Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ E INU sinni var mér sögð sagan af Sveini. Hann var afar góður karl, og þegar hann var orð- inn aldraður og farinn að nálgast dauðann var lítil stúlka í fjöl- skyldunni skírð í höfuð honum, Sveinsína. Sveinsína hafði alla kosti afa síns, einstakt gæðablóð, og þegar hún var komin að fótum fram var ákveðið að einn niðja hennar skyldi bera nafn hennar og var því skírður Sveinsíníus. Sveinsíníus var sjómaður, og svo slysalega vildi til að hann fórst á sjó frá ófrískri konu sinni og þeg- ar dóttir leit dagsins ljós var hún auðvitað látin bera nafn föður síns, Sveins- íníusína. Ég veit ekki hvort þessi saga er sönn; það skiptir kannski ekki máli; – hún gæti vel verið það, aðrar eins furður þekkjast vel þegar Íslendingum eru gefin nöfn. Mér þótti alltaf vænt um nafnið mitt, enda skírð í höfuðið á ömmu minni, Bergþóru, sem ég elskaði afar heitt. Að pabbi minn skyldi heita Jón fannst mér líka gott; einfalt og þjóðlegt og ekki þykir mér minna vænt um hann. Svo var amma mín líka Jónsdóttir eins og ég, þótt Jónarnir væru ekkert skyldir og kæmu hvor úr sínu sjávarplássinu. Þegar ég var lítil prísaði ég mig alltaf sæla, fyrir að heita hvorki Lofthæna né Freðsvunta, og þegar ég var einhvern tíma að þakka móður minni fyrir það, sagði hún mér, að ég hefði reynd- ar verið skírð millinafninu Fimmsunntrína, en það hefði bara gleymst að segja mér það. Fimmsunntrína var sem sé sú sem fæddist fimmta sunnudag eftir trínitatis. Ég trúði þessu ekki lengi, en þó fór þessi stríðni í taugarnar á mér; – þetta hefði nefnilega alveg getað verið rétt; það eru jú mörg sérstök nöfn í fjölskyldunni. Langafi minn norður í landi var til að mynda skírður Garibaldi, í höfuðið á ítölsku frelsishetjunni. Ég furða mig oft á því hvernig langalangafi minn og -amma gátu látið sér detta annað eins nafn í hug, og ekki síður hvernig þau höfðu haft spurnir af ítölsku frelsishetjunni lengst norður á hjara Íslands. En mér þykir vænt um þetta nafn, og ég gleðst yfir því að margir ætt- ingja minna hafa látið það lifa í nöfnum barna sinna. Í ættum mínum að vestan eru sannarlega mörg sérkennileg nöfn, bæði Ebeneser og Efemía, þótt nánustu forfeður mínir það- an hafi bara heitið Jón og Mar- grét. Í Kjósarleggnum heita karl- arnir Ólafur, Guðmundur og Magnús, en konurnar Kristín og Úlfhildur. Úlfhildarnafnið þótti einhvern tíma frekar ósmart, en mér þótti það alltaf sérstaklega fallegt og kraftmikið og hikaði ekki við að nefna dóttur mína Úlfhildi eftir að við foreldrar hennar höfðum mátað það við hana í nokkrar vikur. Ekki að það væri endilega í höfuðið á ein- hverri formóðurinni, heldur bara til að halda góðu nafni við. Mörg íslensk nöfn eru mjög „spes“; – og talandi um spes, – þá finnst mér eiginlega furðulegt að enginn nútímamanneskjan skuli hafa endurlífgað kvenmanns- nafnið Spes, komið úr latínu eins og kærleiksnafnið Karítas, og þýðir von. Spes hefur líka þessa tvíræðu merkingu í dag, – Spes er von, en líka sérstök. Það þykir alltaf tíðindum sæta þegar mannanafnanefnd kveður upp dóma sína um það hvaða nöfn skuli leyfð í íslensku máli og hver ekki. Í það minnsta gína