Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 44
44 C ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
564 1500
20 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
SJÁ NÁNAR FLEIRI EIGNIR Á NETINU WWW.EIGNABORG.IS/—
Víðihvammur 211 fm einbýli á
tveimur hæðum, 5 svefnh. tvær stofur,
stór lóð.
Skólagerði 132 fm parhús á tveimur
hæðum. 3 svefnh. 32 fm bílskúr, laust
strax.
Neðstatröð 125 fm parhús á tveimur
hæðum, 4 svefnh. 23 fm bílskúr.
Bræðratunga 124 fm raðhús á
tveimur hæðum, 3 svefnh. Laust fljótl.
Áhv. 3,0 m. Byggsj.
Reynihvammur 191 fm efri hæð
ásamt bílskúr í tvíbýli, glæsilegar innrétt-
ingar í eldhúsi, þrjú rúmgóð svefnherb.
Maghony skápar í herbergjum, rúmgóð
stofa, tvennar suðursvalir, Merbauparket
og flísar á gólfum, flísalagt baðherbergi,
flísalagt gólf í bílskúr, mikið útsýni. Eign í
sérflokki.
Hlíðarvegur 102 fm efri hæð, sér-
smíðaðar innréttingar úr kirsuberjavið,
Merauparket og flísar á gólfum tvö stór
svefnherbergi, tvö sérbílastæði.
Skólagerði 4ra herb. íbúð á efri hæð
í tvíbýli, þrjú svefnh. Parket á stofu, suður-
svalir., 34 fm bílskúr.
2JA TIL 4RA HERB. ÍBÚÐIR
Austurbrún 48 fm 2ja herb. á 12.
hæð flísalagt baðherb. Vestursvalir, laus
strax.
Hávallagata 55 fm 2ja herb. á 2.
hæð, eldhús með ljósri innréttingu með
beykiköntum, parket, laus fljótlega.
Furugrund 2ja herb. á 1. hæð eikar-
innrétting í eldhúsi, suðursvalir.
Lundarbrekka 88 fm á 2 tvö
svefnh. Parket á herb. og stofu, suður-
svalir. Laus strax.
Sæbólsbraut 95 fm 4ra herb. íb. á
3. hæð, hvít innr. í eldh. með beykikönt-
um, 3 rúmgóð herb. parket, suðursvalir.
Lindarsmári Glæsileg 151 fm 6 her-
bergja íbúð á tveimur hæðum, glæsilegar
innréttingar, parket á gólfum, arinn í stofu.
Naustabryggja 149 fm 5 herb. íbúð
á 2. hæð, mjög björt og glæsileg íbúð
með fallegum innréttingum, tvær stofur,
olíborið parket á gólfum. Einkasala
Gauksás - Hafn. 205 fm raðhús
tilb. Tilb. til málningar að utan, fokh. að
innan, 26 fm bílskúr, mikið útsýni.
Skjólsalir 153 fm raðhús á og 30 fm
bílskúr, til afh. strax.
Veiðijörð Laxveiðijörðin Hamrakot í Torfalækjahreppi í Austur-Húnavatnssýslu.
Nýlegt 60 fm steinhús er á jörðinni. Jörðinni tilheyrir veiðiréttur í Fremri-Laxá á Ás-
um og í Laxá á Ásum, svo og í Laxárvatni. Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Grímsnes 53 ha land, tilvalið fyrir sumarhúsabyggð eða skógrækt. Borhola
með köldu vatni og möguleiki á heitu vatni. Á landinu er 54 fm hús.
JARÐIR
13076 Sala færanlegra íbúðarhúsa
Tilboð óskast í nokkur færanleg íbúðarhús í eigu rík-
issjóðs. Húsin voru sett upp á Suðurlandi, eftir jarðskjálft-
ana sumarið 2000. Húsin verða seld til brottflutnings.
Um er að ræða fullinnréttuð, flytjanleg timburhús, fest
á súluundirstöður. Byggingarár 2000. Húsin eru byggð
samkvæmt íslenskri byggingarreglugerð.
Um er að ræða tvær gerðir húsa, þ.e. norsk timburhús,
flatarmál 79,5 m² og íslensk timburhús, frá SG-húsum,
Selfossi, flatarmál 73,5 m².
