Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 21

Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 21 Póstkortaleikur ESSO SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐFerðamálaráð Íslands A B X / S ÍASkrifaðu okkur Taktu þátt í póstkortaleik ESSO í sumar og þú gætir unnið glæsilegt Coleman-fellihýsi! HÆSTIRÉTTUR Chile hefur úr- skurðað að Augusto Pinochet, fyrr- verandi einræðisherra landsins, sé ósakhæfur vegna andlegrar hnign- unar og því verði ekki hægt að lög- sækja hann fyrir dráp morðsveita á tugum andstæðinga hans skömmu eftir valdarán hans árið 1973. Pinochet átti hundruð annarra ákæra yfir höfði sér en líklegt er að hann verði aldrei sóttur til saka fyrir mannréttindabrot sem framin voru á 17 ára valdatíma hans þar sem úr- skurðurinn kann að hafa fordæmis- gildi. Lögfræðingar ættingja þeirra sem voru drepnir ætla að halda áfram málaferlum gegn öðrum þátt- takendum í drápunum, en sögðu viðbúið að öllum ákærum á hendur Pinochet yrði hafnað. Fjórir dómarar hæstaréttar kom- ust að þeirri niðurstöðu í fyrradag að Pinochet væri ósakhæfur vegna vit- glapa, sem skertu dómgreind hans, en einn dómari var á öndverðum meiði. Pinochet er einnig haldinn sykursýki og liðagigt, er með hjarta- gangráð og hefur að minnsta kosti þrisvar sinnum fengið vægt heila- blóðfall. Hæstiréttur Chile Pinochet úrskurð- aður ósakhæfur Santiago. AFP. ZANANA Gusmao, forseti Aust- ur-Tímors (t.h.), og Megawati Sukarnoputri, forseti Indónesíu, í forsetahöllinni í Jakarta í gær þegar Gusmao fór í fyrstu heim- sókn sína til Indónesíu frá því að hann varð þjóðhöfðingi. Gusmao var í fangelsi í sjö ár í Indónesíu vegna baráttu hans fyrir sjálf- stæði Austur-Tímors en í þetta sinn fékk hann höfðinglegar mót- tökur hjá indónesískum ráða- mönnum. Forsetarnir lögðu áherslu á að efla þyrfti samstarf landanna og gerðu lítið úr ágreiningsmálunum. Austur-Tímor varð sjálfstætt ríki 20. maí, 26 árum eftir að landið var innlimað í Indónesíu með hervaldi. AP Gusmao heimsækir Indónesíu TVÆR suður-afrískar þyrlur luku í gær við að bjarga síðustu mönnunum úr hópi rússneskra vísindamanna sem voru um borð í þýsku skipi sem situr fast í ís við Suðurskautslandið. Voru mennirnir fluttir um borð í s-afrískt björgunarskip. Um borð í þýska skipinu er nú að- eins nauðsynleg áhöfn, en von er á argentínskum ísbrjóti á föstu- daginn er losa á skipið og koma því í örugga höfn. Um borð voru 107 manns, og hafa 89 nú verið fluttir í s-afríska skipið. Þýska skipið hafði setið fast síðan um miðjan júní, en það er ekki talið vera í hættu. Björgunaraðgerðir hafa gengið hægt vegna veðurs. Suðurskautið Björg- un lokið Jóhannesarborg. AFP. Prófsteinn á rússneskt réttarkerfi Rostov. AP, AFP DÓMARAR í máli rússnesks herfor- ingja, sem ákærður er fyrir að hafa rænt og myrt unga tsjetsneska stúlku árið 1999, frestuðu því að fella dóm og sögðu hinn ákærða þurfa að gangast undir nýtt geðlæknismat. Herforinginn, Júrí Búdanov, hefur viðurkennt að hafa myrt stúlkuna, Elsu Kúngajevu, en segist hafa verið haldinn stundarbrjálæði þegar glæp- urinn var framinn. Rússar hafa fylgst með málinu af miklum áhuga enda líta margir á það sem prófstein á það hvort rússnesk yfirvöld séu reiðubúin að taka á þeim mannréttindabrotum sem rússneskir hermenn hafa framið í stríðinu í Tsjetsjníu. Lögmaður fjölskyldu fórnarlambs- ins fagnaði úrskurðinum, en lögmað- ur og fjölskylda Búdanovs voru æf enda höfðu þau búist við því að hann yrði sýknaður. Búdanov hefur þegar gengist undir tvö geðlæknispróf en niðurstöður þeirra stönguðust á, sam- kvæmt fyrra prófinu var hann heil- brigður á geði þegar hann myrti stúlkuna en samkvæmt því síðara var hann haldinn stundarbrjálæði á þeim tíma. Töldu dómararnir að þriðja prófið væri nauðsynlegt til að skera úr um andlegt ástand Búdanovs. Rússneskir mannréttindafrömuðir fögnuðu úrskurðinum en sögðu hann bera þess merki að rússneskir dóm- stólar væru ósjálfstæðir. „Ákvörðun- in var tekin á efstu stigum,“ sagði talsmaður mannréttindasamtaka. „Hún sýnir berlega að stjórnvöld hafa áhrif á dómstólana.“ Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar Til þjónustu reiðubúnir! Eitt númer - 511 1707 www.handlaginn.is handlaginn@handlaginn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.