Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 12

Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALÞJÓÐA heilbrigðisstofnunin, WHO, kynnti áætlun og leiðbein- ingar um krabbameinsvarnir sem ætlaðar eru heilbrigðisyfirvöldum sem líkan til að hefja sókn til að draga úr nýgengi og dauðsföllum af völdum krabbameins. Segir í skýrsl- unni að hægt væri að bjarga millj- ónum mannslífa ár hvert ef menn nýttu sér þá þekkingu og aðferðir sem þegar eru fyrir hendi til að forðast krabbamein og meðhöndla það. Gro Harlem Brundtland, yfir- maður Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar, kynnti áætlunina á blaðamannafundi í tengslum við átjándu alþjóðlegu krabbameins- ráðstefnunni sem stendur í Osló þessa viku. Segir hún heilbrigðisyf- irvöld geta byggt á upplýsingum og aðferðafræði sem kynnt er í áætl- uninni. Alþjóða heilbrigðisstofn- unin mun aðstoða einstök aðild- arlönd við að hrinda verkefnum af stað og sagði Brundtland-áætlunina vera samkvæmt þeirri stefnu WHO að virkja þekkingu manna til for- varna, krabbameinsleitar og með- ferðar krabbameinssjúkdóma. Hún sagði augu ráðamanna þjóða opnast æ meira fyrir því hversu fyrirferð- armikil heilbrigðismál væru í nú- tímaþjóðfélagi en ríkisstjórnir gætu þó ekki einar og sér borið hita og þunga af forvarnarstarfi, þar yrðu einnig að koma til félagasamtök og einstaklingar. Hún sagði einnig að þrátt fyrir að mörg lönd væru vel stödd á vegi forvarna og meðferðar væri án efa hægt að bæta um betur. Forðast má um þriðjung krabbameinstilfella Gro Harlem Brundtland flutti einnig ávarp við setningu þingsins í Osló og sagði m.a. að meirihluti fólks með krabbamein byggi í þró- unarlöndum. „Um það bil 10 millj- ónir manna greinast árlega með krabbamein. Búist er við að fjöldi tilfella muni aukast um 50%, í 15 milljónir árið 2020. Samt er margt sem við getum gert í hverju landi til að forðast, lækna og lina þján- inguna. Með núverandi þekkingu er unnt að forðast um það bil þriðjung tilfella sem upp koma ár hvert um heim allan. Þar sem aðstæður eru fyrir hendi hvetur þekking okkar til greiningar krabbameinssjúkdóma sem fyrst og við þekkjum leiðir til árangursríkrar meðferðar á einum þriðja sjúkdómanna. Síðan þarf að beita líknandi meðferð til að auka lífsgæði krabbameinssjúklinga og fjölskyldna þeirra, og henni er hægt að beita jafnvel þar sem efnahagur stendur ekki styrkum fótum.“ Í ávarpi sínu sagði Brundtland einnig að krabbameinsforvarnir og lækningar væru meðal mikilvæg- ustu rannsókna- og heilbrigðisverk- efna nútímans. Verkefnið væri að draga úr dánartíðni af völdum krabbameins og bæta lífsgæði krabbameinssjúklinga. Sagði hún að vel skipulagðar krabbameins- varnir leiddu til lægra nýgengis krabbameins og að með nýju áætl- uninni væri WHO að setja fram tæki sem einstök lönd, ekki síst þróunar- lönd, gætu notað til að bæta stöðu sína. Sérfræðingar WHO myndu að- stoða við að hrinda verkefnum í framkvæmd. Aðgerðaáætlun WHO bendir á fjölmargar leiðir til að hafa stjórn á sjúkdómum og leiðir til meðferðar. Lögð er áhersla á forvarnir og greiningu á fyrstu stigum. Hún á líka að verða til að bæta líðan og líf sjúklinga sem langt eru leiddir og lagði yfirmaður WHO áherslu á líknarmeðferðina, hún væri til þess fallin að lina þjáningar krabba- meinssjúklinga og hún væri mikil- vægur hluti af allri krabbameins- meðferð. Helmingur nýrra tilfella í þróunarlöndunum „Ár hvert horfir heimurinn upp á dauða sex milljóna manna vegna krabbameins,“ segir í frétt frá WHO um nýju aðgerðaáætlunina. Gerir