun húsa. Í
eldri húsunum er erfiðara að gera
það sem hugurinn býður í þessum
efnum, stundum má þó rífa niður
veggi og skapa þannig betra rými.
Eitt er það sem ég hef verið að
gera talsvert af undanfarið, það er
að hanna svolitla aðstöðu þar sem
fólk getur verið með vísi að heima-
skrifstofu – smá vinnuaðstöðu. Þar
má hafa lítið borð og skúffur fyrir
reikninga og hillur fyrir heimilis-
bókhald og matreiðslubækur. Inni í
þessari aðstöðu getur líka verið
rúm fyrir tölvu og jafnvel sjónvarp.
Stundum er einingin notuð til að
skipta upp rými, skilja að borðstofu
og eldhús – þá er einingin lokuð
fram en opin inn í eldhúsið.“
Hvað með útlitið í eldhúsum –
hefur það verið að breytast?
„Já, það hefur breyst mjög mikið
undanfarin tvo til þrjú ár. Einfald-
ar línur eru ráðandi í dag, það er
helsta breytingin. Þá er ég að tala
um mjög einfaldar línur. Háar inn-
réttingar, skápa upp í loft með inn-
byggðum veggofnum og ísskáp og
lágum borðum – jafnvel eru engir
efri skápar eða mjög lágir.
Maður gerir ráð fyrir að glös og
diskar séu í útdregnum skúffum
þannig að litla fólkið á heimilinu
geti sjálft bjargað sér.
Þessar einföldu línur eru gjarnan
með innbyggðum tækjum, þar sem
varla er hægt að greina hvar ís-
skápar og uppþvottavélar eru stað-
settar, þær eru klæddar eins og
skáparnir. Það er sem sagt ekki
gert mikið úr innréttingunum sem
slíkum, heldur eiga þær að falla inn
í heildarmynd hússins. Þessi þróun
helst í hendur við opnari eldhús.“
Hnéstýrðar einingar
Hvað með nýjungar?
„Þess má geta að vaskaskápar
hafa gjörbreyst. Nú hanna ég slíka
skápa þannig að í þeim eru flokk-
arar fyrir rusl – þá eru kannski
fjórar ruslafötur í einni einingu og
eru einingarnar ýmist hnéstýrðar
eða útdregnar.
Kosturinn við þær hnéstýrðu er
sá að maður getur hent rusli þótt
maður sé óhreinn á höndunum og
þannig sóðast ekki umhverfið út. Í
báðum þessum einingum er full
dýpt skápsins nýtt.
Skúffur eru núna allsráðandi í
lægri einingum. Þær eru misháar,
alveg frá þessum grynnstu sem eru
kryddskúffur yfir í þær dýpstu sem
taka stóra morgunkorns-pakka og
stærstu gerð af gosflöskum. Allt
miðast við að hafa þægindin sem
mest. Þá ber að geta hinna sér-
stöku tækjaskápa sem raunar hafa
verið nokkuð lengi á markaðinum.
Þeir eru hafðir ofan á borðplötu
þannig að tækin renni inn í þá.“
Framtíð
eldhúsinnréttinga
„Í erlendum tímaritum er mikið
um færanlegar einingar, þ.e. ein-
ingar á fótum og jafnvel á hjólum.
Þetta á uppruna sinn í Þýskalandi
en þar tekur fólk innréttingar sínar
gjarnan með sér þegar það flytur.
Þetta er líka gert með tilliti til að
þetta eru dýrustu rými hússins. Ég
hef ekki séð að þetta sé mjög að
ryðja sér til rúms hér á Íslandi enn
sem komið er. Þetta þarfnast líka
oft meira rýmis en fastar og sér-
smíðaðar innréttingar sem nýta
hvern sentimetra af eldhúsinu.“
Hvað með ný efni – hvað er vin-
sælast þar?
