Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 32
MINNINGAR
32 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Með Þórði í Odda,
eins og hann hét í Ög-
urvíkinni, er mikill öð-
lingur genginn fyrir
ætternisstapann. Einn-
ig fer þar síðasti Ögur-
víkingurinn og verðug-
ur fulltrúi þess fagra mannlífs sem
þar var lifað á fyrri hluta síðustu ald-
ar.
Þórður í Odda var fæddur og upp-
alinn á Strandseljum í Strandselja-
vík, sem er næsta vík innan við Ög-
urvík við Djúp. Hann var af miklu
kjarnafólki kominn og kippti sjálfur
rækilega í kynið. Hann var einn af
prýðilegustu mönnum, sem Djúp hef-
ir alið, og fremstur meðal jafningja í
því mikla mannvali, sem þá var um
þær slóðir, en nú er um götur gengið.
Leið Þórðar lá til sjávar á ung-
lingsárum hans og lengi síðan. Um
fermingaraldur gerðist hann háseti á
báti föður síns, Þorskinum, en honum
stýrði þá Helgi Guðmundsson,
kenndur við Unaðsdal á Snæfjalla-
strönd, og síðar gekk að eiga Guð-
rúnu, systur Þórðar. Að dómi föður
þess, sem þetta ritar, var Helgi einn
slyngasti siglingamaður við Djúp á
þeim tíma. Þótti að vísu glannafeng-
inn á stundum, en aldrei kátari en
þegar mest sauð á keipum.
Átján ára gamall tók Þórður við
formennsku á Ásu, skipi Hermanns
Björnssonar í Ögurnesi. Sjálfs sín í
útgerð varð Þórður um 25 ára aldur
og æ síðan meðan hann dvaldi í Ög-
urvík, eða til árs 1944. Lengst af sótti
hann sjóinn á báti sínum Sleipni, sem
smíðaður var af hinum þekkta báta-
smið Fali Falssyni í Bolungarvík.
Hlekktist Þórði aldrei á enda afar
fyrirhyggjusamur og þekkti Djúpið
eins og lófann á sér og veðrabrigði
þess.
Í júní 1943 brann húsið í Odda til
kaldra kola á örskotsstundu. Flutti
Þórður þá til Ísafjarðar árið eftir með
ÞÓRÐUR
ÓLAFSSON
✝ Þórður Ólafssonfæddist á Strand-
seljum 5. október
1902. Hann lést á
Hrafnistu, DAS í
Hafnarfirði, 20. júní
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Garðakirkju 2. júlí.
fjölskyldu sína. Voru þá
raunar taldir dagar
þeirra sem sjósókn
stunduðu í Ögurvík því
einskipa réð Hermann
á Barði ekki við flutning
afla til Ísafjarðar eða
Súðavíkur og aðdrætti,
en fiskverslun lagðist af
í Ögurvík í stríðsbyrj-
un, þegar fiskmóttöku-
skip hófu kaup á sjáv-
arfangi og fluttu ísað og
óunnið á markað á
Bretlandi, enda salt-
fiskmarkaðir þá lokað-
ir.
Á Ísafirði hafði Þórður stuttan
stanz og fluttist búferlum til Reykja-
víkur 1947. Var þá lokið sjómennsku
hans. Gerðist hann iðnverkamaður
lengst af þar til hann hætti störfum
fyrir aldurs sakir.
Þórður var um sína daga afburða
heilsuhraustur. Trúlega aldrei mis-
dægurt unz elli kerling kom honum
af fótum á tíræðisaldri. Hann var
jafnlyndur og glaðlyndur en skap-
maður mikill þótt vel með færi.
Harðsnúinn dugnaðarforkur og lét
sér ekkert fyrir brjósti brenna.
Þórður var tæpur meðalmaður á
hæð, en mjög þrekinn kraftamaður,
enda kominn undan árinni frá
bernskudögum. Hann var góðviljað-
ur mannasættir og höfðingi heim að
sækja og þau hjón bæði, Kristín og
hann. Stína og Þórður í Odda voru
eitt í huga þeirra sem til þeirra
þekktu frá bernskudögum sínum.
