Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 22

Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Menningardagskrá í Skálholti HELGARTILBOÐ Skálholtsskóli - Sumartónleikar í Skálholtskirkju og Fornleifastofnun bjóða upp á sérstaka dagskrá eftirfarandi helgar í sumar: 6.-7. júli, 13.-14. júlí, 27.-28. júlí. Dagskráin felur í sér gistingu og fæði m.a. sögutengda málsverði að hætti Valgerðar biskupsfrúar og Þorláks biskups helga, fyrirlestur, leiðsögn um fornleifauppgröft- inn, staðarskoðun, þrenna tónleika og hátíðarmessu. Boðið er upp á sérstakt helgartilboð, kr. 8.900 Pantanir og upplýsingar í Skálholtsskóla, sími 486 8870, netfang skoli@skalholt.is ORKUVEITA Reykjavíkur ákvað á síðastliðnu ári að efna til sam- keppni um gerð listskreytingar í nýjum höfuðstöðvum Orkuveit- unnar á Bæjarhálsi 1 í Reykjavík. Dómnefnd hefur nú lokið störfum og mælt með fjórum verkum, þar af tveimur til uppsetningar í hvolf- rými, einu í skrifstofurými og einu verki í tengigangi milli aðalbygg- ingar og verkstæðisbyggingar. Höfundar tillagnanna eru Hreinn Friðfinnsson, Þór Vigfússon, Svava Björnsdóttir og Finnbogi Pétursson. Níu listamenn tóku þátt í lokaðri samkeppni að tillögu for- valsnefndar. Það er mat dómnefndar að verk Hreins, Kristall, byggist á einfaldri og nútímalegri hugmynd sem falli vel að hvolfrýminu í byggingunni. Verkið tengi vel saman list og vís- indi og sé hrífandi í einfaldleik sín- um. Tenging verksins við hring- snúning jarðarinnar og ferð pendúlsins umhverfis skífuna sé bæði einföld og snjöll hugmynd. Það er mat dómnefndar að verk Þórs, Lyftuverk, sem mælt er með að útfært verði á lyftuvegg í mið- rými hússins, sé sérstætt verk sem muni gefa gólfrýminu líf og lit. Verkið sé einfalt og lifandi. Það byggist á frumlitum litrófsins. Dómnefnd segir að verk Svövu, Uppspretta, sé bæði sérstakt og hrífandi. Verkið byggist á því að reisa 25 metra háa súlu úr svörtu slípuðu graníti gegnum hæðir, gólf og loft í anddyrum vesturhluta byggingarinnar. Verkið þykir fal- legt sjónarspil sem gefur bygging- unni ferskleika og fellur vel að starfseminni. Þá er það mat dómnefndar að verkið Hringur eftir Finnboga sé sjónrænt fallegt og frumlegt verk. Notkun grunnforma náttúrunnar með umbreytingu orkunnar úr einu frumformi yfir í annað sé bæði sérstök og frumlega útfærð. Staðsetning verksins er hugsuð í tengigangi byggingarinnar. Niðurstaða dómnefndar byggist ekki síst á því að þessi fjögur verk mynda sterka og samstæða heild í byggingunni þrátt fyrir ólíkar skírskotanir og yfirbragð. Loks mælir dómnefnd með því við byggingarnefnd og stjórn Orkuveitunnar að sá kostur verði skoðaður í framtíðinni að útfæra frekar og framkvæma tillögu Finnu Birnu Steinsson, Hugarorku I, sem gæti sómt sér vel í bygging- unni. Útfæra þarf verkið frekar og finna því hentugan stað. Í dómnefnd sátu Ögmundur Skarphéðinsson formaður, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Sveinn Krist- insson, Ólöf Oddgeirsdóttir og Guðjón B. Ketilsson. Trúnaðar- maður dómnefndar var Ólafur Jónsson. Sýning á innsendum tillögum stendur til 8. júlí í Perlunni, 4. hæð. Skreyta höfuð- stöðvar Orkuveit- unnar með list Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR, listamennirnir Finnbogi Péturs- son, Hreinn Friðfinnsson, Svava Björnsdóttir og Þór