Húsin eru til sýnis í samráði við Fannberg ehf., Þrúðvangi
18, 850 Hellu, símar 487 5028 og 487 5228, sem einnig
veitir allar nánari upplýsingar, afhendir tilboðsblöð og
byggingarlýsingar. Tilboðseyðublöð og byggingarlýsing-
ar liggja einnig frammi í afgreiðslu Ríkiskaupa, Borgar-
túni 7, 105 Rvík.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11.00 fimmtu-
daginn 11. júlí 2002. Áskilinn er réttur til að hafna þeim
kauptilboðum sem ekki teljast viðunandi.
DANMÖRK er landfræðilega nær
Evrópu en hin Norðurlöndin, enda
brú germanskra þjóðflokka er þeir í
fyrndinni streymdu norður á bóginn
til Skandinavíuskagans. Danmörk
var á síðmiðöldum þróaðasta ríkið á
Norðurlöndum og var ótvírætt
sterkasti aðilinn í Kalmarsamband-
inu, þar til Svíar risu þar upp undir
forystu Gústafs Vasa.
Svíþjóð efldist upp frá því sem öfl-
ugasta ríki Norðurlanda, en Dana-
veldi hnignaði stöðugt og eru nú ein-
ungis Færeyjar, Grænland og
Borgundarhólmur eftir af gamla
stórdanska Atlantshafs- og Eystra-
saltsveldinu.
Eftir að Danir duttu út úr hlut-
verki sínu sem Norðurlandastórveldi
hafa þeir getað snúið sér að því að
rækta sinn eigin garð og hefur að
mörgu leyti tekist það þjóða best.
Fyrirkomulag húsnæðis- og skipu-
lagsmála í Danmörku er meðal fjöl-
margra vitnisburða um þetta.
Danska húsnæðislánakerfið er
það elsta á Norðurlöndum og nær
saga þess til um 1850, er sett voru
lög um stofnun lánafélaga, sem veita
skyldulán til fasteigna, þar á meðal
til byggingar íbúðarhúsnæðis.
Dönsku lánastofnanirnar (real-
kreditinstituter) sem starfa á vorum
dögum eiga uppruna sinn í þessum
lánafélögum. Hliðstæð þróun hefur
ekki orðið á hinum Norðurlöndun-
um, en þessi dönsku félög líkjast
lánastofnunum víða í Evrópu, t. d.
bæði svokölluðum “Bausparkassen“
í Þýskalandi og “Building Societies“
í Bretlandi.
Mikilvægi
byggingarfélaga
Fyrr á öldum náði hin evrópska
borgarmenning lítt til Norðurlanda,
þó helst til Danmerkur. Strax á 17.
öld bjuggu um 20% Dana í borgum
og bæjum. Það hlutfall fór svo mjög
hækkandi samfara iðnvæðingu
landsins á 19. öld. Kaupmannahöfn
bar ætíð höfuð og herðar yfir aðrar
borgir og bæi Danmerkur, var jafn-
framt stærsta borg Norðurlanda og
er það raunar enn í dag.
Verkalýðshreyfing Norðurlanda
lét sömuleiðis fyrst til sín taka í Dan-
mörku og fyrsti kosningasigur nor-
rænna jafnaðarmanna átti sér stað í
Kaupmannahöfn er tveir sósíal-
demókratar voru kjörnir á danska
þingið árið 1886. Þá var við völd
stjórn erkiíhaldsmannsins Estrups,
sem í anda þýska járnkanslarans
Bismarcks taldi rétt að slá vopnin úr
höndum sósíalista með því að ganga
að einhverju leyti að kröfum þeirra.
Það var m.a. gert með setningu
fyrstu löggjafarinnar um opinberar
lánveitingar til íbúðabygginga fyrir
alþýðu manna árið 1887.
Byggingarfélög af ýmsu tagi
höfðu starfað frá um 1850, sum í
anda hugsjónastarfs og mannvin-
áttu. Mikil uppgangsár í íbúðabygg-
ingum á frjálsum markaði á fyrstu
árum 20. aldar enduðu árið 1908 með
hruni á húsnæðismarkaði og kreppu-
ástandi árin á eftir.
Þetta leiddi til þess að danska
verkalýðshreyfingin fór upp úr 1910
að beita sér skipulega í húsnæðis-
málum með stofnun byggingarfélaga
og byggingarsamvinnufélaga verka-
manna, fyrst í Kaupmannahöfn og
svo um alla Danmörku. Vafalítið er
að fyrstu slíkar félagastofnanirnar
hér á landi árin 1919 og 1929 höfðu
hina dönsku reynslu sem beinar
fyrirmyndir.
