Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SJÖTÍU og einn fórst er tvær þotur
rákust saman á flugi yfir Suður-
Þýskalandi í fyrrakvöld. Var önnur
þotan rússnesk, af gerðinni Tupolev
154, og með henni 69 manns, en hin
var fraktflugvél af gerðinni Boeing
757, smíðuð í Bandaríkjunum, og
með henni tveir. Allir sem voru um
borð í vélunum fórust. Ekkert
manntjón varð á jörðu niðri, þótt
brennandi braki úr vélunum hafi
rignt yfir stórt svæði við bæina
Überlingen og Konstanz við Boden-
vatn á landamærum Þýskalands og
Sviss.
Rússneska vélin var í eigu flug-
félagsins Bashkirian Airlines og var
á leið frá Moskvu til Barcelona á
Spáni. Með henni voru 52 börn og
unglingar frá sjálfstjórnarlýðveldinu
Bashkortostan í sunnanverðum
Úralfjöllum, og höfðu börnin unnið
ferð til Spánar í verðlaun fyrir góða
námsframmistöðu. Hópurinn átti að
halda til Spánar á laugardaginn en
missti af tengifluginu í Moskvu. Út-
vegaði flugfélagið því hópnum aðra
flugvél til fararinnar.
Ítrekað beðnir
að lækka flugið
Fraktvélin var í eigu flutninga-
félagsins DHL og var rekin af
Bahrain Aviation. Flugmennirnir
voru Breti og Kanadamaður. Vélin
var á leið frá Bergamo á Ítalíu til
Brussel í Belgíu.
Áreksturinn varð í 35.300 feta
hæð á svissnesku flugumferðar-
stjórnarsvæði, og sagði Anton Maag,
talsmaður svissnesku flugumferðar-
stjórnarinnar, Skyguide, að báðar
vélarnar hafi verið að lækka flugið
úr 36 þúsund fetum til að forðast
árekstur er þær skullu saman. Maag
bætti við, að rússnesku flugmenn-
irnir hefðu lækkað sig snöggt eftir
að flugumferðarstjórar hefðu ítrek-
að beðið þá um það.
Boeing-þotan var búin árekstrar-
vara, sem gaf flugmönnunum fyrir-
mæli um að lækka flugið. Flugmönn-
um er skylt að hlíta fyrirmælum er
koma frá árekstrarvara. Rússneskir
embættismenn fullyrða að Tupolev-
vélin hafi verið með sams konar við-
vörunarbúnað. Samkvæmt alþjóð-
legum reglum ættu báðar vélarnar
að hafa haft slíkan búnað, að sögn
talsmanns Alþjóðasambands flug-
félaga (IATA).
Þvertaka fyrir
mannleg mistök
Maag sagði að flugumferðarstjór-
inn í Zürich, sem fyrirskipaði rúss-
nesku vélinni að lækka flugið um
tveim mínútum áður en áreksturinn
varð, hefði mikla starfsreynslu.
Rússnesku flugmennirnir hefðu ekki
lækkað sig fyrr en þeir höfðu verið
beðnir um það þrisvar. Rússnesk
flugmálayfirvöld þvertaka fyrir að
mistök flugmanna hafi verið orsök
árekstursins. Flugstjóri Tupolev-
þotunnar hafi haft margra ára
reynslu og talað ensku reiprennandi
og hefði fullkomlega getað skilið fyr-
irmæli um að lækka flugið.
Patrick Herr, talsmaður sviss-
nesku flugumferðarstjórnarinnar,
sagði að ekki væri ljóst hvers vegna
árekstrarvari Boeing-þotunnar hefði
gefið fyrirmæli um lækkun þegar
hin vélin hafi þegar verið farin að
breyta stefnu til að forðast árekstur.
„Gáturnar eru tvær,“ sagði Herr. „Í
fyrsta lagi, hvers vegna brást flug-
stjóri Tupolev-þotunnar ekki við taf-
arlaust, og í öðru lagi, hvers vegna
gaf sjálfvirki árekstrarvarinn í Bo-
eing-þotunni líka fyrirmæli um
lækkun.“
Sepp Moser, einn þekktasti flug-
málasérfræðingur Sviss, sagði í gær
að auk þessara tveggja þátta þyrfti
að athuga hvað svissnesku flugum-
ferðarstjórarnir hefðu gert. Sagðist
Moser undrandi á því að svissneska
flugumferðarstjórnin ætlaði einung-
is að beina rannsókn sinni að
árekstrarvara Boeing-þotunnar og
viðbrögðum rússneska flugstjórans.
Að sögn talsmanna DHL höfðu
bæði flugstjóri og flugmaður Bo-
eing-þotunnar mikla reynslu. Vélin
hefði verið smíðuð 1990 og DHL
hefði keypt hana af British Airways
1999. Hún hefði verið skoðuð reglu-
lega, og engra bilana hefði orðið
vart.
Bashkirian Airlines gerir út átta
Tupolev 154 þotur og flýgur aðallega
innanlandsflug í Rússlandi og til
fyrrverandi Sovétlýðvelda, auk
leiguferða til útlanda. Vélar þessar-
ar gerðar voru fyrst teknar í notkun
1972 og eru mikið notaðar af flug-
félögum í Rússlandi og fyrrverandi
Sovétlýðveldum, auk Kína og Aust-
ur-Evrópulanda.