Kristín var glaðlynd afbragðsmann-
eskja og mikið jafnræði með þeim
hjónum.
Þegar þeim, sem hér heldur á
penna, verður hugsað til æsku sinnar
í Ögurvík skipa Þórður og Stína í
Odda æðsta sess næst á eftir foreldr-
um hans, Salóme og Hermanni á
Svalbarði. Samgangur milli bæjanna
var mikill og bar aldrei skugga á
samskipti nágrannanna. Agi með
góðvild var heimilisbragur í Odda. Er
greinarhöfundi minnisstætt þegar
sló í brýnu milli unglinga á loftinu í
Odda, þar sem Þórður var að setja
upp lóðir á skarsúðinni. Þegar við lá
að keyrði um þverbak sagði Þórður
stillilega: Látið ykkur falla börn. Og
allt datt þegar í stað í dúnalogn.
Þórður var æðrulaus svo af bar, á
hverju sem gekk. Tvisvar varð sá,
sem hér heldur á penna, vitni að still-
ingu hans. Í fyrra sinni er við borð lá
að bát hans ræki upp í Innri-Klamp-
irnar rétt utan við Óbótatangann í of-
viðri og miklum öldugangi. Og ekki
haggaðist hann að heldur er heimili
hans í Odda brann til ösku.
Í minningunni ríkir mikil heiðríkja
yfir mannlífi í Ögurvík. Þar er gott að
hafa alizt upp undir handarjaðri
hjónanna í Odda, að segja má, því svo
náinn var skrifari því heimili öll
æskuárin og einkavinur Helga, sonar
þeirra.
Þeim, sem varð þeirrar gæfu að-
njótandi að hafa kynnzt manni á borð
við Þórð í Odda og eignast hann að
fóstra og vini, er þakklæti efst í huga
er leiðir skilja. Fyrir þakklætinu
hlýtur söknuðurinn að víkja enda var
vinurinn saddur lífdaga nær aldar-
gamall. Hann naut ágætrar umönn-
unar á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar,
sem ávallt fyrr, var hann ánægður
með hlutskipti sitt og lagði öllum,
sem um hann sinntu, hið bezta orð, en
kvartaði aldrei.
Þær verða ekki fleiri ferðir okkar
Helga, sonar hans, á Þorláksmessu
að heilsa upp á gömlu kempuna. Allt
hefir sinn endi, en minningin um af-
bragðshjónin í Odda, Þórð og Stínu,
mun ekki fyrnast né fölna þótt langt
um líði.
Ættmennin frá Svalbarði í Ögur-
vík senda fólkinu frá Odda dýpstu
samúðarkveðjur með þökk fyrir liðna
tíð.
Sverrir Hermannsson.
Þórður móðurbróðir minn var nær
jafngamall öldinni, fæddur 1902.
Hann fæddist á Strandseljum í Ög-
urhreppi. Þar bjuggu þá foreldrar
hans, Guðríður Hafliðadóttir og Ólaf-
ur Þórðarson. Strandsel var ekki stór
jörð. Amma og afi hófu þar búskap
árið 1899 en höfðu áður búið tvö ár á
Hjöllum. Þegar amma tók við búr-
lyklunum úr hendi Halldóru, konu
Baldvins Jónssonar (en þau voru for-
eldrar Jóns Baldvinssonar), sagði
hún: „Það ætla ég að vona, Guðríður
mín, að búskaparár þín hér á Strand-
seljum verði færri en mín.“ En hún
bjó þar í 15 ár. Amma bjó þar nú samt
í 45 ár, en afi dó 1933.
Afa mínum og ömmu búnaðist
samt vel á Strandseljum. Þar var
ætíð matur í búri og fiskur í hjalli. Og
ekki þurftu gestir og gangandi að
kvarta yfir móttökunum, en margir
komu við á Strandseljum sem leið
áttu inn Djúp úr Ögri eða þá út í Ög-
ur. Börnin urðu sjö, sem upp komust.
Þórður var sá þriðji í systkinaröðinni.