Meðal helstu húsnæðisfrömuða
Dana á fyrstu áratugum 20. aldar er
einkum getið trésmiðsins Jens
Christians Jensens (1887–1956), sem
hófst til forystu í sínu fagfélagi og
síðan innan húsnæðishreyfingarinn-
ar. Hann hlaut hið öfugmælakennda
viðurnefni „Christian bolignød“ sök-
um þess hve einarðlega hann barðist
gegn eymdarástandi í húsnæðismál-
um hinna efnaminni.
Dönsku húsnæðisfélögin voru þau
öflugustu á Norðurlöndum þegar á
millistríðsárunum. Að lokinni síðari
heimsstyrjöldinni var í Danmörku
byggt upp velferðarríki með líkum
hætti og annars staðar í Skandinav-
íu. Öfugt við það sem gerðist hér á
Íslandi var heildstæð húsnæðis-
stefna frá upphafi einn helsti þáttur
danska velferðarþjóðfélgsins.
Danska húsnæðiskerfið einkenn-
ist ekki síst af mikilvægi húsnæðis-
félaganna. Ólíkt því sem gerist í Sví-
þjóð eru félagslegar leiguíbúðir ekki
reknar af fyrirtækjum í eigu sveitar-
félaganna, húsnæðisfélögin dönsku
teljast vera frjáls félagasamtök; sem
slík eru þau af sama meiði og danska
verkalýðshreyfingin. Mikil áhersla
hefur í Danmörku verið lögð á íbúa-
lýðræði meðal leigjenda, sem um
langt árabil hefur vakið víðtæka at-
hygli í öðrum löndum.
Róttækar breytingar fram
undan?
Undanfarin 15–20 ár hafa víða um
heim orðið miklar sviptingar í hús-
næðismálum, sem hófust með vax-
andi áhrifum nýfrjálshyggjunnar á
níunda áratug 20. aldar. Á Norður-
löndum hefur slíkra sviptinga hingað
til gætt einna minnst í Danmörku.
Eftir valdatöku ríkisstjórnar mið-
og hægri flokka í lok síðasta árs er
þetta hins vegar að breytast. Hin
nýja stjórn Anders Fogh Rasmussen
hefur það á stefnuskrá sinni að heim-
ila sölu félagslegra leiguíbúða til
íbúa þeirra með sama hætti og gert
var í stórum stíl í Bretlandi á valda-
tíma Margrétar Thatcher.
Ríkisstjórn Rasmussens hefur í
þessu skyni skipað sérfræðinga-
nefnd sem ætlað er að skila tillögum
um kauprétt leigjenda þann 1. jan-
úar 2003. Jafnaðarmenn og Land-
samtök húsnæðisfélaganna (Bolig-
selskabenes Landsforening) hafa
snúist kröftuglega gegn þessum til-
lögum. Þær hafa þó fengið allgóðan
hljómgrunn og allar líkur á að þeim
muni verða hrint í framkvæmd á
næstu árum.
Meðal annarra aðgerða hinnar
nýju ríkisstjórnar dönsku borgara-
flokkanna sem hrist hafa upp í kra-
tískri húsnæðisstefnu Dana má
nefna að sjálft húsnæðisráðuneytið,
sem stofnað var um það leyti sem
uppbyggingarskeið eftirstríðsár-
anna hófst, hefur nú verið lagt niður.
Þá eru einnig uppi tillögur um að
leggja niður öflugustu rannsóknar-
stofnun danska húsnæðisgeirans,
Byggingarrannsóknastofnun ríkis-
ins (Statens byggeforskningsinsti-
tut).
Athyglisvert er að ríkisstjórn
Rasmussens er fyrsta borgararlega
ríkisstjórnin í Danmörku sem leggur
af stað með róttækar breytingar í
húsnæðismálum. Ríkisstjórn Pouls
Schlüters, sem var við völd mestall-
an 9. áratuginn, framkvæmdi t.d.
engar slíkar breytingar. Nú eru hins
vegar augljóslega breyttir tímar
runnir upp í ríki Dana.
Morgunblaðið/Golli
Frá Kaupmannahöfn. Danska húsnæðislánakerfið er það elsta á Norðurlöndum og nær saga þess til um 1850, er sett
voru lög um stofnun lánafélaga, sem veita skyldulán til fasteigna, þar á meðal til byggingar íbúðarhúsnæðis.
Húsnæðismál
íDanmörku
Breyttir tímar
eftir Jón Rúnar Sveinsson, félags-
fræðing á húsnæðissviði Borgar-
fræðaseturs, jonrunar@hi.is