fjöl- miðlar yfir þessum fréttum og slá þeim gjarnan upp. Eins og aðrir les ég þessar fréttir af miklum áhuga, og ýmist lofa nefndina fyrir réttvísi og skynsemi, eða verð alveg yfir mig gáttuð á for- sjárhyggjunni. Mér fannst alveg sanngjarnt að leyfa ekki að lítil stúlka fengi að heita Satanía, en finnst alveg ómögulegt að önnur skuli ekki fá að heita Blær. Hvað gæti nú verið svo slæmt við það? Jú, það er karlkyns, að mati nefndarinnar. En hverju skiptir það, þegar fjöldi íslenskra mannanafna ber annað kyn en manneskjan sem ber nafnið? Eitt elsta nafnið þessarar náttúru er Sturla; – sem er kvenkyns, – rétt eins og Erla, en er karlmanns- nafn. Svo eru það Sigmar og Dagmar, Auður og Höður. Leyft er að skíra drengi Blæ, og þá tek- ur það karlkynsfallbeygingu: Blær-Blæ-Blæ-Blæs. Karl- mannsnafnið Sturla tekur hins vegar kvenkynsbeyginu: Sturla- Sturlu-Sturlu-Sturlu. Einstöku sinnum heyrir maður fólk eiga í vandræðum með þetta og segja Sturli, en ég held að engum dytti í hug að taka nafnið úr notkun fyrir þau glappaskot. En hvers vegna ekki Blær? Þetta fallega nafn hlýtur að geta þrifist í ís- lensku máli sem kvenmannsnafn. Það fannst í það minnsta Halldóri Laxness, sem gaf það dularfullu stúlkunni sem spilaði á píanóið í Brekkukotsannál. Þótt nöfnin Sturla og Erla séu hvort tveggja kvenkyns og fallbeygist sam- kvæmt því, þá taka Sigmar og Dagmar hvort sína beyginguna eftir kyni. Það gæti Blær einfald- lega líka gert og samt fallið vel að íslensku máli. Í bókinni Nöfnum Íslendinga eftir Guðrúnu Kvaran og Sigurð Jónsson frá Arnarvatni er nafnsins getið sem kven- mannsnafns sem beygist Blær- Blæ-Blæ-Blær, en einnig bent á aðra beygingu þágufalls og eign- arfalls sem er ljómandi falleg: Blævi-Blævar. Það er óskilj- anlegt að mannanafnanefnd skuli ekki ekki geta séð í gegnum fing- ur sér við þá foreldra sem kjósa að gefa dóttur sinni þetta fallega og fullkomlega eðlilega kven- mannsnafn. Eitt er að banna ónefni eins og Sveinsíníusínu og Sataníu, en annað að hafna góð- um og gildum nöfnum á afar hæpnum forsendum. Auðvitað þarf mannanafnanefnd að hlíta ákveðnum reglum en að hengja sig í þær af slíkri óbilgirni verður henni aldrei til farsældar. Blær nafna „Mér fannst alveg sanngjarnt að leyfa ekki að lítil stúlka fengi að heita Sat- anía, en finnst alveg ómögulegt að önn- ur skuli ekki fá að heita Blær. Hvað gæti nú verið svo slæmt við það?“ VIÐHORF Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Í ÞJÓRSÁ eru tvær stórvirkjanir, en áætl- anir um nokkrar í við- bót, sumar þeirra á næstu árum. Í Þjórsá eru tvö lón, Bjarnalón ofan Búrfells og Sult- artangalónið stóra á Gnúpverjaafrétti. Áætlanir eru um fleiri lón, frægast þeirra Norðlingaöldulón á Fjórðungssandi, sem nær inn í friðlandið sem kennt er við Þjórsárver. Stórhuga athafnamenn hafa allt frá tímum Einars Benediktssonar haft mikinn vilja til þess að temja Þjórsá og virkja, breyta henni og koma afli hennar í verð. Aldrei hafa breytingarnar þó verið jafn örar og nú. Tveir fossar í Þjórsá eru svipur hjá sjón af vatnsleysi, Tröllkonuhlaup og Þjófafoss. Far- veg Tröllkonuhlaups má sjá í Þjóð- lendugöngu tvö á vegum Ferða- félagsins