Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 C 15HeimiliFasteignir Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteigna- og skipasali Ásmundur Skeggjason. lögg. fasteigna- og skipasali. 3JA HERB. Eyrarholt Hf. Einkalóð, glæsi- íbúð! Vorum að fá til sölu stórglæsilega 100 fm íbúð á jarðhæð m. sérgarði til suðurs. Húsið stendur hátt og er því flott útsýni. 1. flokks innréttingar, sérþvottaherb. Ekki missa af þessari! (2586) Birkihlíð Hf. - sérgarður til suð- urs! Mjög góð 82 fm íbúð á jarðhæð með sérgarði. Rúmgóð svherb. og stofa, þvottaherb. í íbúð, góð hellul. sérverönd til suðurs, stutt í skóla fyrir börnin svo og alla þjónustu. V. 10,9 millj. (2588) Hvammabraut Hf. - Útsýni! Hörkugóð 3ja herb. 91 fm „penthouse“ íbúð á tveimur hæðum. Íbúðin er mjög björt og rúm- góð, parket og dúkar á gólfum, góð sameign. Glæsilegt útsýni vestur yfir Hafnarfjörðinn. Íbúð- in er laus. V. 10,7 millj. (2583) Miðvangur Hf. Nýklætt með áli! Erum með á skrá stóra og rúmgóða 3-4ra herb. rúmlega 100 fm íbúð á 1. hæð í húsi sem verið er að klæða að utan með glæsilegri sléttri ál- klæðningu. Kr. 0 viðhald næstu áratugina að ut- an!? Góð kaup! V 11,9 millj. (2506) 4-6 HERB. Suðurbraut Hf. - Flott íbúð! Falleg 101 fm íbúð í glæsilegu fjölbýli á gamla holtinu í Hafnarfirði. Þrjú rúmgóð svefnherb., björt og stór stofa. Þvottahús í íbúð. Gott útsýni. Þú gætir misst af þessari nema þú bjallir í okkur strax!! V. 11,9 millj. (2582) Hrísmóar Gbæ. Falleg 4ra herbergja rúmlega 100 fm íbúð á tveimur hæðum við Garðatorg. Sérinngangur af svölum. Stórar suðursvalir. Stutt í alla þjónustu. Verð 13,5 millj. (2461) Guðjón Guðmundsson, viðskiptafræðingur, sölustjóri. Guðmundur Karlsson, sölumaður. Þórey Thorlacius, skjalavarsla. Hafnarfjörður SUMARHÚS Sumarhús Borgarfirði - Heils- árshús! Þau gerast ekki glæsilegri sumarhúsin heldur en þessi! - Rétt við Munaðarnes á friðsælum frá- bærum stað. 4 svefnherb., 1. flokks innréttingar, stór lóð, stór verönd. Einstaklega vandað hús! Talaðu við Guðjón á Höfða. NÝBYGGINGAR Svöluás Hf. - Glæsilegt parhús - Útsýni! Parhús á flottum ÚTSÝNISSTAÐ á besta stað í Áslandinu í Hafnarfirði. Útsýni frá efri hæð vest- ur yfir Hafnarfjörð og norður til höfuðborgarinn- ar, fjögur rúmgóð svefnherb. og tvær stórar stof- ur, svalir á efri hæð og gengt út á verönd frá borðst. á j.hæð. Hafðu samb. sem fyrst! (2054) Erluás Hf. - Ekki missa af þess- ari! Frábært 191 fm endaraðhús í 3ja raðhúsalengju á góðum útsýnisstað í Áslandi. Húsið er á 2 hæðum og er gott útsýni af efri hæðinni. Tilbúið til afhendingar fjótlega fokhelt að innan, fullbúið að utan. V. 13,4 millj. Vogar Vatnsleysuströnd Parhús á einni hæð m. skúr. V. 8,9 millj. Kríuás Hf.