Morgunblaðið - 25.06.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 C 43HeimiliFasteignir
Einbýlis-, rað-, parhús
GOÐATÚN - SVEITASTÍLL
Vorum að fá í sölu 130 fm einbýli m. 40 fm bílskúr.
Fallegur 660 fm garður. Náttúrusteinn og parket á
gólfum. Nýuppgert að innan ásamt nýrri eldhús-
innr., flísar á baði. Áhv. 6,6 m. V. 20,5 m. (3011)
SOGAVEGUR Virkilega skemmtilegt 145
fm einbýlishús. Parket og flísar. Gott skipulag.
Eign sem býður uppá mikla möguleika. 4-5 svefnh.
Fallegur garður. Áhv. 4,8 m. V. 15,5 m. (3381)
5-7 herb. og sérh.
BREKKULAND - MOS. Góð 5 her-
bergja 122,5 fm efri sérhæð á góðum stað í Mos-
fellsbæ. 3 svefnherbergi. Nýlegt eldhús. Stór garð-
ur. Nýr sólpallur. V. 14,9 m. Áhv.10,5 m. (3277)
GULLENGI 23 Glæsileg 87,5 fm þriggja
herbergja jarðhæð. Björt og góð stofa. Mjög rúm-
gott hjónaherbergi. Sérgarður. Sameiginlegur bíl-
skúr til þrifa. V. 11,9 m. Áhv. 7,5 m. (2384)
GRETTISGATA Nýk. á sölu 117 fm 5
herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli. 3-4 svefn-
herbergi. Stór stofa, eldhús með nýlegri innrétt.,
baðherb. með sturtu. Gestasalerni. Stutt í alla
þjónustu. Hús nýlega múrviðgert og nýlegt þak.
Áhv. 6,6 millj. V. 12,8 millj. (3338)
4 herbergja
LANGHOLTSVEGUR Glæsileg
105,7 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi á þessum frá-
bæra stað. Algjörlega endurnýjuð, nýjar lagnir, raf-
magn, innréttingar, gluggar, gólfefni o.s.frv. V.
14,9 m. Áhv. 7,4 m. (3395)
FANNBORG
Falleg 4ra herb. 96,5 fm íbúð á 4. hæð í litlu, ný-
viðgerðu fjölbýli. Stórar suðursvalir með glæsilegu
útsýni. Sam. bílskýli. Stutt í alla þjónustu. V. 11,9
m. Áhv. 6,8 m. (3006)
VEGHÚS Falleg 4ra herb. 107 fm íbúð
ásamt 13,5 fm geymslu. Glæsilegt útsýni. Þrjú
svefnherbergi. Stór stofa með mikilli lofthæð. Suð-
ursvalir. V. 14,2 m. Áhv. 6,1 m. í bygg.sj. (3391)
RAUÐALÆKUR
Vorum að fá 124 fm íbúð á efstu hæð í litlu fjöl-
býli. 3 góð svefnherbergi. Tvær samliggjandi stof-
ur. Hátt til lofts. Rúmgott eldhús. Þvottah. innan
íbúðar. Góðar suðursvalir. Áhv. 3,9 m. V. 15,9 m.
(3020)
REYKJAHLÍÐ Glæsil. endurn. ca 135 fm
4ra herb. íbúð á jarðh. í Hlíðunum. Stór parketlögð
stofa. Glæsil. eldhús með nýrri innr. og tækjum. V.
14,9 m. (3326)
SÓLVALLAGATA Vorum að fá góða
79 fm 3ja herb. íbúð á jarðh. Sérinng. 2 góð svefn-
herbergi. Eldhús með ágætri innréttingu. 2 sam-
liggjandi stofur. Áhv. 4,2 m. V. 9,9 m. (3307)
SUÐURHÓLAR 8 Vorum að fá mjög
góða 4ra herbergja 105 fm íbúð á 1. hæð. Þrjú
rúmgóð herbergi. Parket á gólfi. Flísalagt baðherb.