og þar er einnig farið hjá Þjófafossi. En í Fossagöngu FÍ meðfram Þjórsá í Norðurleit og Gljúfurleit sjáum við nokkra af fegurstu fossum landsins eins og þeir líta út þar sem Þjórsá er enn í sínu rétta eðli og í farvegi sínum úr Hofsjökli. Kjálkavers- eða Hvanngiljafoss Í Bjarnalækjarbotnum í Norð- urleit hefst Fossagangan. Fyrsta sem fyrir augu ber er Bjarnalæk- urinn þar sem sá vatnsmikli lækur kemur fullskapaður og eins og upp úr þurru undan Flóamannaöldu. Við uppsprettu Bjarnalækjar er fjallmannaskáli Norðurleitar- manna. Innan við Miklalæk, litla bergvatnsá um miðja Norðurleit, hallar niður að Þjórsá. Kjálkavers- foss er fyrsti foss í röð fjölmargra fossa sem sjá má á gönguleiðinni í Þjórsá sjálfri og þverám henar. Kjálkaversfoss heitir Hvanngilja- foss á máli Rangæinga en smalar á Gnúpverjaafrétti hafa helst tengt örnefnin sínu aðaláhugamáli og lifibrauði, sauðkindinni, en látið rómantíkina lönd og leið. Kjálka- ver er stór grasfláki í Norðurleit- inni. Í Kjálkaveri lágu úti í viku ill- viðri, tveir fjallmenn á nítjándu öld, þeir Gísli á Hæli og Ólafur á Skriðufelli. Þótti afrek að þeir komust af. Fossarnir í Dynk Frá Kjálkaversfossi er stutt ganga að Dalsá, vatnsmestu þverá Þjórsár á þessu svæði, enda hefur hún langan aðdraganda allt inn undir Kerlingafjöll. Á einum stað fellur hún í þröngum klettastokki, þar heitir Hlaupið. Fræknustu menn hafa hlaupið það, en aðrir skyldu ekki reyna. Dalsá þarf að vaða, en á henni er gott vað. Framan við Dalsá er Kóngsásinn, hásæti og valdastóll fjallkóngs Gnúpverja, sem skipar hirð sinni í leitir út frá ásnum, en þaðan sér vítt yfir. Suðaustanundir ásnum er fossinn Dynkur, 38 metra hár og er í raun margir fossar. Dynkur er fegursti foss landsins, ef gengið er að honum vestanmegin, það er af Gnúpverjaafrétti. Hann fellur fram af mörgum stöllum og mynd- ar fossakerfi. Þar eru fögur form og margreytilegir regnbogar, eins og litagos þegar sólin skín. Nafnlaus og fáum kunnur Ófærutangi er þar sem Hölkná rennur í Þjósá og myndar tangann milli ánna. Þangað rennur sauðfé. Tanginn er mjór og ekki reiðfær, gangandi smalar fara þá einu leið sem fær er fram og tilbaka og sömu leið förum við. Þar er gljúfur og breiður en nafnlaus slæðufoss og er hann fallegasti foss landsins, eins og Dynkur. Innan við Ófæru- tanga eru efstu skógarleifar við Þjórsá, en þangað innúr náðu krækluskógar hinir fornu. Annar foss er ofar í Hölkná. Geldingatangi, nafnið enn eitt dæmi um áherslur Gnúpverja í nafnavali, og hvernig sauðféð átti svæðið og hug bænda, er þar sem Geldingaá rennur í Þjórsá. Í Geld- ingaá eru líka slæðufossar. Leit- arkofinn Trantur stendur við ána. Stall af stalli í Gljúfurleit Gljúfurleitin er gróðursæl dal- kinn, berja- og blómabrekka á móti sól, sem liggur í mörgum stöllum niður að Þjórsá. Gljúfur- leitarfoss er framan við Geldinga- tanga, þar sem Þjórsá fellur í einu lagi af 28 metra háum stalli og er Gljúfurleitarfoss því einn af stór- fossum landsins. Kjálkaversfoss, Dynkur og Gljúfurleitarfoss eru mjög ólíkir fossar, hver þeirra ein- stakur. Í Gljúfurleit er landslag og gróðurfar sérstakt og fjölbreytt. Gamall fjallkóngur