Morgunblaðið - 03.07.2002, Page 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 17
ÞÚ LÆTUR ÞAÐ GERAST
w
w
w
.la
nc
om
e.
co
m
Hafðu með þér ilmvatn í sumarfríið
Lancôme býður nú frábær tilboð á ilmvötnum
Þú kaupir 30 ml ilm frá Trésor, Poeme eða Miracle og færð í kaupbæti tösku og 50 ml húðmjólk.
Ef þú kaupir 50 ml ilm, færðu enn stærri tösku og 100 ml húðmjólk. Og fyrir herrann bjóðum við
50 ml Miracle ilm og í kaupbæti stóra snyrtitösku og 100 ml hár- og sturtusápu.
Misstu ekki af þessum frábæru ferðatilboðum. Útsölustaðir um land allt.
Meðan birgðir endastmeistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
Forstjóri
Vivendi
Universal
segir af sér
FORSTJÓRI franska fjölmiðlaris-
ans Vivendi Universal, Jean-Marie
Messier, hefur ákveðið að segja af
sér að ósk stjórnar fyrirtækisins,
að því er fram kemur í frétt á
fréttavef BBC. Fréttavefur CNN
hefur það hins vegar eftir tals-
manni Vivendis, Alain Delrieu, síð-
ar í gær, að Messier væri ekki
hættur og hefði ekki í hyggju að
hætta. Jafnframt er haft eftir tals-
manninum að örlög Vivendis réð-
ust á stjórnarfundi í dag, miðviku-
dag.
Stjórn Vivendis kennir Messier
um 80% lækkun sem orðið hefur á
virði fyrirtækisins sem á nú í mikl-
um fjárhagsörðugleikum. Ekki
bætir úr skák að ásakanir um bók-
haldsóreiðu hafa komið fram en
slíkt hefur valdið enn frekara verð-
falli á hlutabréfum félagsins.
Undir stjórn Messiers varð Viv-
endi Universal að öðru stærsta
fjölmiðlunarfyrirtæki í heimi, en
það framleiddi m.a. myndina „A
Beautiful Mind“ og hefur á sínum
snærum listamenn eins og U2, Em-
inem, Elton John og Pavarotti.
Sérfræðingar á fjármálamarkaði
segja að afsögn Messiers gæti orð-
ið til þess að Vivendi-samsteypunni
verði skipt upp en aðstoðariðnaðar-
ráðherra Frakklands, Nicole Font-
aine, sagði hins vegar að ekki væri
líklegt að fyrirtækið yrði klofið og
engin ástæða væri til slíkra skipta.
Til Vivendi Universal teljast
Canal Plus í Frakklandi, Universal
Music Group og Universal Studios
í Bandaríkjunum auk afþreyingar-
hluta USA Networks með Sci-fi-
sjónvarpsstöðina og Home Shopp-
ing Network í Bandaríkjunum inn-
an borðs.
Of mikið á of stuttum tíma
„Ég hætti til að Vivendi Univer-
sal geti haldið velli,“ sagði Messier
í samtali við Le Figaro. „Ég reyndi
að gera of mikið á of stuttum
tíma.“
Jean-Rene Fourtou, varafor-
stjóri lyfjafyrirtækisins Aventis,
og Charles de Croisset, forstjóri
franska bankans CCF, hafa verið
nefndir sem eftirmenn Messiers.
Messier var eitt sinn allra eft-
irlæti í fjármálaheimi Parísarborg-
ar en hefur nú mátt þola harða
gagnrýni vegna stjórnunarstíls
síns.
INNKAUPASKRIFSTOFA Delta
á Indlandi tók formlega til starfa
hinn 1. júlí sl. Meginástæða fyrir
stofnun hennar er að afla hráefna
til þróunar og framleiðslu lyfja.
Markmiðið með stofnun inn-
kaupaskrifstofunnar er m.a. að
skapa tengsl við aðra markaði í
Asíu. Skrifstofan er staðsett í
borginni Hyderabad og byggist
starfsemi hennar meðal annars á
því að finna áreiðanlega birgja til
hráefniskaupa, gera úttektir á
þeim og hafa milligöngu um að
birgjar þrói og framleiði hráefni
í samræmi við þær kröfur sem
gerðar eru til gæða hráefna og
framleiðslu á þeim samkvæmt
evrópskum stöðlum og reglum.
Delta hefur náð samkomulagi
við þýska lyfjafyrirtækið Midas
Pharmachemie GmbH um stofnun
sérstakrar deildar innan fyr-
irtækisins sem mun annast sölu-
og markaðsmál fyrir Delta á skil-
greindum markaðssvæðum er-
lendis. Verður deildin rekin undir
merkjum Medis og verður að-
skilin frá öðrum rekstri Midas.
Gert er ráð fyrir því að 3–4
starfsmenn muni starfa innan
deildarinnar fyrst um sinn en for-
stöðumaður hennar er Thomas
Möller en hann starfaði áður hjá
þýska lyfjafyrirtækinu Boehr-
inger Ingelheim.
