Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 03.07.2002, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞEIR Íslendingar eru til sem skrifa talsvert í blöð um kosti þess að Ís- land gangi í Evrópusambandið. Um- ræðan á að sjálfsögðu að vera frjáls í þessum efnum, en eitt er það þó sem mér þykir sérstaklega ógeðfellt við skrif sumra þessara manna. Það hefur nefnilega komið nokkuð oft í ljós, að þeir eru sumir hverjir á mála hjá Evrópusambandinu. Það er ekki hægt að kalla það öðru nafni. Þeir starfa á vegum sambandsins og tala máli þess, en rita samt greinar eins og þeir séu að tala fyrir íslenskum hagsmunum í þessum efnum. Oft hefur mér blöskrað þessi fram- ganga, sem mér þykir tvöföld í meira lagi. Ég get tekið eitt dæmi. Síðastliðið haust birtist stór grein í Mbl. undir fyrirsögninni „Skundum til Brussel og treystum vor heit“. Öll var greinin merkt venjulegum áróðri Evrópusambandssinna, að Ísland væri að missa af hamingju- lestinni og við yrðum að fara að drífa okkur inn á kærleiksheimilið stóra. Undir greininni stóð svo, að höfundur væri starfsmaður hjá framkvæmdastjórn ESB í Brussel, en greinina mætti samt ekki túlka sem opinbert álit framkvæmda- stjórnarinnar! Það má vel vera að greinin hafi ekki túlkað það álit beinlínis, en höf- undur hennar hefur samt mjög lík- lega skrifað sig upp í meiri náð hjá yfirboðurum sínum með henni. Hann er varla metinn minna við hirðina í Brussel eftir að hafa gefið þennan vitnisburð um þjónustulund við miðstjórnarvaldið þar. Og ef til vill er pennaleikurinn ekki síst til þess gerður að vinna sig í álit þar. Skoðun fyrirsögn greinarinnar aðeins betur. Í einu ættjarðar- og sjálfstæðisljóði okkar segir: „Skundum á Þingvöll og treystum vor heit“. Þaðan er fyrirsögnin tekin en Brussel er sett í stað Þingvalla. Hverskonar hugsun er það hjá ís- lenskum manni, sem þykist jafnvel tala fyrir íslenska þjóðarhagsmuni, að vitna í íslenskt ættjarðarljóð með þessum hætti! Ég fæ ekki séð að sú hugsun sé sérlega íslensk. En hins- vegar er trúlega sá sannleikur í fyr- irsögn þessari, að íslenskir Evrópu- sambandssinnar séu með Brussel innra með sér nákvæmlega þar sem aðrir Íslendingar eru með Þingvöll. Það er að segja í hjartastað. Sagan segir okkur hvað gerðist þegar ís- lenskir hirðmenn Noregskonungs hlýddu lénsdrottni sínum á kostnað lands og þjóðar. Nú virðist svipuð staða uppi þar sem nýir hirðmenn ganga um og vilja að þjóðin treysti einhver heit í Brussel. Hverskonar heit skyldu það eiga að vera? Spyrji hver sjálfan sig að því! Gætum okkar á öllum sem koma fram sem þjónustumenn erlends valds. Slíkir menn hafa aldrei orðið Íslands hamingju til framdráttar. RÚNAR KRISTJÁNSSON, Bogabraut 21, Skagaströnd. Hirðmenn Evrópusambandsins Frá Rúnari Kristjánssyni: NÝLEGA birtist í Morgunblaðinu fréttatilkynning frá Geðlæknafélagi Íslands þar sem kvartað var yfir niðurskurði á fjárveitingum til geð- heilbrigðismála. Þar segir m.a. að staðreyndin sé „sú að á sl. 5 árum hefur rúmum á móttökudeildum geðsviðs fækkað úr 85 í 57,“ og að þetta sé afleiðing niðurskurðar á geðsviði sem nemur „nær 300 millj- ónum frá árinu 1998“. Þetta eru slá- andi tölur, ekki síst í ljósi þess að fólk sem þjáist af geðsjúkdómum er venjulega ekki í aðstöðu til þess að hafa áhrif á svona ákvarðanir auk þess sem enn ríkja miklir fordómar í samfélaginu gegn slíkum sjúkdóm- um. Ef eitthvað er að marka tölur frá Bretlandi þá eru geðsjúklingar þeir fyrstu sem fórnað er á altari niðurskurðar í ríkisfjármálum. Ég hef þurft að kljást við þung- lyndi síðan um 1990. Árið 1988 starf- aði ég fyrir Rauða kross Íslands í Eþíópíu en varð fyrir því óláni að veikjast illa og í kjölfar þess fylgdi þunglyndi sem ég þjáist enn af. Þetta hefur valdið gríðarlegri rösk- un á lífi mínu og hef ég misst töluna á fjölda þeirra ára sem ég hef bók- staflega misst af. Fjölskyldan mín hefur líka gengið í gegnum miklar hremmingar sökum veikinda minna enda er mjög erfitt að þurfa að lifa með einstaklingi sem svo mánuðum eða árum skiptir talar ekki um ann- að en að hann langi að deyja. Ástæða þess að ég fjalla á opin- berum vettvangi um þetta erfiða mál er sú að ég hef verið slæmur af þunglyndinu upp á síðkastið. Er nú svo komið hjá mér að allir í kringum mig hafa miklar áhyggjur af mér. Reynt var að koma mér á spítala að- faranótt laugardagsins 29. júní. Það gekk hins vegar ekki því ekki er hægt að taka á móti sjúklingum nema milli 13 og 21 um helgar. Þetta er auðvitað forkastanlegt. Þeir sem þjást af öðrum sjúkdómum þurfa ekki að sæta þessum afarkostum sem lýsa annaðhvort miklum inn- byggðum fordómum gegn geðsjúk- dómum hjá ríkisvaldinu eða hrylli- legri fáfræði. Þetta ástand gæti versnað á næstunni því Landspít- alinn hefur farið langt fram úr áætl- un og þarf að skera enn frekar nið- ur. Það er gríðarlega erfitt fyrir mig að skrifa þetta en ég veit hins vegar að mikilvægt er að geta bent á ein- stakling til þess að vekja athygli á málefnum eins og þessu. Vona ég því að þessi hugvekja verði til þess að meira verði gert fyrir okkur sem eigum við geðsjúkdóma að stríða. STEINDÓR J. ERLINGSSON, vísindasagnfræðingur, Svarthömrum 9, 112 Reykjavík. Geðveiki leyfð milli 13–21 um helgar Frá Steindóri J. Erlingssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.