Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu Útgáfufélagsins DV ehf. um að staðfest yrði með dómi lögbann sem fulltrúi sýslu- mannsins í Reykjavík lagði við því, að Fréttablaðið ehf. seldi og birti smáauglýsingar í Fréttablaðinu und- ir heitinu „flokkaðar auglýsingar“. Málið snýst um ákvæði í kaup- samningi Fjárfestingarfélagsins ESÓB ehf. og Frjálsrar fjölmiðlunar frá því í desember á síðasta ári þegar fyrrnefnda félagið keypti 60% hluta- fjár í DV. Deilt var um túlkun á 7. grein samningsins sem hljóðar svo: „Með samningi þessum skuldbindur FF [Frjáls fjölmiðlun] sig, sem og dótturfélög eða hlutdeildarfélög sín, til þess, allt frá því er samningur þessi kemur í gildi og til ársloka 2004, að stofna ekki til samkeppni með beinum eða óbeinum hætti við kaupanda með útgáfu nýs dagblaðs, sérstaks helgarblaðs, helgarútgáfu á Fréttablaðinu, meðan það er í eigu ofangreindra aðila eða með sölu smá- auglýsinga. Með smáauglýsingu er átt við slíkar auglýsingar, eins og þær eru skilgreindar í DV. Sveinn Eyjólfsson og Eyjólfur Sveinsson hluthafar í FF árita þennan samning og skuldbinda sig með sama hætti.“ Útgáfufélagið DV hélt því fram að brotið hefði verið gegn kaupsamn- ingnum þar sem Fréttablaðið hefði selt og birt smáauglýsingar frá und- irritun samningsins. Féllst sýslu- maðurinn í Reykjavík í mars sl. á kröfu um lögbann við því að Frétta- blaðið seldi og birti smáauglýsingar eins og þær birtust undir heitinu „flokkaðar auglýsingar“, gegn 10 milljóna króna tryggingu. Í kjölfarið höfðaði útgáfufélagið staðfestingarmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Helgi. I. Jónsson hér- aðsdómari féllst hins vegar ekki á lögbannskröfuna og segir m.a. í nið- urstöðum dómsins að stefnanda hafi ekki tekist að sýna fram á með nægi- lega órækum hætti, að auglýsingar þær, sem Fréttablaðið birti, áður en áðurnefnt lögbann var lagt á þær, séu smáauglýsingar „eins og þær eru skilgreindar í DV.“ Þá verði heldur ekki talið, að þótt sölu og birt- ingu nefndra auglýsinga í Frétta- blaðinu hafi verið breytt, hvað varð- aði stærð og framsetningu, hafi falist í því viðurkenning á sjónarmiðum Útgáfufélagsins DV. Fréttablaðið ehf. var því sýknað af öllum kröfum. Málskostnaður var felldur niður. Hreinn Loftsson hrl. flutti málið f.h. Útgáfufélagsins DV en Helgi Jó- hannesson hrl. fyrir Fréttablaðið. Fréttablaðið ehf. sýknað af kröfum Útgáfufélagsins DV Leyft að birta og selja „flokkaðar auglýsingar“ STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra segir að ekki sé tímabært að huga að frekari jarðgangagerð en nú sé á vegaáætlun. Í Morgun- blaðinu í gær kom fram að um helgina voru stofnuð samtök um jarðgangagerð á Mið-Austurlandi. Þau vilja vekja athygli á hugmynd- inni um svokölluð T-göng, sem myndu tengja Seyðisfjörð, Mjóa- fjörð, Norðfjörð, Eskifjörð og Hér- að. Sturla segir að hugmyndin sé í sjálfu sér ágæt, enda stytti göngin leiðir milli byggða. Framkvæmdin sé hins vegar óraunhæf, í ljósi þeirra áætlana sem unnið sé eftir núna. „Nú er verið að vinna eftir sam- þykktri jarðgangaáætlun, sem er hluti af vegaáætlun. Á meðan þær framkvæmdir eru ekki hafnar er óraunhæft að gera ráð fyrir fram- kvæmdum af þeirri stærðargráðu sem þarna um ræðir,“ segir ráð- herra. Framtíðaráform sem halda þarf til haga Samkvæmt þingsályktun frá 2000 er nú á vegaáætlun að leggja göng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar annars vegar og Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar hins vegar. „Þetta eru framtíðaráform sem auðvitað þarf að halda til haga, en eru ekki inni í þessari áætlun,“ segir Sturla. Hann bætir við að Fjarðarheiðin sé orðin mjög vel uppbyggð og greið leið sé til Seyðisfjarðar af Héraði. „Ég tel að það sé ekki rétt að vekja óraunhæfar vonir með fólki. Áður en lengra er haldið skulum við ljúka þessum framkvæmdum sem næstar eru á dagskrá,“ segir ráðherra. Samgönguráðherra um jarðganga- tillögu á Mið-Austurlandi Ágæt hugmynd en óraunhæf ÆFINGUNNI Samverði 2002 lauk á sunnudag, en hún hafði staðið frá 24. júní. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að skipulag æfingarinnar hafi geng- ið upp að mestu leyti þrátt fyrir að veður hafi á köflum sett strik í reikninginn hvað þyrluflug varð- ar. Stjórnendur og þátttakendur hafi þannig fengið þjálfun í að bregðast við breyttum aðstæðum og mál manna sé að af æfingunni megi draga mikilvægan lærdóm. Á lokadegi æfingarinnar var innlendu og erlendu fjölmiðla- fólki boðið að kynnast æfingunni af eigin raun, en meðal annars var farið í Chinook-þyrlu þjóð- varðliðsins í Pennsylvaníu frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja og sýnd rústabjörgun í fiskvinnslu- húsi niður við höfn í Vest- mannaeyjum. Forstjóri Landhelg- isgæslunnar og aðmírállinn á Keflavíkurflugvelli, fram- kvæmdastjórar æfingarinnar, kynntu sér aðstæður og varnar- málaráðherra Belgíu var með þeim í för og heilsaði upp á sam- landa sem voru þar að störfum. Að sögn Friðþórs Eydal, upp- lýsingafulltrúa varnarliðsins, er það samdóma álit manna að æf- ingin hafi tekist vel. „Meginmarkmiðið var að sam- ræma aðgerðir ólíkra aðila við framandi aðstæður og það náðist mjög vel. Menn eru ánægðir með skipulagningu og framkvæmd æf- ingarinnar og margir þátttak- endur höfðu orð á því á fundi sem haldinn var eftir æfinguna hversu raunverulegar aðstæður þeim hefðu verið skapaðar, til dæmis hvað varðar ástand slas- aðra. Við erum þakklát öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í æfingunni og stuðluðu að því að hún tókst svona vel,“ segir Frið- þór Eydal. Samvörður 2002 heppnaðist vel SKÓLASTJÓRAR eru ekki á eitt sáttir um sam- þykkt Fræðsluráðs Reykjavíkur, sem kveður á um að einni kennslustund á dag skuli bætt við stundaskrá sjö til níu ára barna. Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri Hólabrekku- skóla, segist óttast að kennslustundir séu orðnar of margar fyrir börn á þessum aldri. Árni Magn- ússon, skólastjóri Hlíðaskóla, segist heldur hafa viljað að eitt hefði verið látið yfir alla ganga, en ráðgert er að breytingin taki gildi í áföngum. Hún gerir ráð fyrir að börnunum standi til boða að vera í skólanum til u.þ.b. 14.30 í stað 13.30. Breytingin tekur gildi í áföngum; fyrst í Breiðholti og Vesturbæ næsta haust. Fleiri hverfi bætast við haustið 2003 og þau sem eftir eru árið 2004. Ekki verður um mætingarskyldu að ræða fyrr en breyt- ingin hefur tekið gildi hjá öllum skólum borgar- innar. Kallar á endurskipulagningu Ragna Ólafsdóttir, skólastjóri Melaskóla, sem er einn af skólunum sem fyrstir fá að bæta við kennslustundinni, segir að sér lítist nokkuð vel á hugmyndina. „Þetta er auðvitað heilmikil breyting sem kallar á vissa endurskipulagningu,“ segir hún. Að sögn Rögnu verður reynt að nýta viðbót- artímann til óhefðbundinnar kennslu. „Ég held að hefðbundnir kennslutímar séu orðnir alveg nógu margir fyrir þennan aldurshóp,“ segir hún. Hún segist vera samþykk því sem kemur fram í sam- þykktinni um að draga eigi úr heimavinnu sam- hliða breytingunni, enda sé vinnudagurinn orðinn nógu langur hjá þessum bekkjum. Ragna segist eiga von á að langstærstur hluti nemenda komi til með að nýta sér möguleikann. Árni Magnússon, skólastjóri Hlíðaskóla, segist vera ánægður með ákvörðunina í sjálfri sér, en helst hafa viljað að hún tæki gildi um leið fyrir alla skólana. „Mér finnst þetta fyrirkomulag fela í sér svolitla mismunun,“ segir hann, „sennilega hefði verið betra að bíða í eitt ár og veita þá hærri upp- hæð í verkefnið.“ Árni segist reikna með að langflestir komi til með að nýta sér möguleikann. „Já, því margir krakkanna eru í heilsdags gæslu. Lengri tími í skólanum, frekar en annars staðar, felur í sér sparnað fyrir heimilin,“ segir hann. Að sögn Árna mun breytingin að öllum líkindum gera skólum auðveldara að búa til fullar stöður fyrir kennara. „Við í Hlíðaskóla höfum að vísu ekki átt við þann vanda að etja, en ég hef heyrt að hann sé til staðar hjá öðrum skólum,“ segir hann. 35 tímar á viku nóg Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri Hólabrekku- skóla, segist óttast að bein kennsla fyrir sjö til níu ára börn sé þegar orðin heldur of mikil, ef eitthvað sé. „Það er mín persónulega skoðun að 35 tímar á viku, sem kennslutíminn er núna, séu ef til vill ívið of margir,“ segir hann, „þessi börn eru auðvitað afskaplega mismunandi að þroska og gerð.“ Hann segist því vera efins um að rétt sé að lengja kennslutímann frá því sem nú er. Sigurjón segir að vafalaust verði foreldrar ánægðir með breytinguna, enda geti þeir haft börnin í skólanum lengur en ella. Því megi búast við að möguleikinn verði almennt vel nýttur. Breytingin verði líka til þess að auðveldara verði að gera umsjón með einum bekk að fullri kenn- arastöðu. „Sumir umsjónarkennarar hafa þurft að kenna tvo til þrjá tíma annars staðar til að ná heilli stöðu, en með þessu gerist varla þörf á því.“ Skiptar skoðanir um viðbótartíma fyrir sjö til níu ára börn Óttast að kennslustundir séu orðnar of margar Morgunblaðið/Sigurgeir Á lokadegi æfingarinnar var meðal annars æfð björgun mannfólks úr hrundum húsum, en fjöldi Vestmanna- eyinga, meðal annars úr leikfélagi í Eyjum, tók að sér hlutverk slasaðra og þótti takast vel til. SAMKVÆMT könnun rannsókna- og hugbúnaðarfyrirtækisins Manna og músa ehf. tekur nær helmingur vinsælustu vefsvæða á Íslandi óþarfa áhættu í Internet-uppsetningum hjá sér með því að hafa uppsetningu nafnamiðlara (DNS) ranga, þ.e. ann- aðhvort er aðeins einn nafnamiðlari í notkun eða allir nafnamiðlarar eru vistaðir á sama hlutnetinu. Eins og fram kemur í frétt frá fyr- irtækinu eru nafnamiðlarar hugbún- aður sem virkar eins og einskonar símaskrá sem breytir netslóðum eins og mbl.is, ruv.is eða cnn.com, í talna- runu sem tölvur skilja. Þar kemur einnig fram að sé ein- göngu litið til fyrirtækja í fjármála- þjónustu hér á landi sé staðan slæm. „Hættan er í raun sú að ef eitthvað kemur upp á hverfur fyrirtækið af Netinu í lengri eða skemmri tíma. Afleiðingarnar eru þá alvarlegastar fyrir fyrirtækið sjálft, t.d. vegna tap- aðra viðskipta eða vegna þess að tölvupóstur sem því er sendur kemst ekki á leiðarenda og fer til baka til sendandans,“ sagði Fjalar Sigurðs- son markaðs- og kynningarstjóri Manna og músa við Morgunblaðið. Óþörf áhætta tekin á Netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.