Nýl. stands. blokk að utan. V. 11,8 m. (3460)
BERGSTAÐASTRÆTI Mjög góð 4
herb. 102 fm íbúð á jarðhæð í Þingholtunum. Flís-
ar og nýlegur linoleum-dúkur á gólfum. Íbúð sem
býður uppá mikla möguleika. Íbúð sem þarfnast
smá lagfæringar. V. 10,9 m. (2925)
KÓNGSBAKKI Vorum að fá í einkasölu
virkilega góða 4ra herb. 104,4 fm íbúð á 3. hæð.
Parket og flísar. Skemmtilegt skipulag. Frábær að-
staða fyrir börn. Áhv. 3,0 m. V. 10,9 m. (3372)
3 herbergja
HRAUNBÆR
Til sölu 85,5 fm íb. á 2. h. í klæddu fjölb. Nýl. beyki-
innr. í eldh. Þv.hús innaf eldhúsi. Suðursvalir. LAUS
FLJÓTL. V. 10,6 m. Áhv. 3,5 m. (3396)
KLEIFARSEL Skemmtileg og björt íbúð á
2. hæð, 84,1 fm. Parket á gólfum, flísalagt baðherb.,
2 svefnh., stór stofa, eldhús og borðkrókur, stór
geymsla. Laus strax. Áhv. 6,6 m. V. 10,9 m. (3019)
FLÉTTURIMI - LAUS STRAX
Afar skemmtileg 91 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð ásamt
sérmerktu stæði í bílageymslu. Sérþvottahús innan
íb. Hvít eldh.innrétting. Baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf m. baðkari. Nýmáluð blokk. Áhv. 6,8 m. V.
11,7 m. (3386)
GULLENGI - M. BÍLSKÚR Afar
falleg 92 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð ásamt 23 fm
bílskúr. Mahóní-parket og hurðir, vandaðar innrétt-
ingar. Baðherb. flísalagt í hólf og gólf. Suðursvalir.
ÍBÚÐIN GETUR VERIÐ LAUS STRAX. V. 12,6 m.
(3002)
GULLENGI - M. SÉRINNGANGI
Mjög góð 85 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð með sérinn-
gangi og sérmerktu bílastæði. Linoleum-dúkur og
flísar á gólfum. Hvítar innréttingar. Stórt leiksvæði í
bakgarði. Sérþvottahús innan íb. Áhv. 6,7 m. V. 10,8
m. (3387)
LAUFENGI - M. SÉRINNGANGI
75 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð með sérinngangi á góð-
um stað. Stutt í alla þjónustu. Linoleum-dúkur á
gólfum, rúmgóðir skápar í öllum herbergjum. Falleg
eldhúsinnrétting. Áhv. 7,4 m. V. 10,8 m. (3054)
REYRENGI Mjög falleg 82 fm 3ja herb. íbúð
á 2. hæð með sérinngangi. Linoleum-dúkur á gólf-
um og góðar innréttingar. Góð hvít eldhúsinnrétt-
ing. Austursvalir. Mjög skemmtileg og vel skipulögð
eign. V. 11,6 m. (3058)
VALLARHÚS
Sérinngangur, sérgarður, 1. hæð í 2 hæða fjölbýli,
68,2 fm, 2-3 herb., snyrtileg íbúð. Var áður 2 herb.
Geymsla og þvottah. innan íb. V. 9,2 m. (3017)
RÓSARIMI Falleg 72,2 fm íb. með 22,8 fm
bílskúr í 2. h. í fjölb. Eldh. og stofa opið, rými bjart
og rúmgott. Fjölskylduvænt umhverfi, stutt í þjón-
ustu og skóla. V. 11,9 m. (3016)
DYNGJUVEGUR Vorum að fá góða 93
fm 3ja herb. íbúð með sérinngangi á jarðhæð. 2
rúmgóð svefnh. og stór stofa. Parketlagt eldhús.
Íbúð með mikla möguleika. Stór suðurgarður. V.
