Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Færeyskir dagar um helgina
Færeyskt fjör
í Ólafsvík
ÓLAFSVÍK munsannarlega skrýð-ast hátíðarbúningi
um næstu helgi, en þá
verða haldnir þar Fær-
eyskir dagar í fimmta
sinn. Von er á þúsundum
gesta á hátíðina, og það er
ekkert smáræði að taka á
móti þeim fjölda fyrir bæ
eins og Ólafsvík. Morgun-
blaðið ræddi við Katrínu
Ríkharðsdóttur, sem er
einn af forvígismönnum
hátíðarinnar, af því tilefni,
til að forvitnast um und-
irbúninginn og sögu dag-
anna.
Hvers vegna eru haldn-
ir Færeyskir dagar í
Ólafsvík?
„Jú, þannig er mál með
vexti að fyrir nokkrum ár-
um datt nokkrum einstaklingum
hér í bæ í hug að gera eitthvað
fyrir bæjarfélagið, sem stuðlað
gæti að líflegra mannlífi og til-
breytingu yfir sumartímann.
Mörg önnur bæjarfélög halda ár-
lega sumarhátíð, og má þá nefna
Dönsku dagana í Stykkishólmi.
Hugmyndin um færeyska daga
fæddist í kjölfarið, og ekki að
ástæðulausu. Fjöldi Færeyinga
bjó í Ólafsvík á árum áður, sér-
staklega milli 1950 og 1960, og af-
komendur þeirra búa margir enn
hér í bænum, til dæmis er ég hálf-
færeysk. Okkur langaði til að
rifja upp færeyska menningu og
rækta tengslin milli Íslands og
Færeyja með þessum hætti.“
Og upp frá þessu hafa hjólin
farið að snúast?
„Já, hugmyndin fréttist um
bæinn og við tókum höndum sam-
an um að drífa þetta af stað. Nú
erum við að undirbúa fimmtu há-
tíðina og eigum von á milli sjö og
níu þúsund manns, sem er mikill
mannfjöldi fyrir bæjarfélagið. Við
höfum verið þrjár fjölskyldur við
stjórnvölinn í undirbúningnum
ásamt Pétri S. Jóhannssyni, sem
við viljum sérstaklega þakka, og
einnig njótum við mikillar hjálpar
bæjarbúa.“
Hvaðan koma gestirnir?
„Þeir koma alls staðar að af
landinu. Fjölmargir Færeyingar,
búsettir hér heima, hafa lagt leið
sína hingað, enda er þetta nokk-
urs konar þjóðhátíð þeirra hér á
landi, og einnig þjóðhátíðin okkar
í Ólafsvík. Að síðustu höfum við
notið þess heiðurs að taka á móti
fjölda Færeyinga frá Færeyjum
sem koma til landsins sérstaklega
á hátíðina, til dæmis fengum við
um 200 færeyska ferðamenn í
heimsókn í fyrra.“
Dagskráin er mjög fjölbreytt.
„Já, eftir hádegi á föstudaginn
5. júlí hefst hátíðin með götu-
markaði, og eftir það rekur hvert
atriðið annað. Við bjóðum upp á
tjaldstæði um allan bæ, jafnvel á
kirkjutúninu, einnig gistingu í
heimahúsum og á gistiheimilum.
Einnig settum við leiktæki fyrir
börnin og höldum söngvakeppni
fyrir þau. Stærstu at-
burðirnir eru bryggju-
ballið á föstudagskvöld
og stórdansleikur í
stórglæsilega félags-
heimilinu okkar á Klifi
á laugardagskvöldið, en þar leik-
ur færeyska hljómsveitin Moon-
shot fyrir dansi.“
Þið fáið semsagt færeyska
listamenn til að taka þátt?
„Já, að sjálfsögðu. Við fáum
fyrrnefnda hljómsveit, einnig
færeyska kántrýsöngvarann
Ragnar í Vík, höldum myndlist-
arsýningu færeyskra listamanna
og bjóðum upp á færeyskan mat
handa öllum að smakka.“
Hvernig matur er það?
„Við bjóðum meðal annars upp
á færeyska rúllupylsu, frikkadell-
ur og knetti (fiskibollur), sem við
fáum sent frá Færeyjum með
leyfi heilbrigðisnefndar. Skerpu-
kjötið látum við verka fyrir okkur
á Álftanesi og svo höfum við líka
boðið upp á færeyska súpu, rast-
kjötsuppu, sem hefur verið af-
skaplega vinsæl líkt og allt hitt.
Það er um að gera að grípa tæki-
færið og smakka.“
Undirbúningurinn hlýtur að
vera mikill síðustu dagana?
„Það er allt á fullu, við erum að
snyrta, snurfusa og undirbúa.
Hátíð sem þessi er algjör lyfti-
stöng fyrir bæjarlífið, og þess
vegna er allur undirbúningurinn
kærkominn. Við höfum fengið í lið
með okkur fjölda bæjarbúa sem
eru mjög virkir í undirbúningi.
Þess vegna eru dagarnir sannar-
lega sameiginlegt verkefni bæj-
arbúa. Gestirnir fara strax að
streyma að á fimmtudagskvöld og
reisa tjöldin sín, og verður hér
hin myndarlegasta tjaldborg inn-
an skamms.“
Fjármögnun hátíðarinnar hef-
ur einnig verið í ykkar höndum.
