Morgunblaðið - 03.07.2002, Page 15

Morgunblaðið - 03.07.2002, Page 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 15 „ÞAÐ hefur lengi verið draumur minn að opna gallerí og ég ákvað að láta hann rætast, hætti í annarri vinnu og opnaði hér,“ segir Þor- björg Óskarsdóttir myndlistarmað- ur sem nýlega opnaði Gallery Tobbu í Hafnargötu 35 í Keflavík. Þorbjörg, sem notar listamanns- nafnið Tobba, hefur hefur lengi mál- að og leirað, eins og hún orðar það. Hélt sína fyrstu sýningu á árinu 1997. „Fólk er alltaf að reyna að ná í mig til að kaupa af mér myndir en kaupir svo annars staðar þegar það gengur ekki. Svo vantaði mig líka vinnustofu, var orðin þreytt á að vera með þetta heima og klína málningu út um allt,“ segir Tobba um þá ákvörðun um að opna eigið gallerí. Hún er með málverk sín og leir- muni til sölu í galleríinu og einnig listaverk eftir aðra. Meðal annars eru þar leirmunir eftir afa hennar og ömmu, Hólmfríði og Þórmund, og málverk eftir föður hennar, Ósk- ar Þórmundsson yfirlögregluþjón á Keflavíkurflugvelli. Þorbjörg segir að faðir hennar hafi haft áhuga á málaralistinni þegar hann var ungur maður og síðan hafi áhuginn vaknað aftur fyrir hennar tilverknað. Þor- björg segir að ótrúlega margir Suð- urnesjamenn séu að mála. Margir staldri hins vegar stutt við í þessu, séu að reyna sig, og það komi síðan í ljós eftir nokkur ár hverjir standi upp úr þessum stóra hópi. Tobba hefur stúkað af vinnustofu í galleríinu. Þar málar hún og leirar, smíðar alla sína ramma sjálf og blindramma til að selja. Hún segir að nóg hafi verið að gera, í raun meira en hún átti von á því júní og júlí séu venjulega dauf- ustu mánuðir ársins. Gallery Tobbu er opið frá klukk- an 13 til 21 alla daga vikunnar nema mánudaga þegar hún hefur lokað. Tobba opnar gallerí við Hafnargötu Lætur draum- inn rætast Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Keflavík vor, virtist liggja fyrir að annar nemendi fengi plássið í Noregi en ekki væru margar umsóknir um skólann í Hong Kong enda var ekki fullur námsstyrkur veittur út á það nám. Ég var meðal annars spurð út í það hvort ég treysti mér til að vera svona lengi og langt í burtu og hvort ég gæti greitt þann mikla kostnað sem fylgdi þessu og auðvit- að þurfti einnig að fara yfir náms- árangur minn,“ segir Sigríður. Síð- an tóku prófin í skólanum við og hún segist hafa verið frekar stress- uð að bíða eftir svarinu á sama tíma en það hafi síðan reynst jákvætt. Sigríður segist hafa mikla ánægju af ferðalögum og af því að læra. Hún segist ákveðin í að mennta sig en sé ekki búin að ákveða hvaða leið hún velji. Hún hafi áhuga á svo mörgu, vilji læra mismunandi hluti. Hún fái góða út- rás fyrir þetta í skólanum í Hong „ÉG er mikill ferðafíkill og finnst gaman að læra. Ég get sameinað þetta tvennt í þessum skóla,“ segir Sigríður Jónsdóttir, 18 ára Grind- víkingur. Hún hefur verið valin til að fara í haust í alþjóðlegt stúdents- nám við skóla í Hong Kong í Kína. Sigríður er góður nemandi. Var einn fjögurra nemenda í sínum ár- gangi í Grunnskóla Grindavíkur sem luku samræmdu prófunum í ní- unda bekk og gat þannig tekið hluta af framhaldsskólanáminu áður en hún lauk grunnskólanum. Hún byrj- aði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík en fór síðan sem skipti- nemi í eitt ár til Bandaríkjanna. Þegar hún var í Bandaríkjunum sá móðir hennar auglýsingu frá menntamálaráðuneytinu í Morg- unblaðinu um alþjóðlegt stúdents- nám í skóla í Noregi og sótti um en Sigríður kannaðist við þennan skóla eftir umfjöllun um hann í blaðinu fyrir nokkrum árum. Hún komst ekki að í það skiptið en ákvað að sækja aftur um nú í vor þegar nám- ið var auglýst, nú einnig í Hong Kong. „Ég krossaði við skólann í Hong Kong, meira í gamni en al- vöru. Þegar ég var kölluð í viðtal í ráðuneytið, síðasta skóladaginn í Kong. Að óbreyttu hefði hún lokið stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól- anum fyrir næstu jól en segist alveg vera tilbúin að fresta þeim áfanga fyrir þetta ævintýri og jafnvel leng- ur ef hún þurfi að vinna fyrir skuld- um þegar heim kemur. Segist Sigríður fá mikinn stuðn- ing frá foreldrum sínum, Margréti Sigurðardóttur og Jóni Gíslasyni, og síðan hafi Grindavíkurbær ákveðið að styðja hana fjárhags- lega. Í bókun bæjarráðs er tekið fram að styrkinn, að fjárhæð 150 þúsund kr., fái Sigríður fyrir fram- úrskarandi ástundun og náms- árangur og sú von látin í ljósi að hann verði öðrum nemendum hvatning til að leggja sig fram í námi. Eykur sjálfstæðið Námið í Hong Kong tekur tvö ár og felst í námi í sex mismunandi erfiðum námsgreinum. Sigríður segist til dæmis vera ákveðin að velja nám í kínversku sem annað tveggja tungumála. „Þarna eru mjög vel menntaðir og góðir kennarar og maður fær góða menntun,“ segir hún. Þá er margt annað sem fylgir náminu, nem- endur þurfa meðal annars að taka þátt í hjálparstarfi og boðið er upp á ýmsa starfsemi í klúbbum og íþróttir. Ekki spillir það heldur fyr- ir, að mati Sigríðar, að skólinn skipuleggur ferðalög um Kína. Hún segist einnig hafa hug á að ferðast á eigin vegum og kynnast kínverskri menningu sem mest. „Þetta verður mjög góð reynsla og eykur sjálfstæði mitt að fara svona út á eigin vegum. Ég vona einnig að þetta framtak hvetji fólk á mínum aldri til þess að mennta sig og að það opni augu þeirra fyrir öllum þeim möguleikum sem menntun býður upp á.“ Sigríður vinnur í sumar við sund- laugina á Tálknafirði. Hún er fædd þar á staðnum og uppalin til tólf ára aldurs en flutti þá með foreldrum sínum til Grindavíkur. Segist hafa haft áhuga á að endurnýja kynnin við æskuslóðirnar fyrir vestan og þetta sumar hafi eiginlega verið síð- asta tækifærið til þess. En hún er orðin spennt og hugsar um Hong Kong alla daga. „Ég get varla beðið eftir því að komast af stað, vildi helst fara út á morgun,“ segir Sig- ríður en verður að bíða fram undir lok ágúst. Sigríður Jónsdóttir, 18 ára Grindvíkingur, er að fara í alþjóðlegt stúdentsnám í Hong Kong Get varla beðið eftir því að komast af stað Morgunblaðið/Finnur Pétursson Grindavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.