11,6 m. (3371)
LJÓSAVÍK Rúmg. 3ja herb. íb. á 3ju hæð í
litlu fjölb. 2 herb., glæsil. beykiinnr. Glæsil. útsýni.
Þvottaherbergi í íbúð. Áhv. 7 m. V. 12,8 m. (3456)
RAUÐÁS Vorum að fá mjög glæsilega 3ja
herbergja 80 fm íbúð á 2. hæð. 2 góð svefnher-
bergi. Svalir í 2 áttir. Parket á gólfum. Rúmgott
baðherbergi, tengi f. þvottav. Áhv. 7,3 m. V. 11,5
m. (3383)
TRÖLLABORGIR Glæsil. jarðh. ca 100
fm með sérinng. Tvö svefnherb., stórt sjónvarps-
herb., rúmg. baðherb. og stór stofa og borðstofa,
útgengt í garð. Rúmg. eldhús. Tvö bílst. V. 14,8 m.
(3320)
UGLUHÓLAR - LAUS STRAX
Mjög góð 3ja herb. 65 fm íbúð á jarðhæð. 2 góð
herb. Stór stofa, útgengt í garð. Parket á gólfi.
Mikið endurnýjuð. Íbúðin er laus strax. Áhv. ca 6
m. V. 8,9 m. (3374)
BARÓNSSTÍGUR Vorum að fá í einka-
sölu virkilega góða 2-3ja herb. 82,9 fm íbúð á 3.
hæð. Góðar innréttingar. Parket og flísar. Eign í
mjög góðu ástandi. V. 10,5 m. (3382)
BERJARIMI
Vorum að fá í sölu virkilega góða 3ja herb. 86,1
fm íbúð á 3. hæð ásamt bílskýli. Parket og flísar.
Góðar innréttingar. Skemmtilegt skipulag. V. 11,9
m. (3001)
TORFUFELL Vorum að fá í sölu góða 3ja
herb. 79,8 fm íbúð á 3. hæð. Gott skipulag. Dúkur
og flísar. Eign í góðu ástandi. V. 8,7 m. (3373)
2 herbergja
LANGHOLTSVEGUR
Glæsileg 54,4 fm íb. á jarðh. auk 6 fm geymslu,
samtals 60,4 fm í 4ra íbúða húsi með sérinngangi.
Allt nýtt innan stokks og hús nýtekið í gegn að ut-
an. V. 9,3 m. Áhv. húsbr. 5,1 m. (3007)
DVERGABAKKI Virkilega glæsileg 2ja
herb. 49 fm íbúð á 1. hæð, 8,4 fm aukaherbergi í
kj. auk 5,5 fm geymslu. Nýlegt merbau-parket og
flísar. Húsið er allt nýstandsett að utan. V. 7,9 m.
LAUS. (3393)
ENGJASEL Mjög góð 47 fm 2-3ja herb.
íb. á jarðhæð í góðu fjölbýli. Parket á gólfum,
ágætar innréttingar. Gott barnvænt umhverfi.
Áhv. 5 m. V. 7,8 m. (3388)
VEGHÚS 2-3ja herb. íb. á 2. hæð í nýmál-
aðri lyftublokk. Linoleum-dúkur á gólfum. Bað-
herb. með baðkari og tengi f. þvottavél. Vest-
ursvalir með góðu útsýni. V. 9,7 m. (3059)
AUSTURBERG - 2-3 HERB.
Sérinng. Nýuppg. 74,6 fm íb. 3. h. Rúmg. eldh. m.
nýrri innr. Rúmg. stofa. Suðursvalir. Rúmg. herb.
m. skápum auk leikherb. V. 9,5 m.
HAGAMELUR Mjög góð 70 fm 2ja her-
bergja kjallaraíbúð. Stórt svefnherbergi með renni-
hurð í stóra stofu. Rúmg. baðherbergi. Parket á
gólfi. Áhv. V. 9,9 m. (3308)
SNORRABRAUT Bráðfalleg 54 fm íb.
