Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
ÞAKRENNUR
Frábærar Plastmo
þakrennur með 20 ára
reynslu á Íslandi.
Til í gráu, brúnu, hvítu
og svörtu.
Heildsala - Smásala
EITT af stærstu knattspyrnumótum landsins,
Esso-mót KA í 5. flokki drengja, hefst í dag, mið-
vikudag, á félagssvæði KA en mótið verður sett
formlega á fimmtudagskvöld. Alls munu um
1.200 drengir á aldrinum 11-12 ára etja kappi
fram á laugardag en mótinu lýkur með lokahófi
og verðlaunaafhendingu í KA-heimilinu á laug-
ardagskvöld.
Knattspyrnudrengirnir koma frá um 30 fé-
lögum víðs vegar af landinu og með þeim eru um
250 þjálfarar og fararstjórar. Þá kemur stór
hópur stuðningsmanna til bæjarins, fjölskyldur
og aðrir aðstandendur knattspyrnukappanna og
gera KA-menn ráð fyrir að alls verði um 5.000
manns í bænum í tengslum við mótið.
Áður en yfir lýkur verða spilaðir á sjötta
hundrað leikir á átta völlum á félagssvæði KA en
einnig verður ýmislegt annað í boði mótsdagana.
Setning mótsins fer fram á lóð Menntaskólans kl.
20.30 annað kvöld, þar sem Skúli Gautason leik-
ari og Bubbi Morthens tónlistarmaður skemmta
og fulltrúi Esso setur mótið. Fanta-Lurka leik-
arnir fara fram í Kjarnaskógi á föstudagskvöld
og að þeim loknum verður slegið upp grillveislu.
Fyrstu leikirnir í dag hefjast kl. 15 en kl. 8 að
morgni fimmtudag, föstudag og laugardag og
spilað fram á kvöld. Í tengslum við mótið verður
rekin útvarpsstöð af yngri kynslóðinni á FM
97,7. Fimm lið frá KA taka þátt í Essomóti fé-
lagsins sem hefst í dag. Síðasta æfing fyrir mót
fór fram í gær og eftir hana var nauðsynlegt að
teygja vel á öllum vöðvum fyrir átökin fram-
undan.
Morgunblaðið/Kristján
Um 1.200 knattspyrnukappar á Esso-móti KA
SAMTÖK um náttúruvernd á Norð-
urlandi, SUNN, fagna þeirri ákvörð-
un Skipulagsstofnunar að skilyrða
mat á umhverfisáhrifum námu-
vinnslu úr Ytri-Flóa Mývatns því að
áform um námuvinnslu úr Syðri-
Flóa verði lögð til hliðar.
Á aðalfundi SUNN á dögunum var
samþykkt ályktun vegna þessa. Þar
kemur fram að samtökin árétta það
sjónarmið að binda eigi viðbótar-
námuleyfi í Ytri-Flóa annars vegar
því skilyrði að mat á umhverfisáhrif-
um sýni fram á að það þyki óhætt en
hins vegar því skilyrði að ekki verði
gefið út námuleyfi í Syðri-Flóa.
Fagna
ákvörðun
Skipulags-
stofnunar
Samtök um náttúru-
vernd á Norðurlandi
SLÉTTBAKUR EA 4, frystitogari
Útgerðarfélags Akureyringa hf.,
kemur til heimahafnar í dag, mið-
vikudag, úr sinni síðustu veiðiferð á
vegum félagsins. Sléttbakur gekk
upp í kaup á stærra og öflugra
frystiskipi í vetur, sem fengið hefur
sama nafn og verður afhentur nýj-
um eigendum í næstu viku. Slétt-
bakur var á karfaveiðum á Reykja-
neshrygg og er aflinn um 630 tonn
upp úr sjó og aflaverðmætið um 50
milljónir króna. Um þriðjungur
aflans er fenginn í grænlensku lög-
sögunni.
Sléttbakur EA 4 var keyptur til
ÚA frá Færeyjum árið 1973 og hét
þá Stella Kristina en skipið var
smíðað í Noregi árið 1968. Skipið
var gert út til ísfiskveiða til árins
1987 en var þá lengt og því breytt í
frystiskip. Sæmundur Friðriksson
útgerðarstjóri ÚA sagði skipið hafa
reynst vel og að mörgu leyti væri
eftirsjá í því.
ÚA keypti í vetur stærra og öfl-
ugra frystiskip, sem fengið hefur
nafnið Sléttbakur EA 304 og er nú
á grálúðuveiðum á vegum félagsins.