stofnunin ráð fyrir að eftir 20 ár muni um 10 milljónir manna deyja árlega af völdum sjúkdómsins og að 15 milljónir manna greinist árlega. Í dag eru um það bil 20 milljónir krabbameinssjúklinga á lífi og er gert ráð fyrir að þeir verði orðnir um 30 milljónir eftir tvo ára- tugi. „Af þeim 10 milljónum manna sem greinast nú árlega með krabba- mein er helmingur í þróun- arlöndum. Um 12% dauðsfalla í heiminum eru rakin til krabba- meins og í iðnvæddum ríkjum eru dauðsföll af völdum krabbameins í öðru sæti næst á eftir krans- æðasjúkdómum. Þá er bent á í skýrslunni að krabbamein geti ekki síður verið áhyggjuefni og streitu- valdandi fyrir fjölskyldu krabba- meinssjúklings en hann sjálfan. Sjúkdómurinn hafi iðulega áhrif á daglegt líf fjölskyldunnar og tekju- möguleika vegna atvinnumissis og kostnaðar við læknisþjónustu.“ Á blaðamannafundinum sagði Gro Harlem Brundtland að tóbaks- framleiðendur legðu í gríðarlegan kostnað til að koma vöru sinni á framfæri og hafa áhrif til skoðana- myndunar. Sagði hún fyrirtækin út- smogin á þessu sviði og þau skirrð- ust ekki við að hafa bein og óbein áhrif á starfsfólk í heilbrigðisþjón- ustu. Sagði hún það mikið verkefni að vinna gegn þessum áhrifum og væri aðgerðaáætlun á vegum WHO nú í undirbúningi sem hún sagði að líta myndi dagsins ljós á næsta ári. Í ágripi aðgerðaáætlunarinnar er bent á að til að hún verði sem ár- angursríkust sé mikilvægt að stjórn hvers verkefnis sé styrk og mark- mið skýr. Mæla verði hvernig verk- efnin leiði til betra heilsufars og meiri lífsgæða, verkefnin verði að taka til beinna þarfa íbúa og brýnt sé að virkja þá og á ákvarðanataka sé byggð á mati og árangri. Þá er bent á mikilvægi þess að með verk- efnunum sé náð til heillar þjóðar en ekki aðeins hluta og komið verði á forvörnum í víðu samhengi. Margar þjóðir hafi þegar tekið upp slík vinnubrögð, sumar geri það í ákveðnum landshlutum og sumar þjóðir sinni í engu krabbameins- sjúkdómum eða forvörnum. Lokaorð Gro Harlem Brundtland í áætluninni eru þessi: „Ég veit að það sem við ætlum að ráðast í er ekki auðvelt. En erfiðleikarnir eru yfirunnir með möguleikunum á því að fækka dauðsföllum og minnka þjáninguna sem krabbamein veld- ur. Ég vona að skýrslan sé annars vegar skref í þá átt að binda enda á einangrun krabbameinssjúklinga og verði hins vegar til að styrkja möguleika þjóða til víðtækra krabbameinsvarna. Ég trúi því að við getum tekið til hendinni og við verðum að gera það.“ Alþjóðaheilbrigðisstofnunin setur fram áætlun til sóknar gegn krabbameini Bjarga má milljónum manns- lífa með núverandi þekkingu Í nýrri verkefnaáætlun setur Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin fram leiðbeiningar um hvernig ein- stök lönd geta styrkt krabbameinsforvarnir, greiningu og meðferð. Jóhannes Tómasson sat blaðamannafund í Osló þar sem yfirmaður stofnunarinnar kynnti áætlunina. Ljósmynd/Marianne Otterdahl-Jensen Gro Harlem Brundtland, yfirmaður Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, kynnti áætlunina á blaðamannafundi í tengslum við átjándu alþjóðlegu krabbameinsráðstefnuna sem stendur yfir í Osló í þessari viku. joto@mbl.is LÚÐVÍK Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í alls- herjarnefnd Alþingis, segir að með því að boða ekki fund í nefndinni fyrr en í ágúst sé verið að vanvirða minni- hlutann og drepa umræðunni um heimsókn Kínaforseta á dreif. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá ákvörðun formanns nefndarinn- ar, Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, um að boða fund 9. ágúst. Lúðvík, ásamt Guðjóni A. Kristjánssyni og Guð- rúnu Ögmundsdóttur sem einnig eiga sæti í nefndinni, bað um að fundurinn yrði boðaður og fjallað yrði um aðgerðir stjórnvalda á með- an á heimsókn forseta Kína stóð í síðasta mánuði. Verið að flýja af hólmi „Þingsköp heimila að minnihluti nefndarinnar geti óskað eftir fundi og það fundarefni tekið fyrir sem óskað er eftir. Með því að ákveða að hafa fund eftir einn og hálfan mánuð er í mínum huga verið að gera lítið úr þessu úrræði og vanvirða rétt minni- hlutans,“ segir Lúðvík. „Þarna er verið að flýja af hólmi í umræðunni um heimsókn Kínaforseta.“ Lúðvík segir að umræðan hafi ver- ið stjórnvöldum afar erfið og að þeim hafi gengið mjög illa að útskýra framgöngu sína. „Hlutverk þingsins er að reyna að varpa ljósi á málið og með því að fresta þessu svona lengi er aðeins verið að drepa umræðunni á dreif,“ segir Lúðvík. Þorgerður sagði í Morgunblaðinu í gær að henni hefði þótt miður að hafa fyrst frétt af beiðni þingmann- anna í fjölmiðlum. Lúðvík hefði sent henni beiðnina í tölvupósti en betra hefði verið að fá hana í gegnum síma. Um þetta segir Lúðvík að hann hafi reynt að ná í hana í tvo eða þrjá daga án þess að hafa árangur sem erfiði. „Ég held að fjölmiðlar geti staðfest að það var mjög erfitt að ná í hana þessa daga,“ segir hann. Lúðvík Bergvinsson um fundarboð formanns allsherjarnefndar Minnihlut- inn van- virtur TVEIR hafa sóst eftir því hjá dóms- málaráðuneytinu að verða viður- kenndir sem allsherjargoðar, þau Jónína Berg Vesturlandsgoði og Jör- mundur Ingi, sem fer fram á að verða áfram viðurkenndur sem alls- herjargoði. Að sögn Ingva Hrafns Óskarssonar, aðstoðarmanns dóms- málaráðherra, er málið til afgreiðslu hjá ráðuneytinu og segir hann að niðurstaða liggi vonandi fyrir í viku- lokin. Á fundi ásatrúarmanna á sunnu- dag lýstu fundarmenn einróma yfir fullu trausti á störf Jörmundar Inga, allsherjargoða félagsins, að sögn Kjartans Arnórssonar, ritara fund- arins. Segist Kjartan telja að deilur þær, sem staðið hafa yfir í félaginu, stafi af því að ágreiningur hafi orðið milli Jörmundar Inga og lögsögu- manns félagsins, Jónasar Þ. Sigurðs- sonar. Kjartan segir að á fundinum á sunnudag hafi verið ákveðið að kjósa þriggja manna nefnd sem ætlað sé að fara yfir stöðu mála og leita sátta í félaginu. Þá var á fundinum lagt til að boðað yrði til nýs allsherjarþings hið fyrsta. Tæplega sjö hundruð manns eru í Ásatrúarfélaginu. Ásatrúarfélagið Tveir óska við- urkenningar sem allsherj- argoðar ♦ ♦ ♦ HEIÐAGÆSAPAR hefur á undan- förnum árum verpt við veginn upp í Kerlingarfjöll og í fyrra bjuggu þær sér hreiður tvo metra frá vegar- brúninni. Í ár hefur parið væntan- lega ætlað að koma sér lengra frá umferðinni en ekki vildi betur til en svo, að fuglarnir völdu sér hreið- urstæði í einungis eins fets fjarlægð frá vegarbrúninni þar sem ónæðið er mikið. Gæsin kom ævinlega strax aftur að hreiðrinu um leið og bílar höfðu ekið framhjá. Fyrir viku komu síðan tveir ungar úr eggjun- um og depluðu augum framan í ferðalanga. Fuglavinir í Kerlingar- fjöllum íhuga að setja skilti við veg- inn fyrir næsta sumar með áletr- uninni: Gæsir athugið: Þetta er bílvegur, verpið aðeins fjær. Umferðin truflaði heimilis- friðinn Morgunblaðið/Friðrik Pálsson Heiðagæsirnar verða fyrir töluverðu ónæði af umferðinni við veginn en láta það ekkert á sig fá og koma alltaf aftur í hreiðrið þegar bílarnir eru komnir framhjá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.