Vigfússon og Ög- mundur Skarphéðinsson, formaður dómnefndar. ÞURSAR, skessur og álfar auk mennskra manna, góðra og illra, bregða á leik í söngleiknum Kol- rössu sem leikfélagið Hugleikur sýnir í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri á laugardagskvöld kl. 20. Söngleikurinn hlaut góða dóma síðasta vetur þegar hann var sýndur í Tjarnarbíói og þurfti að hætta sýningum þar fyrir fullu húsi. Hugleikur hefur ákveðið að leggja land undir fót og gefa Norðlendingum kost á að sjá þennan nýja íslenska söngleik. Að- eins er mögulegt að sýna þessa einu sýningu á Akureyri. Höf- undur söngleiksins er dr. Þórunn Guðmundsdóttir söngkona og leik- stjóri er Eyfirðingurinn Jón Stef- án Kristjánsson. Söngleikurinn Kolrassa byggist á ævintýrinu um Kolrössu krók- ríðandi. Systurnar Ása, Signý og Helga lenda í mannraunum í helli þríhöfða þurs og reynir á hug- rekki og kænsku Helgu til að ráða úr vandanum. Verkið er gam- anleikur með spennuívafi sem höfðar jafnt til fullorðinna og barna. Leikarar og söngvarar í sýningunni eru sautján talsins og hafa flestir mikla reynslu, enda eru margir þeirra menntaðir í tónlist. Meðal flytjenda eru Signý Sæmundsdóttir og Þórunn Guð- mundsdóttir óperusöngkonur. Hljómsveitin Fermöturnar sér um undirleik og er hún skipuð átta hljóðfæraleikurum. Sýningin fékk sérstakt hrós við val Þjóðleikhússins á athyglisverð- ustu áhugaleiksýningu ársins. Hægt er að panta miða í síma 661-2525 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hug- leik@mi.is. Miðaverð er krónur 1.600 fyrir fullorðna og 1.000 fyr- ir börn. Hugleikur er á leið norður með Kolrössu krókríðandi. Kolrassa fer norður SIGURÐI Bragasyni baríton- söngvara og Hjálmi Sighvats- syni píanóleikara hefur verið boðið að halda tvenna tónleika á listahátíðinni Rheinreise 2002 í Þýskalandi. Hátíðin er haldin í borgunum Köln, Bonn, Kön- igswinter, Andernach, Neu- wied, Koblenz og Bingen en all- ar standa þær við ána Rín. Fyrri tónleikarnir verða í Kön- igswinter í Nibelungenhalle 10. júlí kl. 19.30 og þeir síðari í Schumannhaus í Bonn 12. júlí á sama tíma. Á tónleikunum flytja Sigurð- ur og Hjálmur efnisskrá sem samanstendur af verkum eftir Jón Leifs, Richard Wagner og heimspekinginn Friedrich Nietzsche en fæstir vita að hann samdi fjölda sönglaga og kórverka. Aðdragandi tónleikanna er sá að Sigurður og Hjálmur héldu tónleika á sumarlistahá- tíðinni í Bonn fyrir nokkrum árum. Eftir tónleikana bað Andreas Loesch forstjóri hátíð- arinnar þá um að leita að þess- um verkum eftir Nietzsche á þýskum bókasöfnum og flytja þau ásamt verkum eftir Rich- ard Wagner og Jón Leifs á Rheinreise 2002. Það er skammt stórra högga á milli hjá Sigurði því honum hefur, ásamt Ólafi Elíassyni pí- anóleikara, verið boðið að halda tónleika í hinni virtu listamið- stöð Kennedy Center for the Performing Arts í Washington 25. febrúar næstkomandi. Flytja þeir þar sömu efnisskrá og þeir fluttu hér heima í Hafn- arborg og svo í Carnegie Hall í New York og Wigmore Hall í Lundúnum í fyrra. Saman- stendur hún af verkum eftir Pál Ísólfsson, Jón Leifs, Piotr Tsjajkovskíj og Modest Múss- orgskíj. Hjálmur Sighvatsson og Sigurður Bragason. Flytja lög Nietzsches í Þýska- landi SIGURÐUR Rúnar Jónsson, Diddi fiðla, verður gestur Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Honum