Gnúpverja, Sigurgeir frá Skáldabúðum, taldi það viku verk hið minnsta að skoða Gljúfurleitina svo gagn væri að. Síðasti spretturinn í Fossagöngu Ferðafélagsins er upp frá Þjórsá með Gljúfraá. Og ekki er að sökum að spyrja. Við blasir enn einn foss- inn, nafnlaus, en hár og fagur, í djúpu gljúfri. Gengið er stall af stalli í dæmigerðu landslagi Gljúf- urleitar og upp á einn af þeim efstu þar sem er fjallmannakofi Gljúfurleitara. Á þessum stalli endar gönguferð okkar á stað þar sem sést langt inn eftir Þjórsá. Bílvegur er frá skálanum til byggða, sá er vondur og ekki far- andi nema á fjallabílum. Vegurinn liggur víðast nokkuð langt frá ánni. Hjallarnir taka við af Gljúf- urleitinni. Þeir eru þó breyttir frá því fyrr á tíð vegna þess að Sult- artangalón Landsvirkjunar nær langleiðina inn undir Gljúfurleit. Bátar eiga þar betur við en göngu- skór. En gönguleiðin okkar innar með Þjórsá sem við kjósum að kalla Fossagöngu, er hinsvegar ósnortin og langt frá alfaraleið. Því hafa sárafáir enn séð þau nátt- úruundur sem raða sér upp eftir allri Þjórsá eins perlur á snúru. Fossagangan verður farin um verslunarmannahelgina, laugardag og sunnudag. Nánari upplýsingar fást hjá Ferðafélagi Íslands. Fossaganga Ferðafélags Íslands með Þjórsá Sigþrúður Jónsdóttir Ferðalög Sárafáir hafa enn séð, segja Björg Eva Erlendsdóttir og Sigþrúður Jónsdóttir, þau náttúruundur sem raða sér uppeftir allri Þjórsá. Höfundar eru Björg Eva Erlends- dóttir, fréttamaður hjá RÚV, og Sig- þrúður Jónsdóttir náttúrufræðingur. Björg Eva Erlendsdóttir FRAMKVÆMDA- STJÓRI Samfylking- arinnar, Björgvin G. Sigurðsson, fer mik- inn í grein sem hann ritar í Morgunblaðið 26. júní síðastliðinn. Þar gagnrýnir hann Sjálfstæðisflokkinn harðlega, segir hann eina flokkinn á land- inu sem stundi það að sitja í kjördeild og fylgjast með kosn- ingaþátttöku borgar- anna. Björgvin hefur um þessa iðju mörg stór orð og er ekki ástæða til að hafa það eftir. En þar sem hann gegnir nú því ábyrgðarfulla embætti að vera framkvæmdastjóri Samfylkingar- innar væri réttara að hann kynnti sér betur hvað hans eigin flokks- menn hafast að áður en hann sting- ur niður penna og for- mælir öðrum stjórnmálaflokkum með þvílíkum hætti og hann gerir í umræddri grein. Samfylkingin sat í kjördeild í Hvera- gerði Framkvæmdastjór- anum til upplýsingar er rétt að það komi fram að við nýliðnar sveitarstjórnarkosn- ingar í Hveragerðisbæ sátu fulltrúar frá Sam- fylkingunni í kjördeild og skráðu samvisku- samlega hvaða Hvergerðingar greiddu atkvæði og hverjir ekki. Það er spurning hvort sami háttur hafi verið hafður á í fleiri sveit- arfélögum? Það væri réttara að framkvæmdastjórinn kannaði framkvæmd kosningabaráttu í sín- um eigin ranni áður en hann geysist fram á ritvöllinn með því- líkum yfirlýsingum og áðurnefnd grein er uppfull af. Af pólitík persónunjósnanna! Aldís Hafsteinsdóttir Pólitík Það væri réttara að framkvæmdastjórinn, segir Aldís Hafsteinsdóttir, kannaði framkvæmd kosningabaráttu í sínum eigin ranni. Höfundur er oddviti sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn Hveragerðis- bæjar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.