Nýja skipið er um 2.000 brúttólestir
en það gamla um 900 brúttólestir.
Sléttbakur EA 4 til heimahafnar
Morgunblaðið/Kristján
Sléttbakur EA-4 kemur úr sinni síðustu veiðiferð á vegum ÚA í dag.
Síðasta veiðiferð-
in á vegum ÚA
MJÖLL hf. á Akureyri hefur keypt
rekstur þvottahúss FSA og Fata-
hreinsunarinnar ehf. á Akureyri og
flutt starfsemina í Sjafnarhúsið við
Austursíðu. Fatahreinsunin hefur til
fjölda ára verið til húsa í eigin hús-
næði að Hofsbót 4 en móttaka og af-
greiðsla verður frá og með 1. júlí í
Sjafnarhúsinu að Austursíðu 2.
Stjórnendur Mjallar líta svo á að
með kaupum á Þvottahúsinu og Fata-
hreinsuninni skapist frekari mögu-
leikar til þess að efla þessa starfsemi,
enda falli hún vel að starfsemi Mjallar
hf. sem hreinlætisfyrirtæki, segir í
fréttatilkynningu frá Mjöll.
Fatahreinsunin ehf. á sér langa
sögu. Fyrirtækið var stofnað fyrir
meira en hálfri öld. Fyrirtækið hefur
alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki, síð-
ustu ár hafa þeir feðgar Vigfús Ólafs-
son og Sigurður Vigfússon staðið að
rekstrinum. Fjögur stöðugildi eru hjá
Fatahreinsuninni ehf. og munu þeir
starfsmenn starfa áfram hjá Mjöll hf.
Hjá Mjöll hf. starfa 50 starfsmenn
á Akureyri og í Reykjavík. Mjöll er
hreinlætisfyrirtæki með 400 milljónir
í veltu, framleiðir hreinlætisvörur,
rekur þvottahús og fatahreinsun,
ræstingar- og þekkingarþjónustu í
efnaiðnaði. Mjöll hf. varð til við sam-
einingu hreinlætisvörudeildar Sjafn-
ar hf. og Mjallar ehf. 2001. Sjöfn á
65% hlut í Mjöll og dr. Ásbjörn Ein-
arsson og fjölskylda 35% hlut.
Samhliða opnun á nýrri afgreiðslu
þvottahúss og fatahreinsunar í Sjafn-
arhúsinu fá viðskiptavinir óvæntan
glaðning og verða þáttakendur í
happdrættti þar sem veglegir vinn-
ingar eru. Jafnframt geta viðskipta-
vinir keypt helstu hreinlætisvörur í
nýrri afgreiðslu. Mjöll býður einstak-
lingum og fyrirtækjum upp á að
sækja og senda ef þess er óskað.
Þvottahús og
fatahreinsun
í Sjafnarhúsið
Morgunblaðið/Kristján
Feðgarnir Sigurður Vigfússon t.v. og Vigfús Ólafsson og Baldur Guðna-
son, framkvæmdastjóri Sjafnar og Mjallar, í afgreiðslu þvottahússins og
fatahreinsunarinnar í Sjafnarhúsinu.
SÖGUGANGA á Nonnaslóð
verður annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 4. júlí, og hefst hún
kl. 20. Gangan er á vegum
Minjasafnsins á Akureyri og
Nonnahúss.
Lagt verður af stað frá
Minjasafnskirkjunni, gengið
upp stíginn sem liggur upp á
Naustahöfðann og m.a. skoðað-
ir ýmsir staðir sem minna á rit-
höfundinn og jesúítaprestinn
Jón Sveinsson. Stígurinn frá
Nonnahúsi upp á Naustahöfða
var helsta leið líkfylgda þegar
Akureyrarkirkja hin eldri var
þar sem Minjasafnskirkjan er
nú. Staldrað verður við á leiði
Sveins Þórarinssonar, föður
Nonna, sem og við Nonnastein
sem er á höfðanum. Gangan
tekur rúma klukkustund. Með í
för verða leiðsögumenn frá
báðum söfnunum og búast má
við að ýmsar persónur úr lífi
Nonna heilsi upp á göngumenn.
Allar sýningar safnanna
verða opnar að lokinni göngu
gegn vægu gjaldi og í boði verð-
ur kaffi og meðlæti.
Sögu-
ganga á
Nonnaslóð