Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 13

Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 C 13HeimiliFasteignir marka tjón sitt með hæfilegum aðgerðum, en sæta því ella að fá það ekki bætt. Þessi regla hefur reyndar verið í gildi sem óskráð meg- inregla, þannig að í þessu er ekki að finna ný- mæli. Þau atriði í lögunum, sem styrkja réttarstöðu kaupanda eru einkum eftirfarandi – aukin vernd í neytendakaupum Í fyrsta lagi er kveðið á um, að í neytenda- kaupum, þ.e. þegar kaupandi er að kaupa fast- eign til persónulegra afnota fyrir sig og sína af seljanda og salan er liður í atvinnustarfsemi seljanda, sé óheimilt að semja með öðrum hætti en lögin mæla fyrir um. Lögin veita þannig kaupendum í neytendakaupum ófrá- víkjanlega lágmarksvernd, sem er þeim mikil- væg. Veðréttur í fasteign til tryggingar greiðslum Í öðru lagi er ákvæði um að kaupandi öðlist veðrétt í fasteigninni til tryggingar þeim greiðslum sem hann hefur innt af hendi. Þótt segja megi að þessi regla hafi verið í gildi áður sem óskráð regla, er mikilvægt fyrir kaupanda að hafa um þetta skýra og skráða reglu. Skil- yrði þess að hann öðlist fulla vernd er að hann láti þinglýsa kaupsamningi þegar greiðslur samkvæmt honum hefjast. Rýmri réttur til skaðabóta vegna raunverulegs galla Í þriðja lagi er staða kaupanda að því er varðar rétt til skaðabóta styrkt verulega, þeg- ar um raunverulegan galla á fasteign er að ræða. Ekki er gerð sú krafa, sem gerð var samkvæmt eldri reglum, að seljandi þurfi að hafa sýnt af sér sök, heldur á kaupandi rétt á skaðabótum vegna beins tjóns síns af völdum galla óháð sök seljanda. Sérstaklega er tekið fram, að undir beint tjón falli tjón sem felst í því að bæta úr galla. Það er bara ef ófyrirséð og óviðráðanleg hindrun er orsök gallans, sem seljandi gæti losnað undan ábyrgð, en skil- yrðum þess yrði vafalaust afar sjaldan full- nægt. Skýrari réttur til skaðabóta vegna afhendingardráttar Í fjórða lagi er réttur kaupanda til skaða- bóta vegna afhendingardráttar seljanda einnig styrktur. Þegar framboð á fasteignum er lítið miðað við eftirspurn er staða kaupanda oft slæm ef seljandi afhendir ekki á réttum tíma. Hann er oft nauðbeygður til að láta það yfir sig ganga að seljandi dragi afhendinguna. Í lögunum er mælt fyrir um að hann eigi rétt til skaðabóta vegna beins tjóns síns og er sá rétt- ur óháður því hvort seljandi hafi sýnt af sér saknæma háttsemi. Sérstaklega er tekið fram í lögunum að til beins tjóns í þessu sambandi teljist kostnaður við að bæta úr afhending- ardrætti, en til hans teljast t.d. útgjöld vegna leigu á húsnæði meðan á afhendingardrætti stendur og kostnaður við aukaflutninga af þeim ástæðum. Ný og/eða rýmri úrræði, krafa um að seljandi bæti úr galla Í fimmta lagi eru önnur úrræði kaupanda vegna galla og annarra vanefnda seljanda styrkt og aukin. Sem dæmi má nefna að hon- um er veitt heimild til þess að gera þá kröfu að seljandi bæti úr göllum á eign, ef seljandinn er byggingaraðili eða hefur smíðað innréttingar í hana. Sinni seljandi ekki réttmætum kröfum um þetta getur hann átt yfir höfði sér önnur og afdrifaríkari úrræði af hálfu kaupanda. Réttur til að beina kröfum að fyrri eigendum Í sjötta lagi eru í lögunum reglur, sem heimila kaupanda undir vissum kringumstæð- um að sækja rétt sinn vegna galla á hendur fyrri eigendum, en þeim sem hann keypti af. Þessi kostur hefur verið nánast útilokaður til þessa. Samkvæmt reglum laganna er opnað fyrir það að kaupandi beini kröfum sínum að fyrri eigendum, en óhjákvæmilegt er þó að setja því nokkrar skorður, einkum vegna þess að ekki má auka skyldur fyrri seljenda í þágu síðari kaupenda. Þetta er því frekar réttar- farshagræði sem kaupandi fær, en getur þó aukið efnislegan rétt hans. Þessi réttur er kaupanda oft mikilvægur, t.d. ef sá sem seldi honum er ekki greiðslufær eða þess ekki kost- ur að beina kröfum gegn honum. Yfirtaka áhvílandi veðskulda Sú venja hefur gilt í fasteignakaupum, að þótt réttindi og skyldur sem tengjast fasteign, flytjist almennt frá seljanda til kaupanda við afhendinguna, þá hefur kaupandi samt þurft að yfirtaka afborganir af áhvílandi veðskuld- um frá þeim degi er kaupin takast, þ.e. frá samþykki tilboðs. Þessu er breytt með nýju lögunum og mælt fyrir um að yfirtaka áhvíl- andi veðskulda skuli að öllu leyti miðuð við af- hendingu. Þetta er nokkurt réttlætismál fyrir kaupanda og getur varðað nokkrum fjárhæð- um. Jafnvægi milli hagsmuna viðhaldið Eins og áður greinir er markmiðið að við- halda heppilegu jafnvægi milli hagsmuna kaupanda og seljanda. Fasteignakaup snúast um mikla fjárhagslega hagsmuni og þess verð- ur að gæta við lagasetningu að raska ekki því jafnvægi sem ríkja verður milli aðilja um skiptingu áhættu, um tilefni og rétt til að hafa uppi kröfur vegna vanefnda o.fl. Mikilsvert er fyrir kaupanda að gæta sín vel, þegar hann leggur út í fasteignakaup. Hann ætti að skoða eign vandlega, hafa einungis raunhæfar vænt- ingar um kosti eignarinnar miðað við gerð hennar, aldur og almennt ástand. Vilji hann gera meiri kröfur verður hann að semja um það við seljanda, þannig að ljóst sé að seljandi hafi tekið á sig meiri skyldur en almennt mætti ætla. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.