„Já, fyrirtæki í Snæfellsbæ og
Reykjavík hafa stutt okkur
dyggilega við undirbúninginn, og
hefur sú fjáröflunarvinna einnig
sýnt í verki þann samhug sem
sveitarfélagið býr að. Stórdans-
leikurinn á Klifi á laugardag er
hins vegar eina alvöru fjáröflunin
á hátíðinni sjálfri, annars höfum
við haft þá stefnu að
rukka sem minnst fyrir
þjónustu og aðstöðu til
þess að sem flestir sjái
sér fært að koma.“
Þess má geta að með
kaupum á aðgöngumiða á stór-
dansleikinn lendir viðkomandi í
potti þar sem dregnir verða úr
vinningar, flugferðir til Færeyja
með Flugfélagi Íslands og Flug-
félagi Færeyja. Nánar má kynna
sér dagskrána með því að hringja
í upplýsingamiðstöðina, Pakkhús-
inu í Ólafsvík, s. 436 1543, eða á
heimasíðu Snæfellsbæjar,
www.snb.is.
Katrín Ríkharðsdóttir
Katrín Ríkharðsdóttir er fædd
í Ólafsvík 17. janúar 1956. Hún
lauk grunnskólaprófi frá Grunn-
skólanum í Ólafsvík og starfar
sem matráðskona á leikskól-
anum í Ólafsvík. Hún hefur setið
í menningarnefnd bæjarins og er
í Lionsklúbbinum Rán á staðn-
um, að ógleymdu forystu-
hlutverki í færeysku dögunum.
Eiginmaður Katrínar er Stefán
Ragnar Egilsson, yfirvélstjóri á
Ólafi Bjarnasyni SH, og eiga þau
eina dóttur, Hafdísi Björk.
Færeyingar
fjölmenna á
hátíðina
Sími 525 3000 • www.husa.is
Þráðlaussími
Þráðlaus sími + aukatæki.
Með númerabirti.
Símaskrá (10 númer), endurval.
Hægt að hringja og senda á milli tækja.
Kynningarverð
13.950 kr.
Úr því að stofnunin er komin í sjónvarpsrekstur verður vonandi boðið upp á í beinni að fylgjast með
"súpu-sápu" flokksins um björgun landsbyggða Nonna og Gunnu, eftir að Dóri rændi þau lífsbjörginni.
„ANNA Bretaprinsessa kemur til
Íslands í boði forseta Íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, fimmtudag-
inn 4. júlí næst-
komandi og
verða þau heið-
ursgestir á
Landsmóti hesta-
manna á Vind-
heimamelum um
helgina. Anna
Bretaprinsessa
er víðkunn fyrir
þekkingu sína á
hestaíþróttum og
er nú forseti bresku Ólympíu-
nefndarinnar og á sæti á Alþjóðaól-
ympíunefndinni,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu frá forsetaemb-
ættinu. „Að morgni föstudagsins 5.
júlí mun hún fyrst heimsækja
Breska sendiráðið og afhjúpa þar
nýtt listaverk eftir Hannes Lár-
usson. Þaðan liggur leiðin í Lista-
safn Íslands þar sem frumflutt
verður tónverk eftir Oliver Kent-
ish. Anna prinsessa mun síðan
skoða safnið í leiðsögn Ólafs Kvar-
an safnstjóra og hitta að máli ís-
lenskar hjúkrunarkonur og hjálp-
arliða sem störfuðu við hlið Breta
að líknarmálum á Balkanskaga.
Skömmu fyrir hádegi verður
haldið í skoðunarferð um Suður-
land. Fyrst verður staldrað við í
orkuverinu á Nesjavöllum og þaðan
haldið að Almannagjá. Í hádeginu
situr Anna prinsessa hádegisverð í
boði Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra og frú Ástríðar Thorarensen.
Síðdegis verður farið að Gullfossi
og Geysi.
Að morgni föstudagsins 6. júlí
halda Anna prinsessa og forseti Ís-
lands norður í Skagafjörð þar sem
þau verða heiðursgestir á Lands-
móti hestamanna á Vindheimamel-
um. Þau taka m.a. þátt í hópreið
hestamanna við upphaf hátíðardag-
skrár að kvöldi laugardags og sitja
kvöldverðarboð Guðna Ágústs-
sonar landbúnaðarráðherra á
Löngumýri. Meðan á dvöl Önnu
prinsessu í Skagafirði stendur mun
hún jafnframt fara heim að Hólum
og skoða Byggðasafnið í
Glaumbæ,“ segir þar ennfremur.
Anna Breta-
prinsessa
til Íslands
Anna
prinsessa
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt mann á fimmtugsaldri í
fimm mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir að ráðast á annan mann og
slá hann m.a. tvö högg í höfuðið með
80 cm löngu járnröri. Sá sem á var
ráðist fékk skurð á hnakka og heila-
hristing og marðist einnig víða á lík-
amanum.
Ákærði bar fyrir dómi að ástæða
árásarinnar hefði verið sú að hann
hefði talið hinn manninn hafa stolið
frá sér veiðarfærum að verðmæti ein
og hálf milljón króna. Þegar maður-
inn neitaði að afhenda þau hefði
hann reiðst mjög og misst stjórn á
skapi sínu. Lýsti ákærði mikilli iðrun
vegna verknaðarins og var það talið
honum til málsbóta, auk þess sem
hann játaði brot sitt greiðlega.
Dómurinn taldi hins vegar ekki
skilyrði til að fella refsingu niður þar
sem brotið hefði verið mjög alvarlegt
og við árásina hefði verið beitt
hættulegu verkfæri. Hending ein réð
því að afleiðingar verknaðarins urðu
ekki alvarlegri en raun var á. Ingv-
eldur Einarsdóttir kvað upp dóminn.
Skipaður verjandi mannsins var
Guðjón Ægir Sigurjónsson en Ásta
Stefánsdóttir sótti málið fyrir hönd
sýslumannsins á Selfossi.
Missti stjórn á skapi sínu