á 2. h. í snyrtil. fjölb. Stofa og svefnh. með spóna-
parketi á gólfi. Baðh. með sturtu og nýl. tækjum.
Áhv. 3,3. m. byggingasj. V. 7,5 m. (2185)
ÁSVALLAGATA Vorum að fá í sölu
góða 44,5 fm íbúð á 1. hæð ásamt góðu herb. í
kjallara. Parket og flísar. Eign í mjög góðu ástandi
bæði að innan sem utan. Áhv. 3,2 m. byggsj. V.
8,5 m. (3039)
Ýmislegt
KRINGLAN - VEITINGA-
STAÐUR Vorum að fá góðan skyndibita-
stað til sölu. Góðir tekjumöguleikar. Vinsæll stað-
ur. Góð langtímalán. V. 8,5 m.
Í smíðum
JÓRSALIR Vorum að fá 198 fm einbýlis-
hús ásamt 57 fm tvöf. bílskúr. 3 góð svefnher-
bergi. 44 fm stofa og borðstofa. 24 fm turnher-
bergi. Fullb. að utan. Fokhelt að innan. Góð stað-
setning. V. 21,9 m. (3497)
TUNGUÁS Vel hannað 162 fm einbýlishús
ásamt 39 fm innb. bílskúr. Möguleiki á 2 auka-
íbúðum á neðri hæð. Afhendist fullbúið að utan
og rúmlega fokhelt að innan. Glæsilegt útsýni.
Teikningar hjá Eignavali. V. 20 m. (3212)
KRÍUÁS - HAFNARF. Nýk. á sölu
tveggja h. raðh. ca 200 fm ásamt 28 fm bílsk.
Húsið skilast rúmlega fokhelt með grófjafnaðri
lóð. V. 13,9 m. (2743)
Landið
NJÁLSGERÐI - HVOLSVELLI
Einlyft 133 fm einbýlishús ásamt 80 fm bílsúr. 4
góð svefnherbergi, fataherbergi. Eldhús með ný-
legri eikarinnr., trespo-park. á gólfum. Fallega
gróinn garður, sólpallur. V. 14,9 m. (450)
Sigurður Óskarsson
lögg. fasteignasali
Sveinn Óskar Sigurðsson
lögg. fasteignasali
Þórarinn Thorarensen
sölustjóri
Bjarni Ólafsson
sölumaður
Halldór Gunnlaugsson
sölumaður
Kristbjörn Sigurðsson
sölumaður
Svanhvít Sunna Erlendsdóttir
þjónustufulltrúi
ALLIR eigendur í fjöleign-arhúsum eiga óskoraðanrétt á að eiga og takaþátt í öllum ákvörðunum
er varða sameignina, bæði innan
húss og utan og um sameiginleg
málefni, sem snerta hana, beint og
óbeint. Á þetta m.a. við um fyr-
irkomulag, útlit, breytingar, hvers
kyns framkvæmdir, endurbætur,
rekstur, viðhald og um hagnýtingu
sameignar.
Til smávægilegra breytinga,
endurnýjana og framkvæmda
nægir alltaf samþykki einfalds
meirihluta miðað við eignarhluta í
húsi. Sé hins vegar um að ræða
byggingu, endurbætur eða fram-
kvæmdir á sameign, t.d. garði og
bílaplani, sem ekki var gert ráð
fyrir í upphafi, verður ekki ráðist í
hana nema allir eigendur sam-
þykki ef um er að ræða verulega
breytingu á sameign, þar á meðal
útliti og heildarsvip húss. Ef um
er að ræða breytingar sem ekki
teljast verulegar þarf samþykki
2/3 hluta eigenda bæði miðað við
fjölda og hlutfallstölur.