Þoturnar tvær voru í 36 þúsund
feta hæð þegar hættuástandið skap-
aðist, en samkvæmt upplýsingum
frá IATA var evrópskum reglum um
lágmarks hæðarmun milli flugvéla
er fljúga yfir 29 þúsund fetum breytt
í janúar sl., þannig að lágmarkið er
nú eitt þúsund fet, en var tvö þúsund
fet.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort þetta
var að einhverju leyti orsök slyssins,
og talsmaður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, Gilles Gante-
let, fullyrti í gær að þetta hafi ekki
skipt neinu máli. „Vandinn var sá, að
flugvélarnar voru ekki þar sem þær
áttu að vera,“ sagði Gantelet.
Sjötíu og einn fórst með tveimur þotum er rákust saman á flugi yfir Suður-Þýskalandi
Báðar voru að lækka flug-
ið til að forðast árekstur
!""##
$%&#%' '()*" +
,-./+#0#+ 123
4253667 89465:9 18946;
%396 2<9 =>
?1==
!
" #
$
"
%
& '
(""
)
$*" "
+
,"
-
"
-'
.@
9 =>
.
"" / )" "
-
" 0 "
12
"
%
%
"
.
0
3 4!!
Reuters
Þýskir lögreglumenn á verði við lík, sveipað plastdúk, eftir að það fannst skammt frá slysstaðnum í gær.
Überlingen, Genf. AFP, AP.
Reuters
Brak úr Tupolev-þotunni á slysstað. Brak úr vélunum dreifðist um stórt svæði.
ÍBÚAR þýska bæjarins Überling-
en vöknuðu upp við vondan draum
aðfaranótt þriðjudags þegar flug-
vélarnar tvær rákust á yfir bæn-
um. Logandi braki rigndi yfir
stórt svæði í og við bæinn og þyk-
ir mikil mildi að enginn skuli hafa
farist eða slasast alvarlega á
jörðu niðri.
Unglingur nokkur var upptek-
inn við tölvuleik þegar hann
heyrði sprenginguna. „Ég leit út
um gluggann minn og sá nokkuð
sem leit út eins og fjórir loft-
steinar á leið til jarðar. Svo sá ég
hvítt brak í einum loftsteininum
og sagði við bróður minn að orðið
hefði flugslys.“ Annað vitni,
Walther Rosenberg, heyrði djúp-
an hvell, eins og fallbyssuskot.
„Fyrst hélt ég að um jarðskjálfta
hefði verið að ræða,“ sagði hann.
Um tólfhundruð lögreglumenn,
slökkviliðsmenn og aðrir hjálp-
arstarfsmenn gengu um svæðið í
leit að líkum og braki úr vélunum
tveimur. Talsmaður lögreglunnar
sagði leitina hafa verið sér-
staklega erfiða vegna þess að
brakið féll á svæði þar sem mikið
er um skóglendi og litla dali.
Lögreglan í Überlingen heyrði
af slysinu rétt eftir miðnætti og
voru allir lögreglumenn bæjarins
ræstir fram úr rúmum sínum. Þeir
sem fyrstir mættu á slysstað lýstu
aðkomunni eins og að koma í log-
andi víti. „Við hófum þegar leit að
eftirlifandi farþegum,“ sagði ung-
ur lögreglumaður. „Ég trúði því
allan tímann að við myndum finna
einhvern á lífi.“ Hann segir vonir
sínar hins vegar hafa farið dvín-
andi eftir að hann fann fyrstu lík-
in. „Þetta var allt ungt fólk á aldr-
inum 15 til 20 ára,“ sagði hann.
Logandi
braki rigndi
yfir bæinn
Überlingen. AFP, AP.
ÞRÁTT fyrir sívaxandi umferð í
háloftunum eru árekstrar stórra
farþega- og/eða vöruflutningavéla
mun sjaldgæfari en aðrar tegundir
flugslysa. Kemur þetta fram í rann-
sókn sem bandaríski flugvélafram-
leiðandinn Boeing lét gera fyrr á
þessu ári.
Milli áranna 1992 og 2001 eru að-
eins tvö skráð flugslys af þessu
tagi, hið fyrra árið 1992 í Líbýu og
hið seinna í Nýju Delhí á Indlandi
árið 1996, en samtals fórust 506
manns í slysunum tveimur. Á sama
tíma fórust 6.922 í 31 flugslysi af
öðrum toga, þar af 407 árið 2001.
Rannsóknin tekur ekki til árekstra
þar sem einungis áttu í hlut flug-
vélar smíðaðar í Sovétríkjunum
fyrrverandi þar sem erfitt er að
safna öruggum upplýsingum þar að
lútandi. Að sama skapi tekur hún
ekki til árekstra minni flugvéla.
Á sjöunda áratugnum urðu fjórir
árekstrar í háloftunum, sex á átt-
unda áratugnum og tveir á þeim ní-
unda. Samtals fórust 1.317 manns í
þessum tólf árekstrum, en mest
manntjón í flugslysi af þessari gerð
varð árið 1996 þegar Boeing 747
farþegavél frá Saudia flugfélaginu
og Ilyushin 76 vöruflutningavél frá
Kazakhstan Air rákust saman
nærri Nýju Delhí á Indlandi en þá
fórust 349 manns.
Árekstrum stórra flugvéla hefur
fækkað töluvert undanfarin tíu til
fimmtán ár, að hluta til vegna þess
að í flestum stórum flugvélum er
nú búnaður sem fylgist með því
hvort aðrar flugvélar eru hættu-
lega nálægt og á að tryggja að slys
eins og það sem varð á mánudag
eigi sér ekki stað.
Árekstrar í
lofti afar
sjaldgæfir