Delta
opnar
skrifstofu
á Indlandi
Morgunblaðið/Kristinn
Delta hefur stofnað söludeild í Þýskalandi og innkaupaskrifstofu á Indlandi.
HÆTT hefur verið við samruna
Den norske Bank og trygginga-
félagsins Storebrand sem ákveðinn
var í síðasta mánuði. Samkomulag
náðist ekki um skiptihlutfall en DnB
vildi lækka það úr hámarkinu 1,33
bréf í DnB fyrir hvert bréf í Store-
brand í 1,2. Á sunnudagskvöld var
ljóst að samruninn yrði ekki að
veruleika.
Samrunasamkomulagið átti sér
langan aðdraganda. DnB bauð
Storebrand til samrunaviðræðna
fyrir rúmu ári til að freista þess að
koma í veg fyrir að finnska fyr-
irtækið Sampo yrði fyrra til að yf-
irtaka Storebrand. Ljóst var að
Storebrand þyrfti einhvers konar
sameiningu við annað fyrirtæki þar
sem afkoma fyrirtækisins hefur
versnað.
Samkomulag náðist loks í lok maí
sl. og þá fór af stað áreiðanleika-
könnun. Hún hefur staðið yfir síð-
asta mánuðinn og hefur leitt nýjar
staðreyndir um bæði fyrirtækin í
ljós. Slíkt átti óháður þriðji aðili að
rannsaka, samkvæmt samningi fyr-
irtækjanna, en svo fór að DnB neit-
aði að afhenda óháða aðilanum,
Deloitte & Touche, sín gögn. Það
voru m.a. upplýsingar um banka-
hluta Storebrand, Finansbanken,
sem gerði það að verkum að DnB
vildi lækka skiptihlutfallið úr 1-1,33
í 1-1,2 en útlánastefna Finansban-
ken og tap af henni var DnB ekki að
skapi.
Á fréttavef Dagens Næringsliv er
greint frá því að stjórnarformaður
Storebrand, Leiv Nergaard, hafi
orðið fyrir vonbrigðum og að hans
sögn var nokkuð langt í að samn-
ingar tækjust. Forsvarsmenn Store-
brand og hluthafar gátu ekki sætt
sig við lækkað skiptihlufall og því
tókst samruninn ekki. Stjórnarfor-
maður Storebrand segir að staða
fyrirtækisins sé vel viðunandi og
vísar því frá að þörf sé á hlutafjár-
aukningu þar sem annar samruni sé
ekki í sjónmáli.
Hætt við sam-
einingu DnB
og Storebrand
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur heim-
ilað ríkjum í sambandinu að ábyrgjast
tryggingar flugfélaga í löndunum til
næstu fjögurra mánaða en trygging-
arnar eru vegna stríðs og hryðju-
verka. Vonast er til að hægt sé að
finna varanlega lausn á þessum
tryggingamálum í október nk. þegar
samgönguráðherrar landanna hittast
á fundi.
Alþingi Íslendinga samþykkti fyrr
á þessu ári lög sem gilda út þetta ár
sem heimila ríkissjóði tímabundið að
takast á hendur tryggingu eða end-
urtryggingu á bótaábyrgð sem flug-
rekendur kunna að baka sér gagnvart
þriðja aðila vegna tjóns er hlýst af
notkun loftfars vegna hernaðarað-
gerða, hryðjuverka eða áþekkra at-
vika, með síðari breytingum, eins og
segir í skilgreiningu laganna. Guðjón
Arngrímsson upplýsingafulltrúi
Flugleiða segir að fjármálaráðuneytið
hafi veitt Flugleiðum þessa ábyrgð í
einn mánuð í senn og rann hún síðast
út í lok júní. „Nú er staðan þannig að
búið er að endurnýja ábyrgðina og við
erum með hana til loka ágúst.“
Ríkisábyrgð
Flugleiða til
ágústloka
Í FRÉTT sem birt var í gær um arð-
semi eigin fjár lánastofnana og fyr-
irtækja í verðbréfaþjónustu árið
2001 var ranglega farið með afkomu
verðbréfasjóða og rekstrarfélaga
þeirra. Réttilega var greint frá eign-
arstöðu þeirra, en hún var 101 millj-
arður króna um síðustu áramót og er
þá miðað við sjóði sem skráðir eru
hér á landi. Ranghermt var hins veg-
ar að þeir hefðu tapað 2,5 milljörð-
um. Hið rétta er að rekstrarfélög
sjóðanna töpuðu samtals 2,5 milljón-
um en rekstrarfélögin eru í eigu við-
komandi fjármálafyrirtækja. Það
sem snertir hlutdeildarskírteinis-
hafa verðbréfasjóðanna eru vextir og
verðbætur sem komu í hlut þeirra og
námu samtals 8,5 milljörðum. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
Leiðrétting
8,5 ma.kr. til
skírteinishafa
♦♦♦