til fulltingis verða söngkonurnar Aðalheiður Borgþórsdóttir og Ingveldur Ólafsdóttir. Diddi sýnir og spil- ar á gömlu íslensku hljóðfærin; – fiðlu og langspil, talar um þau, sýnir myndir og syngur gömul þjóðlög. Á dagskrá verða mestmegnis gömul lög við íslensk ljóð. Diddi fiðla í Bláu kirkjunni FRÖNSK orgeltónlist er um margt sérstæð og að nær öllu leyti ólík þýska skólanum, sérstaklega er varðar tónferli, hljóm- og formskip- an og „registeringu“, þ. e. val radda, er hefur áhrif á mótun blæbrigða. Yfirleitt er frönsk orgeltónlist sér- lega hljómræn og þar hafa César Franck og Debussy haft áberandi áhrif. Í stað raddfleygunar þýska skólans, nota Frakkar mikið brotna hljóma, sem eins konar undirleik (yf- irleik) á móti einföldum og áberandi stefjum. Hægir þættir eru oftlega fallegar sóló-laglínur, með hljómsæt- um undirleik, þar sem raddvalið hef- ur mikið að segja. Form verkanna eru oftast einföld og jafnvel aðeins ABA og meira að segja fúgurnar eru í raun oft ekki annað en hljómaleikur og raddfleygunin oft miklu frekar í anda rómantískrar hljómfræði en konstrapunktískra vinnuaðferða. Þessi sérkenni franskrar orgeltón- listar bjóða upp á mikla leiktækni og glæsilega og rismikla hljómskipan. Allt þetta mátti heyra í verkum Dur- uflé, sem Björn Steinar Sólbergsson lék á fyrstu tónleikum sumarsins í Hallgrímskirkju sl. sunnudag. Fyrsta verkið var Forspil (prelúdía), adagio og sálmtilbrigði op. 4, er tón- skáldið tileinkaði kennara sínum, Louis Vierne, enda er verkið mjög í anda Francks, sem var kennari Vierne. Þetta er langt og margbrotið verk en á köflum sundurlaust í formi, þar sem kaflaskipan bar oft of brátt að og hefði Björn Steinar mátt und- irbúa þessi skil, með smáseinkun, eins og þegar líður að setningalok- um. Að öðru leyti var verkið sérlega vel flutt af Birni Steinari. Annað við- fangsefnið var Forspil og fúga um nafn Jehan Alain. Það er varla hægt að kalla seinni kaflann fúgu, nema þá að forminu til. Þrátt fyrir þetta er verkið glæsilegt og eins og næsta verk, Skersó op. 2, flutt á mjög skýr- an máta. Lokaverkið var Svíta op. 5, fallega hljómandi verk, fyllt upp með glæsilegum tilþrifum og leiktækni- brellum, er voru frábærlega vel út- færðar af Birni Steinari. Björn Steinar Sólbergsson er góð- ur orgelleikari, teknískur og vandar sérlega vel til verka, þar sem öllu er vel til haga haldið, þó á stundum vanti meiri ástríðu og hrynskerpu í leik hans. Það var t. d. sérlega eft- irtektarvert hversu raddskipanin þjónaði því að gera tónmál verkanna sem skýrast og að hvergi var ofgert í styrk, svo að jafnvel pedalröddin varð aldrei áberandi hljómfrek, eins og oft vill verða hjá þeim er vilja sýna pedaltækni sína, sem er sérlega örugg hjá Birni Steinari. Það var jafnvel ekki í glæsilegu niðurlagi snertlunnar (tokkata), sem er þriðji þáttur svítunnar, að Björn Steinar ofgerði í styrk. Í heild var flutningur Björns Steinars Sólbergssonar sér- lega yfirvegaður og einstaklega vandaður, enda er hann mjög tekn- ískur orgelleikari, sem meðal annars kemur hvað best fram í skýrri mótun tónhendinga. Yfirvegaður og vandaður flutningur TÓNLIST Hallgrímskirkja Björn Steinar Sólbergsson flutti fjögur orgelverk eftir Maurice Duruflé. Sunnu- dagurinn 30. júní, 2002. ORGELTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.