Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 26

Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir M ÖRGUM finnast timbur- hús hlýlegri en stein- hús. Það er sagt að þau andi betur og loftið þar sé heilnæmara en í steinhúsum. Þá eru þau öruggari í jarðskjálftum. Síðast en ekki sízt þá eru timb- urhús hagkvæm og byggingar- kostnaður þeirra yfirleitt lægri en nýrra steinhúsa. Timburhús hafa því ávallt notið vinsælda hér á landi og gera það enn, því að talsvert hefur verið byggt af íbúðarhúsum úr timbri hér á undanförnum árum, jafnt í þétt- býli sem annars staðar að ógleymd- um öllum sumarhúsunum, sem byggð eru nær eingöngu úr timbri. Timbrið í þessi hús hefur komið frá mörgum löndum og sumt er fram- leitt hér á landi. Nú hafa fasteignasalan Eignaval og Jón Hjörleifsson, umboðsmaður hér á landi fyrir finnsku fyrirtækin Finndomo og Rantasalmi, hafið samstarf um sölu á timburhúsum frá þessum fyrirtækjum. „Þetta er áherzlubreyting hjá okkur, þar sem þessi hús eru raun- verulega lausafé, þar til þau hafa verið reist á viðkomandi lóð,“ segir Sveinn Óskar Sigurðsson hjá Eignavali. „Ég tel samt, að þessi samvinna sé í senn raunhæf og skynsamleg. Fólk leitar til fasteignasala, ef það ætlar sér að kaupa eign.Við höfum sérþekkingu á kerfinu og getum aðstoðað fólk við lántökur og og margt annað, sem þarf til þess að koma sér upp húsi af þessu tagi. Allt ferlið verður mun auðveldara fyrir kaupendur. Markmiðið er að sýna sem mesta ábyrgð á ferlinu frá því að efnið er flutt inn sem lausafé og þar til húsið er risið og orðið að fasteign.“ Bjálkahúsin nálgast fjörutíu Jón Hjörleifsson er rafvirki og starfaði lengi sem slíkur. Bjálkahús frá Finnlandi, sem hann hefur selt hér á landi nálgast nú fjörutíu og einingahúsin eru orðin átta og fjög- ur á leiðinni. Að hans sögn er áhugi á timburhúsum mikill og greinilegt, að markaðurinn fyrir þau er langt frá því að vera mettaður. „Ég er umboðsmaður en um leið starfsmaður þessara finnsku fyrir- tækja, sem eru mjög stór og ábyrg fyrirtæki í sínu heimalandi,“ segir Jón Hjörleifsson. „Kaupendur kaupa því húsin beint af þeim. Hlutverk mitt er að aðstoða kaup- endur í hvívetna, en ég sel bara efnið í húsunum. Mitt verkefni er ekki að koma húsunum upp og selja þau síðan. En ég aðstoða kaupendur með alla flutninga, útvega þeim arkitekta, smiði og aðra iðnaðarmenn. Ég get meira að segja útvegað þeim afslátt á húsgögnum og innréttingum, þeg- ar að því kemur að kaupa þær í húsið.“ Sjálfur hefur Jón komið sér upp bjálkahúsi frá Rantasalmi og stend- ur það við Reykjamel 11 í Mos- fellsbæ. Húsið er alls 230 ferm. og á tveimur hæðum og stendur í halla á 5.000 ferm. lóð. Steyptur sökkull er undir húsinu, auk þess sem það er að nokkru leyti steypt inn í hall- ann. „Ég og kona mín, Sigrún Ágústs- dóttir, keyptum fyrir 13 árum lög- býlið Blómvang í Mosfellsbæ, sem eftir því sem ég veit bezt er fyrsta garðyrkjubýli landsins,“ segir Jón. „Því fylgdu 10.000 m2 af landi og 25 mínútulítrar af heitu vatni. Við bjuggum í gamla íbúðarhús- inu í fjögur ár, en það var draumur okkar að koma upp bjálkahúsi á lóðinni og árið 1994 létum við til skarar skríða og héldum til Finn- lands til þess að finna rétt hús. Við fengum frábærar móttökur hjá fyr- irtækinu Rantasalmi, sem hefur sitt aðalaðsetur inni í miðju Finnlandi og okkur leizt svo vel á húsin frá þessu fyrirtæki, að við ákvaðum að kaup hús frá því. Fluttu inn 1997 Efnið í þetta hús kom til Íslands með skipi í október sama ár. Við tókum okkur góðan tíma til þess að reisa húsið og fluttum inn 1997. Það þarf ekki að orðlengja það, að húsið hefur staðið sig frábærlega vel og við hjónin erum afar ánægð með það. Eins og að framan segir, stendur húsið á stórri lóð, þannig að það er vel rúmt um það og á meðan við hjónin bjuggum í gamla húsinu höfðum við plantað grenitrjám, ösp og fleiri trjátegundum á lóðinni um- hverfis, sem hafa dafnað vel. En þetta varð líka upphafið að starfi mínu sem umboðsmaður fyrir Rantasalmi hér á landi, því að fyr- irtækið hafði engan slíkan hérlendis á þeim tíma, en ég taldi víst, að hér væri markaður fyrir bjálkahús frá þessu fyrirtæki, eins og líka hefur orðið raunin. Þess má geta, að eftir að við vor- um flutt inn í bjálkahúsið okkar, kom það iðulega fyrir og gerir enn, að fólk, sem á leið þarna um, bank- ar upp hjá okkur yfir sig hrifið af þessu húsi og vill fá að vita sem flest um það. Þetta var að sjálf- sögðu mikil hvatning fyrir okkur og það má segja, að þannig hafi æv- intýrið byrjað og við tókum að selja þessi hús.