Hann þótti þegar á unga aldri rösk-
leikamaður til allra verka, bæði til
sjós og lands. Faðir hans reri til fiskj-
ar og var fyrsti bóndinn við Djúp,
sem setti vél í bát. Það var árið 1906.
Það var vor í lofti í Djúpinu á þeim
árum og unga fólkið leit bjartsýnt til
framtíðar. Guðrún, systir Þórðar, hóf
búskap með manni sínum, Helga
Guðmundssyni í Unaðsdal. Bróðir
Þórðar, Hafliði, fór á Hvanneyri og
bjó að Garðsstöðum. Þórður var og
vart kominn á þrítugsaldur, þegar
hann hafðí eignast bát og hóf að gera
út úr Ögurvíkinni. Hann kvæntist
Kristínu Helgadóttur frá Skarði og
þau reistu sér hús í Ögurvík, er hann
nefndi Odda.
Brátt kom að því, að hann sótti sjó
á eigin trillu, og var hann þá í náinni
samvinnu við Hermann Her-
mannsson, sem einnig reisti sér hús
(Svalbarð) skammt frá Odda og gerði
út trillu þaðan. Þeir Þórður og Her-
mann verkuðu fiskinn heima, og
skiptust svo á að fara með hann út á
Ísafjörð. Þótt siglingin sé ekki löng
úr Ögurvíkinni út í Skutulsfjörð get-
ur oft verið þar veðrasamt, einkum á
vetrum. En Þórður stýrði trillu sinni
ætíð heilli í höfn. Flestum mönnum
kunni hann betur að stýra báti, þótt
aldan svarraði við bóg og borðstokk.
En þessu tímabili í ævi Þórðar
lauk, er húsið í Odda brann 1943.
Leið hans og fjölskyldu hans lá út á
Ísafjörð. Eftir stríðið var engin leið
til baka.
Trillubátaútgerð lagðist niður í
Djúpinu. Frá útgerðarstöðunum við
Djúp voru gerðir út æ stærri bátar og
loks togarar. Eftir að hafa sótt sjóinn
á bátum frá Ísafirði lá leið Þórðar
suður. Þar var ætíð jafngott að koma
til þeirra Þórðar og Kristínar, því að
þau reistu sér skála um þjóðbraut
þvera, fyrst við Grettisgötu og síðan
við Njálsgötu. Börnum og unglingum
leið vel í návist þeirra. Viðmót Krist-
ínar einkenndist af hljóðlátum skiln-
ingi, en Þórður ræddi öll mál af ein-
urð og hreinskilni. Oft átti ég
innhlaup hjá þeim og ætíð var mér
jafnvel tekið, jafnvel þótt dvölin
teygðist eitthvað í tímann, og hef ég
aldrei getað þakkað það nógsamlega.
Það hefur ætíð verið mér uppörvun
að hugsa til Þórðar frænda míns og
konu hans, Kristínar.
Nú hefur Þórður frændi minn
kvatt okkur að liðinni langri ævi.
Blessuð sé minning hans.
Arnór Hannibalsson.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
#
7
2-8-99 : 5 *#$;
+*
*
++ &
!
010
2 " ( <
+" ( <
'<( ( <
3 5< " ( < ,
'
(
12. 9.. &./9
& * + 0"=>
." +
*
#!
10
- ! "
2#
!
/00
&' ( 6 60 1 !
&" !&' ! 2
*" 2
& &' ! ( 60 & !
( "&' !
' ?! + ,
..& .8-99 "! 0";
7 ' #
* 3
"
4
$
+
- !
&
5
*#" : 5 !" ) ! - '" (
.1 *) ! * 2&
"#'"@ !
6 60 6 6 60 ,
) (
'
8 ..
' <7 ' #
5
<: " 0 "%A
" #
3
"
6
$
+
3#
"!
2426 ! ,
7
/. 8-99
"
'
10
!
5
( '" 25
25 & !* & # !
6 60 0"60
0"6 ,
) (
. 39-.
' </ 5 "
) '4 B%
+*
* 8
&
'
&!
. * ! ,
. 2-
66!
0 "C
*
8
++ &
9"
&
& !
00
%
&
"
' "
"#
.
''
*
3#
"! !#
*#" "#5 ,