- Afh. fulleinangruð! Falleg 240 fm miðraðhús á 2. hæðum í fjögurra raðhúsalengju, innst í efsta botnlanganum í Kríu- ásnum í Hafnarf. V. 13,3 millj. Þrastarás Hf. Raðhús á flottum ÚTSÝNISSTAÐ á besta stað í Ás- landinu í Hafnarfirði. Útsýni frá efri hæð vestur yf- ir Hafnarfjörð og norður til höfuðborgarinnar. Erluás Hf. Sérlega glæsilegt einbýlishús á einni hæð á góð- um stað í vesturhlíðinni í Áslandinu. (2433) Svöluás Hf. Fallegt 208 fm parhús á tveimur hæðum á góðum stað í Áslandinu í Hf. V. 13,7 millj. (2420) Kríuás Hf. Fallegt 218 fm miðjuraðhús á tveimur hæðum, þ.a. 36,5 fm bílskúr, í fjögurra raðhúsalengju efst í botnlanga. V. 12,8 millj. K í k t u á h e i m a s í ð u n a o k k a r w w w . h o f d i . i s Bæjarhraun 22 Fax 565 8013 Sími 565 8000 Opið kl. 9-17 virka daga  www.hofdi.is Fyrir fólk í Firðinum Álfholt Hf. Rúmgóð og vel skipulögð 100 fm íbúð á 3. hæð. Útsýni. Íbúðin er laus. V. 11,6 millj. (2459) SÉRHÆÐ Borgarás Gbæ. - Sérinngangur! - Laus! Hörkugóð efri sérhæð með sérinngangi í Ása- hverfinu í Garðabænum. Þrjú svefnherb. og tvær stofur. Útsýni og stór og góð lóð til suðurs. Laus! V. 11,5 millj. (1298) EINBÝLI Súlunes Gbæ - Sérlega vandað hús! Fallegt og vandað einbýlishús á góðum stað. Stórar stofur, sjónvarpshol og þrjú svefn- herbergi. Merbau parket og flísar á gólfum, stórt eldhús, nýtt baðherbergi. Sólpallar sitt hvoru megin við húsið. Hús sem er vert að skoða! Verð 29,9 millj. (2434) Draumahæð Gbæ-Glæsieign! Glæsilegt 150 fm raðhús með innb. bílskúr á vinsælum stað. Jatoba parket á gólfum, mahóni hurðir og innréttingar. Flísalagt baðherb. með hornbaðkari og sturtu. Hátt til lofts að hluta í íbúð. Kíktu á þessa! (2409) Skráðu íbúðina hjá okkur þér að kostnaðarlausu mikil eftirspurn - mikil sala! ÁÐUR fyrr gengu púkarljósum logum í öllumprentsmiðjum, illgjarnirskrattar sem kallaðir voru prentvillupúkar. Þessir skratta- kollar eiga ekki eins hægt um vik og áður, tölvutæknin ætti að gera þeim erfitt fyrir. En þeir eru ótrúlega líf- seigir, þótt efni sé sent rafrænt og ekki ætti nokkur hönd eða hugur að komast til að breyta texta eða orð- um gerist það samt af og til. Í síðasta pistli var þessi undirfyr- irsögn „Hvaða snjóbræðslurör?“ og síðan var lagt út af því, en einhvers- staðar á leiðinni frá tölvu pistilhöf- undar og inn á síður Morgunblaðs- ins tókst einhverjum púkanum að breyta þessum tveimur orðum í „Hvaða snjóbræðslukerfi?“ Púkinn finnst hvergi, hann situr á einhverjum bitanum og hlær dátt og við skulum snúa okkur að efninu. Það er búið að velja snjó- bræðslurörin, það var gert í síðasta pistli, eindregið mælt með polyeten- rörum sem annaðhvort eru nefnd PEM eða PE-RT. Undirlagið Það er sama hvort leggja skal snjóbræðslukerfi undir hellur, mal- bik eða steypu, það á aldrei að leggja sandlag undir rörin, en því miður sjást slík fyrirmæli oft frá virtum hönnuðum. Undirlagið á að vera slétt og vel þjappað úr „sta- bílu“ efni, engan lausan sand. Þetta undirlag þarf að vanda, þjappa það vel og umfram allt að hæðin sé rétt. Þannig verða snjóbræðslurörin hvarvetna á sama dýpi og bræðslan jöfn. Ef lagður er laus sandur, sem ekki er hægt að þjappa, segjum 5 cm sandlag, er engin leið að tryggja að rörin verði