Deilt um smíði sólpalls
Sem dæmi um verulegar breyt-
ingar á sameign mætti benda á
niðurstöðu kærunefndar fjöleign-
arhúsamála í máli þar sem deilt
var um byggingu sólpalls. Nefndin
taldi að ákvörðun um að byggja
sólpall á sameiginlegri lóð hefði
þurft að taka á löglega boðuðum
húsfundi og með hliðsjón af útliti
sólpallsins, stærðar hans og gerð-
ar svo og stærð lóðar taldi nefndin
að um væri að ræða verulega
breytingu á sameign og að sam-
þykki allra hefði þurft til að reisa
pallinn. Kærunefndin komst þann-
ig að þeirri niðurstöðu að ekki
hefði verið tekin lögleg ákvörðun
um sólpallinn og því var aðilum
gert að fjarlægja hann.
Þrátt fyrir að sú meginregla
gildi að allar ákvarðanir verði að
taka á húsfundi varðandi fram-
kvæmdir á lóð þá getur húsfélag í
vissum tilvikum tekið ákvarðanir í
umboði íbúðareigenda sem eru
bindandi fyrir þá. Þessi tilvik sem
um ræðir lúta að venjulegum
rekstri og hagsmunagæslu vegna
umhirðu lóðar.
Kærunefnd fjöleignarhúsamála
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að niðurfelling trjáa á sameig-
inlegri lóð sé eiganda óheimil án
samþykkis sameigenda. Hins veg-
ar taldi nefndin að hefðbundnar
garðframkvæmdir eins og t.d.
garðsláttur, snyrting og klipping
trjáa, þrif á lóð og önnur samsvar-
andi verkefni séu heimil hverjum
og einum eiganda án þess að hald-
inn sé sérstakur húsfundur til að
afla samþykkis annarra eigenda.
Hafi eigendur farið út í stærri
framkvæmdir á lóð án þess að
boðað hafi verið til fundar eru aðr-
ir eigendur almennt ekki bundnir
við slíka ákvörðun og geta að viss-
um skilyrðum uppfylltum neitað
að greiða hlutdeild í kostnaði
vegna hennar og krafist þess að
framkvæmdir verði stöðvaðar.
Skipting kostnaðar
Meginreglan er sú að sameig-
inlegur kostnaður vegna lóðar-
framkvæmda skiptist á eigendur
eftir hlutfallstölu viðkomandi eig-
enda í sameign. Það er því hlut-
fallstala séreignar sem segir til um
hve stóran hluta af sameiginlegum
kostnaði eigandi hennar á að bera
vegna framkvæmda á lóð.
Frá meginreglunni eru und-
antekningar og eru þær tæmandi
taldar í lögunum þannig að allur
kostnaður sem ekki fellur ótvírætt
undir undantekningarnar skiptist
eftir hlutfallstölum séreigna.
Meginreglan gildir almennt um
allan stofn- og viðhaldskostnað
lóðar og má nefna sem dæmi girð-
ingar, hellulagnir, kaup og viðhald
leiktækja, kaup á trjám og
plöntum og sláttuvél.
Sem dæmi um kostnað sem
skiptist jafnt á eigendur og er þar
af leiðandi undantekning frá meg-
inreglunni er allur rekstrarkostn-
aður og kostnaður við umhirðu
lóðar, s.s. garðsláttur, trjáúðun og
trjáklippingar.
Nefna má að kostnaður við gerð,
viðhald og rekstur sameiginlegra
óskiptra bílastæða skiptist að
jöfnu.
Í húsreglum skal m.a. fjallað um
hvernig umhirðu lóðar skuli háttað
og hverjar séu skyldur eigenda í
þeim efnum.
Húsreglur skulu settar í öllum
fjöleignarhúsum og sú skylda hvíl-
ir á stjórn húsfélags að semja og
leggja fyrir húsfund til sam-
þykktar reglur um hagnýtingu
sameignar. Á öllum íbúum hvílir
sú skylda að virða húsreglurnar.
Lóðaframkvæmdir
Hús og lög
eftir Hrund Kristinsdóttur,
lögfræðing Húseigenda-
félagsins/huso2@islandia.is