“ Jón segir erfitt að segja fyrir um nákvæmt verð á bjálkahúsum. „Þau geta verið einföld eða flókin, eftir því sem hver vill og verðið fer eftir því,“ bætir hann við. „Það er mjög misjafnt, hvað í þessi hús er borið. Það fer algerlega eftir óskum fólks og verðið er að sjálfsögðu misjafnt eftir því. Sjálf unnum við hjónin mikið í okkar húsi og kynntumst þessum byggingarmáta afar vel. En með þessu spöruðum við líka mikla peninga.“ Einingahúsin ódýr kostur Auk bjálkahúsanna flytur Jón Hjörleifsson inn einingahús úr timbri frá finnska fyrirtækinu Finndomo. „Þessi hús koma tilbúin í einingum og eru sett saman eins og mekkanó á steyptan sökkul,“ segir Jón. „Einangrunin er í út- veggjum. Að utan koma húsin grunnmáluð með standandi klæðningu, en auð- vitað geta kaupendur sett aðra klæðningu á, ef þeim sýnist svo en þá verður húsið auðvitað dýrara. Það tekur mjög skamman tíma að reisa þessi hús, eftir að sökkull- inn er kominn. Fjórir til fimm menn ljúka því á innan við mánuði.“ Jón segir Finndomo vera stærsta framleiðanda timburhúsa á Norð- urlöndum og fyrirtækið hafi um 60 ára reynslu í framleiðslu á eininga- húsum, bjálkahúsum og öðrum hefðbundnum timburbyggingum. Jón fullyrðir að þetta sé afar ódýr kostur miðað við gæði húsa og sparnaðurinn sé ekki hvað sízt fólg- inn í því, hvað það tekur skamman tíma að klára húsin. „Margir hlutir í þessum húsum er forunnir og allt upp í það að vera algerlega tilbúnir, þegar þeir koma,“ segir hann. Vistvæn hús „Það var erfitt að byrja og kom- ast inn á markaðinn,“ heldur Jón áfram. „En þessi finnsku hús hafa sannað gildi sitt og smám saman hefur markaðurinn fyrir þau hér á landi verið að stækka. Þess má geta, að húsin eru eingöngu byggð úr vistvænum efnum, það er þau geta brotnað niður í náttúrunni. Þetta á við um límingar, einangrun og annað, svo að það er engin hætta á að þau mengi út frá sér. Þetta er kostur, sem er mikils metinn víða um lönd, en tilfinningin fyrr vistvænum efnum fer nú ört vaxandi. Við Íslendingar erum því miður langt á eftir í þessu tilliti, en hér á landi er enn mikið notað af mengandi efnum, þrátt fyrir mikinn áróður fyrir hinu gagnstæða og bættu umhverfi yfirleitt.“ Ég tel reynsluna hafa sýnt, að þessi finnsku hús eru mjög raun- hæfur kostur hér á landi miðað við verð og gæði,“ sagði Jón Hjörleifs- son að lokum. „Það þarf því ekki að koma á óvart, að þau hafa hlotið mjög góðar viðtökur.“ Finnsk bjálkahús og ein- ingahús úr timbri eftirsótt Fasteignasalan Eignaval og Jón Hjörleifsson, um- boðsmaður fyrir finnsku fyrirtækin Rantasalmi og Finndomo, hafa tekið höndum saman um sölu á timburhúsum. Magnús Sigurðsson kynnti sér þessi hús, en þau hafa verið að vinna sér sess hér á landi á síðustu ár- um. Morgunblaðið/Golli Framhlið bjálkahússins Reykjamelur 11. Húsið stendur í halla á 5.000 ferm. lóð. Steyptur sökkull er undir húsinu, auk þess sem það er að nokkru leyti steypt inn í hallann. Séð inn í arinstofu á neðri hæð og borðstofu á efri hæð. Hjónin Sigrún Ágústsdóttir og Jón Hjörleifsson fyrir fram- an bjálkahús þeirra við Reykjamel 11 í Mosfellsbæ. Húsið er alls 230 ferm. og á tveimur hæðum. Nýtt einingahús frá Finndomo, samtals um 220 ferm. með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur við Jónsgeisla í austurhluta Grafarholts. Leikskólinn Undraland í Kópavogi er byggður úr timbureiningum frá Finndomo.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.