hvarvetna á sama dýpi. Tengingar innanhúss Ekki nota varmaskipti (forhitara) nema í ítrustu neyð. Sú neyð kemur aðeins upp ef snjóbræðslukerfið er innsteypt í plötu eða tröppum. Ef í slíkum rörum frýs er voðinn vís. Þá hefur vatnið enga möguleika til þenslu, sprengir steypuna og rörin eyðileggjast. Í slíkum tilfellum er ekki hægt að komast hjá því að nota varmaskipti og hafa frostlagarblöndu á snjó- bræðslukerfinu. Það fylgir því margvíslegt óhag- ræði að nota varmaskipti og frost- lög. Í fyrsta lagi eykur það kostnað og í öðru lagi gerir það snjóbræðslu- kerfið miklu erfiðara og viðkvæmara í rekstri. Svo mikið lán sem jarðhitinn er fylgja honum ýmsir agnúar svo sem útfellingar ýmiss konar efna sem setjast í kerfi og lagnahluta. Ekkert tæki er eins viðkvæmt fyrir útfell- ingum eins og varmaskiptir með sín- ar þröngu vatnsrásir, sem engin leið er að komast að því núverandi varmaskiptar eru heillóðaðir; þá er ekki hægt að taka í sundur. Það er veruleg óhagkvæmni að því að neyðast til að nota varma- skipti vegna þess að í snjó- bræðslukerfi, sem er að mestu undir hellum, eru einnig tröppur með innsteypum rörum. Rör-í-rör kerfi í tröppur Það sem vantar er að rör í tröpp- um hafi þenslumöguleika ef í þeim frýs og það er hægt að gera og hefur verið gert með ágætum árangri. Snjóbræðslurör, sem eru 25 mm að þvermáli, eru þá dregin í bárað rör, barka, sem er 35 mm að þver- máli, síðan er þessi barki með ídregnum snjóbræðslurörum lagður í tröppurnar eftir þeim lögmálum sem þar gilda og eru mjög mikilvæg. Margir fróðir menn hafa haft vantrú á að þetta geti gengið en reynslan sýnir annað, sýnir jafnvel betri bræðslu en ef rörin eru lögð beint í steypuna. Á því eru einfaldar skýringar sem ekki er rúm til að rekja hér. Þessi útfærsla á snjóbræðslulögn í tröppur sparar einnig mikla fjár- muni og gerir snjóbræðslukerfið miklu öruggara í rekstri, þökk sé því að hægt er að losna við varmaskipti, frostlög og annað sem því fylgir. Skoða þarf hverja tengingu fyrir sig Það einfaldasta er oftast það besta, það er fyrsta reglan. En það verður að skoða hverja tengingu fyrir sig; hvað er húsið stórt, hvað gefur það mikið afrennslisvatn, hvað er snjóbræðslukerfið stórt, nægir afrennslisvatnið eingöngu eða þarf beint rennsli til að bæta við þegar þörfin er mest. Þetta innbyrðishlutfall getur ver- ið þannig að rétt sé að setja dælu á snjóbræðslukerfið til að beina inn- spýtingin og afrennslisvatnið bland- ist betur saman og bræðsla verði jafnari á svæðinu. Þess vegna á það að vera regla að þegar lagt er snjóbræðslukerfi (þá er auðvitað verið að meina hin minni kerfi), á að gera sér grein fyrir kerf- inu í heild, ekki aðeins fleygja niður einhverjum metrafjölda af rörum og vona að svo komi einhver með viti að málinu og hnýti alla lausa enda. Svolítið meira um snjóbræðslukerfi Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is Einföld tenging snjóbræðslukerfis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.