„Dökkur viður er vinsæll um
þessar mundir en einnig mjög ljós
viður. Þá eru sprautulakkaðar inn-
réttingar einnig algengar. Ég hef
t.d. verið að gera nokkrar alveg
hvítar sem ég tel sígildar. Stundum
er gegnheill viður í borðplötur
hafður með í bland við stein eða
granít. Það má líka geta þess að nú
færist í vöxt að nota gerviefni þar
sem vaskurinn og borðplatan eru
„samvaxin“.“
Hvað með gólfefni?
„Flísar eru alltaf mikið notaðar.
Ég nota oft samhliða flísar og park-
et, mér finnst sjálfri erfitt að
standa mjög lengi á flísum, þá er
gott að geta hvílt fæturna með því
að hafa tré á hluta af vinnuaðstöð-
unni.“
Einkenni
góðrar hönnunar
Hvað einkennir góða hönnun?
„Það að hún haldi gildi sínu og sé
jafnframt sveigjanleg, geti tekið
við misstórum fjölskyldum og hent-
að þörfum þeirra á hverjum tíma.
Ég á þá við að vinnuaðstaðan geti
hentað til mismunandi þarfa, þar sé
hægt á einum tíma að föndra, á öðr-
um tíma að færa heimilisbókhaldið
o.s.frv. Vel hönnuð rými eiga að
geta svarað ólíkum þörfum. – Góð
hönnun borgar sig.“
Eldhúsið –
hjarta
hússins!
Morgunblaðið/Þorkell
Halldóra Vífilsdóttir við eldunareyjuna. Þær eru þægilegar því hægt er að vinna báðum megin við þær. Rúmgóður og
notalegur borðkrókur gerir það að verkum að fjölskyldan er þar mikið.
Vinnuaðstaða er hentugt fyrirbæri
í eldhúsi.
Tækjaskápar eru þægilegir því þeir loka tækin af.
Séð inn í borðkrókinn, einfaldar línur eru allsráðandi.
Þeir sem eru farnir að búa sjálfir vita að eldhúsið skiptir
miklu máli á heimilinu, en eins og flest annað í umhverfi
okkar eru tískustraumar ráðandi í hönnun eldhúsa. Um
þetta efni ræðir Guðrún Guðlaugsdóttir við Halldóru
Vífilsdóttur, arkitekt FAÍ, sem hefur mikið fengist við
hönnun eldhúsa í nýjum jafnt sem gömlum húsum.
Ruslaflokkun er að ryðja sér til rúms.
Kryddskúffa.
Efnisyfirlit
Austurbær ................................5 32
Ás ........................................5 36-37
Ásbyrgi .....................................5 48
Berg ................................................. 5
Bifröst ........................................... 31
Borgir ........................................... 30
Brynjólfur Jónsson ..................... 4
Eign.is .......................................... 45
Eignaborg .................................... 44
Eignamiðlun ........................ 32-33
Eignaval ....................................... 43
Fasteign.is ..................................... 6
Fasteignamarkaðurinn ............... 3
Fasteignamiðlunin .................... 23
Fasteignamiðstöðin ................... 17
Fasteignasala Mosfellsbæjar . 35
Fasteignasala Íslands .............. 29
Fasteignastofan .......................... 16
Fasteignaþing ............................ 47
Fjárfesting ................................... 12
Fold ................................................. 11
Foss .............................................. 40
Garðatorg .................................... 39
Garður .......................................... 38
Gimli ...................................... 29-29
Híbýli ............................................. 17
Holt ................................................ 18
Hóll ........................................ 34-35
Hraunhamar ......................... 20-21
Húsakaup ...................................... 10
Húsavík ........................................ 37
Húsið .............................................. 8
Húsin í bænum ........................... 42
Höfði .............................................. 14
Höfði Hafnarfirði ........................ 15
Kjöreign ........................................ 19
Lundur .................................. 24-25
Lyngvík ........................................ 48
Miðborg ........................................... 7
Óðal & Framtíðin ........................ 13
Skeifan ............................................ 9
.Smárinn .......................................... 8
Stakfell ........................................ 38
Valhöll ................................... 22-23